Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Side 36
48 LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
Mephisto-skákmótið í Munchen:
Jóhann hélt efsta saeti eftir
Stórmeistaramir Jóhann Hjart-
arson og Robert Hiibner skildu jafnir
eftir mikla sviptingaskák í lokaum-
feröinni á skákmótinu í Miinchen og
þar með tryggði Jóhann sér sigurinn
á mótinu en Húhner 2. sætið. Jóhann
hlaut 8 vinninga af 11 mögulegum,
Hubner fékk 7 vinninga og ungverski
stórmeistarinn Zoltan Ribli varð
þriðji með 6,5 vinninga.
Skák Jóhanns og Hubners hélt
áhorfendum hugfóngnum. Þeir
tefldu hvasst afbrigði af Sikileyjar-
vörn og Húbner, sem stýröi hvítu
mönnunum, blés snemma til sóknar
gegn kóngi Jóhanns. Um tíma leit
út fyrir að Jóhann væri hætt kominn
en á elleftu stundu náði hann að
bjarga sér með því að koma drottn-
ingu sinni í vörnina og þvinga fram
kaup. Húbner var þá fljótur aö bjóða
jafntefli sem Jóhann þáði að sjálf-
sögðu, þótt hann hefði eflaust undir
öðrum kringumstæðum teflt taflið til
þrautar.
Mótið einkenndist nokkuö af því
gutli sem nefnd er jafnteflissúpa.
Hrein úrslit fengust aðeins í þriðja
hluta skákanna. Ástæða þessa er lík-
ast til sú að flestir þátttakendanna
koma frá sama skákfélagi og þekkj-
ast vel. Máltækið góða, „enginn er
annars bróðir í leik“, vildi gleymast
óþarflega oft. Það er harla óvenjulegt
að í einni mótstöflu sé að fmna þrjá
skákmenn sem tapa ekki skák, jafn-
marga sem vinna ekki skák, tvo sem
vinna aðeins eina skák og tvo sem
tapa aðeins einni skák! Þarna er
kominn bróðurparturinn af þátttak-
endum. Hickl og Smejkal skera sig
úr hópnum, vinna þrjár skákir hvor
og tapa tveim. Annað sem vekur at-
hygli er að einungis tvívegis vinnur
skákmaður annan sem ofar er í töfl-
unni.
Að sögn Jóhanns var mótið ágæt-
lega skipulagt og aðstæður allar voru
með besta móti. Þó vakti athygli hans
að engin sýningarborð voru í skák-
salnum ' heldur voru einungis
strengdir kaðlar milli taflborðanna
og áhorfenda. Það kom ekki að sök
því að þýsku áhorfendumir læddust
um eins og mýs og reyndust vera hin
mestu prúðmenni. Veg og vanda af
skipulagningu mótsins átti dr. Jell-
issen, fjölmenntaður og viðkunnan-
legur maður sem er formaður skák-
deildar Bayern Múnchen.
Frammistaða Jóhanns fleytir hon-
um loks upp fyrir 2600 stiga múrinn.
Eló-stig hans frá byrjun árs eru 2590,
síðan krækti hann sér í nokkur stig
eftir einvígið við Kortsnoj í Saint
John, snarlækkaði eftir misheppnað
mót í Linares en hækkaði aftur með
sigri sínum á alþjóðamótinu á Akur-
eyri í mars og síðan í Múnchen. Á
lista Alþjóðaskáksambandsins frá 1.
janúar eru 18 skákmenn í heiminum
með 2600 stig eða meira. Hæstur er
heimsmeistarinn Garrí Kasparov,
sem hefur 2750 stig, og Karpov er
næstur með 2715 stig.
Skoðum tvær skákir frá Múnchen
- fyrst úrshtarimmuna úr síðustu
umferð.
Hvítt: Robert Hubner
Svart: Jóhann Hjartarson
Sikileyjarvörn.
1. e4 c5
Jóhann fer á háskaslóðir Sikileyj-
arvamar þrátt fyrir að honum nægi
jafntefli í skákinni. Það er annars
með ólíkindum hve fjölhæfur Jó-
hann er f byrjanavali. í einni skák
sinni í Múnchen tefldi hann meira
aö segja Berlínarvörn!
2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3
a6 6. Be2
Hógvært afbrigði en Húbner hefur
slæma reynslu af „afbrigði eitraða
peðsins" 6. Bg5 e6 7. f4 Db6 8. Dd2
Dxb2 o.s.frv. Hann á dálítið erfitt með
að muna langar leikjaraöir og óná-
kvæm leikjaröð í þessu afbrigði hef-
ur reynst honum dýrkeypt.
6. - e6 7. 0-0 Be7 8. f4 0-0 9. a4 Rc6 10.
Khl Dc7 11. Be3 He8 12. Bf3 Hb8 13.
