Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
Fréttir
Helsta skrautfjöður ríkissjónvarpsins hefur vistaskipti:
Ómar fer á Stöð 2
Ómar Ragnarsson, hinn lands-
kunni sjónvarpsmaður og skemmti-
kraftur, hefur ákveðið að hætta hjá
ríkissjónvarpinu og mun hann hefja
störf hjá Stöð 2. Að sögn Ómars verð-
ur hann ekki lengur en til 10. sept-
ember hjá Sjónvarpinu en hættir
hugsanlega fyrr þar. Þetta bar brátt
að og mun mönnum vera brugðið á
fréttastofu Sjónvarpsins enda helsta
skrautíjöðrin nú á fórum. Hafði
reyndar enginn haft veður af þessu
fyrr en Ómar gekk á fund fram-
kvæmdastjóra í gærmorgun en sam-
kvæmt heimildum DV er langt síðan
þeir á Stöð 2 buðu Ómari að koma
yfir.
„Þetta hefur nú eiginlega ekki ver-
ið inni í myndinni fyrr en í gær,“
sagði Ómar og bætti við, þegar hann
var spurður að þvi hvort boðið hefði
verið í hann: „Mér var gerð grein
fyrir verkefnum og kjörum og sá að
ég gæti unnið þarna að spennandi
verkefnum. Þetta er ung stöð og allt
nýtt og því má auðvitaö kalla þetta
nýjungargirni hjá mér.“
Ómar sagði aö brottfor hans stæði
engan veginn í sambandi við þann
óróa sem verið hefði á fréttastofunni
að undanfömu. „Auðvitað hrökkva
menn við enda var ég orðinn eins og
hvert annað húsgagn hjá sjónvarp-
inu eftir tæplega 19 ára vem þar.
Þetta bar hins vegar brátt að og ég
vildi ekki vera að teygia lopann og
standa í einhverju nuddi og þrasi út
afþessu."
Ómar sagði að það yröu líklega
ekki mikil viðbrigði að fara yfir á
Stöö 2 enda þekkti hann flesta frétta-
menn þar. -SMJ
- hættir á Sjónvarpinu eftir 18 ára starf
Ómar Ragnarsson fréttamaður með vörumerki sitt, farsimann. Að baki bíð-
ur frúin, flugvélin TF-FRU. Þegar þessi mynd var tekin hafði frúin að visu
hruflast lítillega á nefi. Þegar hausta tekur flýgur Ómar um landið fyrir Stöð 2.
Sjónvarp og forsetakosningar:
Ríkissjónvarpið eitt með kosningasjónvarp
„Þetta er ekki alveg niöurneglt hjá
okkur ennþá en auðvitað munum viö
dekka þetta eftir hendinni í fréttum
hjá okkur. Þar að auki verðum við
með einn þátt þar sem frambjóðend-
ur verða kynntir. Hann er ekki tíma-
settur og gæti ef til vill komið inn í
19.19 tvo daga í röð. Við höfum hins
vegar ekki ákveðið endanlega form-
ið, hvort við fáum þær sína í hvoru
lagi eöa báðar í einu,“ sagði Páll
Magnússon, fréttastjóri Stöðvar 2,
um á hvem hátt kosningabaráttunni
fyrir forsetakosningar verði gerð skil
á Stöð 2.
Páll sagði að ekki yrði um að ræða
eiginlegt kosningasjónvarp á kosn-
inganóttina. Fréttamenn myndu
vera á vakt og skjóta inn fréttum og
kosningatölum á milli dagskrárliða.
í lok hinnar eiginlegu dagskrár um
þrjúleytið yrði síðan stuttur frétta-
þáttur.
Helgi H. Jónsson, starfandi frétta-
stjóri Ríkissjónvarpsins, sagði að
náin samvinna myndi verða á milli
fréttastofu útvarps og sjónvarps í
kringum forsetakosningarnar. 13.
júní yrði þáttur um forsetaembættið,
iilutverk þess og valdsvið. 20. júni
yrði frambjóðendakynning, þar sem
stuðningsmenn hvors frambjöðenda
um sig fengju 15 mínútur til ráðstöf-
unar til að kynna sinn frambjóð-
anda. 23. júní fengi hvor frambjóð-
andi 10 mínútur til umráða til að
ávarpa kjósendur og þann 25. júní
rynni svo stóri dagurinn upp.
