Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Page 43
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988. Eigendurnir, Hansjörg og Ytte, hafa sérstakt dálæti á íslenskum gestum. Þeldökkir þjónar þakka íyrir á íslensku Veitingastaður í 280 metra hæð í Hambórg eru yfir 800 veitinga- staðir sem bjóða upp á rétti frá fjöru- tíu löndum. Allir hljóta að finna eitt- hvað við sitt hæfi. Eina vandamálið er að velja. Veitingastaðir eru um alla borg en nefna má tvö svæði sem hafa meira af þeim en önnur. Pöseldorf og Grossneumarkt Pöseldorf, annað þessara svæða, var áður fyrr vinsælasta veitinga- Hálf milljón manna heimsækir sjón- varpsturninn árlega. Á annarri hæð er veltingastaöur þar sem útsýni yfir borgina er stórkostlegt. staðahverfið. Síðustu ár hafa veit- ingastaðirnir í Pöseldorf orðið dýrari og flottari. Þangað kemur fólk sem er tilbúið að greiða fyrir að sitja und- ir kristalsljósakrónum með stíf- greidda þjóna allt um kring. En verð- lagið er líka eftir því. Grossneumarkt heitir torg nálægt miðbænum. Margar smáar hliðar- götur liggja út frá því. Þetta hverfi er vinsælt hjá þeim sem ætla út að borða og skemmta sér. Fjöldi smárra veitingastaða er við torgið og hliðar- götur þess. Þeir eru yfirleitt litlir og ekki er miklu eytt í ytri umbúnað. Maturinn er samt í háum gæðaflokki og verðlagi stillt í hóf. Bekkir og borð eru fyrir framan staðina og eru þeir þéttsetnir á kvöld- in. Innan úr kránum hljómar svo tónlist. Jass, klassík og rokk, alls konar tónlist er leikin áheyrendum til ánægju. Borðað í 280 metra hæð Erfitt er að benda á einn veitinga- stað umfram annan. Rétt er að telja upp nokkra sem vert er að athuga. Einn af þeim er veitingastaðurinn í sjónvarpsturninum. Auk þess að vera með prýðisgóðan mat, á sann- gjörnu verði, þá hefur staðurinn einn kost fram yfir aðra í Hamborg. Út- sýnið er stórkostlegt. Vel sést yfir borgina. Gólfið snýst hægt þannig aö matargestir sjá alla borgina á einnar klukkustundar hringferð. Ekki er nauðsynlegt að borða til að fá að sjá útsýnið því að á hæðinni fyrir ofan er annar salur. Einungis þarf að borga lyftugjald til að komast þangað. Á þessari skoðunarhæð er bar og kaffitería. Á kvöldin er diskó- tek og getur fólk tekið spor á meðan horft er niður á flugvélarnar sem eru að lenda á Hamborgarflugvelli. Ekki spillir það fyrir að eigendur staöarins, Hansjörg Strauch og kona hans, Jytte, eru sérstakir íslandsvin- ir. Þó svo að um hálf milljón manna komi í turninn árlega er ávallt pláss fyrir íslendinga. Ef þau hjónin taka eftir að íslendingar eru gestir veit- ingastaöarins þá er komiö hlaupandi með íslenska fánann á borðið. Ekki nóg með það, heldur kunna þjónarn- ir nokkur orð í ástkæra ylhýra mál- inu. Oftast kemur á fólk þegar kol- svartur þjónn frá Sri Lanka spyr landann að þvi hvort maturinn hafi ekki verið „helvíti góður“. Þess má geta að Hansjörg átti fyrirtæki í Bre- merhaven sem sá um að útbúa og þjóna íslenskum skipum um ára- tugaskeið. Kannski er það skýringin á kjarnmiklu málfari þjónanna á staðnum. Veitingastaður í skútu Athygli skal vakin á veitingastöð- unum í gamla og nýja ráðhúsinu. í nýja ráðhúsinu er hægt að fá sæmi- legan mat á góðu verði og er um- hverfið mjög notalegt. Veitingastaðurinn í gamla ráö- húsinu er í háum gæðaflokki og verð- ið er miðlungshátt. Matseðillinn er sérlega vel samansettur og þjónusta öll hin besta. í kjallaranum er svo bjórkjallari upp á gamla móðinn. Þar er spilað á harmóníkur og gítara og slagarar sungnir. S.S. Rickmer Rickmers er gömul skúta sem smíðuð var 1896. Smíði hennar þótti marka mikil tímamót því skrokkurinn var gerður úr járni. Saga skipsins er ákaflega merkileg. Langan tíma tók að gera skútuna upp. í dag þjónar hún sem minjasafn og um borð er vinsæll veitingastað- ur. Þessi veitingastaður er sérkenni- legur og matur og verðlagning sæmi- leg. Frá sömu bryggju og skútan liggur við fara bátar í skoðunarferðir um höfnina. Eftir hádegisverð er upplagt að fara með bátnum í klukkutíma siglingu um stærstu höfn Þýska- lands. Ef fólk vill að leiðsögumaður- inn hafl kynningar sínar á ensku er rétt að láta miðasölumanninn vita. Leður, pluss og himinhátt verð Ef ferðamenn