Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Síða 9
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
9
kynntist hugmyndum Manngildis-
hreyfingarinnar þá langaði mig að
koma þeim á framfæri innan Sjálf-
stæðisflokksins, þrátt fyrir að það
væri ofboðsleg bjartsýni. Ég taiaði
um frelsi einstaklingsins og sjálf-
stæði þjóöarinnar og þar með fór ég
að vera virk. Ég var varabæjarfull-
trúi í Vestmannaeyjum, í atvinnu-
málanefnd Sambands sunnlenskra
sveitarfélaga á tímabili og í stjóm
Landssambands sjálfstæðiskvenna.
Gaf kost á mér til varaformanns
flokksins móti Friðrik Sophussyni.
Ég gerði allt þetta til að koma á fram-
færi manngildis- og friðarhugmynd-
um sem ég hafði kynnst. Þetta rann
nú ekki eins og smjör á pönnu hjá
Sjálfstæðisflokknum svo að ég sá að
betra væri að slíta sér ekki út þar
og var þess vegna með í að stofna
Flokk mannsins. Þar hef ég alltaf
verið mjög virk og starfaði mikið í
bæjarstjómarkosningum 1986 en var
ekki í framboöi þá. Ég var í framboði
fyrir flokkinn í síðustu alþingiskosn-
ingum. Þetta er sjálfsagt allt ágætt
en það sem ég tel mikilvægast í fram-
boði mínu núna er reynsla mín með
manngildishreyfmgunni. Ég hef
byggt upp hreyfinguna bæði hér
heima og erlendis og í því starfi hef
ég haft gríðarlega mikil samskipti við
fólk. Við fómm til Bretlands og höf-
um verið að byggja upp hreyfinguna
í fjórum borgum þar.“
- Hvað með fjölskyldu þína?
„Ég er gift og þriggja barna móöir.
Börnin eru 12 ára, 17 og 21 árs. Ég á
góðan mann sem styður mig í hverju
sem ég tek mér fyrir hendur og böm-
in eru einnig stuðningsmenn mínir.“
- Sérðu fyrir þér mikla kosninga-
baráttu framundan?
„Nei, alls ekki. Við höfum skipulagt
feröir um landið og byrium í Vest-
mannaeyjum næsta fimmtudag. Síð-
an fórum viö á helstu staði um allt
land og hér í Reykjavík. Það verða
vinnustaðafundir þar sem ég mun
skýra fyrir fólki hvað forsetaembætt-
ið býður upp á. Mér finnst að þaö
vanti sterkan málsvara fyrir hag
hins almenna manns sem býr á
landinu og ég sé möguleika á að for-
seti geti virkað sem slíkur. Ég vil
vekja fólk til umhugsunar um þenn-
an möguleika."
- Trúir þú því að þegar í embættið
sé komið hafir þú tíma til að standa
í vináttu við litla manninn?
„Mitt aðalstarf yrði að sinna mann-
réttindum og huga að daglegri af-
komu fólks. Ég myndi hafa tíma til
þess. Auðvitað myndi ég leita ráða
hjá fólki sem hefur góða innsýn í
hlutina og fá, áður en ég skrifa undir
forsetaeið, útskýringar á því hvað er
á ferðinni.“
- Gerir þú þér grein fyrir í hveiju
starfið felst?
„Já, það geri ég. Það gæti vel verið
að ég yrði minna á ferðinni í sam-
bandi við alls kyns veisluhöld og
opnanir. Ég yrði auðvitað að sinna
því sem mikilvægast væri hveriu
sinni og raða málum upp í forgangs-
röð.“
- Er það ekki nákvæmlega það sem
gert er í dag?
„Miðað við þann skilning sem er á
forsetaembættinu eins og það er. Ég
hef annan skilning á því. Forgangs-
röðin mun breytast hjá mér.“
- Getur þú lýst því betur hverju þú
munir breyta?
„Ég mundi ekki skrifa undir neitt
sem ég teldi að myndi skerða daglega
afkomu fólks. “
- En undirskrift laga er aðeins eitt
brot af starfi forseta. Hvað með önn-
ur störf?
„Ég myndi sinna þeim hka.“
- Er hugmynd þín til forsetastarfsins
þá eingöngu miðuð við breytingar í
sambandi við undirskriftir á lögum?
„Það má kannski skera eitthvað af
öðru niður líka. Ég er ekki alveg með
það nákvæmt hvað ég mun gera.“
- Mundir þú búa á Bessastöðum?
„Það er alveg inni í myndinni. Ég
myndi alltaf leggja áherslu á aðalat-
riöin á hverjum tíma. Það er til dæm-
is ekki aðalatriði hjá mér hvort ég
mundi búa á Bessastöðum. Mér
finnst það ágætt húsnæði og held að
það henti vel.“
- Hvaða skoðun hefur þú á orðuveit-
ingum?
„Mér finnast þær allt í lagi. Yfir-
leitt er það eldra fólk sem fær orðu
fyrir vel unnin störf og ég reikna
með að það fólk hafi ánægju af því.