„Fréttastofur útvarps og sjónvarps
verða með samvinnu að nokkru leyti
þennan dag, en sameiginleg dagskrá
hefst klukkan tíu og stendur í 15
mínútur þar sem kosningasjónvarp-
ið verður kynnt og kjörsókn athug-
uð. Útsending hefst aftur rétt fyrir
ellefu og heldur áfram fram á nótt,
allt þar til úrslit verða alveg ljós. Þá
tekur bíómynd viö í sjónvarpinu en
kosningaútvarp heldur áfram. Þegar
sjónvarpskvikmyndinni er lokið
verður fréttaþáttur í dagskrárlok,
þar sem úrslit verða kynnt og niður-
stöðumar ræddar,“ sagði Helgi H.
Jónsson.
JFJ
Kynfræðslustöð tek-
ur til starfa á íslandi
„íslendingar standa langt að baki
hinum Norðurlöndunum hvaö
varðar fræðslu og þjónustu á sviði
kynferöismála," sagði Jóna Ingi-
björg Jónsdóttir, fyrsti kynfræð-
ingurinn á íslandi í samtali viö DV.
Jóna Ingibjörg kom af stað víð-
tækri umræöu í þjóðfélaginu um
kynlíf og kynfræðslu í fyrrasumar
þegar hún hélt námskeið sem bar
yfirskriftina Kynfullnægja kvenna.
Jóna hefur nú stofnað ráðgjafar-
þjónustu, sem ber bráöabirgðanaf-
nið Kynfræðslustöðin, um kyn-
fræðslu og kynferðismál á íslandi.
„Ég vil með þessari ráðgjafar-
þjónustu reyna að koma af staö
umræðu um kynlíf í þjóðfélaginu
og benda fólki á að kynlíf er eðlileg-
ur hluti í lífi hvers manns,“ sagði
Jóna.
Þaö kom í ljós í fyrrasumar aö
margar konur hér á landi eiga við
erfiðleika að stríða í kynlífí. Aö
sögn Jónu vom 40 konur á biölista
þegar námskeiðunum lauk. Þessar
konur fá nú tækifæri til að innrita
sig á sams konar náinskeið en nám-
skeiöið er einn hluti ráðgjafar-
þjónustunnar.
„Hópnámskeið sem slik hafa gef-
ið góða raun þar sem þau em hald-
in. Námskeiðin í fyrrasumar vom
sjálfshjálpamámskeið þar sem
konur lærðu á sína kynsvörun,
hvemig þær bregöast við kynferð-
islegu áreiti, veltu fyrir sér við-
horfi sínu til kynlífs, o.íl.“ Að sögn
Jónu em helstu vandamál kvenna
á þessu sviði fullnægingarerfiö-
leikar. Kyndeyfð er einnig vanda-
mál sem hefur aukist mikið á síö-
ustu árum og á það bæði við um
konur og karla.
Auk þessa námskeiðs mun Jóna
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, fyrsti
kynfræðingurinn á íslandi. Að
hennar áliti eru íslendingar aftar-
lega á merinni í kynferðismálum,
ef þannig má taka til orða um viö-
fangsefnið.
DV-mynd Brynjar Gauti
halda annaö hópnámskeið sem ber
yfirskriftina Hættulaust kynlíf.
Hún mun einnig halda fyrirlestra
fyrir almenning, félagasamtök, fyr-
irtæki og skóla. „Ég hef sérstakan
áhuga á að efla þekkingu í námi
heilbrigðisstéttanna, t.d. með því
aö þjálfa kennara þessara starfs-
stétta. Að auki hef ég áhuga á að
semja námsefni um kynfræðslu og
veita ráðgjöf í því sambandi.“
Kynfræðslustöðin hóf starfsemi
sína í þessum mánuði og er opin
almenningi.
