Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Side 2
2 Fréttir Fulltrúar útgerðarinnar og viðskiptabankanna í stjórn Fiskveiðasjóðs ákváðu að lána til Haralds Kristjánssonar frá Hafnarfirði áður en stjórnin kom saman. Þessi lánveiting striðir gegn auglýstum útlánareglum sjóðsins þar sem þegar hafði verið samið um smiði skipsins. DV-mynd BG Utgerðin myndar blokk í Fiskveiðasjóði: Lanm akveðin fyrir fúndinn Brotið gegn útiánareglum sjóðsins Fulltrúar fiskvinnslunar og Seðla- banka greiddu ekki atkvæði um að lána ætti til fjögurra togara og tveggja báta í stjórn Fiskveiðasjóðs. Ástæðan var sú aö fúlltrúar útgerðar og viðskiptabankanna virtust þegar hafaö myndað meirihluta í stjórninni fyrir lánveitingu til þessara skipa. Einn togarinn, Haraldur Kristjáns- son frá Hafnarflröi, er þegar kominn tii landsins en samkvæmt auglýs- ingu sjóðsins lánar hann ekki til skipa sem þegar hefur verið samið um kaup eða smíði á. í meirihlutanum, sem var myndaö- ur fyrir fundinn, voru Kristján Ragn- arsson, formaður Landssambands útvegsmanna, Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins, Björgvin Vilmundarson, bankastjóri Landsbankans, og Jakob Ármanns- son, fulltrúi Útvegsbankans í stjórn- inni. Fulltrúar vinnslunnar, Friðrik Pálsson frá Sölusambandi hrað- frystihúsanna og Árni Benediktsson .frá Sambandsfrystihúsunum auk Geirs Hallgrímssonar, bankastjóra Seðlabankans, skiluðu auðu við at- kvæöagreiösluna um „pakka“ út- gerðarinnar. í þessum pakka voru togararnir Bessi frá Súöavík, Júlíus Geir- mundsson frá ísafirði, Snæfugl frá Reyðarflrði auk Haralds Kristjáns- sonar. -gse Hallarbyiting á Helgarpóstinum: Launagreiðslur stöðvað- ar og mannflótti yfir á Alþýðublaðið Á aðalfundi Goðgáar, útgáfufyr- ur Sigurgeirsson, fyrrverandi aöal- blaðsins. Þá hefur Jónína Leós- irtækis Helgaipóstsins, náöi nýr . fulltrúi borgarfógetans í Reykja- dóttir fært sig af Helgarpóstinum meirihluti undirtökum í stjóm fé- vík. Á sínum tíma skrifaöi Heigar- og yfir á Alþýöublaðið og einnig lagsins. Stióniarformaður var kos- pósturinn töluvert um rannsókn HinrikGunnarHilmarssonauglýs- inn Róbert Árni Hreiðarsson lög- rannsóknarlögreglunnar á inn- ingastjóri. maöur en á aðalfundi árið áöur heimtu Ólafs á fógetagjöldum Um 7 milljón króna tap var á hafði honum verið þrýst út úr vegna innheimtu á afnotagjöldum rekstri Helgarpóstsins í fyrra. Nýr sljórn. Ríkisútvarpsins. meirihluti hefur gengið til samn- Með Róbert Árna í stjórninni em Hákon Hákonarson hefur hætt inga við starfsfólk blaðsins ura að þeir Birgir S. Hermannsson viö- störfum sem framkvæmdastjóri gefa út víxla fyrir launum sínum skiptafræðingur, sem er nýr í Helgarpóstsins og hafiö störf á Al- l. júní. Ástæða þess er að gamli stjóminni,ogSiguröurRagnarsson þýöublaöinu hjá fyrrum ritstjóra meirihlutinn var í persónulegum sem áöur var sijórnarformaður. í Helgarpóstins, Ingólfi Margeirs- ábyrgöum fyrir bankafyrirgreiðsl- varasljórn eru Þórir Lárusson, syni. Fyrrum framkvæmdastjóri um. Nýr meirihluti hefur ekki enn formaöur Félags ungra borgara, Alþýðublaðsins, Valdimar Jóhann- fengið slíka fyrirgreiöslu. Gísli Guðmundsson, forstjóri Bif- esson, hefur tekið viö af Hákoni -gse reiða og landbúnaðarvéla, og Ólaf- sem framkvæmdastjóri Alþýðu- Vissu ekki um rotturnar „Þaö var alls ekki vísvitandi gert að láta grunninn standa opinn í því- líku ástandi," sagði Birgir Ármann Haraldsson hjá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna í samtali við DV. Eins og sagt hefur verið frá í frétt- um DV hafa skolpræsalagnir í Aðal- strætinu staöið opnar í marga mán- uði og hafa íbúar Grjótaþorps kvart- að undan rottugangi þar um kring. Um er að ræða lagnir í opnum grunni sem grafinn var síðastliðiö haust. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna er annar byggingaraðilinn. „Við vissum ekkert um aö skolp- lagnirnar hefðu opnast en fréttum það fyrir stuttu þegar menn frá hreinsunardeildinni létu okkur vita,“ sagði Birgir, „þá létum við strax loka skuröinum." -RóG MIÐVIKUDAGUR l'. JÚNÍ 1988. = Ný lög á þau gömlu Ríkisstjórnin setti í gær umbeðin bráðabirgðalög til nánari útlistunar á þeim bráðabirgðalögum sem hún setti ellefu dögum fyrr. Nýju lögin eru viðbót við 8. grein gömlu laganna um bann við verö- tryggingu á skammtíma skuldbind- ingum. Samkvæmt nýju lögunum er einungis átt við lánsfé og sparifé. Þetta ákvæði nær því ekki yfir verk- samninga og aðrar shkar skuldbind- ingar. Þá er Seðlabankanum heimilt að auglýsa reglur er leyfi innláns- stofnunum að taka við sparifé og verðtryggja þó það sé til skemmri tima en tveggja ára. Samkvæmt þessu mun bannið einungis ná yfir útlán. -gge Fiskmarkaður Norðuriands: Framtiðin ræðst nú í vikunni Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Nefnd, sem fjallað hefur um fram- tíð Fiskmarkaðar Norðurlands hf. á Akureyri undanfarnar vikur, mun skila niðurstööum sínum á fram- haldsaðalfundi félagsins sem hald- inn verður nú í vikunni. Eins og fram hefur komiö hefur rekstur markaðarins gengið mjög erfiðlega og er ástæðan nær ein- göngu sú að sáralítill fiskur hefur borist til hans. Á aðalfundi félagsins urðu miklar umræður um hvort leggja skyldi markaðinn niður. Niðurstaða þeirra umræðna varð sú að nefnd skyldi skoða máhð, ræða við hluthafa og leggja niðurstöður sínar fyrir fram- haldsaðalfund sem haldinn verður nú í vikunni. Þorleifur Þór Jónsson, sem stýrir nefndinni, vildi ekkert tjá sig um málið er DV ræddi við hann. Sam- kvæmt heimildum DV er þó taliö nær fullvíst að nefndin muni leggja til aö starfsemi markaðarins verði hætt um óákveðinn tíma en fyrirtækið ekki gert upp. Það styður þetta að annar af fram- kvæmdastjórum Útgerðarfélags Ak- ureyringa hf., sem er aðili að mark- aðnum, hefur lýst því yfir að ekki sé grundvöllur fyrir starfsemi markaö- arins og útgerðarfélagið hefur aldrei selt fisk til markaöarins. Var þó reiknað með því, er markaðurinn tók til starfa, aö Útgeröarfélagið yrði stór aðili í viðskiptum við hann. Gjaldþrot Hermanns Björgvinssonar: 61 krafe að upp- hæð 135 milljónir var samþykkt Skiptastjóri í þrotabúi Hermanns Björgvinssonar hefur samþykkt 61 kröfu í búið. Kröfurnar nema rúm- um 135 milljónum króna. Fleiri kröf- um var lýst í búið, eða 67, og námu þær tæpum 320 milljónum króna. Hæsta krafan var frá Siguröi Kára- syni, 182 milljónir króna. Bústjóri hafnaði þeirri kröfu. Þrotabúið mun höfða 27 mál til að freista þess að fá þannig greiddar skuldir sem Hermann átti útistand- andi. Þeirra á meðal er mál á hendur Siguröi Kárasyni til greiðslu á ávísun aö íjárhæö 182 milljónir króna. Innan fárra daga er að vænta dóms yfir Hermanni Björgvinssyni hjá sakadómi Kópavogs. Eins og kunn- ugt er er Hermann ákærður fyrir okurlánastarfsemi. -sme Slysið á Amameshæðinni: Ungi maðurinn látinn Ungi maðurinn, sem slaöasti í Hann hét Erlingur Bjömsson, umferðarslysi á Amarneshæð að- fæddur 29. mars 1966 og var því tutt- faranótt síðastliðins sunnudags, lést ugu og tveggja ára. Erlingur bjó að af völdum meiöslanna á mánudags- Greniteigi 39 1 Keflavík. Hann var kvöld. ókvæntur og bamlaus. -Sme Næg orka á Hótel Örk: Búið að greiða hluta skuldanna „Helgi Þór Jónsson er búinn að greiöa hluta af gjaldfóllnum orku- skuldum og verið er aö vinna að sam- komulagi um það sem eftir er. Ég á því von á að þaö verði næg orka á Hótel Örk, alla vega næstu daga,“ sagöi Hafsteinn Kristinsson, forseti bæjarstjómar Hveragerðis. Bæjarstjórnin haíði samþykkt að ioka fyrir orku til hótelsins yrði ekki gert átak varöandi vanskil á orku- reikningum. 1. júní, eða dagurinn í dag, var lokadagur þess frests sem Helgi Þór fékk. Hann hefur nú greitt hluta skuldanna og því hefur ekki verið gripið til þess ráðs að loka fyr- ir orkuna. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.