Það er ekkert aðalatriði í mínum
huga.“
- Væri ekki betra fyrir þig að berjast
í pólitík en á þessu sviði?
„Ég lít á þetta starf sem pólitískt
starf. Ég lít á það sem pólitík að
skrifa undir lög.“
- Samkvæmt hefðum er forsetaemb-
ættinu haldið utan við pólitik og for-
seti kýs ekki til þingkosninga. Getum
við kallað embættið pólitískt?
„Já, forseti getur sinnt ýmsum sið-
gæðismálum þannig að maður komi
ekki öðrum í þá aðstöðu sem maður
vill ekki vera í sjálfur. Á ég þar við
láglaunastefnu. Ég mun reyna á all-
an hátt að koma þannig fram að
koma ekki fólki í erfiða aðstöðu. Á
alþjóðavettvangi mundi ég vilja hafa
umboð þjóðarinnar til að tala sterk-
lega fyrir friði og gegn mannréttinda-
brotum ýmiss konar. Ég færi ekki í
heimsóknir til að ræða eingöngu við
æðstu menn heldur þjóöir þeirra. “
- Nú er Vigdís friðarsinni. Finnst þér
hún ekki nógu kröftug á þeim vett-
vangi?
„Mér finnst hún eigi að vera sterk-
ari á opinberum vettvangi og hrein-
lega skamma þessa menn. Ég held
að hægt sé að sinna slíkum málum
mjög vel í forsetaembættinu."
Sigrún segir að forsetaframboð
hafi aldrei hvarflað að henni áður
en hún var beðin um að gefa kost á
sér. „Mér fannst. sjálfsagt að verða
við þessari bón, lýðræðisleg mann-
réttindi. Þetta er ekki framboð gegn
Vigdísi - ekki framboð gegn neinum.
Þetta er miklu frekar gegn þessu
óréttláta og ofbeldisfulla kerfi. Fram-
boðið er miklu frekar fyrir framtíð-
ina, mannréttindum og friði."
- Áttu von á að sigra í þessum kosn-
ingum?
„Ég á von á því. Þegar fólk gerir
sér grein fyrir hvers konar framboð
þetta er þá er möguleiki á að stórir
hópar, t.d. ungt fólk, kjósi mig. Fólk
sem búið er að hneppa í skuldafjötra
fyrir framtíðina. Gamla fólkið sem
er á óréttlátlega lágum lífeyri og
húsbyggjendur sem þurfa að borga
háa vexti.“
- Heldur þú að þetta fólk muni trúa
því að ef það kysi þig myndu lífskjör-
in batna?
„Þar kreppir skórinn, því að fólk
hefur svo oft verið svikið. Það getur
treyst mér, ég mundi ekki svíkja það.
Ég vil að mér líði veí alveg eins og
ég vil að öðrum líði vel. Leiðin til
þess er að svíkja ekki fólk.“
- Segja þetta ekki allir stjórnmála-
menn?
„Það er alveg rétt að mikil tor-
tryggni er ríkjandi meðal fólks og
þess vegna er framboðið mjög mikil-
vægt til að lífga við þá von sem fólk
þarf að hafa og í sumum tilfellum
hefur misst. Þá meina ég trú sem
fólk á að hafa á stjómkerfinu og
stjórnmálamönnum. “
- Hvað tekur við núna eftir að þið
hafið skilað meðmælendalistum?
„Það eru fundahöldin sem taka
viö.“
- Verða listarnir samþykktir?
„Við höfum lagt okkur fram við að
hafa allt eins rétt og mögulegt er. Það
hefur hvarflað aö mér að allt verði
gert til að stöðva framboðið sem
væri mjög alvarlegt og andlýðræðis-
legt. Ég á samt von á að framboðið
verði samþykkt.“
- Kvíðir þú fyrir kosningabarátt-
unni?
„Ég hugsa ekki um hvort ég kvíði eða
ekki. Þetta er bara eitthvað sem ég
geri,“ sagði Sigrún Þorsteinsdóttur.
-ELA
VERÐUR HALDIÐ 23. MAÍ
(ANNAN í HVÍTASUNNU)
Á HVALEYRARVELLI
KEPPNISFYRIRKOMULAG:
Stableford punktakeppni
1. VERÐLAUN:
SLP-220 geislaspilari fráTechnics/Panasonic.
2. VERÐLAUN:
RX-FW17 ferðaútvarps- og kassettutæki frá
Panasönic.
3. VERÐLAUN:
MCE-89 1000 vatta ryksuga frá Panasonic.
AUKAVERÐLAUN:
Panasonic myndbandstæki NV-G21 fyrir að
fara holu í höggi á 17. braut.
Panasonic útvarps- og vekjaraklukka
fyrir að vera næstur holu á 11. og 17. braut.
Ræst verður út frá kl. 08.30 til 14.00.
Skrásetning og upplýsingar verða
í skálanum laugardag og sunnudag
til kl. 20.00. Sími 53360.
:
C>
JAPIS BRAUTARHOL Tl 2 — PANASONIC — GOLFKLÚBBURINN KEILIR —