Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988. Sandkom allri sinni nekt! Árlegmetsölu- bók lands- maxrna, síma- skráin, erkom- in ú(. Litlar ; : breytingarhafa veriögerðará innvolsinu, nemahvað búiöc-raðtlytja Suðurland ut í Vestmannaeyjar og er enn ekki vitað hversu ánægðir Eyjaskeggjar cru með þaö. Aöal- breytingin á símaskráxmi er hins veg- ar kápan. í staðmyglulegrarlitasam- setningar og auglýsinga trá bönkun- um er nú Gullfoss kominn þar sem honum ber að vera: á forsíðuna. Nú er símaskráin orðin svo falleg að sennilega hríðfellur alveg sala á hlíf- um og kápum utan um hana en slíkar kápur hafa verið mjög vinsælar, ekki h vað síst tíl aö hylja frekar dapurlegt útlit skrárinnar. Þetta árið íær síma- skráin sennilegast að tróna inni á flestum heimilum landsmanna í allri sixininekt! Snýr Skerið aftur? Sembeturfer eruflölmiðlar aðroestúhætt- iraðflalla.um nýafstaðna Eurovision- keppni. W var viötal við Sverri Storm- skeráStjörn- imni nýlega. Stormsker var spurður hvað hann væri að bardúsa þessa dagana. Hann svaraði því til að hann sæö þá stund- ina fyrir framan videóið og svo væri lúdóiö að sjálfsögðu innan seilingar. Og svo bætti S verrir við: „Og náttúr- lega er ég að bíða eftir næstu keppni!" Þetta gefur óneitanlega tU kynna að Sverrir hugleiði að taka aftur þátt í söngv'akeppninm næsta ár. Þar með myndi hann brjóta blað í íslenskri söngvakeppnishefð því til þessa hafa Eurovisionhafar orðið með öEu af- huga söngvakeppni Evrópu eftir að hafa hlotíð sextánda sætiö, gott ef ekki afhuga tónlist almennt í vissan tíma. Ræsin háttuppi? Timinngreinir fráþviigærað útvarpsstöðin Bylgjan hafi bi-orið isiensk fánaliigaðíára- nótt laugar- dagsins.ífrétt- innisegir með- aiannars: „Þannigvar fáninn uppi mun lengur en fánalög segja til um, og auk þess sem fánarn- ir lágu í göturæsi útvarpsstöðvarinn- ar.“ Einhvem veginn áttar Sand- kornsritari sig ekki á því bveraig fán- arnir gátu verið uppí og í göturæsinu í senn, Nema þá að ræsin við Bylgj- una séu höfö svona hátt uppi til að koma í veg fyrir rottugang. En fréttin heldur áfram með viðtali við Pál Bylgjustjóra Þorsteinsson: „Lögregl- an tók á þessu meö mikilli ábyrgð og mikilli festu. En í stað þess að leið- beina okkur hvemig á að fara að lög- um þá tóku þeir það til ráðs að gera þá (fánana) upptæka og hótuðu að brenna fánana." Einfóldum Sand- kornsritara varð það á að hugsa hvort það væri ekki einnig brot á fánalögunum að brenna þá? Brúðkaup aldarinnar Góðkunningi Sandkorns náði sér í gullfallega ogmoldríka stúlku ojj brúð- kaupiðstóðfyr- irdyrum.Fjöi- skyldabrúðar- innarvaraf- skaplegafínog merkileg og tók undirbúning veisl- unnar i sínar hendur og hafði brúð- guxninn tilvonandi lítið um hann að segja. Tveimur dögum fyrir brúö- kaup hélt tengdamamma fyrirlestur yfir væntanlegum tengdasyni og end- aði með þ ví að segja: „Þetta á að verða brúökaup aldarinnar. Allt vcröur að vera fúllkomið. Jafti vel hið ómerki- legasta smáatriöi má ekki vanta!