Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
Viðskipti___________________________________________________dv
Alþjóðlegur markaðsvísir á íslandi:
Islensk fyrirtæki í gagna-
banka um allan heim
- um 400 þúsund eriendum fyrirtækjum boðin íslensk Kompassbók til sölu
Lúðvík Gústafsson, starfsmaður tölvudeildar Kompass, rýnir í gagnabankann þar sem leita má upplýsinga um
fyrirtæki hér, í Evrópu og víðar. Á borðinu stendur árleg útskrift gagnabankans, markaðsvisir Kompass.
DV-mynd Ragnar Th.
„Kompassbókin er í sjálfu sér aö-
eins eitt verkfæri af mörgum sem
nota má viö gagnasöfnun og mark-
aðskönnun. Bókin kemur út einu
sinni á ári og upplýsingarí henni
endurnýjaðar á ársfresti. Aöalverk-
færiö er gagnabankinn. Hann er í
stöðugri endurnýjun. Þar eru nýj-
ustu upplýsingar um fyrirtækin. Við
erum einkaumboösaöilar fyrir
Aflarsdata-gagnabankann í Stokk-
hólmi. Hann gerir fyrirtækjum kleift
aö tengjast gagnabönkum Kompass
á íslandi, Færeyjum og Grænlandi,
Danmörku Svíþjóð, Noregi og Vest-
ur-Þýskalandi með eigin tölvum.
Þannig geta fyrirtækin fengið upp-
lýsingar um vörur og þjónustu frá
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggö
Sparisjóðsbækurób. 18-20 Ab
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 18-23 Ab
6mán. uppsögn 19-25 Ab
12mán. uppsogn 21-28 Ab
18mán. uppsögn 28 Ib
Tékkareikningar, alm. 8-10 Ab.Sb
Sértékkareikningar 9-23 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsogn 4 Allir
Innlán meðsérkjörum 19-28 Vb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 6-6,50 Vb.Sb
Sterlingspund 6,75-8 Úb
Vestur-þýskmörk 2.25-3 Ab
Danskarkrónur 8-8,50 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir víxlar(forv.) 30-32 Bb.Lb
Viðskiptavixlar(forv) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 31-34 Bb.Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 33-35 Sp
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 9,5 Allir
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 29,5-34 Lb
SDR 7,50-8.25 Lb
Bandaríkjadalir 8,75-9.5 Úb
Sterlingspund 9,75-10,25 Lb.Bb,- Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5-5,75 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 44,4 3,7 á mán.
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. mai 88 32
Verðtr. mai88 9.5
ViSITÖLUR
Lánskjaravisitala maí 2020 stig
Byggingavísitala maí 354 stig
Byggingavísitala mai 110,8 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% . april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Avoxtunarbréf 1,5273
Einingabréf 1 2.763
Einingabréf 2 1,603
Einingabréf 3 1,765
Fjolþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2,803
Lífeyrisbréf 1.389
Mgrkbréf 1,460
Sjóðsbréf 1 1,363
Sjóðsbréf 2 1,272
Tekjubréf 1,383
Rekstrarbréf 1,0977
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 128 kr.
Eimskip 215 kr.
Flugleiðir 200 kr.
Hampiðjan 144 kr.
Iðnaðarbankinn 148 kr.
Skagstrendingur hf. 189 kr.
Verslunarbankinn 105 kr.
Útgerðarf. Akure. hf. 174 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vþ = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
Inn birtast i DV á fimmtudögum.
þessum löndum beint á eigin tölvu-
skjá,“ sagöi Árni Hróbjartsson, for-
stjóri Kompass á íslandi, í samtali
viö DV.
Sagði Árni aö öryggi þessara upp-
lýsinga væri mikilvægt atriði, en
upplýsingar um fyrirtæki væru aldr-
ei teknar í gegn um síma. Yrðu upp-
lýsingar um fyrirtækin, breytingar
og annað, að vera undirskrifaðar af
forstjórum eöa eigendum þeirra.
Eru sjö manns í fullri vinnu hjá
Kompass við að heimsækja fyrirtæki
og safna upplýsingum.
Hvað markaðskannanir varðaði,
sagði Árni að Kompasskerflð auð-
veldaði fyrirtækjum þær og gerði
þær hnitmiðaðri. Getur fyrirtæki,
sem ætlar að framleiða ákveðna vél,
fengið upplýsingar um alla þá aðila
sem notast við slíka vél, það er mark-
aðshóp framleiðandans. Eins er hægt
að fá nöfn bæði forstjóra og verk-
stjóra í vélasal, svo dæmi sé nefnt,
hjá tilteknu fyrirtæki. Bæklingar
geta átt á hættu að lenda í ruslakörf-
unni ef forstjórinn fær þá, en vekja
kannski frekar athygli þess sem
vinnur með vélabúnaö fyrirtækisins
hvem dag.
Þannig er upplýsingaþjónusta í
mismunandi formi stærsti liðurinn í
starfsemi Kompass.
Upplag verður 3-5000 í fyrstu
„Maður greiðir ákveðið gjald fyrir
fullkomna skráningu í gagnabank-
Samvinnuferðir Landsýn eru að
kanna möguleika á því aö greiða fyr-
ir hótelaðstöðu á Mallorca meö fiski.
