Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
9
útlönd
Eykur bjartsýni
um samninga
Leiðtogafundurinn í Moskvu er
talinn hafa verið gagnlegur, þrátt
fyrir nokkrar væringar á milli stór-
veldanna vegna áherslu þeirrar sem
RonaliJ Reagan Bandaríkjaforseti
hefur lagt á mannréttindamál. Segja
báðir aðilar að fundir þeirra Mik-
hails Gorbatsov, aðalritara sovéska
kommúnistaflokksins, og Ronalds
Reagan Bandaríkjaforseta í Moskvu
hafi verið mjög gagnlegir og George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, gengur svo langt aö segja
að fundimir hafi aukið verulega lík-
urnar á að samkomulag um fækkun
langdrægra kjarnorkuvopna náist á
þessu ári.
Leiðtogarnir tveir munu í dag
leggja lokahönd á samninginn um
eyðingu meðaldrægra kjarnorku-
vopna, sem þeir undirrituðu í Was-
hington í desembermánuöi síðast-
liönum, en samningurinn hefur nú
verið staðfestur af þingum beggja
ríkjanna. •
Þá munu leiðtogarnir í dag gera
nokkuð sem hvorugur þeirra hefur
til þessa gert en það er að halda
fréttamannafund í Moskvu. Gor-
batsjov, sem nú hefur verið við völd
í Sovétríkjunum í liðlega þrjú ár,
hefur aldrei haldiö fréttamannafund
í sínu eigin landi.
Reagan Bandaríkjaforseti hefur
slakað nokkuð á gagnrýni sinni á
Sovétríkin í ferð þessari. Hann dró
meðal annars í gær til baka þau
ummæli sín að Sovétríkin væru
heimsveldi hins illa. Aðspurður um
þaö hvort Sovétríkin kæmu honum
enn þannig fyrir sjónir svaraði for-
setinn því neitandi og kvaðst með
þeim ummælum hafa verið að vísa
til- annarra tíma.
Reagan hélt sovéskum vinum sín-
um veislu í gærkvöld. Þar vakti at-
hygli að sovéski andófsmaöurinn
Andrei Sakharov var meðal gesta,
ásamt Mikhail Gorbatsjov aðalritara
og íleiri ráðamönnum.
Reagan og Gorbatsjov horfa á þegar Shultz og Sévardnadse, utanrikisráð-
herrar stórveldanna tveggja, undirrita samninga um eftirlit með tilraunum
með kjarnorkuvopn i gær. Simamynd Reuter
Gorbatsjov og Reagan skála í kvöldverðarboði forsetans i gærkvöldi.
Símamynd Reuler
Leiðtogarnir tveir ræða við sovéska borgara á Rauða torginu i gær.
Simamynd Reuter
Segja Reagan óupp-
lýstan og hrokafull-
an kynþáttahatara
Bandarískir indíánar hafa reiðst
ákaflega ummælum Ronalds Reag-
ans Bandaríkjaforseta á fundi með
stúdentum í Moskvuháskóla og
segja ummælin sýna að forsetinn
sé illa upplýstur hræsnari og kyn-
þáttahatari. Hafa indíánarnir sent
þriggja manna nefnd til Moskvu
sem á að útskýra fyrir forsetanum
hvað mannréttindabrot eru - að
mannréttindabrot séu meðal ann-
ars það að fjarlægja og einangra
fólk á búsvæðum sínum til þess að
fjármálavaldið geti nýtt gæði
landsins.
Reagan hefur lagt mikla áherslu
á mannréttindamál á leiðtogafund-
inum í Moskvu undanfama daga
og hefur gagnrýnt Sovétmenn
harðlega fyrir þau mannréttinda-
brot sem hann telur þá enn
ástunda. Sovétmenn hafa reiðst
forsetanum fyrir hörku hans í
þessum efnum og hefur Mikhail
Gorbatsjov meðal annars áminnt
Reagan um að stórveldin ættu ekki
að reyna að þvinga sínum eigin
viðhorfum hvort á annaö. Margir
Sovétmenn hafa jafnframt bent á
meðferð Bandaríkjamanna sjálfra
á þeldökkum og indíánum sem
dæmi um að þeir hafi ekki sjálfir
hreinan skjöld í mannréttindamál-
um.
Á fundi með stúdentum í
Moskvuháskóla í gær var forsetinn
spurður um ameríska indíána. For-
setinn svaraði því til að margir
indíánar hefðu orðið auðugir af ol-
íugróða en aðrir kysu að halda
áfram því sem forsetinn nefndi
frumstæða lifnaðarhætti á vernd-
uöum svæöum.
Forsetinn vísaði til þeirra sérrétt-
inda sem indíánar nytu í menntun-
armálum og almannatryggingum í
Bandaríkjunum og bætti því við að
ef til vill hefðu hvítum mönnum
orðið á mistök með þeim. Ef til vill
hefði hvíti maðurinn ekki átt að
láta undan kröfum indíána um að
fá að lifa áfram frumstæðu lífi á
vernduðum svæðum. Ef til vill
hefði hvíti maðurinn átt að segja
við indíánann: „Nei, komdu frekar
og vertu borgari með okkur.“
Dennis Jennings, einn af leið-
togum indíána, sagði í gær að um-
mæli forsetans væru ósannindi.
Benti hann á aö tugir þúsunda indí-
ána heföu látið lífið í útþensluher-
ferðum Evrópumanna í Ameríku,
svo og í öðrum herferðum Banda-
ríkjamanna.
Susan Marjo, annar af leiðtogum
indíána, sagði aöjorsetinn hefði
með tilsvörum sínum sýnt hversu
fáfróöur og hrokafullur hann væri.
Susan sagði að forsetinn hefði
móðgað menningu, trúarbrögð og
hefðir bandarískra indíána með því
að kalla lifnaðarhætti þeirra frum-
stæða.
Forsetinn sagöi meðal annars að
hann væri reiðubúinn til að hitta
fulltrúa indíána hvenær sem er og
ræða umkvörtunarmál þeirra.
Marjo sagði hins vegar í gær að
fólk hennar hefði reynt að ná fundi
forsetans í átta ár, en án árangurs.
Reagan torseti, undir höggmynd at Lenín, á tundinum með stúdentum
Moskvuháskóla i gær. Simamynd Reuter