Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1988.
35
Fólkífréttum
Unda Pétursdóttir
Linda Pétursdóttir var kosin feg-
uröardrottning íslands 23. maí.
Linda fæddist 27. desember 1969 á
Húsavík og ólst þar upp til 1979 er
hún fluttist til Vopnaíjaröar. Hún
er nú nemandi á öðru ári Fjöl-
brautaskólans við Ármúla í Rvik.
Bræöur Lindu eru Sigurgeir, f. 16.
desember 1965, skipstjóri á Vopna-
firði, sambýliskona hans er Anna
Crotty, og Sævar, f. 19. desember
1974.
Foreldrar Lindu eru Pétur 01-
geirsson, framkvæmdastjóri Tanga
hf. á Vopnafirði, og kona hans,
Ásta Dagný Hólmgeirsdóttir. Föð-
urbræður Lindu eru skipstjórarnir
Sigurður og Heiðar á Húsavík,
Björn, málari á Húsavík, Kristján,
verkamaður á Húsavík, Jón, fisk-
verkandi á Húsavík, Aðalgeir, skip-
stjóri og útgerðamaður á Húsavík,
Skarphéðinn, vélstjóri á Húsavík,
og Egill, tæknifræðingur og for-
maður Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík. Pétur er sonur Olgeirs,
útgerðarmanns á Húsavík, Sigur-
geirssonar, bústjóra á Húsavík,
Péturssonar. Móðir Olgeirs var
Björg, systir Jakobínu, móður Guð-
mundar Bjarnasonar heilbrigöis-
ráðherra. Önnur systir Bjargar var
Sigfríöur, móðir Guðlaugs Frið-
þórssonar, sundgarps í Vest-
mannaeyjum. Björg var dóttir
Jóns, b. á Höskuldsstöðum í
Reykjadal, Olgeirssonar á Hellu-
vaði í Mývatnssveit, bróður Jóns
skálds á Helluvaði, langafa Jóns
Múla og Jónasar Árnasona og lang-
afa Hólmfríðar, móður Helgu Jóns-
dóttur, aðstoöarmanns utanríkis-
ráðherra. Jón var einnig langafi
Höskulds, fóöur Sveins Skorra
prófessors. Olgeir var sonur Hin-
riks, b. í Heiðarbót í Reykjahverfi,
Hinrikssonar. Móöir Hinriks í
Heiöarbót var Katrín Sigurðardótt-
ir, b. á Litla-Vatnsskarði, Ólafsson-
ar og Þórunnar Jónsdóttur harða-
bónda, b. í Mörk í Laxárdal, Jóns-
sonar, ættfóður Harðabóndaættar-
innar.
Móðir Jóns var Guðbjörg Eiríks-
dóttir, móðir Jóhanns Geirs Jó-
hannssonar, afa Hauks Halldórs-
sonar, b. í Sveinbjarnargerði á
Svalbarðsströnd, formanns Stétt-
arsambands bænda. Móðir Péturs
er Ragnheiöur Jónasdóttir, vega-
verkstjóra á Þórshöfn, bróður
Bjarna, fóður Matthíasar, fyrrv.
heilbrigðisráðherra og alþingis-
manns á ísafirði. Jónas var sonur
Bjama, b. á Hraunshöfða í Öxna-
dal, Krákssonar, b. og landpósts á
Hólum í Öxnadal, bróður Guð-
bjargar, langömmu Björns Jóns-
sonar ráðherra. Krákur var sonur
Jóns, b. á Skjaldarstöðum, Bjarna-
sonar, bróður Sigríðar, langömmu
Guðríðar, langömmu Jóns Helga-
sonar ráöherra.
Móðir Bjama var Sigríður, systir
Óskar, langömmu Sigfúsar Jóns-
sonar, bæjarstjóra á Akureyri. Sig-
ríður var dóttir Guðmundar, b. á
Brún í Svartárdal, Jónssonar. Móð-
ir Guömundar var Ingiríður, systir
Ingibjargar, langömmu Jóns
Pálmasonar alþingisforseta, fööur
Pálma á Akri. Ingibjörg var einnig
langamma Kristjáns, föður Jónas-
ar læknis, afa Jónasar Kristjáns-
sonar ritstjóra. Systir Ingiríðar var
Guðrún, larfgamma Páls á Guð-
laugsstöðum, afa Páls Péturssonar,
alþingismanns á Höllustöðum, og
langafa Hannesar Hólmsteins Giss-
urarsonar. Ingiríður var dóttir
Guðmundar ríka, b. í Stóradal,
Jónssonar, b. á Skeggsstöðum,
Jónssonar, ættfóður Skeggsstaða-
ættarinnar.
