Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988. FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU: Lausar stöður við framhaldsskóla Viö Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keflavík, er laus til umsóknar kennarastaða í íþróttum. Viö Menntaskólann á Akureyri vantar kennara í eftir- taldar greinar: sögu, efnafræði og líffræði. Við Framhaldsskólann á Húsavík er laus til umsókn- ar staða bókasafnsfræðings. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 16. júní næstkomandi. Þá framlengist umsóknarfrestur á áður auglýstum kennarastöðum til 10. júní næstkomandi: í stærð- fræði (2 stöður) við Menntaskólann á Akureyri og við Framhaldsskólann á Húsavík eru lausar kennara- stöður í dönsku, ensku, íslensku, stærðfræði, við- skiptagreinum og þýsku. Þá er óskað eftir sérkenn- ara til að kenna nemendum með sérkennsluþarfir. Menntamálaráðuneytið AUGLÝSING um lausar stöður hjá Hollustuvernd ríkisins Með vísun til laga um breytingu á lögum nr. 109/1984, um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, með síðari breytingum, sem samþykkt voru á Alþingi 2. maí 1988, auglýsir heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytið lausar til umsóknar eftirtaldar stöður hjá Hollustuvernd ríkisins: 1. Staða framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Staðan veitist frá og með 1. ágúst til fjögurra ára. Einung- is má skipa mann sem hefur menntun og reynslu á stjórnunar- og rekstrarsviði. Framkvæmdastjóri annast fjármálalega stjórnun og stjórn almennrar skrifstofu. 2. Forstöðumaður heilbrigðiseftirlits. Staðan veitist frá 1. ágúst nk. til 6 ára. Forstöðumaður heilbrigð- iseftirlits skal hafa háskólamenntun og viðhlítandi sérþekkingu í heilbrigðisvernd og starfsreynslu í heilbrigðiseftirliti. Heilbrigðiseftirlit hefur yfirum- sjón með því að framfylgt sé ákvæðum heilbrigð- isreglugerðar og annarra reglugerða er lúta að heilbrigðiseftirliti. Það annast vöruskráningu og eftirlit með innflutningi matvæla og annarra neyslu- og nauðsynjavara. 3. Forstöðumaður rannsóknarstofu. Staðan veitist frá 1. ágúst nk. íil 6 ára. Forstöðumaður rannsókn- arstofu skal hafa háskólamenntun á sviði örveru- og/eóa efnafræði og sérþekkingu og starfsreynslu á sviði rannsókna á matvælum og neyslu- og nauðsynjavörum. Hlutverk rannsóknarstofu er að annast efna- og gerlafræóilegar rannsóknir sem lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit gera ráð fyrir á sviði matvæla, neyslu- og nauðsynjavara og mengunar. Ennfremur að annast sérstök rann- sóknarverkefni eftir því sem stjórn stofnunarinnar ákveður hverju sinni. 4. Forstöðumaður mengunarvarna. Staðan veitist frá 1. ágúst nk. til 6 ára. Forstöðumaður mengunar- varna skal hafa háskólamenntun á sviði verk- eða efnafræði og sérþekkingu og starfsreynslu á sviði mengunarvarna. Hlutverk mengunarvarna er að hafa yfirumsjón með því að framfylgt sé ákvæðum mengunarvarnareglugerðar og annarra hliðstæðra reglugerða. Ennfremur að annast mengunarvarnir: 1. Tillögur að starfsleyfum og úrvinnslu gagna hvað snertir mengunarvarnir. 2. Skipulagningu og umsjón með framkvæmd mengunarrannsókna í samræmi við lög um holl- ustuhætti og heilbrigðiseftirlit. 5. Forstöðurmaður eiturefnaeftirlits. Staðan veitist frá og með 1. janúar 1989 til 6 ára. Forstöðumað- ur eiturefnaeftirlits skal hafa háskólamenntun og viðhlítandi sérþekkingu á eiturefnafræði og starfs- reynslu á því sviði. Hlutverk eiturefnaeftirlits er að annast yfirumsjón með vöruskráningu og inn- flutningi eiturefna og hættulegra efna í nauð- synjavörum. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um mennt- un og störf sendist heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík, fyrir 1. júlí 1988. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 30. maí 1988 Útlönd Gagnrýna tára- gasnotkun Bandarísk yfirvöld lýstu í gær yfir áhyggjum sínum vegna táragasnotk- unar ísraelskra hermanna gegn mót- mælendum á herteknu svæðunum. Tilkynnt var að haft hefði verið sam- band við ísraelsk yfirvöld vegna þessa. í Washington Post var það haft eft- ir palestínskum læknum og embætt- ismönnum, sem starfa á vegum hjálparstofnunar Sameinuðu þjóð- anna, að vitað sé um tólf hundruð slysatilfelli af völdum táragassins, tugi fósturláta og að minnsta kosti ellefu dauðsföll frá því að uppreisnin á herteknu svæöunum hófst í des- ember síðastliðnum. Bandaríkjastjórn selur ekki tára- gas beint til Israels en hefur veitt bandarískum fyrirtækjum leyfi til sölu á táragasi þangað. Varnarmálaráðherra ísraels, Yitz- hak Rabin, sagði í gær að uppreisnin á herteknu svæðunum hefði aðeins hjaðnað á yfirborðinu. Hann kvaö grjótkast Palestínumanna hafa minnkað en þeir fleygðu hins vegar fleiri bensínsprengjum og öðru sprengiefni að ísraelskum bílum. Þessi níu mánaða gamla paiestinska telpa missti annað augað i fyrradag er hún varð fyrir gúmmíkúlu úr byssu ísraelsks hermanns. Hann skaut ásamt öðrum hermönnum að mðtmælendum í flóttamannabúðum á Gaza- svæðinu. Símamynd Reuter Hörð viðbrögð við réttarrannsókninni Bjami HinrBcsson, DV, Boideaux: Ákvörðun ríkisstjómar Michels Rocard um að höfða skuli mál á hendur sumra þeirra hermanna er þátt tóku í frelsun gísla úr höndum innfæddra aðskilnaöarsinna á Nýju Kaledóníu í byrjun síðasta mánaðar hefur að sjálfsögðu kallað á hörð viðbrögð. Sérstaklega eru það hægri flokkarnir sem láta í sér heyra og þá þeir sem viö stjóm- völinn sátu þegar frelsunin átti sér stað. En ákvörðunin kom ekki á óvart og hæpiö að halda öðru fram en að réttarrannsókn sé eðlilegt fram- hald þeirrar rannsóknar á þessu máli sem þegar hefur farið fram innan hersins sjálfs og hjá dóms- málaráðuneytinu. i árásinni á Gossanah-hellinn, þar sem gíslunum var haldið, féllu nítján aðskilnaðarsinnar og tveir hermenn. Strax eftir árásina komu upp raddir um að hægt hefði verið að leysa málið án þessara blóðsút- hellinga og að margt væri óljóst varðandi dauða sumra. aðskilnað- arsinna. í yfirlýsingu sinni á mánudaginn varðandi réttarrannsóknina var- aðist Jean-Pierr Chevenenent varnarmálaráðherra að ganga of langt. Sagði hann að sumar aögerð- ir heföu gengið gegn heiðri og skyldu hersins en neitaði að hægt væri að tala um aftökur á aðskiln- aðarsinnum. Þrátt fyrir yfirlýsingar ráðherr- ans virðist margt ennþá mjög óljóst og líklegt að stjórnvöld vilji gera minna úr málinu en efni standa til svo ekki verði ólga í hemum. Mit- terrand forseti sendi frá sér yfirlýs- ingu í gærmorgun þar sem kvað við svipaðan tón og sagði forsetinn að ekki væri verið að ásaka herinn né sakfella hann heldur bæri aö leita sannieikans varðandi ákveðna atburði svo friður og samningaviðræður kæmust á aftur á Nýju Kaledóníu. Ákvörðun stjórnarinnar hefur vakið mikla reiði meðal hvítra á Nýju Kaledóníu sem telja þetta gjöf til aðskilnaðarsinna og að þeir hafi í raun ekki fengið annaö en þeir áttu skiliö. Sovéskar vopnabirgðir eftir í Afganistan Afganskur skæruliði á verði gegn loftárásum. Skæruliðar hafa náð á sitt vald mörgum svæðum frá þvi að sovésku hermennirnir hófu heimferð sina en enn má búast við árásum frá sovéskum flugvélum. Simamynd Reuter Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins sakaöi í gær Sovétrík- in um aö hafa skilið eftir vopnabirgð- ir að andvirði eins milljarðs dollara í Afganistan þegar sovésku her- mennirnir fóru þaöan. Sagði tals- maðurinn að þetta samsvaraði áframhaldandi hernaöarlegri aöstoð. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa sagt að þrátt fyrir samningana um brottför sovésku hermannanna muni þeir halda áfram að styðja hreyfingu skæruliöa þar til yfirvöld í Moskvu hætta stuðningi sínum við Kabúlstjórnina. Upplýsingarnar um vopnabirgð- irnar í Afganistan eru sagðar koma úr yfirlýsingu sovésks herforingja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.