“ „Aiit í lagi, tengdamarama," sagði brúöguminn, „égmæti öruggiega!'1 Umsjón Axel Ammendrup Fréttir Hleninartæki lyrir farsíma: Deilt um lögmæti þeirra - lögreglan að fá tæki sem ekki er hægt að hlera í kjölfar aukinna vinsælda farsíma hefur sala á svokölluðum „scanner- um“ eða rásaleiturum einnig aukist. Þessi handhægu tæki gera það að verkum að hægt er að hlusta á sam- töl sem fara í gegnum farsíma, bíla- síma, þráðlausa síma og talstöðvar. Til eru margar tegundir rásaleitara og með sumum þeirra er hægt að hlusta á flest þess háttar samtöl. Ekki eru allir farsíma- og talstöðva- notendur ánægðir með þessa þróun mála. Sjómenn, sem keyptu mikið farsíma þegar sala á þeim hófst hér á landi, eru óhressir með að aflafrétt- ir geti þannig borist manna á milli. Með „scanner" er einnig hægt að hlusta á fjarskipti lögreglunnar sem að sjálfsögðu eru ekki ætluð eyrum almennings. En samkvæmt upplýs- ingum lögreglunnar í Reykjavík mun nýr búnaður verða tekinn í gagnið á þessu ári sem gerir lögreglumönnum kleift að ræða sín á milli mál sem okkur hinum er ekki ætlað að hlusta á. Að sögn Ólafs Indriöasonar hjá Pósti og síma eru menn ekki á eitt sáttir um hvort þessi tæki séu lögleg eður ei. „Ég tel að þau séu ekki lögleg en menn hafa ekki treyst sér út í aögerð- ir vegna þeirra," sagði Ólafur í sam- tali við DV. „Við höfum bent samgöngumála- ráðuneytinu á hvernig málum er háttað en ekkert svar hefur borist. Það er hugsanlegt að keyptur verði trullunarbúnaður í farsímastöðvar sem geri þaö að verkum að ekki verði hægt að hlusta á samtöl sem fara á milli í farsímum. En ekki er búið að ákveða hvort eða hvenær slíkur bún- aður yrði keyptur." Að sögn Ólafs er mögulegt fyrir farsíma- og talstöðvanotendur að kaupa truílunartæki á hvert símtæki eða talstöð. En slíkur búnaður er dýr og að auki þyrftu báðir aðilar, þ.e bæði sá sem hringir svo og sá sem svarar, að hafa slíkan búnað til aö koma í veg fyrir að utanaðkomandi heyrðu samtal þeirra. Énn sem komið er verða því far- síma- og talstöðvanotendur að láta sig hafa það þó að utanaðkomandi hlusti á samtöl þeirra. -StB Sláturiiúsi í Grindavík synjað um sláturleyfi Sláturhúsi Kaupfélags Suðurnesja í Grindavík hefur verið synjað um leyfi til slátrunar í haust. Slátur- húsinu var synjað um leyfi sam- kvæmt mati yfirdýralæknis en það var eitt þeirra húsa sem fékk undan- þágu til slátrunar í fyrra. Sveinbjörn Eyjólfsson, deildar- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, sagði í samtali við DV að það yrði ekki vandamál fyrir Suðurnesja- menn að finna stað til slátrunar vegna lokunar sláturhússins í Grindavík. Suðurnesjamenn hefðu slátrað á íleiri stöðum en í Grinda- vík, s.s. á Selfossi og í Kjós. Mögu- leiki væri fyrir kaupfélagið að semja um slátrun á þessum stöðum. Sveinbjörn sagði að búast mætti við að ráðuneytið færi í júní aö gefa út leyfi eða synjanir til slátrunar. Stefnt væri að því að hafa lokið leyf- isveitingum fyrir haustið. Frestur til að sækja um sláturleyfi til land- búnaðarráðuneytisins rennur út 15. júní. -JBj Ævintýrí í náttúrunni