Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Page 35
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
47
pv______________________________________________________________Knattspyma unglinga
6. flokkur:
2-0 íyrir KRgegn Víkingi í hálfiiuðum bráðabana
- skemmtileg nýbreytni í hálfleik 1. deildarleikja
Sú skemmtilega nýbreytni hefur ver-
ið tekin upp að í hálfleik 1. deildar-
leikja íslandsmótsins fer fram bráða-
banakeppni i 6. flokki sömu félaga.
Sl. sunnudag áttu KR-ingar heima-
leik gegn Víkingum og kom það því
i hlut KR-strákanna að sækja en Vík-
inga að veijast. KR-drengjunum
tókst tvívegis að koma boltanum í
mark Víkinga og er staðan þvi 2-0
fyrii' vesturbæjarstrákana í hálfleik.
Síðari hálfleikur fer fram þegar liðin
mætast í síðari umferð og þá eiga
Vikingar heimaleik og um leið mögu-
leika á því að rétta sinn hlut.
Sóknarliðið er skipað 10 leikmönn-
um sem er skipað í 5 pör og fær hvert
par eina tilraun til að skora, alls 5
tilraunir. Til varnar eru tveir leik-
menn, þ.e. varnarmaður og mark-
vörður.
Það er óhætt að segja að hér sé um
óopinbert íslandsmót í bráðabana að
ræða því í haust munu sigurvegarar
úr Noröurlandsriðli og af suðvestur-
hominu mætast í úrslitaleik sem aö
öllum líkindum fer fram kringum
landsleik eða við eitthvert annað
hátíðlegt tækifæri.
Góð skemmtun
Þessi uppákoma hefur svo sannar-
lega vakið kátínu meðal áhorfenda
sem hafa haft mikla skemmtun af
þessu. í þeim leikjum, sem ég hef
séö, hafa áhorfendur ekki hreyft sig
úr stað en fylgst með strákunum af
miklum áhuga enda ekki furöa því
þeir litlu sýndu virkilega góða takta.
í leik KR og Víkinga skomðu fyrir
KR þeir Jón Siguijónsson og Kristján
Geir Þorsteinsson. Geir á að hafa
sagt eftir á: „Ef maður skorar ekki
úr svona færi þá er eins gott að
hætta.“ Varnarmenn Víkinga vom
þeir Jón Baldur Valdemarsson í
marki og Hilmar Þór Hafsteinsson.
Strákamir vörðust báðir af mikilli
snilld.
Leik Fram og Vals sl. mánudag
lyktaði 2-0 fyrir Fram. Mörk Fram-
ara gerðu þeir Bjarni Þ. Pétursson
og Andri Gíslason. Til varnar hjá Val
vom Ingvar Þór Sverrisson í marki
og vamarmaðurinn Arnar Gunnars-
son og skiluðu þeir vel sínu hlut-
verki.
Miklir möguleikar
í hálfleikjum 1. deildar liða em
mikhr möguleikar á uppákomum
sem þessari til mikillar ánægju bæði
fyrir krakkana og svo hina fjölmörgu
áhorfendur sem sækja leikina. Von-
andi verður þetta fastur liður í fram-
tíðinni. Meira af svo góðu. HH
Tveir kappar úr 6. fl. Vals sem léku varnarhlutverkið í bráðabananum gegn
Fram. Frá vinstri: markvörðurinn Ingvar Þ. Sverrisson og varnarsérfræðing-
urinn Arnar Gunnarsson. DV-mynd HH
Hér eru strákarnir úr 6. fl. KR sem sóttu gegn Víkingum í bráðabananum. Þjálfarar eru þeir Tryggvi Hafstein og
Sigurður Helgason. Dómari varð auðvitað að vera alþjóðlegur og er Guðmundur Haraldsson til vinstri.
DV-mynd HH
Þetta eru Víkingsstrákarnir i 6. fl. sem mæta KR-ingum í heimaleik Vikinga i 1. deild og þá verða þeir auðvitað
sóknarmennirnir i bráðabananum. Þjálfari Vikings er Stefán Már Guðmundsson. DV-mynd HH
Hafið
samband
Unglingaboltinn er þegar farinn
aö rúlla af fullum krafti og hillir
undir lok Reykjayíkurmótsins. 30.
maí hefst síðan íslandsmót yngri
flokka um allt land og því mikið
um knattspyrnuhátíðir í hinum
ýmsu byggðarlögum.
Það er ætlun unghngasíðu DV að
fylgjast vel með knattspyrnu þeirra
yngri, hvar á landinu sem er, og
birta fréttir. Til þess að ná því
markmiði eru forráðamenn knatt-
spymudeilda og/eða stuðnings-
menn vinsamlegast beðnir um að
senda fréttir úr héraði, úrslit leikja
og eitt og annað sem er á döfinni.
Unglingasíða DV er opin allri um-
fjöllun um unglingaknattspymu í
landinu og er því kærkomið tæki-
færi til örvunar á þvi veigamikla
starfi sem víðast hvar er unnið með
miklum sóma.
Unglingasíðu DV er ætlað að
fjalla á jákvæðan hátt um íþróttir
unglinga. Verið því með frá byrjun.
Utanáskrift:
Knattspyrna unglinga
Dagblaðið-Vísir
Þverholti 11
Reykjavík
- A þetta aö þýöa að ekki
sé lengur þörf fyrir mig í lið-
inu?
GÚSti
„sweeper
- Mín sterk-
asta hlið
hausinn!!!
er
Strákarnir úr 6. fi. Fram sem léku sóknarleikinn í bráðabananum gegn Val. Þjálfari strákanna er Magnús Einarsson.
DV-mynd HH
Fyrstu leikir íslandsmótsins 30. maí
íslandsmótið í knattspymu yngri knattspymunni því við verðum auð- áhugasamra unglingaþjálfara sem
fiokka hefst 30. maí meö leikjum í 2. vitað að stefna aö framfórum hinna skilur hlutverk sitt. Unglingasíöa DV
flokki karla. Ef að líkum lætur verða ungu leikmanna. Þar koma þjálfarar óskar öllum þeim er starfa^að ungl-
margir spennandi leikir háöir í hin- vitaskuld sterkast inn í myndina og ingamálum velfamaðar á komandi
um ýmsu flokkum og vonandi reyna við ættum svo sannarlega ekki að keppnistímabili.
leikmenn aö laða fram hið góða í kvíöa því að á íslandi er öflug sveit HH