Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Qupperneq 22
22
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
Breiðsíðan
Fjörutíu ár síðan íyrstu fóstrumar útskrifuðust:
„Þetta er óneitanlega
dálítíð sérstakt"
- segir Elín Torfadóttir fóstra sem á þrefalt
afmæli um þessar mundir
Átta fóstrur útskrifuðust úr
Fóstruskóla íslands vorið 1948 en þá
útskrifaði skólinn nemendur í fyrsta
skipti. Þessar átta fóstrur hafa allar
starfað við bamaheimili eða verið í
skyldum störfum síðan, eða í fjörutíu
ár. Ein þeirra hefur búið í Belgíu og
starfað á bókasafni fyrir börn. Hinar
sjö ákváðu aö halda upp á fjörutíu
ára afmæhð með viðeigandi hætti.
Þær voru allar viðstaddar útskrift
skólans í gær og dmkku kaffi með
nýju fóstrunum.
Líklegast finnst ungu fóstrunum
undarlegt að hugsa til þess að aðeins
átta fóstmr hafi útskrifast fyrir
fjörutíu árum því þær em svo sann-
arlega fleiri í ár og undanfarin ár.
Hins vegar þætti það undarlegt ef svo
margar fóstrur væru jafnlengi í starfl
hlutfallslega og þær sem útskrifuð-
ust fyrsta árið. „Eg held að það hljóti
að vera sérstakt,'' sagði Elín Torfa-
dóttir fóstra sem er ein þeirra fyrstu
sem útskrifuðust úr skólanum. Hún
sagði að þær stöllur ætluðu að halda
upp á afmælið með því að fara út að
borða eða gera eithvað skemmtilegt
eins og hún orðaði það. „En við ætl-
um ekki að færa skólanum neina gjöf
núna. Við höfum gert það svo oft,“
sagði hún.
Þess má geta að Elín Torfadóttir
heldur upp á þrefalt afmæli nú í vor.
Hún tók upp á því að fara í mennta-
skóla mörgum ámm eftir að hún
útskrifaðist sem fóstra og heldur því
upp á tíu ára stúdentsafmælið, auk
þess sem hún á fjörutíu ára brúð-
kaupsafmæli í júlí. Eiginmaður
hennar er Guðmundur J: Guð-
mundsson og er ekki aö efa að haldið
verður upp á þetta þrefalda afmæh
á þeim bæ áður en langt um líður.
Við óskum þeim hjónum og fóstrun-
um til hamingju með afmæhn.
-ELA
Fóstrurnar sjö sem útskrifuðust
saman fyrir fjörutíu árum og voru
þar með fyrstu fóstrurnar sem út-
skrifuðust hér á landi. Þær eru, talið
frá hægri: Elin Torfadóttir, Jóhanna
Pétursdóttir, Guðbjörg Magnúsdótt-
ir, Valgerður Kristjánsdóttir, Svava
Gunnlaugsdóttir, Ingibjörg Ingólfs-
dótir og Þórunn Einarsdóttir.
DV-mynd GVA
Þú ert 2000 krónum ríkari!
^Hér meö endurvekjum viö gamlan leik sem þótti skemmtilegur í Vísi á sínum tíma.
Á Breiðsíðunni 1 sumar birtast myndir af fólki og ge.ta þær verið teknar hvar sem
er, jafnt 1 Reykjavík sem úti á landi. Ein manneskja á þeirri mynd, sem birtist, hefur
hring um höfuð sitt og það táknar að hún sé tvö þúsund krónum ríkari. Peninganna
má vitja hér á DV, Þverholti 11.
Þessi mynd, sem hér birtist, er tekin nú 1 vikunni á gatnamótum Bankastrætis og
Lækjargötu. Maðurinn fyrir miðri mynd hafði ekki hugmynd um að verið var að
taka mynd, frekar en aðrir vegfarendur, þar sem hún er tekin með aðdráttarlinsu.
