Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNl 1988. 33 Lífsstm Núertíminn fyrir sumaAlóm Nú er rétti tíminn til aö gróður- setja sumarblóm. Garðrækt færist mjög í vöxt, bæði í þéttbýli og til sveita. Fólk leitast við að skapa sér fegurra umhverfi sér til yndisauka. Tré og runnar mynda skjól á marg- víslegan hátt. Blóm eru höfð til frekara skrauts, bæði fjölær og sumarblóm. Hér verða helstu tegundir sumar- blóma kynntar. Margir hafi gaman ' af að sá þeim sjálfir en líklega eru fleiri sem kaupa sumarblómin frá gróðrarstöövum. Hver stöð hefur um 40-50 tegundir sumarblóma á boðstólum. Af hverri tegund er fjöldi afbrigða sem gerir úrvahð enn meira. Hér á eftir verða nefndar helstu tegundir sumarblóma (einær blóm) Langalgengast sumarblóma erstjúpan (Viola vittrockiana). Hún veröur 15-20 cm á hæð. Litbrigöi hennar eru nær ótakmörkuð. Stjúpan er ýmist með einn hreinan ht eða tví- eða þrílit. Stjúpur eru afar harðgerar og eru taldar með okkar bestu sumarblómum. Fjóla (Viola cornuta) er náskyld stjúpu. Hún verður um 15 cm há en hefur sinærri blóm. Fjólan er eins harðger og hefur mörg ht- brigði. Skrautnál (Alyssum maritimum) er fínleg jurt, oftast notuö sem kantblóm. Hún veröur 10 cm há. Hún hefur hvít, bleik eða blá blóm, mjög harðger. Brúðarauga (Lobelia erinus) er um 10 cm há, notuð sem kantblóm. Brúðaraugað blómgast um mitt sumar með bláum blómum. Þessi tegund er gjarna notuö sem hengi- blóm og hentar vel í svalakassa. Ljónsmunnur (Antirrhinum maj- us) er til í mörgum afbrigðum og htum. Eins og nafnið bendir til minnir blómið á ljónsvarir. Þetta blóm verður um 20-40 cm hátt. Ljónsmunnur þarf hlýjan og sól- ríkan vaxtarstað. Fagurfífill (Belis pereunis) er Hér eru algengar tegundir sumarblóma. Nokkrar eiga enn eftir að blómstra. í fremri röð eru i.v.: salvia, fjóla, brúðarauga, apablóm, morgunfrú (verður svipuð túnfífli), bláhnoða og silfurkambur (blómstrar ekki). I aftari röðinni eru: tóbakshorn, stjúpa, Ijónsmunnur (fær hvít, rauð eða rauðgul, varalaga blóm), stjúpa, dalia, hádegisblóm (fær falleg, rauðgul blóm) og kornblóm sem blómstrar mörgum bláum blómum. DV-mynd GVA harðger blómategund. Hann springur út með hvítum eða rauð- bleikum blómum og nær 15-20 cm hæð. Morgunfrú (Calendula officina- lis) hefur gul eða rauögul fyllt blóm. Hún blómgast um mitt sum- ar. Morgunfrú er mjög haröger og stendur oft í blóma fram á vetur. Kornblóm (Centaurea cyanus) hefur grá loðin blöð og blómstrar skærbláum blómum. Þessi tegund er harðger og verður 20-25 cm há. Silfurkambur (Cineraria mari- tima) nær 30 cm hæð. Hann þykir sérstakur fyrir sín marggreindu silfur- eða hvítloðnu blöð. Þessi harðgera planta er oftast notuö sem kantplanta. Ilmskúfur eða levkoj (Matthiola incana) er til í blönduðum litum. Plantan verður 30-40 cm há og hef- ur einföld, fyllt blóm. Eins og nafn- ið gefur til kynna gefur hann þægi- legan angan í garöinn. Ilmskúfur er hentugur til afskurðar. Hádegisblóm (Mosembryanthem- um crimifolium) er sérstakt fyrir „neon-skæra“ blómaliti. Þetta blóm blómstrar aðeins í sól en lok- ar blómum þess á milh. Það er harðgert og verður 10 cm hátt. Apablóm (Mimulus cupreus) er um 25 cm hátt. Það blómstrar í rauðum eða gulum litum og er harögert. Tóbakshorn (Petunia hybrida) verður 30 cm hátt. Þessi tegund er til í mörgum afbrigðum og litum. Tóbakshorn krefst mikils skjóls og yls frá sól. Sumardalía (Dahlia variabihs) er myndarlegt blóm sem nær 30-40 cm hæð. Þessi tegund er þekkt fyr- ir stór blóm. Salvia (Salvia splendeus) nær um 30 cm hæð og hefur hárauðan blómskúf. Salvia þarf gott skjól og hlýju. Bláhnoða (Ageratum sp.) er um 15-20 cm há með fylltum bláum blómum. Hún er frekar viðkvæm og þarf skjól og hlýju. Að lokum má geta þess að nýjar tegundir eins og skrautnál og fyllt- ar nellikur hafa náð miklum vin- sældum. ÓTT. Helstu gróðr- arstöðvar á höfiiðborg- arsvæðinu eru þessar: Alaska við Stekkjarbakka í Breiöholti Blómaval, Sigtúni Birkihlíð við Nýbýlaveg í Kópa- vogi Garöshorn í Suðurhliðum Grænahhð, Furugerði (v/Bú- staðaveg) Græna höndin við Suðurlands- braut Mörk í Stjörnugróf Skuld í Hafharfirði í Hveragerði: Borg Grímsstaðir Garöyrkjustöð Ingibjargar Sig- mundardóttur. VERD: Á Reykjavíkursvæðinu er við- miðunarverð fyrir sumarblóm í litlum pottum 40 kr. Verð fyrir plöntur í sáðpottum (12 cm) er frá 150-210 krónur. í blómabænum Hverageröi er verðiö töluvert lægra. Þar er við- miöunarverð fyrir sumarblóm í htlum pottum 30 kr. og verö á plöntum í sáöpottum frá 120-150 krónur. BÍLA MARKADUR ...ó fullri ferd Á bílamarkaði DV á laugardögum, auglýsa fjöldi bílasala og bílaumboða fjölbreytt úrval blla af öllum gerðum og I öllum verðflokkum. AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! Auglýsingar I bllakálf þurfa að berast I slðasta lagi fyrir kl. 17:00 fimmtudaga. Smáauglýsingar I helgar- blað þurfa að berast fyrir kl. 17:00 föstudaga. Slminn er 27022 BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.