Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988. 7 JOV Fréttir Austfirðingar vilja fá 10-15 km jarðgöng: „Davíð á ekki skilið að fá núll með gati ffá Vegagerðinni“ „Við Austfirðingar getum ekki beðið lengur eftir því að hafist verði handa við jarðgangagerð hér hjá okkur. Við teljum okkur eiga fullan samfélagslegan rétt á því að í þess- ar framkvæmdir verði ráðist," sagði Jónas Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri á Seyðisfirði, en hann stendur í fylkingarbrjósti fólks á Austurlandi sem krefst rót- tækra aðgerða í vegamálum Aust- firðinga. Jónas sagði að sem dæmi um ástandið mætti nefna að í vetur hefðu Oddsskarð og Fjarðarheiöi verið ófær í fimm daga og byggðar- lögin þar því verið einangruð þann tíma. Þetta væri ástand sem nú- tímamenn gætu ekki látið bjóöa sér. Þeir Austfirðingar vilja jarðgöng sem geti tengt saman byggðir á Austurlandi og telja þeir að aðeins með þeim hætti verði byggð þarna varðveitt. Um helgina var haldinn fundur áhugamanna um málið og voru um 60-70 manns mættir þar og að sögn Jónasar ríkti mikill ein- hugur á fundinum. „Á fundinum var samþykkt aö ýta þessu máli úr vör af fullum krafti. Við viljum fá viðurkenningu opinberra aðila á að þetta sé raun- verulegur og fýsilegur kostur og í raun sá eini raunhæfi sem mögu- legur er til aö halda fólki hér í byggðarlaginu.“ - segir Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri á Seyðisfirði Kostnaðartölur svipaðar og hjá Færeyingum Jónas sagöi að framkvæmdirnar við Ólafsfjarðarmúla nú sýndu að þær tölur, sem þeir Austfirðingar hefðu verið að ræða um, væru raunhæfar. Við Ólafsfjörð væru framkvæmdir sambærilegar því sem Færeyingar hefðu veriö að gera og nú væri greinilega tækifæri fyrir Islendinga að ráðast í jarö- gangagerð en við værum ótrúlega langt á eftir öðrum löndum að þessu leyti. Þetta væri bara spurn- ing um reynslu og tækni sem viö þyrftum nú að öðlast. Jónas sagði að því hefði verið mótmælt að kostnaður hér væri svipaður og í Færeyjum en útboðið í Ólafsfjarð- armúla sýndi hins vegar að 'svo væri. En hvar vill Jónas taka pen- inga fyrir þessum framkvæmdum? „Ég skal segja þér það að kostn- aðurinn við þetta er aðeins helm- ingurinn af samanlögðum kostnaöi við flugstöðina, ráöhúsið, Seöla- bankahúsið, Kringluna og skopp- arakringluna. Þar með er búið að leysa þaö mál. Það er ljóst að þaö veröur að mæla arðsemi í fleiru en peningum, svo sem félagslegri og búsetulegri arðsemi. Þetta tal um að Reykjavík þurfi peninga frá Vegagerðinni er óskiljanlegt. Davíð ætti ekki að fá núll með gati frá Vegagerðinni. Auðvitaö hefur borgin nóg af fjár- öflunarmöguleikum og í raun allt aðra aðstööu en byggðarlög úti á landi.“ A kortinu sjást göng þau sem Austfirðingar vilja fá. Engar forsendur eru enn fyrir hendi til að segja fyrir um nákvæmlega hvar þau koma en kortið sýnir í grófum dráttum á hvaða hátt Austfirðingar vilja að göng tengi saman byggðir Austurlands. Jónas sagði að þeir Austfirðingar vildu nú ganga frá ákveðnum hring á Austurlandi og til þess þyrfti fjög- ur jarðgöng sem yrðu á bilinu 3-5 km. hvert. Ekki væri búið aö ákveða ennþá hve löng þau verða, enda séu ýmsar forsendur enn óljósar. Jónas sagði t.d. að jarðgöng á Austurlandi gætu vel hafist í meira en 200 m hæð sem væri það viðmið sem Vegagerðin notaði. Þetta væri vegna þess að veðurfar á Austurl- andi væri allt annað en á Norður- og Vesturlandi. Miklu snjóléttara væri á Austfjörðum og því væri hægt aö hafa göngin mun ofar sem gerði það að verkum aö þau yröu styttri og þar með ódýrari. En hvenær vilja Austfirðingar láta ráöast í þetta mikla fyrirtæki? „Við miðum við að það þurfi tvö til þijú ár í undirbúningstíma en þaö er sá tími sem talið er aö fari i Ólafsfjarðargöngin. Við miðum við að það veröi hafist handa hér hjá okkur um það leyti en við ger- um okkur þó grein fyrir aö við er- um á eftir Vestfiröingum. Þeir eru á undan okkur í forgangsröð og við sættum okkur við þaö. Ég tel að við íslendingar megum engan tíma missa. Við erum á hrað- ferö inn í næstu öld og það er ljóst að ef við eigum að geta haldið í unga fólkið þá þarf þarna að verða mikil breyting.