Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1988, Blaðsíða 60
62 • 25 • 25
FRÉTTASKOTIP
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í sima 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
LAUGARDAGUR 21. MAÍ 1988.
Þýskl fyrir-
tæki kaupir
fjórðung í
Amarflugi
Vestur-þýskt fyrirtæki, Atlantica,
hefur keypt fjórðung hlutafjár í Arn-
arflugi, fyrir 80 milljónir króna.
Hlutaíjáraukning hefur staðið yfir í
Arnarflugi og stefnt var að því að
auka hlutafé í 320 milljónir. Islend-
ingar hafa skrifað sig fyrir töluverð-
um hluta þess.
Með tilkomu Atlantica eru hug-
myndir um enn frekari aukningu
hlutaijár eöa í 400 milljónir króna.
Hluthafafundur, sem haldinn verður
fljótlega, mun ákveða hvort svo verð-
ur.
Atlantica er í eigu umsvifamikilla
aðila í ferðamannaþjónustu. Þeir
eiga hótel, veitingastaði, ferðaskrif-
stofur og fjármögnunarfyrirtæki.
Atlantica mun markaðssetja Arnar-
flug og ísland í Vestur-Þýskalandi.
Kristinn Sigtryggsson, fram-
, kvæmdastjóri Arnarflugs, sagði í
v:ær að hann væri ánægður með
þessar breytingar og taldi að með
komu þýska fyrirtækisins styrktist
Arnarflug flárhagslega og yki mögu-
leika þess þar sem Atlantica fylgir
aðgangur að stórri keðju í feröa-
mannaþjónustu.
„Þetta er mjög gott skref, við fær-
um það ekki annars," sagði Kristinn
Sigtryggsson.
Atlantica á meðal annars hótel á
Kanaríeyjum, í Tyrklandi og á Spáni.
-sme
kemur næst út þriðjudaginn 24. maí.
Smáauglýsingadeildin er opin í dag,
laugardag, til kl. 14. Lokað er á hvíta-
sunnudag. Á mánudaginn, annan í
hvítasunnu, verður smáauglýsinga-
deildin opin frá kl. 18-22.
Síminn er 27022.
LOKI
... eða eins og Jón Baldvin sagði
á dögunum: Fyrr skal gengið falla
en að ég stólnum sleppi
Vinnuveitendur logðu fram tilboð í álversdeilunni:
Lögin stöðvuðu ekki viðræður
Hrossakaupum stjémarinnar lokið:
Stjóminni ekki kunn
öll áhrif aðgerðanna
Ríkisstjórninni tókst að ná sam-
an um ráðstafanir í efnahagsmál-
um í gær. Þessar aðgerðir eru sam-
setningur úr tillögum flokkanna
frá síðustu helgi. Alþýðuflokknum
tókst að veija rauðu strikin eða í
það minnsta að fresta ákvörðun
þar um. Framsóknarflokknum
tókst að koma inn afnámi láns-
kjaravisitölunnar en ekki á lán til
lengri tíma en tveggja ára. Sjálf-
stæðisflokknum tókst að veija pen-
ingamálastefiiuna að flestu öðru
leyti.
Þegar ráðstafnirnar voru kynnt-
ar blaðamönnum viðurkenndu
stjórnariiðar að nákvæmar athug-
anir á áhrifum aðgerðanna lægju
ekki fyrir. Það er til dæmis alls
óvíst hver áhrif afnáms lánskjara-
vísitölunnar verða. Áhrif á ýmsa
þætti hagskerfisins eru svipaðar
og þegar hefiir verið greint frá í
DV. Þó er ijóst að núgildandi láns-
fjárlög munu springa.
Kjarasamningar eru látnir
óhreyfðir. Hins vegar voru sett
bráðabirgðalög á þá sem ósamið er
við. Alþýðuflokknum tókst að ná
þeirri kröfu sinni fram. Hækkanir
til þeirra munu taka miö af þeim
samningum sem þegar hafa verið
gerðir. Enginn flokkanna lagði
áherslu á verja þennan hóp. Aðrar
ráðstafanir í kjaramálum snúast
um að flýta ákvörðunum sem þegar
lá fyrir að heföu verið gerðar.