-StB
Sigrún skorar á Vigdísi
Sigrún Þorsteinsdóttir forseta-
frambjóöandi sendi í gær um hálf-
fjögurleytið Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta Islands, svohljóðandi skeyti:
„Ég undirrituð, Sigrún Þorsteins-
dóttir, skora á yður frú Vigdís Finn-
bogadóttir að mæta mér í sjónvarps-
sal til þess að við skýrum út fyrir
þjóðinni okkar þann grundvallar-
mun sem er á hugmyndum okkar
um embætti forseta íslands.
ísland er ekki konungsveldi heldur
lýðræðisríki. í lýðræðisþjóðfélagi er
kosið á milli jafningja. Það er réttur
þjóðarinnar og skylda okkar sem
frambjóðenda að sjá til þess að þaö
sé skýrt í hugum allra landsmanna
hvort eða hvemig lýðræöið á að þró-
ast hér á landi. Um þaö snúast þessar
kosningar“.
í fréttatilkynningu sem stuðnings-
menn Sigrúnar sendu með skeytinu,
segja þeir það vera lýðræðisbrot ef
slíkri upplýsingaskyldu sé ekki
sinnt, hvort sem 1 hlut eiga frambjóö-
endur eða fjölmiðlar landsins, þá
einkum ríkisfjölmiðlarnir. Segja
stuöningsmenn Sigrúnar afar mikil-
vægt aö málefni kosninganna séu
skýr þegar kosningar snúist um þró-
un lýðræðisins og leikreglur æðsta
embættis þjóðarinnar.
Jón Bjarman, stuöningsmaður Vig-
dísar Finnbogadóttur, sagði að skeyt-
ið hefði ekki enn borist forsetaemb-
ættinu, en þangað var það sent, og
því gæti hann ekki ennþá sagt til um
hvemig því yrði svarað. JFJ
Listahátíð:
Fjölbreytt dagskrá
Dagskrá Listahátíðar um helgina
er fjölbreytt. Á laugardag hefst dag-
skráin kl. 14.00 með brúðuleikritinu
Maður og kona í Lindarbæ. Það er
Brúöuleikhús Jóns E. Guömunds-
sonar sem sýnir. Önnur sýning á
Manni og konu verður í Lindarbæ
annað kvöld, sunnudag.
Auk leikritsins Maður og kona sýn-
ir Brúðuleikhús Jóns leikritið Hans
og Grétu á listahátíð. Sýningamar
verða haldnar að Flyðrugranda 4.
Leikbrúðuland verður einnig með
sýningu í dag. Hún hefst kl. 16.00 að
Fríkirkjuvegi 11. Tékkneski brúöu-
leikhúsmaðurinn Petr Matásek bjó
til brúðumar og leiktjöld og vinnur
með Leikbrúðulandi að þessari sýn-
ingu. Leikbrúðuland sýnir leikritið
Mjallhvit. Önnur sýning verður
haldin annað kvöld, sunnudag.
í kvikmyndahúsinu Regnboganum
verða þijár stuttar kvikmyndir sýnd-
ar á laugardag kl. 19.30. Þessar
myndir em gerðar eftir verðlauna-
handritum í samkeppni sem listahá-
tíð efndi til í fyrra. Myndirnar veröa
einnig sýndar á laugardag kl. 21.00,
22.00, og 23.00. Sýningar á sunnudag
og mánudag verða á klukkustundar-
fresti frá kl. 15.00 til kl. 23.00.
Auk kvikmynda og brúðuleikhúsa
mun Pierre Provoyeur flytja fyrir-
lestur um listamanninn Marc Cha-
gall.
Á sunnudag hefst Dagur ljóðsins á
Kjarvalsstöðum. Dagurinn verður
helgaður ljóðaþýðingum á íslensku,
og hefst kl. 13.30.
í Háskólabíói heldur Empire Brass
kvintettinn tónleika á sunnudag kl.
