Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988. Fréttir_________d Umskráningar eru óþarfar Jarðarfarir Ásgeir Torfason, Hávallagötu 15, lést á heimili sínu 22. maí. Útfór hans var gerö í kyrrþey. Sigríður Guðmundsdóttir, Sólvangi, áður Bröttukinn 6, lést 28. maí. Jarð- arfórin fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju fóstudaginn 3. maí kl. 10.30. Gunnar Vilhjálmsson, Alfheimum 42, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 2. júní kl. 10.30. Herdís Hákonardóttir, Þinghólsbraut 12, Kópavogi, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 2. júní kl. 13.30. Kveðjuathöfn um Sigurð Stefánsson bónda, Lönguhlíð, Vallahreppi, verð- ur í Seljakirkju, Breiðholti, fimmtu- daginn 2. júní kl. 10.30. Jarðsett verð- ur í Vallanesi laugardaginn 4. júní kl. 14. Elín Þórðardóttir, Langholtsvegi 166, verður jarðsungin frá Langholts- kirkju fóstudaginn 3. júní kl. 15. Útför Lilju Bjarnadóttur, fyrrum húsfreyju, Langholti, Hraungerðis- hreppi, Eyrarvegi 16, Selfossi, verður gerð frá Hraungerðiskirkju laugar- daginn 4. júní kl. 14. Karl Jónsson frá Helgadal, Klepps- vegi 6, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 2. júní kl. 13.30. Helga Friðriksdóttir, Nóatúni 32, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 2. júní kl. 13.30. Jón G. Oddsson, Hörðalandi 20, verð- ur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 2. júni nk. kl. 15. Lára Samúelsdóttir, Laugavegi 53b, verður jarðsungin frá Fossvogskap- ellu fimmtudaginn 2. júní kl. 10.30. Kjartan Stefánsson lést 25. maí sl. Hann var fæddur í Reykjavík 15. september 1899, sonur hjónanna Guðrúnar Ásgeirsdóttur og Stefáns Runólfssonar. Ungur lærði Kjartan málaraiðn og vann við málarastörf í allmörg ár. Hann rak um árabil verslunina Hlíð við Eskihlíð. Hann giftist Ragnheiði Elinu Jónsdóttur, sem er látin. Þau hjónin eignuðust þrjú böm qg ættleiddu einnig dóttur- son sinn. Útför Kjartans verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Sigríður Jónsdóttir lést 19. maí. Hún var fædd í Lambadal í Dýrafirði 18. nóvember 1901, dóttir hjónanna Ól- ínu S. Bjarnadóttur og Jóns Hólm- steins Guðmundssonar. Hún giftist Júlíusi Guðmundssyni, en hann lést árið 1972. Þau hjónin eignuðust 6 börn. Útför Sigríðar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag kl. 13.30. Laufey Stefánsdóttir lést 22. maí. Hún fæddist 5. nóvember 1912 í Við- ey, dóttir hjónanna Guðlaugar Pét- ursdóttur og Stefáns Árnasonar. Hún giftist Jóni Þóröarsyni, en hann lést 4. mars sl. Þau hjónin eignuðust átta börn. Útför Laufeyjar verður gerð frá Neskirkju í dag kl. 15. Andlát Valdimar Kristinsson, Sólvöllum, Innri-Akraneshreppi, varð bráð- kvaddur á heimili sínu mánudaginn 30. maí. Margrét Jóhannsdóttir, Víghólastig 4, Kópavogi, lést á Hrafnistu þann 30. maí. Helga Arngrímsdóttir, Bergstaða- stræti 64, lést á Landspítalanum 30. maí. Kristján Magnússon bóndi, Selja- landi, Hörðudal, lést í sjúkrahúsinu á Akranesi 30. maí. Björgvin Stefánsson frá Rauðabergi lést að morgni 30. maí. Heiðrún Björnsdóttir frá Heiðarbæ lést aðfaranótt 30. maí á Sjúkrahúsi Suðurlands. Tilkyimingar Upplestur á Ijóðum á Hótel Borg í tilefni af útkomu Ljóöaárbókar 1988 gengst Almenna bókafélagiö fyrir upp- lestri á Hótel Borg (Gyllta salnum) í dag 1. júní frá kl. 17-20. Munu þar nokkur skáld Ljóðaárbókarinnar 1988 lesa úr verkum sínum og bókin