Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1988, Page 40
w
Veðrið á morgun:
Austanátt
og þurrt
víðast hvar
Á morgun veröur hæg austan-
og noröaustanátt, lítilsháttar súld
við austur- og suöausturströnd-
ina en annars staðar þurrt. Hiti
verður á bilinu 4-12 stig.
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNl 1988.
Framsókn frest-
ar fúndinum
Á framkvæmdastjórnarfundi
Framsóknarflokksins í gær var
ákveðið aö kalla ekki saman mið-
stjórn flokksins fyrr en síðla sumars.
Upphaflega stóð til að hún kæmi
saman í byrjun þessa mánaðar.
Þar sem miklu af efnahagsráöstöf-
unum ríkisstjórnarinnar var skotiö
til nefnda ákvað framkvæmdastjórn-
in að bíða með miðstjórnarfundinn.
Hún verður kölluð saman þegar í ljós
verður komið hverjar aðgerðir ríkis-
stjórnar verða og hvaða árangur
verður af þeim ráðstöfunum sem
þegar hafa verið ákveðnar. -gse
Flugvirkjar hjá Flugleiðum neita
að vinna yfirvinnu en að sögn Boga
Ágústssonar blaðafulltrúa hefur
ekki borist nein formleg tilkynning
um skipulegar aðgerðir. Sagði Bogi
aö engar tafir hefðu orðiö vegna aö-
gerðanna en þó væri ljóst að nota
yrði DC-8 flugvél á morgun vegna
þess að fresta varð svokallaðri B-
skoðun á Boeing flugvél af minni
gerð, DC-278. -SMJ
Árekstur í Keflavík:
Sjö flutt
á sjúkrahús
Harður árekstur fólksbíls og lítillar
rútu varð á mótum Aðalgötu og fða-
valla í Keflavík í morgun. í rútunni
var margt manna á leið til vinnu í
flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.
Rútan valt við áreksturinn og varð
að flytja sjö manns á sjúkrahús.
Flestir fengu að fara heim að lokinni
skoðun. Ekki urðu slys á fólki í fólks-
bílnum.
Áreksturinn varö með þeim hætti
að annar ökumannanna virti ekki
stöðvunarskyldu og ók í veg fyrir
hinn. Flytja varð báða bílana, mikiö
skemmda, á brott með kranabíl.
-sme
LOKI
Því er ekki sleppt
sem bankarnir halda
Akureyrarblað fylgir DV á morgun
og verður það 32 síður. DV verður
því 80 síður. Þetta er 8. árið sem DV
gefur út sérstakt Akureyrarblað og
hafa starfandi blaðamenn DV á Ak-
ureyri hverju sinni unnið efni blaðs-
ins. í Akureyrarblaðinu, sem fylgir
DV á fimmtudag, er fjölbreytt efni.
Nefna má viðtöl við Emu Indriða-
dóttur, Ragnar Sverrisson, Gunnar
*' ■BpNielsson, Þráin Lárusson ogívar Sig-
mundsson.
Eina skóverksmiðja landsins var
heimsótt, einnig Bautabúrið, Akur-
eyrarflugvöllur, Slökkvistöðin, Sam-
ver og hestaþjónusta. Margt fleira
mætti nefna um efni blaðsins.