Krakkar í Kópavogi fá kjörið tæki- færi í sumar til að njóta náttúrunnar og reyna sig í leikjum, þrautum og lærdómsríkum skátastöxfum. Skáta- félagið Kópar í Kópavogi stendur fyr- ir ævintýra- og útilífsnámskeiöum fyrir börn á aldrinum 10-13 ára. Far- ið verður í fjallgöngu, fjöruferð, hjóla- og hellaferð. Krakkarnir fá líka kennslu í útieldun, skyndihjálp, læra að hnýta hnúta og fá tilsögn með áttavita. Þá verður farið í ýmsa leiki og sungiö að hætti skáta. -RóG. Skátar hafa löngum kunnað lagið á þvi að njóta náttúrunnar. Þeir virðast lika ánægðir með tilveruna, þessir ungu skátar sem neyta „útieldaðs" matar, enda í ekta skátaútilegu. Auðunn Jörgensson með laxinn góða af Flákanum. DV-mynd ÁEA Ólafsvík: Happadráttur á Flákanum Ámi E. Albertsson, DV, Ólafsvík: „Ég hélt nú fyrst að það væri fast í botni,“ sagði Auðunn Jörgensson, formaður á Laufeyju Jörgensdóttur VE-23 sem er fimm tonna trilla frá Vestmannaeyjum, „en ég beiö með að draga í um það bil fimm mínútur í von um að það losnaði við rekið. Þegar ég fór aö hifa hélst stöðugur þungi á færinu en DNG-rúllan fór létt með það. Þegar færið kom upp var slóðinn fullur af drjóla-þorski og á neðsta króki var 16 punda lax. Ég hélt að kokkurinn (Jörgen Náby, fað- ir Auðuns) ætlaði að missa út úr sér augun“. Það voru því hróðugir feðgar sem komu að landi í Ólafsvík fimmtudag- inn 26. maí með 2,5 tonn af þorski eftir daginn og myndarlax í kaup- bæti. Kjósendur til forsetakosninga: Um 4.700 manns kjósa nú í fyrsta skipti Samkvæmt upplýsingum Hag- stofu íslands munu um 4.700 manns neyta kosningaréttar í fyrsta sirm í forsetakosningunum sem fram eiga að fara þann 25. næsta mánaðar. Þaö eru þeir sem fæddir eru 26. apríl 1969 til 25. júní 1970. Með breytingu á kosningalögum árið 1984 var kosningaaldur lækk- aður úr 20 árum í 18. Að auki var kosningaréttur rýmkaöur og veld- ur lögræðissvipting, flekkað mann- orð eða lögheimilisflutningur til útlanda síðustu íjögur ár ekki missi kosningaréttar. Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum Hagstof- unnar. Samkvæmt þeim kjörskrár- stofnum sem Hagstofan hefur unn- ið með vegna forsetakosninga í sumar, eru 176.527 manns á kjör- skrá. Karlar eru 88.259, en konur 88.268. Allir þeir sem eru fæddir 1970 og fyrr eru teknir á kjörskrárstofna. Þeir verða að hafa íslenskan ríkis- borgararétt, eiga lögheimili á ís- landi, eða hafa átt það síðustu íjög- ur ár, talið frá 1. desember fyrir kjördag. Á kjörskrárstofni eru 3.267 manns sem eiga lögheimili erlendis 1. desember 1987. Nokkrar breytingar munu eiga sér stað á kjörskrárstofni á kjör- degi. Þeir sem ná 18 ára aldri á árinu, eftir kjördag, svo og þeir sem falla frá fram að kjördegi eru frá- taldir í endanlegum tölum. Heild- arfjöldi eftir áætlaða lækkun sök- um þessa er 173.800 manns. Áætluð fjölgun kjósenda á kjör- skrá frá síðustu forsetakosningum, 29. júní 1980, er 21%. Mest er fjölg- unin í Reykjaneskjördæmi, 35%, en minnst á Vestfjörðum, 9%. -StB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.