Þessi nýstárlega vöruskiptaverslun
gæti orðið algengur viöskiptamáti í
framtíðinni.
í fyrstu ferð sinni til Cala d’Or tóku
Samvinnuferðir Landsýn með sér
töluvert magn af íslenskum fiski og
fiskafurðum auk þess sem Úlfar Ey-
steinsson matreiðslumeistari var
með í förinni. Ætlunin var að sann-
færa heimamenn í Mallorca um
ágæti íslensks fisks.
Er út var komið var efnt til mikill-
ar veislu þar sem heimamönnum var
ann. Þesar upplýsinar eru komnar í
notkun fljótlega eftir heimsókn full-
trúa frá Kompass. Þær eru síöan
prentaðar út einu sinni á ári, sem
Kompass markaðsvísir. Notandi
gagnabankans greiðir fyrir afnot af
gagnabankanum og loks er greitt fyr-
ir áskrift að bókinni. Bækurnar eru
seldar af Kompass erlendis á sama
hátt og við seljum erlendar Kompass-
bækur hér. Fulltrúar Kompass heim-
boðið að smakka á fiskréttum Úlfars.
Mæltust þeir vel fyrir og þóttu góðir.
Að sögn Helga Jóhannssonar,
framkvæmdastjóra SL, eru alltaf tvö
til þrjú tonn ónýtt í leiguflugi í viku
hverri. Ástæöan er sú að sólarlanda-
farþegar taka lítið af farangri með
sér. Hugmyndin var hvort ekki væri
hægt aö nýta sér þetta rými til fiskút-
flutnings. Kom þá til álita að reyna
aö fá hóteleigendur til að taka við
greiðslum í formi fisks.
Hugmyndin er enn á frumstigi en
nokkrar vonir eru þó bundnar við
að þetta megi takast í náinni framtíð.
-PLP
sækja um 400 þúsund fyrirtæki á ári
og er þeim öllum boðin íslenska bók-
in til sölu.“
Upplag bókarinnar verður milli
þrjú- og fimmþúsund eintök í fyrstu
atrennu. Eru fimm hundruð eintök
send á viðskiptabókasöfn um allan
heim auk þess sem sendiráðin fá öll
eina bók senda. Fer því nokkur hluti
upplagsins sem gjafabækur.
Úlfar Eysteinsson matreiðslumeist-
ari eldar fyrir Spánverja.
Auk fyrrnefnds gagnabanka, mun
Kompass vista upplýsingar um yfir
20 þúsund fyrirtæki á sviði fiskiönað-
ar og fiskveiða úr gagnabanka North
Atlantic Fisheries Data Bank , eða
NAF, á þessu ári. Verða upplýsingar
þessar frá Noregi, Svíþjóð, Dan-
mörku, Þýskalandi, Bretlandseyjum,
Nýfundnalandi, íslandi, Færeyjum
og Grænlandi.
-hlh
MarkaðsvísirKomp-
ass kominn út
Á vegum Kompass útgáfunnar hf.
hefur í fyrsta skipti komið út Komp-
ass markaðsvísir fyrir Vestur-Norð-
urlönd, ísland, Færeyjar og Græn-
land.
Þetta er stór doðrantur upp á rúm-
lega sjö hundruð síður. Markmið
Kompass er að vera fyrirtækjum í
þessum þremur löndum innan hand-
ar með allar þær upplýsingar er lúta
að verslun og viðskiptum framleið-
enda og annarra fyrirtækja.
Er ætlunin að Kompass komi út í
febrúar ár hvert eins og í því 31 landi
þar sem markaðsvísir þessi er útgef-
inn.
Skiptist markaðsvísirinn í þrjá
hluta. Fyrsti hluti hefur að geyma
orðalykla eða skrá á fimm tungumál-
um yfir 25 vöru- og þjónustuheiti.
í öðrum hluta bókarinnar eru þessi
vöru- og þjónustuheiti síöan flokkuð
í um eitt þúsund flokka samkvæmt
eðli vörunnar eða þjónustu. Fyrir-
tæki, sem selja vöruna, eru merkt í
hinu svokallaöa punktakerfi mark-
aðsvísisins. Þetta punktakerfi gefur
til kynna hvort hvert einstakt fyrir-
tæki framleiðir vöruna, hefur hana
í heildsölu, umboössölu eða dreifir
henni á annan hátt.
í þriðja hluta er að finna nákvæm-
ar upplýsingar um einstök fyrirtæki
á íslandi, Færeyjum og Grænlandi.
Auk venjulegra upplýsinga um
heimilisfang, síma, telex og þess hátt-
ar er þar aö finna upplýsingar um
stjórnendur, stofnár, fjölda starfs-
manna, veltu, bréfaskriftatungumál
og loks starfsemi fyrirtækisins, það
síðastnefnda á sjö tungumálum ef
óskað er. Þarna er einnig að finna
vöruflokka þá sem fyrirtækið er
skráð í þannig að tilvísanir eru fram
og til baka.
Loks er umboðaskrá og skrá yfir
stjómendur allra helstu fyrirtækja á
Vestur-Norðurlöndum. -hlh
Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri SL, hyggst flytja. út fisk til Mallorca. DV-myndir KAE
Að greiða hótelin
með fiski
Nýstáriegar hugmyndir um fiskútflutning