Móðir Ragnheiðar var Kristjana
Þorsteinsdóttir, b. í Engimýri í
Öxnadal, Jónassonar, b. í Engi-
mýri, Magnússonar, bróður Kristj-
áns, föður Magnúsar fjármálaráð-
herra.
Ásta Dagný er dóttir Hólmgeirs,
b. í Flatey, bróður Jónatans, föður
Gísla, kaupfélagsstjóra á Fáskrúðs-
firði. Annar bróðir Hólmgeirs var
Jón, afi togaraskipstjóranna Jóns
ívars og Kristjáns Halldórssona á
Akureyri. Hólmgeir var sonur
Árna, b. á Knarrareyri á Flateyjar-
dal, Tómassonar, b. á Knarrareyri,
Guðmundssonar.
Móðir Hólmgeirs var Jóhanna,
systir Friðbjarnar, afa Þrastar Ól-
afssonar, hagfræðings og fram-
kvæmdastjóra Dagsbrúnar. Jó-
hanna var dóttir Jóns, b. á Eyvind-
ará á Flateyjardal, Eiríkssonar og
konu hans, Guðrúnar Jónatans-
dóttur, b. á Skriðulandi í Aðaldal,
Jónssonar.
Móðir Ástu er Sigríður Sigur-
björnsdóttir, b. á Vargsnesi á Tjör-
nesi, Sigurjónssonar, b. í Nausta-
vík, bróöur Steinunnar, ömmu
Gríms M. Helgasonar, forstöðu-
Linda Pétursdóttir.
manns handritadeildar Lands-
bókasafnsins, fóður Vigdísar rit-
höfundar. Sigurjón var sonur Jós-
efs, b. í Ytri-Skál, Arasonar, b. í
Sandvík, Árnasonar. Móðir Ara
var Hólmfríður Aradóttir, b. á
Skútustöðum, Ólafssonar, fóður
Kristjönu, móður Jóns Sigurðsson-
ar, alþingisforseta á Gautlöndum,
langafa Sigurðar, föður Jóns við-
skiptaráðherra. Móðir Sigurjóns
var Guðný, systir Björns, afa Stein-
gríms Steinþórssonar forsætisráð-
herra. Guðný var dóttir Björns, b.
í Ytri-Skál, Nikulássonar Buchs,
ættfóöur Buchsættarinnar.
Afmæli
Olafur Ingibjörnsson
Ólafur Ingibjörnsson læknir, til
heimilis að Æsufelli 4, Reykjavík,
er sextugur í dag.
Ólafiu- fæddist á Flankastöðum á
Miðnesi og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1949 og embættisprófi í
læknisfræði frá HÍ1959 en almennt
lækningaleyfi öðlaðist hann 1961.
Ólafur var námskandidat á Land-
spítalanum og Slysavarðstofunni í
-Réykjavík 1959-60, aðstoðarlæknir
héraðslæknis í Akraneshéraöi
1960, héraðslæknir í Reykhólahér-
aði 1960-61, aðstoðarlæknir á Royal
Hospital for Sick Children í Glas-
gow 1961 og á Cumberland Infirm-
ary í Carhsle í Englandi 1961-62,
læknir á Ayr County Hospital í Ayr
í Skotlandi, á bæklunardeild og
slysadeild, 1962-63, læknir á Ade-
laide Hospital í Dyflirini, á hand-
lækningadeild og bæklunardeild,
1963- 64, og jafnframt aðstoðar-
kennari við Dyflinnarháskóla,
læknir í Keflavík og jafnframt að-
stoðarlæknir við sjúkrahúsið þar
1964- 65, aöstoðarlæknir í bæklun-
ar- og slysalækningum við Ayr
County Hospital 1965-66.
Ólafur var sérfræðingur við
Slysavarðstofuna í Reykjavík og
Borgarspítalann, slysadeOd, frá
1967- 75. Hann var yfirlæknir við
St Fransiskusspítalann í Stykkis-
hólmi 1974. Ólafur hefur veriö með
eigin læknisstofu frá 1975.
Ólafur var kennari í handlæknis-
fræði. við Hjúkrunarskóla íslands
1968- 69. Hann var með klíniska
Ólafur Ingibjörnsson
kennslu fyrir læknanema í sam-
bandi við störf á Borgarspítalan-
um, slysadeild. Hann hefur verið
ráðgefandi sérfræðingur í bæklun-
ar- og slysalækningum við her-
sjúkrahúsið á Keflavíkurflugvelli.
