Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988. Iþróttir Ómar ekki löglegur fyrr en í 9. umferð? Olten gæti lent í aukaleikjum um fall gæli þá lent gegn liði Sævars Jónssonar Svo kann að fara að Ómar Torfa- son geti ekki byrjað að leika með Fram í 1. deildinni fyrr en í 9. um- ferð - gegn ÍA á Akranesi þann 11. júlí. Liö hans, Olten, er í þriðja neðsta sæti fallkeppninnar í svissnesku 2. deildinni, er með 8 stig en Baden er næstneðst með 7 stig. Komist Baden upp fyrir Olten þarf Olten að leika úrslitaleiki við næstneðsta lið í hinum riðli deildarinnar um áframhaldandi sæti í 2. deild, og þeim leikjum lýkur ekki fyrr en 5. júni. Þá yrði Ómar löglegur með Fram S. júlí og gæti væntanlega ieikið með liðinu í fyrstu umferö bikarkeppninnar um það leyti, en myndi missa af 1. deildar leikjum gegn Völsungi og Leiftri. Lendi Olten i næstneðsta sætinu eru miklar líkur á að Ómar mæti félaga sínum úr íslenska landslið- inu, Sævari Jónssyni, í úrslitaleikj- unum um fallið. Solothum, lið Sævars, er næstneðst í hinum riðl- inum og er tveimur stigum á eftir næsta liði þegar tveimur umferð- um er ólokið. Nái Olten að forðast næstneðsta sætið er Ómar löglegur með Fram 24. júní og getur þá leikið gegn Völsungi í 7. umferö. -VS • Grétar Jónasson. Grétar í Volsung Grétar Jónasson, sóknarmaður úr Fram, hefur ákveðið að ganga á ný til liðs við Völsunga á Húsa- vik og leika með þeim í 1. deild- inni í sumar. Grétar lék með Völsungum í 2. deildinni 1986 og hóf sl. sumar með þeim en hætti eftir nokkra leiki. Hann skipti yfir í Fram í vetur en er nú sem sagt á leið norður yfir heiðar á ný. -VS Leikið á Ólafsfirði Ólafsfirðingar leika sinn annan heimaleik í 1. deildar keppninni annað kvöld, gegn Valsmönnum, og hefst hann kl. 20. Upphaílega átti að leika í kvöld á Hlíðarenda, en hann verður ekki nothæfur fyrr en um mánaðamót, gervi- grasið var upptekið og niðurstað- an varð því sú að leikjum liðanna var víxlað, þau leika í staðinn á Hlíðarenda í 11. umferðinni. Leik Víkings og KA í l. deild- inni, sem fram fer í Laugardaln- um á laugardaginn, hefur verið seinkað um klukkutíma. Hann hefst kl. 15 en ekki 14 eins og upphaflega var gert ráð fyrir. -VS Haukar og Bolungawík áfram í 4. deild: Ekkert lið tekur sæti ÍBÍ í 3. deild Stjórn KSÍ ákvað í gær að ekki yrði bætt við liði í SV-riðil 3. deildar- innar þó að ísfirðingar hefðu dregið sitt lið úr mótinu fyrir nokkrum dög- um. Bolvíkingar gerðu kröfu til þess að fá sæti þeirra sem næsta lið úr 4. deild, og Haukar, sem féllu úr 3. deildinni í fyrra, fóru fram á við stjórn KSÍ að þeir lékju aukaleik við Bolvíkinga um sætið. Samkvæmt heimildum DV er þessi afstaöa byggö á því að of stutt hafl verið þangað til íslandsmótið hæfist, en keppni í deildinni byrjar annað kvöld og stjórnin lítur þannig á að ísfirðingar séu tíunda lið riðilsins og falli á þann hátt í 4. deild. -VS Chelsea arram Gordon Durie var hetja Chelsea á Stamford Bridge í gærkvöldi þegar liðið sigraði Blackburn, 4-1, í auka- keppni um sæti í ensku 1. deildinni. Kerry Dixon og Kevin Wilson skor- uðu hin tvö mörk Lundúnaliðsins. Chelsea mætir Middlesbro í hreinum úrslitaleikjum um hvort liðið leikur í 1. deild á næsta keppnistímabih. Middlesbro vann Bradford, 2-0, með mörkum Bemie Slaven og Gary Hamilton. Það verða Walsall og Bristol City sem leika um lausa sætið í 2. deild en Torquay og Swansea bítast um 3. • Kerry Dixon skoraði eitt marka deildar sæti. -RR Chelsea i gærkvöldi. Norska knattspyman: Loksins vann Bvann Brann frá Bergen vann loks leik í norsku knattspyrnunni í gærkvöldi - sigraöi þá 4. deildar