Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988. 49 IþróttapistiH Hvað gerir Guðmundui? Varla tekur aganefnd KSI svo mál fyrir að menn verði ekki bál- vondir, ekki kannski yfir úrskurði aganefndar hveiju sinni heldur út í þá dómara sem sýnt hafa leik- mönnum gul eða rauð spjöld og hafa síðan trassað að skila inn skýrslum til aganefndar. Nýjasta dæmið um þetta er mál sem Þróttarar í Reykjavík tengjast. Fyrirhði þeirra, Nikulás Jónsson, var rekinn af leikvelli í leik Þróttar og Fylkis sl. sunnudag. Aganefnd KSÍ kom saman til fundar á þriðju- daginn en þá var mál Nikulásar ekki tekið fyrir. Ástæðan var sú að Baldur Schewing dómari, sem dæmdi leik Þróttar og Fylkis, hafði ekki skilað inn skýrslu til aga- nefndar fyrir fundinn. Þetta hefur það í för með sér að Þróttarar missa fyrirliða sinn í leiknum gegn FH í stað bikarleiks og kemur það sér mun verr fyrir Þróttara sem eru æfir vegna þessa. Fyrir mér eru vonbrigði og reiði Þróttara auðskilin. Ég get hrein- lega ekki skilið hvers vegna leik- menn eru ekki. settir í leikbann sjálfkrafa í næsta leik eftir að þeir fá rautt spjald eða of mörg gul. Allt þetta stagl um hvort þessi eða hinn leikmaðurinn verður í leik- banni þennan eða hinn leikinn er hvimleitt og setur leiðinlegan blett á knattspyrnuna. Blett sem auð- veldlega má afmá. Mikil knattspyrna fram und- an Evrópukeppnin í knattspyrnu er haíin og mikið hefur verið rætt og ritað um þessa voldugu keppni þar sem átta bestu knattspyrnulandslið Evrópu reyna með sér þar til besta liðið stendur uppi sem Evrópu- meistari. Fjölmargir knattspyrnu- unnendur landsins hafa tækifæri til þess að fylgjast með mörgum leikjum keppninnar í beinni út- sendingu Sjónvarpsins og er það svo sannarlega dæmi um góða þjónustu við áhorfendur. Umsjón Stefán Kristjánsson Hvað gerir Guðmundur? Guðmundur Steinsson, sóknar- leikmaður í Fram, hefur verið í miklu stuði það sem af er keppnis- tímabilinu í 1. deild knattspyrn- unnar. Guðmundur, sem lék sinn 200. leik fyrir Fram gegn Keflavík í vikunni, er nú markahæstur í 1. deild með 5 mörk eftir fjórar um- ferðir. Auðvitað er alltof snemmt að fara aö gera því skóna að Guö- mundir hafi möguleika á aö slá markamet Péturs Péturssonar og Guðmundar Torfasonar, 19 mörk. Hitt liggur ljóst fyrir að Guðmund- ur hefur alla burði til að slá metið og hefur sjaldan eða aldrei verið betri en einmitt nú. Guðmundur fór rólega af stað í vor eins og svo oft áður en hefur heldur betur tek- ið sig saman í andlitinu. Framarar með áberandi besta liðið Fjórum umferðum er nú lokið í 1. deildinni og sýnist sitt hverjum um ágæti liðanna tíu. Víst er að þau eru misgóð. Þrennt er það þó sem komið hefur mér mest á óvart eftir þessar fjórar umferðir. í fyrsta lagi afar slakt gengi Valsmanna. í öðru lagi sá mikh 2. deildar bragur sem hvílir yfir Víkingum og í þriðja lagi áberandi glæsileiki þeirrar knatt- spyrnu sem Framarar hafa boðið upp á. Þetta kann allt að breytast í næstu umferðum en ég held að flestir geti verið sammála um það sem að framan er sagt. Maður sem getur gert kröfur Það virðist nú vera á hreinu aö besti knattspymumaður okkar ís- lendinga í dag, Arnór Guðjohnsen, leiki áfram í eitt ár með belgísku bikarmeisturunum, Anderlecht. Eins og kom fram í DV í gær hafa forráðamenn Anderlecht gengið að öllum kröfum Arnórs og munnlegt samkomulag hefur litið dagsins ljós. Arnór hefur átt mikilli vel- gengni að fagna að undanfórnu og það að forseti og framkvæmda- stjóri Anderlecht skulu segja já og amen við öllum hans kröfum þarf ekki að koma nokkrum manni á óvart. Gott hjá Pétri Pétur Guðmundsson, HSK, náði góöum árangri í kúluvarpi á vor- móti HSK í vikunni. Hann varpaði kúlunni 20,03 metra og náði þar með ólympíulágmarkinu sem er 20 metrar. Pétur er í örri framfór og þaö yrði eflaust enginn hissa þótt kúlan lenti réttum mégin við 21 metra markið áður en áriö er liðið. Stefán Kristjánsson • Guðmundur Steinsson hefur leikið vel með Fram það sem af er íslandsmótinu og hefur skorað 5 mörk I fjórum fyrstu umferðunum. Hér hefur hann betur i einvigi við Keflvíkinginn Daníel Einarsson. DV-mynd Brynjar Gauti AUGLYSING UM NÝJAN OPNUNARTÍMA Frá og meö 15. júní nk. verður skrifstofa útlendinga- eftirlitsins opin frá kl. 9.00 til kl. 15.00 mánud. til föstud. ÚTLENDINGAEFTIRLITIÐ Lögreglustöðinni Hverfisgötu 115 150 Reykjavík TILSÖLU RANGE ROVER1984 Óvenjufallegur og lítið ekinn, 4ra dyra, 5 gíra, ekinn 22.000. Ýmsir aukahlutir. Til sýnis og sölu á bílasölunni BJÖLLUNNI, sími 621240 SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKAÐSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa. Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. , Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af tækifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringir...27022 Við birtum... Þaö ber árangur! Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Opfð: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 laugardaga, 9.00— 14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 Frjalst ohað dagblaö ER SMÁAUGLÝSINGABLADK.)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.