I morgun hófst hér á landi alþjóðleg ráðstefna gigtarlækna. Fimm hundruð erlendir vísindamenn taka þátt i ráð-
stefnunni ásamt íslenskum sérfræðingum. Hér verða samankomnir allir helstu sérfræðingar heimsins á þessu
sviði. Eins og alkunna er er gigt einn algengasti sjúkdómur sem til er. Talið er að allt að fimmti hver íslendingur
hafi einhver einkenni gigtarsjúkdóma. Gigt er jafnframt dýrasti sjúkdómur sem heilbrigðisyfirvöld hér á landi fást
við. Myndin er tekin þegar forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir kom til setningar ráðstefnunnar i Háskólabíói
i morgun og þar voru henni færð blóm. -RóG/DV-mynd GVA
Týndi námsmaðurinn:
Gæti þurft
að ráða
einka-
spæjara
Ekkert hefur enn spurst til íslenska
námsmannsins, Halldórs ísleifsson-
ar, í Bandaríkjunum sem síðast
heyrðist í 14. mars. í utanríkisráðu-
neytinu fengust þær upplýsingar aö
svo til vonlaust væri að gera ein-
hveijar sérstakar ráðstafanir til leit-
ar enda væru Bandaríkin gífurlegt
landflæmi og tala týndra manna þar
skipti hundruðum þúsunda. Þá mun
bandaríska lögreglan ekki hafa nein
—^íök á að kafa í þetta mál og hefur
verið bent á að til að rannsaka þetta
sérstaka tilvik þyrfti helst að ráða
einkaspæjara.
Að sögn fulltrúa í sendiráðinu í
Washington mun það hafa komið
fyrir áður að fólk láti ekki til sín
heyra í nokkuð langan tíma en það
mun þó vera gagnstætt vanalegri
hegðun Halldórs. Það varð meðal
annars til þess að skólafélagi hans í
Texas fór strax að spyijast fyrir um
hann.
-SMJ
110 milljóna gróði viðskiptabankama:
■ ■■■ ■
Bankarmr vilja ekki
skila gengisgroðanum
Hver á að borga tapið fiá því í febrúar? - spyr Stefán Pálsson
„Eg get ekki séð að það sé hægt
miðað við óbreyttar reglur. Þessi
krafa hlýtur að vera úr lausu lofti
gripín,“ sagði Stefán Pálsson,
bankastjóri Búnaðarbankans og
formaður Sambands íslenskra við-
skiptabanka, aðspurður um hvort
til greina kæmi að bankamir end-
urgreiddu þann hagnað sem þeir
fengu dagana fyrir og eftir upp-
stigningardag.
Viðskiptabankarnir keyptu
gjaldeyri fyrir 1.010 milljónir um-
fram það sem þeir seldu viðskipta-
mönnum sínum. Þennan gjaldeyri
hafa þeir síðan selt á nýju gengi.
Miðað við 11 prósent meðaltals-
hækkun gjaldeyris varð hagnaöur
bankana um 110 milljónir króna.
Raddir eru nú uppi um að krefja
bankana um endurgreiðslu á þess-
um hagnaði.
Jón Sigurðsson viöskiptaráö-
herra hefur þegar farið þess á leit
við Seðlabankann að reglum um
galdeyrisviðskipti bankans og við-
skiptabankanna verði breytt. Ráð-
herra vill koma í veg fyrir að bank-
arnir hafi möguleika á að hagnast
á gengisfellingu með likum hætti
og nú gerðist.
„Éghefséð skýrslu Seðlabankans
og þar kemur fram að ekkert óeðli-
legt var við þessi viðskipti. Bank-
amir kaupa gjaldeyri áður en hon-
um er ráðstafað. Þeir kaupa haim
miðað við óskir viðskiptavina
sinna. Ðagana fyrir uppstigningar-
dag var geysilegur þrýstingur frá
viðskiptamönnum bankana og því
gerðu þeir stórar pantanir,“ sagði
Stefán.
Er ekki óeölilegt að bankarnir
skuli hagnast gríöarlega við þessar
aðstæður?
„I lok febrúar var gengið fellt um
6 prósent. Þá vorum við í Búnaðar-
bankanum undir. Hver ætlar að
borga það tap bankans?" svaraði
Stefán.
Af því sem gert hefur verið opin-
bert af skýrslu Seðlabankans um
gjaldeyrisviðskiptin fyrir uppstign-
ingardag má lesa að bankarnir hafi
hagnast mismikiö. Jón Sigurðsson
hefur ekki viljað gefa upp hversu
mikiö hver banki fyrir sig fékk í
sinn hlut „að svo stöddu“.
-gse
Flugvirkjar Flugleiða:
Vinna ekki
yflrvinnu
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í sfma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað ( DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón-
ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Bltstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Oreifing: Simi 27022