Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
29
Smáauglýsingar - Sími 27022
Ferðamenn, athugið: Ódýrasta ís-
lenska bílaleigan í heiminum í hjarta
Evrópu. Nýir Ford ’88 bílar í lúxusút-
færslu. íslenskt starfsfólk. Sími í
Lúxemborg 436888, á Islandi: Ford í
Framtíð við Skeifuna Rvk, sími 83333.
■ Ýmisleqt
FOR-ÐUMST EYÐNI CG
HÆTTULEG KYNNI
Er kynlif þitt ekki i lagi? Þá er margt
annað í qlagi. Vörurnar frá okkur eru
lausn á margs konar kvillum, s.s.
deyfð, tilbreytingarleysi, einmana-
leika, framhjáhaldi o.m.fl. Leitaðu
uppl. Opið frá kl. 10-18 mán.-föstud.,
Erum í húsi nr. 3 v/Hallærisplan,
3. hæð, sími 14448.
Þetta og heilmargt fieira spennandi, t.d.
nælonsokkar, netsokkar, netsokka-
buxur, opnar sokkabuxur, sokkabelti,
corselet, baby doll sett, stakar nær-
buxur á dömur og herra. Sjón er sögu
ríkari. Sendum í ómerktum póstkr.
Rómeo og Júlía.
Hröðum akstri fylgir.
öryggisleysi, orkusóun
og streita. Ertu sammála?
yUMFBCWR
rað
Torfærukeppni. Torfærukeppnin á
Hellu verður haldin laugard. 11. júní
næstkomandi. Keppt verður í tveimur
flokkum: 1. Flokki sérbúinna torfæru-
bifreiða. 2. Flokki almennra torfæru-
bifreiða. Keppendur skrái sig í síðasta
lagi mánudaginn 6. júní í síma 99-5353
eða 99-5165. Flugbjörgunarsveitin
Hellu.
Smókingaieiga. Höfum til leigu allar
stærðir smókinga við öll tækifæri,
skyrta, lindi og slaufa fylgja. Efna-
laugin, Nóatúni 17, sími 16199.
■ Þjónusta
Minigrafa til leigu. Hentar vel inni á
eldri lóðum, við sumarbústaðinn og á
fleiri stöðum, t.d. í gröft fyrir dren-
lögnum, gróðurhúsum, hitapottum,
trjábeðum, hellulagningu eða síma og
rafmagni í sumarbústaðinn o.fl. Uppl.
hjá Guðmundi, sími 667554.
Vélaleiga Arnars. Tökum að okkur alla
almenna jarðvinnu, gerum föst verð-
tilboð, erum með vörubíl. Uppl. í síma
46419, 985-27674 og 985-27673.
SAMTÖK ALDRAÐRA
Vinningsnúmer í happdrætti félagsins 1988
502 nr. 6 8339 nr. 13
653 nr. 2 8631 nr. 18
1503 nr. 12 8805 nr. 15
1731 nr. 4 9031 nr. 11
2000 nr. 5 9032 nr. 9
2420 nr. 21 9081 nr. 14
3149 nr. 3 9335 nr. 20
4995 nr. 8 10742 nr. 1
5247 nr. 22 11143 nr. 17
5907 nr. 19 11193 nr. 16
7213 nr. 10 11247 nr. 7
____________Lifsstfll
Ánamaðk-
ar eru
til gagns
Ánamaðka er best að geyma í mosa eigi þeir að notast í beitu. Þannig
haldast þeir við i sem náttúrulegustu umhverfi.
Nú fer senn að líða aö því að fólk
fari út í garð og leiti sér aö ána-
möðkum. tessar litlu verur eru
gagnlegar veiðimönnum sem nota
þá í beitu. Ánamaðkar geta einnig
verið jarðveginum í görðum til
mikils gagns. Þeir breyta m.a. ólif-
rænum efnum í lífræn efni s.s.
prótein. Þrífist maðkar vel í jarð-
vegi gefa þeir frá sér slím. Slímið
er hagstætt fyrir aörar smáverur í
jarðveginum sem gera gróðri og
túnum gagn.