17.00. Kvintettinn var stofnaður fyrir
tilstilli Leonards Bemstein árið 1971
og hefur unnið sér alþjóðafrægð sem
einn besti málmblásarakvintett í
heimi.
í Bústaðakirkju kl. 20.30 heldur
Norræni kvartettinn tónleika.
Kvartettinn var stofnaður árið 1986,
og em meölimir hans aUir starfandi
tónlistarmenn á Norðurlöndum.
-StB
DV
Góðaveðriðhelst
á Austuriandi
Veöurguðirnir munu áfram
brosa viö íbúum Austurlands um
helgina, því samkvæmt upplýs-
ingum Veðurstofu íslands er viöa
búist við 14-20 stiga hita og bjart-
viðri á norður- og austurlandi.
Um helgina verður suðlæg og
suðvestíæg átt um landiö. Búast
má við suövestangolu á suður-
og suðvesturlandi. Þoka eða súld
verður víða að deginum til, og
hiti 8-13 stig. í ReyKjavík verður
skýjaö, og súld með köflúm. Hiti
verður 8-11 stig.
Á norðan- og austanverðu
landinu verður bjartviðri og víða
14-20 stiga hiti að deginum til. Á
Akureyri verður suðvestan gola
og bjartviðri. Að deginum til má
búast viö 20 stiga hita. -StB
Þorsteinn í Finnlandi:
Áhyggjur
vegna umsvifa
Sovétríkjanna
Samkvæmt fréttaskeyti Reut-
ers lýsti Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra yfir áhyggjum
vegna aukinna hernaðarlegra
umsvifa Sovétríkjanna í N-Atl-
antshafi á fréttamannafundi í
Helsinki í gær.
Á fundinum sagði Þorsteinn að
samstaða ríkti meöal íslensku
þjóðarinnar um þátttöku íslands
í Atlantshafsbandalaginu, þrátt
fyrir andstöðu við setu banda-
ríska varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli. Hann kvað ísland til-
búið til viöræðna um kjamorku-
vopnalaust svæði á Norðurlönd-
unum, en eingöngu á grundvelli
sáttmála Atlantshafsbandalags-
ins.
-StB
Leikfélag Akureyrar.
Sýningum á Fiðl-
aranum að Ijúka
Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyrt
Sýningum Leikfélags Akur-
eyrar á hinum sívinsæla söng-
leik, Fiðlaranum á þakinu, fer nú
senn að ljúka.
Um helgina eru þrjár sýningar.
Síðan verða aukasýningar 16. og
18. júní og verða það allra síðustu
sýningarnar en sýningar verða
þá orðnar 26 talsins.
Aðsókn á „Fiðlarann" hefur
verið þokkaleg en þó hefur ekki
verið um neina rífandi aðsókn aö
ræða. Sýningin hefur fengið mjög
góða dóma gagnrýnenda og nú fer
hver að veröa síðastur fyrir þá
sem áhuga hafa að sjá sýningu
LA áöur en leikaramir og annað
starfsfólk leikfélagsins fer í sum-
arleyfi.
Rútudagurinnerídag:
Kynning á ferða-
lögum innanlands
í dag verður haldinn hinn árlegi
rútudagur. BSÍ, ásamt 33 öörum
aðilum úr ferðaþjónustu hér á
landi, stendur fyrir kynningu á
degi þessum. Þetta er í þriðja
skipti sem hann hefur verið hald-
inn og í fyrra mættu um ellefu
þúsund manns á Umferðarmið-
stöðina.
Margt verður til skemmtunar
og má þar nefna ókeypis skoðun-
arferðir um Reykjavík. Jón Páll
dregur rútur. Einnig verður fall-
hlifarstökk og söngur. Sykurmol-
arnir munu halda klukkutíma
tónleika og eru það síðustu tón-
leikarnir fyrir Bandaríkjafór
þeirra félaga. Inni í Umferðar-
miðstöðinni veröa settir upp bás-
ar þar sem gestir geta kynnt sér
ferðamöguleika innanlands.
-EG.