verða sýnd. Ljóðaárbók 1988 er glæsilegt safn frum- birtra úrvalsljóða eftir höfunda á aldrin- um 18-83 ára. Ritnefndina, sem valdi ljóð- in í bókina, skipa Berglind Gunnarsdótt- ir, Jóhann Hjálmarsson og Kjartan Áma- son. Þau eru öll Ijóðskáld. Frá og með morgundeginum, 2. júní, eru umskráningar bifreiða óþarfar. Þótt bifreið skipti um eig- endur sem búa sitt hvoru megin á landinu er ónauðsynlegt aö umskrá bifreiðina. Heimilt er, til næstu ára- móta, að umskrá bifreiöar vilji aðilar halda númeri sínu. Við nýskráningu verða ökutæki sem fyrr skráð á núm- er þess umdæmis er eigandi hefur lögheimili. Umskráning kostar nú 1.500 krón- ur ef bifreið er flutt á milli umdæma. Umskráning á bifreið sem ekki flyst á milli umdæma kostar 4.300 krónur. Ný skráningarspjöld kosta 1.500 krónur. Ríkisútvarpið verður með fréttir á ensku í sumar eins og verið hefur nokkur undanfarin sumur. Sú breyt- ing verður nú á þessum fréttaútsend- ingum að þær verða á rás 1 á morgn- ana að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Með því að senda fréttimar út á rás 1 nást þær um allt landið og út á miðin. Ríkisútvarpið ætlar frétta- sendingarnar þó helst erlendum ferðamönnum. Þar verður stutt yfir- Frá næstu áramótum verður heim- ild til umskráningar felld niður og verða þá tekin upp skráningarnúmer í samræmi við fastnúmeraskrá Bif- reiðaeftirlitsins. Mun sama skrán- ingarnúmer fylgja ökutæki frá nýskráningu til þess að það er endan- lega tekið úr umferð. Við sölu á notaðri bifreið þarf hér eftir að senda nákvæmlega útfyllta sölutilkynningu ásamt eigenda- skiptagjaldi, 1.500 krónur, til aðal- skrifstofu Bifreiðaeftirlitsins eða til bæjarfógeta eða sýslumanna utan Reykjavíkur. lit erlendra frétta, helstu innlendar fréttir, sem varða útlendinga, fréttir af menningar- og listviðburðum, leið- beiningar til erlendra ferðamanna varðandi umgengni um landið og fréttir af vegum og umferð. í lokin verður svo veðurspá. Þessir fréttatímar standa fram í september. Ágrip af fréttunum verö- ur lesið inn á símsvara sem opinn verður allan sólarhringinn. -JBj Eriend lán: -sme Fréttir á ensku að hefjast á Rás 1 Akureyrarblað fylgir á morgun í blaðinu, sem er 32 síður að stærð, er fjölbreytt efni, viðtöl, greinar og myndir. M.a. viðtöl við Ernu Indriðadóttur, Hörð Tulinius, Gunnar Nielsson, Þráin Lárusson og Ragnar Sverrisson. Heimsóknir í einu skóverksmiðju landsins, á Akur- eyrarflugvöll, í Hljóðbylgjuna, á slökkviðstöðina og áfam mætti telja. Umsóknum fjölgar Súld með tónleika á Hótel Borg Fimmtudaginn 2. júní heldur hljómsveit- in Súld tónleika á Hótel Borg kl. 21.30. Hljómsveitina skipa: Lárus Grímsson, hljómborð og flauta, Stefán Ingólfsson, bassi, Szymon Kuran, fiðla og Steingrím- ur Guðmundsson, trommur. Súld hefur fengið nýjan meðlim, en það er slagverks- leikarinn Maarten Van der Valk. Hljóm- sveitin mun leika lög af nýrri plötu ásamt nýju efni. Einnig mun Ttíó Guðmundar koma fram. Fiðlutónleikar í Norræna hús- inu Tónleikar verða í Norræna húsinu funmtudaginn 2. júni kl. 20.30. Þær Bryndís Pálsdóttir fiðluleikari og Joanna Lee píanóleikari flytja þar verk eftir J.S. Bach, W.A. Mozart, F. Kreisler og S. Pro- kofiev. Tónlistarskóla Kópavogs slit- ið Tónlistarskóla Kópavogs var slitið 20. maí sl. og þar með lauk 25. starfsári skól- ans. Nemendur voru 463 og þar af voru 108 í forskóladeildum. 