Dd2 Bd7 14. Rb3 b6 15. g4 Bc8
Biskupinn verður að víkja því að
hvítur hótaði að hremma riddarann
með g-peðinu. Þessir leikir hafa allir
sést margoft áður. Frægasta dæmið
er lokaeinvígisskák Karpovs og
Kasparovs í Moskvu 1985 er Ka-
sparov stýrði svörtu mönnunum til
sigurs og heimsmeistaratignar.
16. g5 Rd7 17. Bg2
Hugmyndin er að sveifla kóngs-
hróknum yfir á h-línuna með Hf3-h3
en þetta er ekki nákvæmasta leikja-
röðin - það er raunar dæmigert fyrir
Húbner. Karpov lék 17. Df2! gegn
Kasparov og næstu leikir féllu 17. -
Bf8 18. Bg2 Bb7 19. Hadl g6 og nú
þurfti Karpov að eyða leik með 20.
Bcl til að rýma til fyrir drottningar-
hróknum tU h3 (um d3-reitinn).
Leikjaröð Húbners hefur þann
annmarka að með 17. - Ra5 18. Df2
Skák
Jón L. Árnason
Rc4! getur svartur stöðvað drottning-
arhrókinn í að skerast í leikinn.
Karpov hindraði þetta með 17. Df2
því að svarið við 17. - Ra5 yrði þá 18.
Hadl Rc419. Bcl o.s.frv. Jóhann not-
færir sér ekki þennan möguleika en
eins og hann teflir framhaldið hagn-
ast Húbner á biskupsleiknum.
17. - Bf8?! 18. Hf3 g6 19. Hh3 Bb7 20.
Df2 Bg7 21. f5?!
Hann fer of geyst í sakimar. Sjálf-
sagt var að styrkja stöðuna fyrst með
21. Hfl. Það er annars athyglisvert
að Karpov var álasað fyrir að tefla
þessa stöðu of varfærnislega og nú
Húbner of djarft. Meðalvegurinn
gullni er vandrataður.
Mephistomótið í Munchen
Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 V.
1. Jóhann Hjartarson 2590 X Vi ’á '/2 1 1 /2 1 !4 '/2 1 1 8
2. R. Hiibner (V-Þýskaland) 2595 ý X 'A 1 ‘/2 '/2 1 'A 1 '/2 '/2 ‘/2 7
3. Z. Ribli (Ungvland) 2620 ‘Á Ví X 'A '/2 '/2 1 '/2 '/2 ‘/2 ‘/2 1 6/2
4. J. Hickl (V-Þýskaland) 2485 Á 0 'A X '/2 1 0 '/2 '/2 '/2 1 1 6
5. A. Jusupov (Sovétríkin) 2620 0 ’/i '/2 ‘/2 X ‘/2 '/2 'i 'A 1 1 '/2 6
6. J. Smejkal (Tékkósl.) 2515 0 V, V, 0 '/2 X '/2 /1 'A 1 1 1 6
7. K. Bischoff (V-Þýskaland) 2465 'Á 0 0 1 '/2 '/1 X /1 '/2 ‘/2 ‘/2 1 5!ó
8. H. J. Hecht (V-Þýskaland) 2445 0 /2 /2 '/2 '/2 '/2 /2 X '/2 '/2 0 1 5
9. R. Lau (V-Þýskaland) 2540 */i 0 '/1 mm/ ‘/2 . mm - '/2 '/, X Ai '/2 '/2 5
10. S. Kindermann (V-Þýskal.) 2500 'A '/2 '/2 V, 0 0 '/, '/2 'A X '/2 '/2 ' 4A
11. P. Van der Sterren (Holland) 2470 0 % H : 0 0 0 •Æ 1 V2 ‘/2 X '/2 4
12. G. Hertneck (V-Þýskaland) 2465 0 'A 0 0 '/2 0 0 0 '/2 '/2 '/1 X 2'/2
21. - Bxc3!
Slæmt var 21. - exd5? vegna 22. Rd5
og síðan 23. exf5 með sterkri stöðu.
Þaö þarf áræði til að gefa á þennan
hátt svartreitabiskupinn sem virðist
vera lykilmaðurinn í vörninni. En
þetta er besti kostur svarts. Um leið
fær hann gagnfæri gegn tvístraðri
peðastöðu hvíts á drottningarvæng.
22. bxc3 exf5 23. exf5 Rce5 24. Bd4
Bxg2 +
Svarið við 24. - RfB yrði 25. Rd2 og
riddarinn býr sig undir að stökkva
yfir á kóngsvænginn.
25. Kxg2 Dc6+ 26. Kgl Rf8 27. Hfl Hb7
28. a5! b5 29. Dh4
Sveit Zia Mahmood innsiglaði sigur
sinn á Bridgehátíð 1988 með því að
leggja Evrópumeistara Svía að velli
í fyrstu umferð sveitakeppninnar.