En heppnin var með honum í þetta skiptið - það fá ekki allir tvö þúsund krónur
fyrir það eitt að vera vegfarandi... DV-mynd GVA
VIÐEYJARFERÐER eru
sífellt að ná meiri vinsæld-
um og er búist við að marg-
ir muni heimsækja eyna i
sumar. Veitingarekstur í
Viöey er eftirsóttur biti en
við höfum heyrt að Bjarni
í Brauðbæ, eins og hann
er kaUaður, hafi fengið
leyfið. Má því búast við að
þess verði ekki langt að
bíða að hægt verði að fá sér
Brauðbæjarsamloku með
hangikjöti í Viðeyjarferð-
inni...
★ ★★
STÖÐ 2 hugsar stórt og
hefúr náð ótrúlegri fót-
festu á skömmum tíma.
SÖgur herma að næsta
skrefið hjá Stöðinni verði
að koma upp morgunsjón-
varpi eins og tíðkast í út-
löndum. Og þaö ekki
seinna en í haust. Kannski
heimavinnandi húsmæð-
rum fjölgi þegar þeir fara
að sýna Dcdlas klukkan tíu
ámorgnana... ?
★ ★★
ÞEGAR ÍSLENDINGAR
lentu í 16. sæti í þriðja
skiptið í Eurovisionkeppn-
inni á dögunum sagði.
Sverrir Stormsker að ís-
land væri ekki enn komið
inn á landakortið. I öðrum
keppnisgreinum virðumst
viö hins vegar skipta stóru
máli á landakortinu. Þann-
ig hafa íslenskar stúlkur
hver af annarri veriö í einu
af fyrstu fimm sætunum í
þeim fegurðarsamkeppn-
um sem haldnar hafa verið
víða um heim að undaf-
örnu. Einnig eigum við
einn sterkasta skákmann í
heimi, eitt af sterkustu
handboltaliðum í heimi og
sterkasta mann í heimi,
svo eitthvað sé nefht. Hver
segir að við séum ekki á
kortinu... ?
★ ★★
NÝ lög hafa gengið í gildi
íbúðareigendur að greiða
ákveðið skoðunargjald,
þegar íbúð er sett á sölu,
og í gjaldinu er einnig inn-
ifalin auglýsing. Einn fast-
eignasah sagði við Breið-
síðuna á dögunum að
sennilega yrðu fasteigna-
salar svo fegnir að fá eign-
ir til að selja að gjaldið
myndu þeir fúslega greiöa
fyrir kúnnann. Þannig
gætu þeir tryggt sér einka-
sölu og ekki veitir vist af
þar sem lítið framboð er
af góðum og auðsejjanleg-
um íbúðum...
★ ★★
MANNABRE YTINGAR á
Ijósvakamiðlunum eru tíð-
ar þessa dagana. Bylgjan
þóttist hafa fengið feitan
bita er hún náöi í Stefán
Jökulsson af Ríkisútvarp-
inu. Nú heyrist að Stefán
sé aftur að hugsa sér til
hreyfings og muni hverfa
af Bylgjunni um næstu
mánaöamót. Ekkifylgdi
sögunni hvað tæki við hjá
kappanum. Þá má einnig
geta þess að Júlíus Brjáns-
son, sem var með gestaþátt
á Bylgjunni á fimmtudags-
kvöldum, er nú kominn
yfir til samkeppnisaðilans
- Stjörnunnar. Nú er bara
að sjá hvort heyrist í hysk-
inu á Brávallagötunni á
Stjöntunni áöur en langt
umiíður.
★ ★★
EFTIRSÓTT staða yfirlög-
regluþjóns losnar nú um
mánaðamótin er Bjarki
Elíasson tekur við starfi
skólasijóra Lögregluskól-
ans. Samkvæmt heimild-
um D V er nánast fullvíst
að það verði Guðmundur
Guðjónsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn sem hlýtur
stöðuna. AUs sóttu ellefu
lögreglumenn um stöðuna.
★ ★★
NÚ þegar Bogi Ágústsson
hefur verið ráðinn frétta-
stjóri Sjónvarps velta
menn því fyrir sér hvort
Ingvi Hrafh fær stöðu
fréttafulltrúa Flugleiöa...
V S-Í'ssststsí.tttss W SSs'.Wst O.S«l .Isss .ssstss SSSSS stsU-: S