Ánamaðkar þrífast best þar sem
lífræns áburöar nýtur viö. Þeir
hafast helst við í grasi. Það fer eftir
veðri hve djúpt þeir leita niður í
grassvörðinn eða moldina. Helst
koma ánamaökarnir upp á yfir-
borðið þegar skyggja tekur og þeg-
ar bleyta er á yfirborðinu. Skíni
hins vegar sólin leita þeir niður í
Heimilið
jarðveginn. Maðkarnir hafa nefni-
lega ekki húð eins og önnur dýr
sem ver þá fyrir útfjólubláum geisl-
um sólarinnar. Þess vegna þorna
þeir upp í sóhnni. Bleyta er þeim
hins vegar nauðsynleg. Njóti rign-
ingar ekki viö í lengri tíma þá leita
þeir lengra niður í jarðveginn þar
sem þeim hættir síður við að þorna
upp.
Maðkamir hafa engin augu. A
framenda þeirra eru hins vegar
ljósnæmar frumur. Þannig forðast
þeir sólarljósið og erfitt er að finna
þá. Einhver ráðagóöur maður lagði
til að þá væri best að koma aftan
aö möðkunum! Svo einfalt er þaö
nú ekki því maökarnir leitast við
að halda afturendanum niðri.
Lifrænn áburður
Hafi einhver hug á að rækta ána-
maðka í garði sínum er best að
forðast tilbúinn garðáburö. í líf-
rænum búfiáráburði þrífast maðk-
arnir best. Þeir leitast við að taka
lifræn efni frá yfirboröinu niður í
jarðveginn. Þessum efnum breyta
þeir í lífræn efni. í tilbúnum áburði
eru þessi efni hins vegar ekki. Það
hefur komið í ljós að í túnum, þar
sem tilbúnum áburði hefur verið
dreift, er Utið eða ekkert um ána-
maöka.
Ánamaðkarnir koma upp
þegar...
Til eru nokkrar aðferðir til þess
að ná ánamöðkunum upp á yfir-
boróiö. Þessar aðferöir eru mis-
jafnlega mannúðlegar. Eðlilegast
er að fara út á kvöldin þegar
skyggja tekur og þegar bleyta er í
jarðvegi. Þá koma þeir helst upp
og þeir eru einfaldlega tíndir upp
úr grassverðinum. Einnig er hægt
aö stinga upp mold í beðum. Þó er
meira um að maökamir hafist við
í túnum.
Þeir sem rannsakað hafa ána-
maðka nota formalín til þess aö fá, 1
þá upp á yfirborðið. Þetta er fijót
og árangursrík aöferð. Hún er not-
uð í rannsóknum þegar maðkar í
túnum eru taldir. Formalínið fer
ekki vel með maðkana. Þess vegna
hentar þessi aðferð síður eigi að
nota maðkana í beitu.
Að hleypa straumi í jarðveginn
er önnur aðferð sem fæhr maðkana
upp á yfirboröið. Einnig er hægt
að stinga höggbor niður í gras-
svörðinn til aö fá þá upp. Þessar
aðferðir eru ekki sérlega náttúru-
legar. Því er helst mælt með að
bera lífrænan áburð á túnin svo
maðkamir þrífist sem best. Fara
síðan út í garö þegar skyggja tek-
ur. Ef ekki rignir má hjálpa til meö -
því aö úða vatni yfir grasflötina.
Þá ættu maðkarnir að láta sjá sig.
Forðist eitur
Að úða garða er orðið algengt
fyrirbæri. Oft á tíðum geta slíkar
framkvæmdir veriö til óþurftar.
Skrúögarðyrkjumeistarar telja
garðúðun í mörgum tilfellum
óþarfa. Úöun skuli aðeins nota í
neyð. Hafi garðar verið úöaðir hef-
ur það ófyrirsjáanlegar afleiöingar
fyrir ánamaðka. Þetta hefur nei-
kvæð áhrif á þá. Eiturefnin, sem
úðað er, dreifast víðar en í viðkom- -
andi göröum. Éti t.d. fuglar maðka
í úðuöum görðum þá dreifast þessi
efni víöar með fuglunum.
Garðeigendur skyldu því hugsa
sig tvisvar um áður en látiö er úða.
Einnig ber að varast hvers kyns
skordýraeitur æfli maður aö halda
rækt ánamaðka við.
ÓTT. -
5an»ií<t. * '
Erhannmættur Ormar?