22 nemendur tóku þátt í námskeiðum í tónlist fyrir full- orðna. Eins og jafnan áður þá var tón- leikahald fyrirferðarmikill þáttur í starfl skólans. Fyrir utan opinbera jóla- og vor- tónleka voru haldnir flölmargir tónleikar innan skólans fyrir nemendur og að- standendur þeirra. Einnig komu nem- endur og kennarar oft fram utan skólans við ýms tækifæri. Tapað fundið Hundur í óskilum Fannst á hvítasunnudag. Upplýsing- ar í síma 20888. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að umsóknum um heimildir fyrir erlendri lántöku hafi íjölgað í kjölfar yfirlýsingar ríkisstjórnarinn- ar um rýmkun á þessum heimildum til atvinnufyrirtækja er stefna á fjár- hagslega endurskipulagningu. Jón vildi ekkert segja um hversu háar þessar umsóknir væru né hve marg- ar en þær bætast við þær umsóknir sem legið hafa óafgreiddar í ráðu- Uppselt var orðið um hádegi í gær á djasstónleika fiðlusnillingsins Stéphane Grappelli á listahátíð. Rut Magnússon, framkvæmda- stjóri listahátíðar, sagði í samtali við DV að miðasalan gengi mjög vel og mjög jöfn aðsókn væri á flesta við- burði hátíðarinnar. Miðar á tónleika Ashkenazys eru langt komnir og auk þess eru Léon- Gengið hefur verið frá því að Boris Spasskí þjálfi ólympíulandslið ís- lands í skák áöur en það heldur á ólympíumótið í Þessalóniku í Grikk- landi sem hefst 12. nóvember. Á tímabili var rætt um að Pol- úgajevskí þjálfaði liðið og sýndi hann því mikinn áhuga. Það voru hins vegar uppi vangaveltur um hvort heppilegt væri að láta hann þjálfa liðið vegna tengsla hans við sovéska liöið. Það varð því að ráði aö fá neytinu um nokkurn tíma. Þar er meðal annars umsókn frá Samband- inu um heimild fyrir hátt á þriðja hundrað milljóna láni. Að sögn Jón er það ætlan ráðuneytisins að bíða um sinn til þess að fá heildarmynd af umfangi umsóknanna. Það mun því líða einhver tími áður en um- sóknirnar verða afgreiddar. ard Cohen í Laugardalshöll og Black Ballet Jazz í Þjóðleikhúsinu mjög vinsælir, að sögn Rutar. Hún vildi koma þeirri ábendingu til fólks, sem ætti ósótta miða á djass- tónleika Grappellis, aö sækja þá sem fyrst því að miðarnir veröa seldir á mánudag ef þeir hafa ekki verið sótt- ir. -JBj Spasskí til leiks en hann kemur ein- mitt hingað í haust í tengslum við Grand Prix mótið í skák. Ekki hefur endanlega verið gengið frá vali íslenska liðsins en auk stór- meistaranna Helga Ólafssonar, Jó- hanns Hjartarsonar, Margeirs Pét- urssonar og Jóns L. Árnasonar verða líklega alþjóðlegu meistararnir Þröstur Þórhallsson og Karl Þor- steins í sveitinni. -SMJ -gse Listahátíð: Uppselt á Grappelli Ólympiumótið í skák: Spasskí þjálfar íslenska liðið Örbylgjusamband komið til Hafnar: Kertaþræðir trufluðu útsendingar sjónvarps Örbylgjusamband er nú komið til Hafnar í Hornafirði og er vonast til þess að það muni bæta verulega skil- yrði til móttöku útsendinga Sjón- varpsins. Horníirðingar hafa til þessa þurft að búa við afar léleg sjón- varpsskilyrði. Vegna vegalengdar hefur styrkur útsendingarinnar ver- iö mjög lítill á Höfn. Utanaðkomandi truflanir hafa haft veruleg áhrif á skilyrðin. Um tíma neituðu Hafnarbúar að greiða af- notagjöld vegna þessa. Ólíklegustu hlutum hefur verið kennt um, svo sem lyftara í eigu KASK, vinnuvél- um og kertaþráöum í bifreiðum heimamanna. Vonast er til að hið nýja örbylgju- samband leysi þetta vandamál. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.