“ -SMJ Helgi Hallgrímsson: „Kvörtum ekki undan samvinnu Ríkið skuldar Reykjavík hálfan milljarð vegna vegagerðar: „Sættum okkur ekki við þessa meðferð" við Alþingi“ litið farið eftir arðsemismælingum segir Davíð Oddsson borgarstjóri Flestöll þau mannvirki, sem Vegagerðin lætur gera, eru arð- semismæld á einhvern hátt en eigi að síöur viröist vera tilviljun háö hvort farið er eftir þessum arðsem- ismælingum. Það kom t.d. skýrlega í ljós þegar ákveðið var að ráðast í gerð jaröganga í Ólafsfjarðarmúla en enga arösemi er hægt að mæla á þeim göngum. Jarðgöng koma reyndar illa út úr arðsemismæhngum en þó má finna jarðgöng sem hugsanlega geta skilaö einhveijum arði, Lagn- ing varanlegs slitlags mun koma best út þegar arðsemi er mæld. Helgi Hallgrímsson aöstoðarvega- málastjóri var spurður að þvi hvort ekkert mark væri tekið á arðsemis- útreikningum Vegagerðarinnar? „Það raá segja að stundum sé far- iö eftir þeim og stundum ekki. Við hjá Vegageröinni höfum aldrei haldið því fram að arðsemin sé ein- hlítur mæhkvarði. Það tengist þeirri sfaðreynd aö arðsemismæl- ingum eru takmörk sett“ Helgi sagði aö arðsemi væri reiknuð yfir 20 til 30 ára tímabil. Bornar væru saman tekjur og gjaldatölur og þannig reynt að fá arðsemisprósentu á ákveðnum tíma. Helgi sagöi aö þeir hjá Vega- gerðinni kvörtuðu ekki yifir sam- vinnu við Alþingi né fjárveitingar- valdið. í drögum að framkværadaráætl- un í Reykjavík 1988-1992 er bent á arðsemi þeirra framkvæmda sem er lagt til að ráöist verði í hér í Reykjavík. Þar segir aö um götur þær, sem þar sé fjallaö um, það munu vera þjóðvegir og þjóðvegir í þéttbýli, aki daglega um 400.000 bílar. Er þar sagt að ef unnt sé aö stytta aksturstíma bifreiða þessara um eina mínútu á dag og tíma- kostnaður bils, ökumanns og far- þega sé raetinn á 200 kr. yrði tíma- spamaður á ári hveiju tæpar 500 mifijónir. Þessu til viðbótar kæmi síðan spamaður á reksturskostn- aöi bíla, -SMJ „Borgin hefur lagt út fyrir ríkis- sjóð vegna vegagerðar í þéttbýli og er nú svo komið að ríkið skuldar borginni hálfan mihjarð vegna þess. Þá hefur verið gefið upp að ríkið ætlar ekki að greiða verðbætur á þessa upphæð sem hefur verið tekin að láni hjá borginni. Við munum ekki sætta okkur við þessa með- ferð,“ sagði Davíð Oddsson borgar- stjóri en fyrirsjáanlegt er að ríkið muni ekki greiða nema 60 til 70 millj- ónir vegna vegagerðar á höfuðborg- arsvæðinu á þessu ári. Fyrir stuttu átti Davið viðræður við samgönguráðherra, Matthías Á. Mathiesen, og sagði Davíð að vilji hefði komið fram hjá ráðherra að bæta hlut borgarinnar, en fjármagn væri ekki til staðar. Þá sagði borgarstjóri að ýmis mannvirki, sem langt væri komið með og hefði þurft að ljúka, svo sem Sætún og Bústaðavegur, yrðu líklega ekki kláruð í ár og þeir peningar sem til verksins hefðu farið myndu því ekki skila neinum aröi í ár. Borgarstjóri sagði að byggíng um- ferðarmannvirkja gæti vissulega flokkast undir forgangsverkefni en eigi að síður væri ekki fýsilegur kost- ur fyrir borgina að lána ríkinu meiri fjármuni til þessarar vegagerðar nú þegar áform væru um að greiða ekki verðbætur á féð. En hvernig ætlar borgarstjóri að sækja þetta mál - ætlar hann í mál við ríkissjóö? „Nei, þetta mál verður sótt með öðrum hætti. Við munum t.d. leita til þingmanna Reykvíkinga og sjá hvort þeir geta beitt sér í þessu máh eins og þingmenn annarra kjördæma hafa gert. Það er þó ljóst að varla verður mikil breyting í ár, enda fjár- lagagerð löngu lokið.“ -SMJ BREMSUKLOSSAR • HJÖRULIÐIR • AUKALJÓS • BÚKKAR • TJAKKAR • HÖGGDEYFAR ÖRYGGISBELTI • KERTI • VARAHLUTIR • AUKAHLUTIR • HJÓLKOPPAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.