Þá hefur hann haft umsjón með
námskeiðum í sjúkraflutningum
og skyndihjálp hjá Brunaliðinu í
Reykjavík og Flugbjörgunarsveit-
inni á starfstíma hjá Borgarspítal-
anum. Hann starfaði í ráðgefandi
nefnd fyrir Almannavarnanefnd
Reykjavíkur 1968-69, í hópslysa-
nefnd Borgarspítalans 1969-74 og í
sjúkraflutninganefnd Reykjavíkur
1970-74.
Kona Ólafs er Helga Kristín,
lyfjatæknir, f. 18.12. 1955, dóttir
Jóns Sveinssonar, skrifstofumanns
í Reykjavík, og konu hans, Önnu
Guðrúnar Helgadóttur.
Ólafur og Helga Kristín eiga tvær
dætur. Þær eru: Lísa, f. 1979, og
Linda, f. 1981. Börn Ólafs af fyrri
hjónaböndum eru: Ingvar Björn, f.
18.1. 1950, Jón Árni, f. 4.12. 1951,
Gunnar Þórarinn, f. 18.10. 1961,
Ólafur Patrick, f. 6.10.1964, og Guð-
rún Mary, f. 5.7.1968.
Ólafur á tvær systur. Þær eru
Halldóra, yfirkennari Grunnskól-
ans í Garði, f. 1923, og Sigríður,
yfirkennari Grunnskólans í Njarð-
víkum, f. 1926.
Foreldrar Ólafs: Ingibjörn Þórar-
inn Jónsson, b. á Flankastöðum, f.
24.4. 1895, d. 1973, og kona hans,
Guðrún Ingveldur Olafsdóttir, f.
25.5. 1898, d. 1962.
Föðurforeldrar Ólafs voru Jón,
útvegsbóndi á Flankastöðum, Þór-
arinsson, útvegsbónda þar, Andre-
assonar, og kona Jóns, Halldóra
Ásgrímsdóttir, af skaftfellskum
ættum.
Móðurforeldrar Ólafs voru Ólaf-
ur Einarsson í Flekkudal í Kjós og
kona hans, Sigríður Guðnadóttir.
Ólafur var sonur Einars í Flekku-
dal, Jónssonar, bróður Eysteins,
fóður Björns, b. í Grímstungu, en
Björn var afi Björns á Löngumýri
og prófessoranna Björns Þorsteins-
sonar og Þorbjarnar Sigurgeirs-
sonar. Bjöm í Grímstungu var
einnig langafi Páls Péturssonar á
Höllustöðum. Systir Björns var
Ingibjörg, langamma Friðriks
Sophussonar.
Jón Trausti Kristjánsson
Jón Trausti Kristjánsson, til
heimilis að Brekkubyggð 4,
Blönduósi, er sextugur í dag.
Trausti fæddist að Sjávarborg í
Skagafirði en fór fimm ára í fóstur
að Efri-Mýrum í Húnavatnssýslu
til Ragnhildar Þórarinsdóttur og
Bjarna Frímannssonar.
Trausti var lengi bílstjóri á
Blönduósi, eða frá 1959-76, en síðan
landpóstur á Blönduósi. Hann slas-
aðist alvarlega í Öxnadalsbrekkum
haustið 1987 og hefur verið sjúkl-
ingur síðan.
Trausti kvæntist 1953 Önnu Jóns-
dóttur landpósti, f. 19.3.1926, dóttur
Jóns Einarssonar, verkamanns á
Blönduósi, og Elínborgar Guð-
mundsdóttur.
Jón Trausti Kristjánsson
Trausti og Anna eiga fimm börn.
Þau eru: Jón Stefnir, hárskeri í
Reykjavík, f. 15.5. 1949, kvæntur
Berglindi Freymóðsdóttur; Elín-
borg, húsmóðir, f. 29.9. 1954, gift
Elvari Berg Hjálmtýssyni, verslun-
armanni í Reykjavík; Ragnhildur,
viðskiptafræðinemi við HÍ, f. 3.12.
1960; Guðmundur Einar, landpóst-
ur fyrir Austur-Húnavatnssýslu,
búsettur á Blönduósi, f. 24.3. 1964,
og Lísa Anna, húsmóðir, f. 7.9.1967,
en sambýlismaður hennar er Einar
Þór Ásgeirsson, smiður á Skaga-
strönd.
Foreldrar Trausta: Kristján Guð-
brandsson, b. á Sjávarborg, ogkona
hans, Sigrún Jónsdóttir.