hafa nóga peninga og ekki skiptir máli hvað maturinn kostar þá er hægt að benda á veit- ingastaðinn í Hótel Vier Jahreszeit- en. Staðurinn er, eins og hótelið, rán- dýr en öU þjónusta og matur til fyrir- myndar. Sem sagt klassastaður og verðlag í samræmi við það. Upptalningunni skal lokið hér en víst er að enginn, sem hefur áhuga á góðum mat, verður fyrir vonbrigðum í Hamborg. -EG 5f Lífsstm Hótel af ýmsum stæróum, gerðum og verðflokkum Þriðja besta hótel heims er í borginni Fjölgun hótela í Hamborg hefur verið mikil undanfarin ár. Á síðasta ári voru opnuð tvö stór hótel með um 700 herbergi. Á þessu ári bætist svipaður fjöldi gistirýma við. Aukn- ingin lýsir best þeirri þróun sem hefur verið í ferðaþjónustu Ham- borgar. Nóg af hótelum er fyrir og mörg eldri hótelanna eru að endurnýja innviði sína. Staðsetning flestra hótela í Ham- borg er góö. Standa þau við eða í miðbænum. Hreinlæti og þjónusta á þýskum hótelum er til fyrirmyndar. Væntanlegum ferðamönnum til leið- beiningar skal skýrt frá fáum hótel- um. Gamalt og virðulegt Fyrst má nefna Hótel Reichshof. Hótelið er með þeim elstu í borginni og er eitt fárra sem er í einkaeign. Hóteliö er barn síns tíma og eru sahr og móttaka í gömlum virðulegum stíl. Mikið hefur verið lagt upp úr að laða að viðskiptaferðamenn og er þeim boðið upp á fundarsali og aðra þjónustu. Breytingar eiga sér stað á herbergjum hótelsins og er verkið hálfnaö. Öll herbergin eru meö síma, sjónvarp, útvarp og smábar. Tölu- veröur munur er á uppgerðu her- bergjunum og þeim sem ekki hafa fengið andlitslyftingu. Hótelið stend- ur nálægt aðaljárnbrautarstöðinni og er þægilega stutt í miðbæinn. Verf fyrir tveggja manna herbergi í einn dag er 4.320 krónur. Hótel Metro Merkur tilheyrii flokki hinna svokölluðu smáhótela. Tveggja mínútna gangur er að járn- brautarstöðinni og hótehð býður fjöl- skyldufólk sérstaklega velkomið. Verð á tveggja manna herbergi í einn dag er 2.880 krónur. Þjónusta í sérflokki og verðið einnig Ramada Renaissance er nafn á fimm stjörnu lúxushóteli. Hótelið ei stutt frá yfirbyggðu verslunargötun- um. Herbergi hótelsins eru íburðar- mikil og þægileg. Á þakhæð er starf- rækt heilsurækt. Þar er gufubaö nuddpottur, sundlaug, nudd ot fleira. Verð á tveggja manna her- bergi fyrir daginn er 6.880 krónur. Áður en upptalningu er lokið er rétt að minnast á tvö bestu hóte! Hamborgar. Hótel Atlantik er í mjög háum gæðaflokki og er tahð næst- besta hótel borgarinnar. Hótel Vier Jahreszeit er án vafa fínasta hótel Hamborgar. Á síðasta ári var það kosið, af bandarísku ferðablaði, þriðja besta hótel heims Umbúnaðurinn og þjónustan ern í sérflokki en það er einnig verðið. -EG Yfirbyggðu verslunargöturnar eru þægilegar og bjartar. Átta yfirbyggðar verslunargötur Hamborg er ein. af Hansaborgun- um. Því eru viðskipti og verslun sam- ofm sögu hennar. Hún er verslunar- borg í fortíð og nútíð. Fjöldi verslana er í borginni og er meirihluti þeirra í eða við miðbæinn. Það auðveldar mjög verð- og vöru- samanburð. Ekki er það síður gleði- efni fyrir þreytta fætur. Átta yfirbyggðar göngugötur eru í Hamborg. Fjöldi verslana og kaffi- húsa stendur við þær. Hægt er að ganga um í þægilegu umhverii og skoða í búðarglugga á meðan rigning og stormur ólmast fyrir utan. Miklu hefur verið til kostað til að gera gö- turnar vinalegar og fallegar. Margar verslanir standa við önnur stræti og torg í miðbænum. Þar eiga helstu verslunarkeðjur Evrópu sér fulltrúa. Að sjálfsögðu er þarna mismun- andi verðlag og fer það stundum eft- ir því við hvaða götur verslanirnar standa. Pöseldorf er verslunarhverfi nærri miðbænum. Verðlag þar er í hærri kantinum. Margar þekktari tísku- vöraverslanir heims eiga útibú í hverfinu. Mikið er af litlum sérversl- unum þar. Skartgripir, fornmunir og dýrari fót eru seld í þessu hverfi. Erfitt er að fá bílastæði þannig að best er að skhja bíhnn eftir við hótel- iö. Þeir sem hafa ánægju af því að fara í verslunarferöir ættu að geta notið sín í Hamborg. Séu þeir í fylgd ein- hverra sem ekki eru eins spenntir fyrir búðarápi er hægt að hugga sig við að nóg er annað hægt að gera í Hamborg. -EG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.