Evrópumeistaramir urðu aö sætta
sig viö 10. sætið þótt þeir ættu góð
spil inn á milli. Hér er eitt.
S/N-S
Staðan er
♦ D9
V K
♦ D108
+ -
á þannig:
* K7
V D65
♦ 6
+ -
N
V A
S
♦ -
V 10982
♦ 4
+ G
* K754
V D653
♦ Á62
+ ÁD
N
V A
S
* G63
V Á4
♦ KG3
+ K9875
Með Morath og Göthe n-s gengu sagnir
á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
1L ÍT 2T pass
2G pass 3G pass
pass pass
Vestur spilaði út spaðatvisti og Hans
Göthe lét lágt úr blindum. Austur drap á
ásinn og spilaði síðan tíunni sem fékk að
halda slagnum. Austur skipti þá í tígul-
níu og Göthe tók með ásnum í blindum.
Hann tók nú ás og drottningu í laufi, fór
síðan heim á hjartaás og spilaði laufa-
kóng. Hvað er nú til ráða þegar vestur
kastar tigli?
Eigi vestur fióra spaða, hjartakóng og
fimm tígla eru fleiri en ein vinningsleið.
* G
V 4
♦ KG
+ 98
TO dæmis getur suður spilað hjarta.
Vestur drepur og spilar spaðadrottningu.
Sagnhafi drepur með kóng, tekur hjarta-
drottningu og spilar vestri inn á spaðaníu
en faer tvo síðustu slagina á tígul og þar
með níu slagi.
En Göthe fór aðra leið. í ofangreindri
stöðu spilaði hann meira laufi og austur
átti slaginn á gosann. Hann spilaði meiri
tígli, Göthe drap á kónginn og tók síðasta
laufið. Vestur er nú illa settur og valdi
að kasta tíguldrottningu. Þá tók Göthe
tígulgosa og aftur var vestur í kastþröng.
Þar með var Göthe kominn með alla slag-
ina og yfirslag því allt spilið var þannig:
♦ D982
V KG
♦ D10875
+ 32
* K754
V D653
♦ Á62
+ ÁD
♦ Á10
V 109872
4 Q4
+ G1064
♦ G63
V Á4
♦ KG3
+ K9875
Göthe og Morath aö spila við Bandaríkjamennina Ron Smith og Billy Co-
hen á Bridgehátíð 1988.
Vestur gat bjargað yfirslagnum með
því að kasta hjarta eða spaða í síöasta
laufið en allavega spilaði Göthe meistara-
lega.
Bridge
Stefán Guðjohnsen
Bridgefélag Siglufjarðar
Barómeter. Tvímenningur 2.5. ’88.
Þátttaka 18 pör. 4 spil milli para. Alls
17 umferðir. 68 spil. Spilamennskan
stóð yfir 3 kvöld. Síðasta keppni vetr-
arins.
Úrslit:
1. Ásgrímur Sigurbjörnsson -
Jón Sigurbjörnsson 101 stig
2. Anton Sigurbjömsson -
Bogi Sigurbjörnsson 95 stig
3. Sigfús Steingrímsson -
Sigurður Hafliðason 90 stig
4. Guðlaug Márusdóttir -
Stefanía Sigurbjörnsd. 56 stig
5. Jóhannes Hjálmarsson -
Jónas Stefánsson 51 stig
6. Haraldur Árnason -
Hinrik Aðalsteinsson 33 stig
7. Guðmundur Árnason -
Níels Friðbjarnarson 15 stig
8. ísak Ólafsson -
Viðar Jónsson 6 stig
9. Björk Jónsdóttir -
Steinar Jónsson 5 stig
10. Reynir Pálsson -
Stefán Benediktsson -18 stig
11. Björn Þórðarson -
Jóhann Möller -32 stig
12. Guðbjörg Sigurðardóttir -
Inga J. Stefánsdóttir stig
13. Birgir Björnsson -
Þorsteinn Jóhannesson -50 stig
14. Georg Ragnarsson -
Þórleifur Haraldsson -52 stig
15. Friðfinnur Hauksson -
Guðbr. Sigurbjörnss. -61 stig
. Anna Hertervig -
Friðrik Steingrímsson -64 stig
li. .''ögnvaldur Þórðarson -
Þoisteinn Jóhannsson -67 stig
18. Björn Ólafsson -
Hafliði Hafliðason -68 stig
Frá Bridgefélagi
Tálknafjarðar
Úrslit í firmakeppni félagsins urðu
þessi:
1. Ríkisskip -
spilari Sigurður Skagfjörð 442
2. Esso-nesti -
spilari Brynjar Olgeirsson 418
3. Eyrarsparisjóðurinn -
spilari Símon Viggósson 417