Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988. 53 LífsstíU Úttekt á glæpamynstd nokkurra erlendra stórborga Bílaþjófamir stórtækir og vasaþjófamir útsmognir Mannrán eru að verða tiðari í heiminum og ferðamenn fara ekki varhluta af því. Myndin sýnir endalok mannráns þar sem betur fór en á horfðist. Ofbeldisrán og vasaþjófnaður NewYork 3.1 II (44.000)* París 2.902 (12.350)* LosAngeles 2.727 (17.396)* London 1.322 (18.511) Bangkok 447 (4.916)* Dubai 4 ( 4) Brassel Tölur ekki fyrirliggjandi Mexíkóborg Tölur ekki fyrirliggjandi Tokýo Tölur ekki fyrirliggjandi Tölur eru miðaðar við hverja 500.000 íbúa. í sviga heildartölur, *tölur frá 1986 Öryggisstuðull Persónuleg áhætta Bangkok Hryðjuverk mikil jlæpatíðni mikil Brussel óveruleg óveruleg Dubai lítil Htli Hong Kong lítil lítil London mikil lítil LosAngeles lítil mikil Mexíkóborg óveruleg mikil New York litil mikil París mikil mikil Tokýo óveruleg mikil Þessa einkunn gefur bókin Intemational Traveler/Security Handbook Bílaþjófnaður LosAngeles 9.500 (61.676) New York 6.268 (88.662)* London 5.545 (77.642) París 4.595 (19.546)* Brussel 1.962 (3.835)* Mexíkóborg 388 (30.000) Hong Kong 269 (2.967)*** Bangkok 110 (1.217) Dubai 20 ( 20) Tokýo Tölur ekki fyrirliggjandi Tölur eru miðaðar við hverja 500.000 íbúa. í sviga heildartölur, * tölur frá 1986, ** bila- og reiðhjólastuldi Árásir Los Angeles 5.387 (34.997) New York* 2.635 (37.276) London 1.616 (22.626) París* 810 (3.442) Hong Kong* 530 (5.896) Tokýo* 508 (8.491) Brussel * 302 ( 590) Bangkok 284 (3.142) Dubai engin Mexikóborg tölur ekki fvrirliggjandi Tölur eru miðaðar við hverja 500.000 íbúa. í sviga heildartölur, borgir merktar með * hafa tölur frá 1986, aðrar tölur erufrá 1987. Eftirfarandi eru umsagnir um nokkr- ar borgir og hvemig neikvæðari hlið- um þeirra er háttað. Glæpum fækkar í London Glæpum í höfuðborg Englands hef- ur fækkað á síðustu árum. Það þýðir þó ekki að þeir séu fáir. Alvarlegir glæpir eru samt sem áður ekki margir, miðað við aðrar borgir af þessari stærð, en smáglæpir og þjófnaðir er mjög tíð- ir. Vasaþjófar stunda iðju sína af mik- illi eljusemi og eru hinir fjölmörgu ferðamenn algeng fómarlömb. Helstu athafnasvæði þessara slóttugu þjófa em verslunargötur og í neðanjarðar- jámbrautarstöðvar. Margir verða fyrir baröinu á þessum misindismönnum. Athygli skal vakin á því að vingjam- legt fólk, sem vill næla blóm eða aðra hluti í barm vegfarenda sem tákn um friðarvilja, er yfirleitt á höttunum eftir veskjum hinna sömu. Bflaþjófar Lundúna em sérlega at- hafnasamir. Árið 1987 var stolið eða stolið úr 133.033 bflum í London. Þetta met er á heimsmælikvarða. Yfirgefnir bflar í miðborginni um nætur em sér- lega vinsælir af þessum þjófúm. París á hættulistanum París er á miðjum lista yfir hættu- legar borgir. Ef miðað er við Evrópu er hún ofarlega. Þjófnaðir af öllum teg- undum em algengir í París. Reyndar hafa vasaþjófar borgarinnar hlotiö heimsfrægð fyrir kunnáttu í vafasamri iðju sinni. Helst em það verslunargö- tumar og neðanjarðarbrautarstöðv- amar sem era vinnusvæði þeirra. Nokkuð hefur færst í vöxt aö fólki sé hótaö með líkamsárás ef það lætur ekki fjármuni af hendi. Það á aðallega við um hverfi sem hafa á sér slæmt orð. Ekki er til dæmis mælt með ferð í Kínahverfi hvorki að nóttu né degi. Mannránum hefur fjölgað í borginni að undanfömu og einnig öðrum alvar- legum glæpum. Hingað tfl hafa þessir glæpir aðallega beinst að heimamönn- um sjálfum. Brussel örugg og róleg Þessi borg viröist vera frekar róleg og ömgg að heim að sækja. Glæpum hefur fremur fækkað miðaö við borg- arstærð. Alvarlegri glæpir era fátíðir og þjófnaður ekki afgerandi mikill. Flestir glæpir sem framdir em munu tengjast eiturlyfianotkun. Varasöm hverfi í New York Margir álíta það stórhættulegt að ferðast til þessarar borgar. Þetta er dálítið ýkt skoðun. Flestir alvarlegir glæpir eiga sér stað í hverfum sem ferðamenn fara ógjaman um. Fáum dettur í hug að þvælast um Harlem eða 42. stræti sér tfl skemmtunar. Tfl dæm- is aka ávallt tveir lögreglubílar saman um þessi hverfi til að tryggja öryggi lögreglumanna. Flestir glæpir, sem ferðamenn lenda í, em þjófnaðir