Elías Baldvinsson
Elías Baldvinsson, forstöðumað-
ur Áhaldahúss Vestmannaeyja og
slökkvihðsstjóri í Vestmannaeyj-
um, til heimilis að Ásavegi 20, Vest-
mannaeyjum, er fimmtugur í dag.
Elías fæddist að Hárima í
Þykkvabæ og ólst upp í foreldra-
húsum í Vestmannaeyjum. Hann
byrjaöi ungur til sjós og hefur
stundaö nokkuð sjómennsku en
lærði bifvélavirkjun í Vestmanna-
eyjum, tók sveinspróf í iðninni 1959
og starfaði við hana um alllangt
skeið. Elías tók við forstöðu
Áhaldahússins í Vestmannaeyjum
1973 og hefur gegnt því starfi síðan.
Hann er slökkvistjóri í Vestmanna-
eyjum frá 1984.
Elías kvæntist 6.6. 1959, Höllu
Guðmundsdóttur, f. 4.12. 1939.
Halla er dóttir Guðmundar Guð-
jónssonar sem lengst af var verk-
stjóri við saltfiskverkun í Eyjum,
en hann er látinn, og Jórunnar
Guðjónsdóttur.
Elías og Halla eiga átta börn og
átta barnabörn. Börn þeirra eru:
Þórunn Lind, húsmóðir í Reykja-
vík, f. 1957; Unnur Lilja, húsmóöir
í Óðinsvéum í Danmörku, f. 1959;
Kristín Elfa, skrifstofustúlka hjá
Rafveitu Vestmannaeyja og hús-
móðir í Eyjum, f. 1960; Guðmund-
ur, tæknifræöingur í Vestmanna-
eyjum, f. 1962; Sigrún, húsmóðir í
Reykjavík, f. 1964; Eygló, húsmóðir
í Vestmannaeyjum, f. 1968; Elísa,
nemi í foreldrahúsum, f. 1971; og
Baldur, f. 1977.
Elías á níu systkini sem öll eru á
lífi.
Foreldrar Elíasar eru Baldvin
Skæringsson, sem hefur veriö hús-
vöröur við íþróttahúsið á Varmá í
Mosfellsbæ, og kona hans Þórunn
Elíasdóttir.
Foreldrar Baldvins voru Skær
ingur Sigurðsson b. á Raufarfelli
undir Eyjafjöllum og Kristín
Brandsdóttir. Móðurforeldrar El-
íasar voru Elías Nikulásson b. síð-
ast aö Borgartúni í Þykkvabæ, og
kona hans Kristín Mensaldersdótt-
ir.
Elías er erlendis um þessar
mundir.
Til hamingju með daginn
80 ára
Gísli Björnsson, Höfðabrekku,
Mjóafjarðarhreppi, er áttræöur í
dag.
75 ára
Guðmundur Björnsson, Hrafna-
björgum I, Hlíðarhreppi, er sjötíu
og fimm ára í dag.
70 ára
Ingibjörg Jóhannsdóttir, Blesa-
stöðum III, Skeiðahreppi, er sjötug
í dag.
Ingibjörg Bogadóttir, Laugavegi 23,
Siglufirði, er sjötug í dag.
60 ára
Sigríður Eiríksdóttir, Víðivangi 5,
Hafnarfirði, er sextug í dag.
Guðmundur Márusson, Norður-
brún 3, Seiluhreppi, er sextugur í
dag.
50 ára
Haraldur E. Logason, Reyrhaga 18,
Selfossi, er fimmtugur í dag.
Gunnsteinn Gunnarsson, Stóra-
hjalla 3, Kópavogi, er fimmtugur í
dag.
Sigurður Friðriksson, Vörðubrún
4, Keflavík, er fimmtugur í dag.
Þórhildur Vilhjálmsdóttir, Hálsi,
Ljósavatnshreppi, er fimmtug í
dag.
40 ára
Rafn Haraldsson, Bræðrabóh, Þor-
lákshöfn, er fertugur í dag.
Stephanie Scobie, Grenimel 27,
Reykjavik, er fertug í dag.
Ragnheiður Ebenezerdóttir, Laug-
arásvegi 37, Reykjavík, er fertug í
dag.
Árni Ánton Þorvaldsson, Hácdundi
8, Akureyri, er fertugur í dag.
Guðný Sigurbjörnsdóttir, Brekku-
seh 3, Reykjavík, er fertug í dag.
Dagný B. Sigurðardóttir, Norður-
vangi 7, Hafnarfirði, er fertug í dag.