Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
11
Utlönd
Aðgangur takmarkaður
Likklæöíð frá Torino var siðast
sýnt opinberlega árið 1978.
Simamynd Reuter
Miklar deilur hafa nú risið
meðal vísindamanna vegna
þeirrar ákvörðunar páfagarðs að
takmarka nyög flölda þeirra
rannsóknarstofa sem fá aö rann-
saka líkklæöið frá Torino. Klæði
þetta sýnir merki þess að hafa
verið sveipað um lík manns sem
hefur borið sár svipuð þeim sem
Kristur á að haíá hlotið við kross-
festinguna og telja margir að
þetta séu líkklæöi hans. Rann-
sóknarstofur hafa viljað fá að ald-
ursgreina klæðið, en nú hefur
páfagarður takmarkaö mjög þær
rannsóknir sem heimilaðar eru.
Vili varaforsetastól
Jesse Jackson á kosningafundi
í New Jersey í gær.
Simamynd Reuter
Bandaríski blökkumannaleið-
toginn Jesse Jackson, sem enn
keppir einn við Michael Dukakis,
fyikisstjóra Massachusetts, um
útnefningu sem forsetaefni
demókrata fyrir kosningarnar í
itaust, sagði í gær að hann teidi
sig eiga að hijóta útnefningu sem
varaforsetaefni flokksins,
Jackson lýsti þessu yflr á kosn-
ingafundi í Trenton i New Jersey
í gær.
Jackson hefur hlotið um 980
kjörmenn í forkosningum demó-
krata til þessa, en Dukakis hefur
tryggt sér fylgi 1.708 fulitrúa á
flokksþinginu.
Dukakis, sem talinn er nær ör-
uggur um útnefningu sem for-
setaefni demókrata, hefur til
þessa neitaö að ræða hugsanleg
varaforsetaefni.
Framdi sjálfsmorð
Lögreglumaðurinn hélt lengi aff-
ur af félögum sínum með þvi að
bera byssuna að munni sér.
Simamynd Reuter
Steve L. Green, lögreglumaður
í Kansas í Bandaríkjunum,
framdi í gær sjálfsmorö að við-
stöddum hópi félaga sinna úr lög-
reglunni í Kansas-borg. Green,
sem var illa haldinn andlega eftir
að hafa verið vísað tímabundiö
úr starfi, haföi hótað að svipta sig
lífi og hafði hópur lögreglumanna
reynt að fa hann ofan af því í
þijár.klukkustundir. Hélt Green
þeim í skefjum raeð því aö stinga
hlaupi skammbyssu sinnar upp i
sig ef þeir reyndu að komast ná-
lægt honum.
Umsátrinu lauk svo með því aö
Green skaut sig til bana.
Osammála um aðgerðir
gegn Suður-Afríkustjóm
Desmond Tutu erkibiskup hefur
lýst yfir óánægju sinni með að trúar-
leiötogar í Suður-Afríku skuh ekki
hafa komið sér saman um áætlun
gegn aöskilnaðarstefnunni. í lok
tveggja daga neyðarráðstefnu um
virkar aðgerðir án ofbeldis sagði
Tutu aö komast hefði mátt miklu
lengra.
Um tvö hundruö kristnir leiötogar
ásamt nokkrum leiötogum hindúa,
múhameðstrúarmanna og gyðinga
ákváðu á ráðstefnunni, sem haldin
var í Jóhannesarborg, að hrinda af
stað friðsamlegri „heríerð sannleik-
ans“. Tutu sagði hins vegar að fjöldi
leiðtoganna hefði ekki viljað sam-
þykkja tillögu samtaka suður-afr-
ískra verkalýðsfélaga um þriggja
daga mótmæÚ frá 6. júní til 8. júní.
Stjómin í Suður-Afríku hefur for-
dæmt aögerðir kirkjunnar manna
gegn aðskilnaðarstefnunni og sakar
þá um að ýta undir byltingu.
Desmond Tutu erkibiskup losar um munnkefli á unglingum sem sett voru upp og áttu að tákna aðgerðir Suður-
Afríkustjórnar við að þagga niður í andstæðingum aðskilnaðarstefnunnar. Simamynd Reuter
/ • ■
VERÐ MIÐAST VIÐ BILINN KOMINN A GOTUNA
ÁRMÚLA 23 - SÍMAR 685870 - 681733
Háþekja, 5 dyra, 4 gíra, STD, kr. 539.900,- stgr.
Háþekja, 5 dyra, 4 gíra, DLX, kr. 575.500,- stgr