Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
5
r>v Viðtalið
Pumpa lóð
af ogtil
Nafn: Einar Sigurðsson
Aldur: 32
Staða: Fréttafulltrúi
Flugleiða
„Ég pumpa lóð af og til í
þeim tilgangi aö telja raér trú
um að ég sé á leið inn í hollt
og gott líferni. En það er nú
meira til aö sýnast fyrir sjálf-
um mér en til að ná árangri,"
segir Binar Sigurösson, ný-
ráðinn fréttafulltrúi Flug-
leiða. Hann tekur við nýja
starfmu af Boga Ágústssyni
um miðjan júní.
Einar Sigurðsson er fæddur
og uppalinn á Akureyri. For-
eldrar hans eru Sigurður
Bárðarson bifvélavirki og Sig-
ríður Einarsdóttir. Eiginkona
Einars er dr. Kristín Ingólfs-
dóttir, lyfjafræðingur hjá Há-
skóla íslands, og eiga þau eina
fimm ára dóttur.
„Hef hæfilegan áhuga
á iþróttum“
„Eg hef hæfilegan áhuga á
íþróttum en tek þó meiri þátt
í þeim gegnum sjónvarp en
sem vii-kur þátttakandi.
Annars eru tómstundirnar
ekki tpjög margar. Þær sem
gefast hafa þó mest snúist í
kringum fjölskylduna og flöl-
miðla. Ég er lítill félagsmála-
maður enda hef ég alltaf verið
í vinnu þar sem ég er í miklu
samneyti viö fólk og hef ég því
ekki fúndiö ríka þörf hjá mér
að bæta mér upp félagsskap
sem sumir missa af í starfi
sínu. Maöur reynir frekar að
eyða tímanum með sínum
nánustu."
Fjölmiðlafræði og
félagsstjórnmálafræðí
Einar Sigurðsson er mennt-
aður fjölraiðlafræðingur og
félagsstjórnmálafræðingur
frá tveimur háskólum í Lon-
don. Hann var við nám í Lon-
don á árunum 1978 til 1983 og
starfaöi samhliða náminu
sem dagskrárgerðarmaður og
fréttamaður á Ríkisútvarp-
inu. „Ég byrjaöi aö vinna við
dagskrárgerð á Ríkisútvarp-
inu um tvítugt. Með námi var
ég fréttaritari útvarpsins í
London og vann á útvarpinu
í sumarfríum,“ segir Einar.
Hann starfaði sem frétta-
raaður hjá Sjónvarpinu árin
1983 til 1986 og var útvarps-
stjóri Bylgjunnar frá stofnun
hennar 1986 þar til í mars
1988. Frá því aö Einar lét af
útvarpsstjórastarfmu hefur
hann unnið að ýmsum verk-
efnum fyrir íslenska útvarps-
féiagiö. -JBj
Fréttir
Möig hundruð músa-
og rottukvartanir á ári
- mikið um að skolpræsalagnir séu skildar eftir opnar
„Jú, jú, viö höfum verið kallaðir í
Grjótaþorpið vegna rottugangs,"
sagði Asmundur Reykdal hjá hreins-
unardeild borgarinnar í samtah við
DV. Eins og kom fram í DV í gær
hafa íbúar Grjótaþorps kvartaö und-
an rottugangi í hverfinu og eru held-
ur óhressir með frágang grunnsins
sem grafmn var í Aðalstrætinu síð-
asthðið haust.
„Það virðist sem skolpræsalagn-
irnar í þessum skurði hafi verið
skhdar eftir opnar,“ sagði Ásmund-
ur, „en þetta er nokkuð algengt og
vitanlega ekki nógu gott. Þeir sem
eru að grafa shka skurði verða að
passa það að ganga frá öllum lögn-
um.“
Að sögn Ásmundar fær hreinsun-
ardeildin 600-800 kvartanir um
músa- og rottugang árlega.
„Á hverju sumri erum við með ár-
lega herferð. Þá er eitrað í öll ræsi
og er sett eitur í 4000-6000 brunna,"
sagði Ásmundur. „Mikilvægt er að
rotturnar fái hvergi að vera í friði.
Þær fjölga sér svo geysilega. Hvert
rottupar getur átt um 800 afkvæmi á
ári.“
Að sögn Ásmundar er ástandið hér
á landi þó ekki slæmt miðað við það
sem gerist í flestum stórborgum er-
lendis og fer það frekar skánandi.
-RóG.
íbúar Grjótaþorps hafa kvartað undan rottugangi að undanförnu. Meindýraeyðar borgarinnar hafa nóg að gera á
hverju vori við rottu- og músaveiðar en á þessum tíma er sérstaklega mikið um kvartanir vegna þessara kvikinda.
En hún er nú ósköp sakleysisleg þessi litla trítla. Meira að segja kisurnar gáfu henni tækifæri á að réttiæta bæj-
arröltið.
Almenningssalerni í Reykjavík fá:
Mun ekki fjölga
á þessu ári
Almenningsnáðhús eru fá á höfuö-
borgarsvæðinu. Samkvæmt upplýs-
ingum borgarverkfræðingsemb-
ættisins geta Reykvíkingar leitað á
náðir fjögurra almenningssalerna á
veturna þegar móðir náttúra kallar.