Framsóknarflokkurinn náði ekki
fram öllum kröfum sínum í pen-
ingamálum. Vaxtafrelsi er enn við
lýði þó ríkisstjórnin ætli að hvetja
og stuðla að lækkun vaxta. Hins
vegar verður bannaö að miða við
visitölu í fjárhagsskuldbindingum
á stuttum lánum eftir 1. júlí.
Sjálfstæðisilokknum tókst að
hindra að ríkisstjómin reyndi aö
hafa áhrif á Davíð Oddsson um að
fresta byggingu ráðhúss eða setja
sérstakan skatt á hana ella. Þá
tókst flokknum að veija fjármagns-
markaðinn aö mestu leyti, en
flokkurinn hefur staðið aö um-
fangsmiklum breytingum á honum
á undanfórnum árum.
Þessi 'niðurstaða kostaði stjórn-
ina stuðning Ólafs Þ. Þórðarsonar.
- sjá einnig bls. 2
Bam fæddist á
Kona ól stúlkubarn í sjúkrabíl í
gærmorgun. Sjúkrabíllinn stöðvaði á
mótum Breiðholtsbrautar og Reykja-
nesbrautar á meðan konan ól barnið.
Tveir brunaverðir voru á sjúkrabíln-
um og aðstoöuðu við fæðinguna sem
gekk mjög vel.
Eftir fæðinguna var haldið með
móður og barn á fæðingardeild
Landspítalans. Þeim heilsast báðum
vel. -sme
Hvítasunnuhelgin:
OpiðíÞjórsárdalog
á Geirsárbökkum
Mikki mús, Mína og Guffi voru í Flugstöð Leifs Eirikssonar i gær og kvöddu fólk sem var að leggja af stað til
Flórída. Hér er það Mina sem fær koss frá einum gestanna. Þau þrjú. munu svo skemmta fólki í Reykjavík og
Akureyri um helgina. DV-mynd KAE
Af vinsælum ferðamannastöðum
eru tjaldstæði aðeins leyfð í Þjórsár-
dal og á Geirsárbökkum í Borgarfirði
um hvítasunnuna. Eitthvað er þó
málum blandið meö Geirsárbakka
þar sem DV fékk þær upplýsingar
hjá lögreglunni í Borgarnesi að ekki
hefði veriö talað um að hafa opin
tjaldstæði á svæðinu en BSÍ segir
opiö. Ekki náðist í eiganda svæðisins.
Önnur helstu tjaldsvæði eru lokuð,
s.s. Húsafell, Þórsmörk og Þingvellir.
-JBj
t
t
í
i
i
i
i
Samningsaðilar í Álversdeilunni blaöið fór í prentun í gærkvöldi. Þá irritað samningstilboð sem tveir full-
voru enn hjá ríkissáttasemjara þegar höfðu vinnuveitendur lagt fram und- trúar frá hvorum aðila voru að skoða
Veðrið á sunnudag
og mánudag:
Rigning
sunnan- og
vestanlands
Á sunnudag og mánudag verður
suölæg átt ríkjandi, yfirleitt rign-
ing og 8-10 stiga hiti um sunnan-
vert landið og á Vesturlandi en
þurrt að mestu og allt að 15 stiga
hiti á Norður- og Norðausturlandi.
en starfsmenn vildu fá svar við
nokkrum spurningum sem vöknuðu
þegar þeir sáu tilboðið. Vinnuveit-
endur sögðu að tilboðið væri betra
en það sem fælist í Akureyrarsamn-
ingunum en starfsmenn voru ekki á
því. Ríkissáttasemjari sagðist ekki
vera allt of bjartsýnn á að það gengi
saman fyrir miðnætti. Bráðabirgða-
lög ríkisstjórnarinnar munu þá grípa
inn í samningsgerðina.
Tveir íjölmennir starfsmanna-
fundir voru í Álverinu í gær og ríkti
þar mikill einhugur. Þeir álvers-
menn hafa áður sagt að þeir muni
hunsa lagasetningu hjá ríkisvaldinu
og var talið að sú yfirlýsing hefði
kæft þær hugmyndir á fimmtudag-
inn.
Þess má geta aö ef álverinu verður
lokað þá er ljóst að tjónið sem af því
hlýst skellur á strax. Engu breytir
þó samið verði í dag, það liggur fyrir
að margar vikur tekur að ná vinnslu
upp aftur. -SMJ
t
t
i
i
i
t
i