Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Page 36
36
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988.
Lífsstm
á milli augnanna, er ráðlagt að
nota ljósa liti í augnakrókana en
dekkja litinn eftir því sem íjær
dregur. Aðferðinni er snúiö við fyr-
ir þær konur sem hafa langt á milli
augnanna. Mattir litir, bæði í augn-
skuggum og farða, eru taldir heppi-
legri fyrir eldri konur en glansandi
litir. Litaval á augnskuggum er
mjög frjálst í dag og einskorðast
ekki lengur við augnlit. Litavalið
fer eftir lit fatnaðar og geta flestar
konur notað hvaða lit sem er.
Kjnnalitur í hófi
íslenskar konur hafa flestar há
kinnbein og þurfa því kinnalit í
hófi. Litsterkir kinnalitir eru held-
ur ekki í tísku í dag og er kinnalit-
urinn notaður til að setja skugga á
andlitið, grenna það og draga kinn-
beinin fram. Setjið hann undir
kinnbeinið og dragið úr honum út
í hársvörðinn. Margar konur nota
kinnaht á enni og gagnaugu til að
skyggja andlitið enn betur. Þaö er
gott ráð fyrir þær konur sem hafa
hátt enni að setja kinnalit við hár-
svörðinn og á mitt ennið og draga
vel úr honum. Slíkt gerir það að
verkum að ennið sýnist lægra.
Bleikar varir
Varalitur tekur miklum breyt-
ingum frá ári til árs. Fyrir nokkr-
um árum voru ljósir varahtir í
tísku og í fyrra notuðu margar kon-
ur mjög dökka hti. í ár, með auk-
inni áherslu á náttúrulegt útlit, eru
mildir pastellitir í tísku á daginn
en sterkari htir á kvöldin.
Varalitablýantur komst í tísku
fyrir nokkrum árum og er nú tal-
inn ómissandi. Það er smekksatriði
hvort valinn er blýantur í sama lit
og varaliturinn eða þá einum til
tveimur tónum dekkri. Notið blý-
antinn til að teikna útlínur var-
anna. Notið síðan varalitapensil til
að bera varalitinn á. Pensill er
þægilegur í notkun og gefur fal-
legri og jafnari áferð. Hann gerir
það einnig að verkum að betra er
að komast að boganum á efri vör.
Förðun hefur tekið miklum
breytingum í áranna rás. í dag er
áherslan lögð á náttúrulegt og eöh-
legt útlit og htirnir eru hinir svo-
kölluðu jarðarlitir. Snyrting á and-
liti konu sést minna en áöur var
og er vel snyrt kona í dag lítið
snyrt.
-StB
Margar konur gleyma hálsinum,
augabrúnunum og hárlínunni þeg-
ar farðinn er borinn á og myndast
greinileg og skörp skil þar sem
farðinn endar. Berið farðann þunnt
á, sérstaklega á þetta við um roskn-
ar konur því þykkt lag af farða
dregur fram allar hnur í andlitinu.
Til að hylja bauga og lýti í andlit-
inu er gott ráð aö nota lýtafela.
Lýtafelar fást í nokkrum gerðum,
í fóstu eða í fljótandi formi. Hvora
tegundina nota skal er smekks-
atriði og hvað hverjum og einum
fmnst þægilegast. Að sögn Heiödís-
ar er meiri hætta á að lýtafelir í
fóstu formi undir farða dreifist út
þegar farðinn er borinn á. Þvi er
þægilegra að nota lýtafela í fljót-
andi formi yfir farðann.
Til að koma í veg fyrir glans í
andhti eftir aö farðinn er borinn á
er gott ráð að nota púður. Burstiö
púðrið niður á við til að losna við
aukapúöur úr andhtshárunum.
Augun, spegill sálarinnar
Augnförðunin fer eftir augnum-
gjörðinni. Hvort konur nota augn-
skugga að degi til er aö sjálfsögðu
smekksatriði en eins og tískan er í
dag er æ sjaldgæfara aö slíkt sé
notað.
Dagfórðun einskorðast yfirleitt
við litaöan blýant og maskara.
Svört strik í kringum augun gera
það að verkum að þau virðast
minni. Notið því ljósari liti og drag-
ið strik í kringum útlínur augn-
anna en ekki ofan í augnakrókana.
Sumar konur mála eingöngu
fremst á augnhárin en það gefur
þeim meiri fyhingu að mála þau
öh. Til að koma í veg fyrir að augn-
hárin festist hvert við annað er ráð
að hafa minna í burstanum og nota
ræmi við fatnað
í sumar eru pastellitir í tísku í
förðun sem og klæðnaði en að sögn
Heiðdísar Steinsdóttur snyrtisér-
fræðings velja flestar konur förö-
unarhti í samræmi við litinn á föt-
unum sem þær klæðast. „Margar
konur hafa fundið sinn eigin fata-
stíl, ákveðna hti sem fara þeim vel
og þeim líður vel í. Besta ráðiö er
að velja liti til forðunar í samræmi
við það.“
Val á farða
Eitt mikilvægasta atriðiö þegar
konur farða sig, að sögn Heiödísar,
er að andlit sé laust við öll óhrein-
indi og áður en htað krem, þ.e.
fleiri umferðir. Greiðið svo í gegn-
um augnhárin með augnhára-
bursta til að losa betur um þau.
Hægt er að nýta sér augnskugga
til að breyta augnumgjörðinni til
hins betra. Konum, sem hafa stutt
Hægt er að draga úr ferköntuðum
kjálka með réttri notkun kinnalit-
ar. Setjið kinnaht á hálsinn fyrir
neðan kjálkann og dragið úr hon-
um.
Kinnalitur er notaður til að
mynda skugga á andlitið.
í ár eru mildir litir í tísku
og minna ber á kinnalit en
oft áður.
Ungar stúlkur þurfa sjaldan á mikilli
málningu að halda. Þessi stúlka er
förðuð léttri dagförðun. Áherslan er
lögð á augun, blár blýantur og
maskari. Á varirnar er notað litað
gloss.
Tískan
make, er boriö á andhtið er nauö-
synlegt að bera þunnt lag af raka-
kremi á andlit og háls.
Val á farða fer eftir húðlit hvers
og eins. Fyrir ungar stúlkur meö
gallalausa húð er farði í flestum
tilfehum ónauðsynlegur, ekki síst
þar sem áherslan í dag er á nátt-
úrulegt útht. Á sumrin minnkar
einnig þörfm fyrir farða þar sem
húðin fær á sig þennan eftirsótta
brúna ht.
Fyrir þær sem nota farða er rétt
að hafa í huga að farði er notaöur
tU að fela lýti á húðinni, ekki til að
konur líti út fyrir að vera brúnar
og útiteknar. Val á farða á því að
vera sem líkastur eðhlegum lit
húðarinnar. Farði kemur í þremur
mismunandi litatónum, brons,
gráum og bleikum.
Förðun fyrir vor og sumar:
Litaval í sam-