Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
21.
r>v
llijL
itúlka á DV, virkar frekar smávaxin við I
DV-mynd Brynjar Gauli .
lakann
ins eða hefji samnlngaviðræður við
forráðamenn San Antonio. Mér líkaði
mjög vel hjá hðinu, þrátt fyrir að ég
hefði getað staðið mig betur. En nú er |
of snemmt að segja nokkuð um stöð-
una.
@ Pétur mun gangast fyrir körfu-
boltaskóla í Reykjavík og á Suöumesj-
um um miðjan júní og mun Alvin Ro-
bertson, félagi Péturs hjá Spm-s, koma I
tilíslandsafþvitilefni. -SK
Enn vantar skeytið frá Kaiserslautem:
„Biö til Guðs
um að ég verðí
orðinn löglegur“
„Ég get ekki neitað því að ég er orðinn mjög óþolin-
móður en vonast þó til að þetta sé að smella saman,“
sagði Lárus Guðmundsson, knattspyrnumaður í Vík-
ingi, í samtali við DV í gær.
Enn bólar ekkert á skeyti Kaiserslautern til Knatt-
spyrnusambands íslands en Lárus getur ekki byrjað að
leika með Víkingi fyrr en skeytið hefur borist til KSÍ.
Lárus er ekki einn um það að vera orðinn óþolinmóður
því þolinmæði fo—-
nánast á þrotum.
„Þetta mál mitt er greinilega neðst
í bunkanum hjá Þjóðverjunum. Það
er margbúið að ýta á eftir þessu
skeyti en ekkert hefur enn gerst.
Knattspyrnusamband íslands hefur
sett sig í samband við málsaðila og
ef ekkert gerist í dag þá mun ég sjálf-
ur hringja út og láta heyra í mér. Það
er nú einu sinni þannig meö Þjóð-
verjana að ef þú segir þeim eitthvað
tíu sinnum þurfa þeir að heyra hið
sama í ellefta skiptið til að fatta hvað
sé á seyði. Ég held að Kaiserslautern
sé svolítið sér á parti í Þýskalandi.
Ef þetta hefði gerst hjá öðru félagi
væru málin löngu komin á hreint,"
sagði Lárus í gær.
„Stefni að því að verða lög-
legurgegn Fram“
- Nú á Víkingur að leika mikilvæg-
an leik gegn Fram á sunnudaginn í
þriðju umferð íslandsmótsins. Ert þú
bjartsýnn á að þú náir að leika með
félögum þínum?
„Við erum á svolítið viðkvæmu
augnabliki í deildinni núna með að-
eins eitt stig og auðvitað vonast ég
til þess að leika minn fyrsta leik með
yíkingi á sunnudaginn gegn Fram.
Ég biö raunar til Guðs um að ég verði
orðinn löglegur. Þótt ég sé ekki kom-
inn í fullkomna leikæfingu ætti ég
að geta orðið að liði,“ sagöi Lárus
Guðmundsson.
Þróun mála skiptir Víkinga
miklu máli
Víkingar eru aðeins með eitt stig
af sex mögulegum eftir fyrstu tvær
umferðir íslandsmótsins og þurfa að
fara að rétta úr kútnum. Lárus er
mjög mikilvægur hlekkur í Víkings-
hðinu og mun hann styrkja liðiö
mikið þótt leikæfmgu skorti aö ein-
hverju marki. Það yrði í það minnsta
mikill sálfræðilegur styrkur fyrir
leikmenn Víkings ef Lárus myndi
leika hinn mikilvæga leik gegn Fram
á sunnudaginn.
-SK/RR
Iþróttir
• Lárus Guðmundsson sést hér í
Víkingsbúningnum árið 1981. Enn
bíður hann eftir þvi að geta klæðst
Víkingsbuningnum á ný. Vikingur á
að leika gegn Fram á sunnudaginn
og Lárus vonast eftir því að leika
þann leik.
. ,::x ■
■ ■' '. ' '
Svíar lögðu íslendinga
í stórskemmtilegum leik
- sænskur sigur í vináttuleik U-21 árs í Eyjum
Jón Kristján Sigurðsson, DV, Eyjum:
„Þetta var mjög góður leikur hjá
strákunum og þeir sýndu og sönnuðu
að þeir geta gert mjög góða hluti.
Svíarnir voru mjög sterkir en ís-
lenska liðið var mun betri aðilinn í
seinni hálfleiknum og það heföi með
smáheppni getað náðjafntefli," sagði
Júrí Sedov, þjálfari U-21 árs lands-
liðsins íslenska eftir unglingalands-
leik íslendinga og Svía í Vestmanna-
eyjum í gærkvöldi. Svíar sigruðu,
3-2, í stórskemmtilegum leik á Há-
steinsvellinum en þetta er í fyrsta
skipti sem landsleikur í knattspyrnu
fer fram í Vestmannaeyjum.
Svíar, sem telfdu fram sterkum
leikmönnum sem spila í úrvalsdeild-
inni, Allsvenska, hófu leikinn mun
betur og eftir hálftíma leik náðu þeir
forystunni þegar Jan Janson komst
inn fyrir íslensku vörnina og skoraði
laglegt mark. Hans Eklund bætti síð-
an öðru markinu við þegar hann
skoraði af stuttu færi fram hjá Ólafi
Gottskálkssyni, markverði íslenska
liðsins. Okkar menn fengu tvö prýð-
ismarktækifæri fyrir leikhlé en þau
fóru bæði forgörðum.
í upphafi síðari hálfleiks skoraði
Mikael Nilson þriðja mark Svía með
fallegum skalla en þá má segja að
kaflaskil hafi orðið í leiknum. ís-
lenska liðið náði undirtökunum á
miðjunni og tók leikinn hreinlega í
sínar hendur. Góð barátta íslendinga
bar síðan árangur á 60. mínútu þegar
Haraldur Ingólfsson skoraði glæsi-
legt mark beint úr aukaspymu sem
dæmd hafði verið á markvörð Svía.
Skömmu síðar kom annað íslenskt
mark og var þar að verki Baldur
Bjarnason sem skoraði eftir góða
sendingu frá Hlyni Birgissyni. Þrátt
fyrir góð færi í lokin tókst íslenska
liðinu ekki að jafna og Svíar fógnuðu
sigri í lokin.
Þrátt fyrir tap lék íslenka liðið mjög
vel, sérstaklega í síðari hálfleik. Liðs-
heildin var sterk og liðið sýndi mikla
baráttu með því að skora tvívegis og
ná undirtökunum á vellinum eftir
að hafa verið þremur mörkum und-
ir.
-RR
• Hart barist í U-21 árs landsleik íslendinga og Svía á Hásteinsvellinum í Vestmannaeyjum í gærkvöldi.
DV-mynd Ómar ■