liðið Voss, 3-0, í bikarkeppninni. Brann hefur tapað fyrstu fjórum leikjum sínum í 1. deildinni og Teitur Þórðarson, þjálf- ari liðsins, er undir mikilli pressu í norskum Qölmiðlum af þeim sökum - margir gera því skóna að hann missti starfið innan tíðar ef honum tekst ekki að koma liðinu á réttan kjöl. Gunnar Gíslason og félagar í meist- araliði Moss unnu einnig öruggan bikarsigur í gærkvöldi, 5-0, gegn Hofslund. -VS • Jose Gallart, leikmaður með Espanol, stekkur yfir Wolfgang Rolff frá Leverkusi hins vegar Rolff og félagar sem löbbuðu yfir Espanol í seinni hálfleiknum, skoru fyrsta stóra titil. Frækileg frammistaða Bayer Leverkuse Gott forskot verja fór fyri - Leverkusen vann, 3-0, og Espanol fór á Sigurður Bjömsson, DV, V-ÞýskalaiÆ ar Úrslitin voru ráöin' Hann er 53 ara -------;------------- og var ákveðinn í að hætta störfum eftir Gífurleg fagnaðarlæti brutust út í Le- þetta keppnistímabil. verkusen í gærkvöldi þegar heimaliðiö, Bayer Leverkusen, varð UEFA-meistari ..Uppselt var á Ulrich-Haberland, leik- eftir frækinn sigur á spænska félaginu yang Leverkusen, í fyrsta skipti í sögu Espanol. Spánverjarnir höfðu unnið félagsins en hann rúmar 25 þúsund fyrri leikinn, 3-0, og virtust með pál- áhorfendur. Leverkusen sótti stíft í fyrri mann í höndunum og þeir héldu marka- hálfleik en fékk fá umtalsverð færi. Á lausum leik í gærkvöldi þar til 57 mínút- 16. mínútu gerðist umdeilt atvik. Tita, ur voru liðnar. Þá hrundi allt, Leverkus- sóknarmaður Leverkusen, náði boltan- en skoraöi þrisvar og sigraði síðan í víta- um af NKono, markverði Espanol, þegar spymukeppni. Fyrsti stóri titill félagsins hann ætlaði að spyrna frá marki, skall- og sömuleiðis hjá hinum virta þjálfara aði þegar markvörðurinn henti boltan- þess, Eric Ribbeck, sem brast í grát þeg- um upp í loftið, náði honum og skoraði. Gunnlaugur vann besta afrekið Gunnlaugur Grettisson vann besta afrekið á Vormóti ÍR í frjálsum íþróttum á Valbjarnarvelli i gær- kvöldi með því aö stökka 2,08 m í hástökki. Gunnlaugur fékk að laun- um forkunnarfagran bikar frá íspor til varðveislu í eitt ár. Af öðmm úrslitum má nefna að Sigurður Þorleifsson, HSK, sigraöi í langstökki, stökk 6,95 m, Guðmund- ur Karlsson, FH, sigraði í sleggju- kasti, kastaði 58,54 m. Birgitta Guö- jónsdóttir, HSK, sigraði í spjótkasti, kastaði 42,92 m og í kringlukasti sigr- aði Margrét Óskarsdóttir, ÍR, kastaði 40,60 metra. • Pétur Guðmundsson, HSK, keppti ekki í kúluvarpi vegna meiðsla en Andrés Guömundsson, félagi hans, sigraði meö 14,30 m kasti. -JKS Þjálfari Evrópumeístaranna teklnn víð íslensku landsliðunum: John Garner ráðinn til GSÍ John Gamer, 41 árs Englendingur, Gamer er fyrrverandi atvinnumað- er komið. er tekinn við sem landsliðsþjálfari ís- ur og þjálfaði í fyrra landslið íra sem Jóhann hefur valiö þtjá keppendur lands í goffi og hóf störf á þriðjudag- varð Evrópumeistari áhugamanna. fyrir Evrópumót einstaklinga sem inn. Hann þjálfar öll landslið karla og Hann mátti þó ekki stjórna liöinu í fram fer í Hamborg 9.-12. júní. Það em kvenna, en Jóhann Benediktsson hef- sjálfrikeppninni,ensáumallanundir- Úlfar Jónsson, GK, Sigurður Péturs- ur hins vegar tekið við embætti iands- búninginn, og starf hans hér á landi son, GR, og Hannes Eyvindsson, GR, liðseinvalds karla og kvenna og Hann- verður svipað. Hann býr liðin undir en Hannes var valinn í stað Ragnars es Þorsteinsson verður einvaldur keppnienþeir Jóhann og Hannes veija Ólafssonar, GR, sem boöaði forfóll í unglingalandshðsins. þau og stjóma þeim þegar á hólminn gær. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.