og ofbeldisrán (mugg- ings). Sé manni hótað með hnífi eða byssu til að láta af hendi fjármuni þá er réttasta að hlýða strax. Nokkur hverfi og almenningsgarða í New York ætti að forðast sem heitan eldinn. Það er jafnvel tahð varasamt að vera á Times Square eftir að kvölda tekur. Tölur sýna að flestir glæpir eiga sér staö á föstudögum frá klukkan fjög- ur síðdegis tíl miðnættis. Bílþjófar í Los Angeles Um þessa borg má segja svipað og New York. Flestir alvarlegri glæpir eiga sér stað í borgarhverfum sem ferðafólk fer sjaldan um. Glæpir í L.A. em þó öUu fleiri en í New York miðað við stærð á borgum. Bflaþjófar em sér- lega athafnasamir í þessari borg Bandaríkjanna. Fáir glæpir í Tokýo Tokýo er eitt af undrum heimsins ef litið er á glæpi og glæpatíðni. í þess- ari mflljóna borg em glæpir næsta fá- tíðir. Alvarlegri glæpir em fáir og bein- ast aöaflega að heimamönnum sjálfum. Þjófhaður og hnupl em einnig sjaldgæf fyrirbæri. Japanir viröast vera mjög löghlýðnir og hafa hina megnustu skömm á lögbrotum. Heyrst hafa meira að segja sögur um að ferðamenn, sem hafa tapað verðmætum í hendur þjófa, hafi fengið afsökunarbeiðni í formi peningjagjafar frá japönskum vegfar- endum. í borginni em hverfi sem vestrænir gestir ættu síður að fara í á kvöldin. Aðalhættan er fólgin i áreitni og slags- málum. Annars er höfuöborg Japan með þeim öruggustu sem ferðamenn Suður-Ameríka í flestum borgum Suöur-Ameríku er mikið um glæpL Því skyldi hafa aU- an vara á þegar ferðast er um þessar borgir og reynt að gæta fyUstu varúð- ar. -EG Varist erienda glæpamenn íslendingar eru svo lánsamir að búa í landi þar sem glæpir era fá- tíðari en hjá flestum öðram þjóð- um. Þaö er því umhugsunarefni fyrir íslenska ferðamenn hvemig öryggi þeirra er háttað. Glæpir af alvarlegri gerðinni beinast fyrst og fr erast að fólki sem býr á staðnura. Þeir eraalgengastir í vissum borgarhlutum sem ferða- raenn fara sjaldnast til. Glæpirair, sem oftast beinast að ferðamönn- um, eru þjófnaður og hnupl. Að vísu er mannrán á þeim Usta einn- ig- Nokkur ráð gegn glæpum Aldrei er nógu vel brýnt fyrir feröamönnum að fara gætilega þeg- ar ferðast er. Það á ekki síst við um íslendinga sem vegna reynslu- og þekkingarleysis síns í þessum leiöindamálum taka oft óþarfa áhættu. Eftirfarandi em nokkur góö ráð sem vert er að hafa í huga þegar ferðast er í útlandinu. Geymið vegabréf og peninga i geymsluhólfi á hótelinu. Berið eins lítið af peningum á ykkur Hafið peninga, sem taka á með sér, og þið komist af með. í sérstökum veskjum sem borin eru Hún beit kauða þegar hann ætlaði aö hrifsa af henni töskuna. innan klæða. Reynið að forðast að lita út eins og ferðamenn ef rölta á um götur borgarinnar. Klæðið ykkur i föt sem vekja ekki athygli. Ef fara á til svæða eða borgarhluta þar sem þjófar og illþýði leika laus- um hala klæðist þá ekki rikmann- lega. Farið ekki að ástjeðulausu til borg- arhluta sem em þekktir fyrir glæpi. Glassikerrur verða oftar fyrir barð- inu á bílaþjófum en ódýrari bilar. Það er gott að hafa í huga þegar leigður er bíll. Þó svo að tryggingar bilaleigunnar greiði bílinn ef hann tapast þá er tíminn, sem fer í am- strið og skýrslutökumar, ómældur. Fyrst og fremst er áríðandi að fara með gætni og varúð. Almenn skynsemi er því besta veganestið þegar ferðast er og skyldi óspart beitt gegn þvi að verða fómarlamb óprúttinna manna. -EG BÍLALEIGA ER OKKAR FAG Viö útvegum yöur interRent bílaleigubíl hvar sem er erlendis, jafnvel ódýrara en nokkur annar getur boöið: Dæmi: í íslenskum krónum m/söluskatti. Ótakmarkaður akstur DANMÖRK: 3 dagar = 5.314.- 7 dagar = 10.626.- Aukadagur 1.512,- ÞÝSKALAND: 3 dagar = 5.370.- 7 dagar = 8.990.- Aukadagur 1.285,- LUXEMBURG: 3 dagar = 5.260.- 7 dagar = 8.020,- Aukadagur 1.150.- Einnig bjóðum við úrval húsbíla og campingbíla í Þýskalandi. interRent er stærsta bílaleiga Evrópu. Við veitum fúslega allar upplýsingar og pöntum bílinn fyrir yður. interRent interRent á íslandi/ Bílaleiga Akureyrar Reykjavík - Skeifan 9 - Símar 91-686915, 91-31615 Akureyri - Tryggvabr. 14 - Símar 96-21715, 96-23515. Telex: 2337 IR ICE IS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.