Á sumrin eru að auki starfrækt al-
menningssalerni í Hljómskálagarð-
inum í Reykjavík.
í Bankastræti eru tvö náðhús. Ann-
að er ætlað konum en hitt karlmönn-
um. Þar er opið frá klukkan níu á
morgnana til kl. 23 að kvöldi.
Á viðkomustað strætisvagna við
Hlemmtorg er einnig aðstaða sem
almenningur getur nýtt sér þegar
þörf er á. Þar er opið frá klukkan 8
á morgnana til klukkan 22 á kvöldin.
Á viðkomustað strætisvagna á Lækj-
artorgi er einnig aðstaða fyrir al-
menning. Náðhúsið þar er aftur á
móh læst og þurfa gestir því að fá
lykil húsvarðar til að geta létt á sér.
Á mótum Miklubrautar og.Löngu-
hlíðar eru einnig almenningssalerni.
Opnunartími er frá hádegi til klukk-
an 19 alla virka daga. Þar er aftur á
móti ekki opið um helgar. Á sumrin
eru einnig starfrækt náðhús í Hljóm-
skálagarðinum. Þar er opiö frá
klukkan 7 að morgni til klukkan 19.
Samkvæmt upplýsingum frá borg-
arverkfræðingsembættinu var áætl-
að að fjölga almenningsnáðhúsum í
miðborginni. Til stóð að reisa bygg-
ingu á Lækjartorgi sem hýsa myndi
salernisaðstöðu fyrir almenning.
Slíkar framkvæmdir verða þó að
bíöa betri tíma því ekki er gert ráð
fyrir þeim á þessu ári.
-StB
Djúpivogur:
Tónlistin í hávegum
- 54 nemendur í tónskólanum í vetur
Siguröur Ægisson, DV, Djúpavogi:
Á dögunum var Tónskóla Djúpa-
vogs slitið og voru af því tilefni
haldnir í grunnskólanum mikhr tón-
leikar þar sem fram komu yfir 40
nemendur tónskólans. Þar mátti
heyra og sjá leikið á blokkílautur,
orgel, píanó og bæöi klassíska gítara
og rafmagns. Þá kom þar einnig fram
Samkór Djúpavogs og söng nokkur
lög. Mikill íjöldi áheyrenda kom á
þessa skemmtun, er stóð yfir í rúma
tvo klukkutíma, og þótti hún takast
með afbrigðum vel.
Það eru Búlandshreppur, Geit-
hellnahreppur og Beruneshreppur
er standa að tónskólanum. Metað-
sókn var að skólanum síðastliðinn
vetur; alls voru nemendur þar 54 en
hrepparnir þrír hafa innan við 600
íbúa. Veturinn þar áður voru nem-
endur 36.
Síðastliðna tvo vetur hefur kennari
og skólastjóri verið Haraldur Braga-
son en nú hefur veriö sótt um að fá
að ráða mann í hálfa stöðu í viðbót
þar eö einn maður annar þessu
hvergi. Þess má geta að Haraldur er
líka organisti Djúpavogskirkju og
æfir auk þess Samkórinn.
Símaskráin 1988:
Tekur gildi á sunnudag
Eins og skýrt var frá í DV í gær
er símaskráin 1988 komin út. Upp-
lag hennar er um 145 þúsund ein-
tök. Blaðsíöutalið er nú 832 en það
er aukning um 64 siður frá þvi í
fyrra.
Nýja símaskráin tekur giidi 5.
júní nk. Númerabreytingar á svæð-
um 99 og 98 taka gildi nokkrum
dögum síðar og verður það nánar
auglýst í dagblöðum.
Ný götu- og númeraskrá yfir höf-
uðborgarsvæðið er einnig komin
út Hún er til sölu á afgreiðslustöð-
um Póst- og símamálastofnunar og
kostar 850 krónur. -StB
Sigrún sendir forseta Islands skeyti:
Mótmælir setningu
bráðabirgðalaga
Sigrún Þorsteinsdóttir forseta-
frambjóðandi sendi í fyrradag skeyti
th Vigdísar Finnbogadóttur, forseta
íslands, þar sem hún tekur undir
mótmæli Alþýðusambands íslands
og Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja við setningu bráðbirgðalaga
þeirra sem ríkisstjórnin setti á dög-
unum.
Stuðningsmenn Sigrúnar segja
skeytið hafa verið sent vegna þess
að forsetinn er staddur hér á landi
um þessar mundir og vegna áforma
ríkisstjórnarinnar um að setja ný
bráöabirgðalög í stað þeirra fyrri.
Auk þess árétti Sigrún með skeyt-
inu það viðhorf sitt að ekki skuli
undir nokkrum kringumstæðum
taka af fólki jafnsjálfsögð lýðréttindi
og samningsréttinn. -JBj
Nemandi og kennari leika saman á klassiska gítara, Þorgils Ragnarsson
og Haraldur Bragason. DV-mynd SÆ