Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988. Strandaferðir Reykjavík 6. júni Kæri vin! Ég áttaði mig á því um leið og ég var að skrifa dagsetningu bréfsins að ég á vist afmæli í dag. Það er svona uppúr þrítugu sem aftnælis- dagamir fara að gleymast, viijandi eða óviljandi. Ætli það sé svo ekki þegar fimmtugasti afmælisdagur- inn nálgast sem minnið fer að lag- ast og veisluhöld eru undirbúin. En eins og það var langt á milli afmælisdaganna í æsku þá styttist alltaf á milli þessara daga eftir því sem árunum fjölgar. Ekki þar fyrir að ég geri mér neina rellu út af því en býð þér hér með í fimmtugsaf- mælið mitt þegar þar að kemur. Þar sem enn eru allmörg ár í þann merka viðburö ætía ég að vona að þú hafir þá lokið námi og verðir fluttur heim aftur. Við getum þá haldið upp á það í leiðinni að um þær mundir verða liðin 45 ár frá því þinn námsferill hófst, ef ég man rétt. Ég skrapp á strendur um daginn. Fyrst á sólbakaða strönd á Mall- orca þar sem Samvinnuferðir voru að kynna nýja dvalarstaði sól- þyrstra íslendinga. Ég haíði ekki komið til Mallorca síðan áriö 1974 eða í heil fjórtán ár. Þá fannst mér margir staðir á eynni vera orðnir mengaðir af völdum túrista og þótti svona mátulega mikið til koma. Nú uppgötvaöi ég að Spapjólamir hafa verið vel á verði á þessu sviði og eyjan hefur gert betur en halda sín- um sérkennum þrátt fyrir stöðug- an túristastraum. Nýbyggingar eru felldar að landslagi og gróðri á snilldarlegan hátt og þeir innfædd- ir, sem átt voru samskipti við, voru þægilegir og alúðlegir í fasi án þess að vera með nokkum undirlægju- hátt gagnvart erlendum ferða- mönnum sem eyjaskeggjar byggja þó svo mjög afkomu sína á. Hér á árum áður var það ekki óalgengt að íslenskir Mallorcafarar mundu ekki annað, þegar heim kom úr þriggja vikna ferð, en nafnið á bar- þjóni hótelsins. Aðrir töldu sig ráma í tré og sjó og annað hvort höfðu þeir séð kvikmynd af nauta- ati eða jafnvel bmgðið sér þangað sjálfir því eitthvaö töldu þeir sig muna eftir að hafa séð nauti bregða fyrir og ríðandi mönnum sem vom að egna nautin. Einum man ég eft- ir sem tjáði mér að eftir heimkomu hefði hann fundið slatta af póst- kortum í farangri sínum og með Sólarströnd á Mallorca að rifja upp þokukenndar minning- ar um landslag á Mallorca. En þetta átti víst við um sólarlandaferðir almennt í den tíð. Nú segja mér V Sæmundur Guðvinsson heyri allt sögunni til og íslendingar séu fremur þekktir fyrir kaupgleöi en ofdrykkju á þessum slóðum. En mér er alltaf minnisstæð sagan sem gamalreyndur fararstjóri á Mall- orca sagði mér eitt sinn. Hann hafði farið með hópinn upp á hæð eina svo allir gætu fylgst með því er sóhn sykki í sæ við lok dagsins. Veður var auðvitað dásamlegt og hópurinn horfði þögull á þegar eld- rauð sólin virtist snerta hafflötinn. Þá tók sig skyndilega til maður í miðjum hópnum, sveiflaði upp öðr- um handleggnum, leit á úr sitt og kallaði hárri röddu: „Nú eru frétt- imar að byija í sjónvarpinu heima!“ Svona fara sumir stutt að heiman þótt langt sé ferðast, en það má kannski segja manninum til afsök- unar að þetta var á þeim tíma sem sjónvarpið var tiltölulega nýtekið til starfa og landsmenn töldu það heilaga skyldu sína að fylgjast með hveijum fréttatíma. Nú, þetta var nú ágæt ferð, en kominn heim úr henni fór ég á aðra ólíka strönd, enda öllu nær. Það bar þannig að að Pálmi sveppa- bóndi, þú manst eftir honum, gerði mér orð um að hann hygði á ferð í kríuvarp og bauö mér að koma með. Það rifjaðist upp fyrir mér að sem strákur hafði ég einhvem tím- ann verið að snudda utan í kríu- varpi með pott á hausnum og herskáar kríur gerðu að mér heift- arlegar árásir. Það glumdi og söng í pottinum þegar þær hjuggu í hann og ég var fljótur að forða mér. Það var því með hálfum huga að ég þáði boð sveppabóndans. Lét þó slag standa og við ókum í Selvog- inn. Þarna í grennd við Strandar- kirkju var greinilega nokkurt kríu- varp og viö hófum eggjaleitina. Ég vafraði um og reyndi að koma auga á egg, en var þó frekar með hugann við kríumar sem steyptu sér niður að mér með reiðilegu gargi. Sumar gáfu þó ekki frá sér hljóð, heldur komu skyndilega fljúgandi framan að mér í augnhæð, lyftu sér þá eld- snöggt og drituðu fast við nefið á mér. Ég fann engin egg en gerði mér erindi heiro að kirkjunni og fór þar að lesa á legsteina og skoða umhverfið. Ég fylgdist samt með Pálma og undraðist hvað þessi stóri, þungi maður var frár á fæti þama í varpinu. Stundum stóð hann þó kyrr langtímum saman og fylgdist með flugi kríunnar. Skyndilega lagði hann svo af stað í áikveðna átt, gekk löngum katt- mjúkum skrefum, hálfboginn. Hann minnti mig á skæmhða sem hefur komið auga á óvin í leyni og ætlar að láta til skarar skríða áður en hinn áttar sig. Svo allt í einu stansar sveppabóndinn, beygir sig niður og veifar hróðugur. Hann hafði ein 20 egg upp úr krafsinu. Mér tókst hins vegar að brjóta tvö þeirra þegar ég var að skoða þau, en hann tók því furðu vel og tók mig með í bæinn aftur. Svo voru eggin soðin og étin og reyndust lostæti. En mikið var nú ólíkt að htast um í fjörunni í Selvogi og sólbökuðum ströndum Mallorca. Ég á erfitt með að gera upp á mhli þeirra, en gæti vel hugsaö mér að koma aftur á báða staðina. Þó efast ég um að ég færi í Selvoginn á varp- tíma kriunnar, en ekkert kríuvarp sá ég á Mahorca. Þú lætur mig vita ef þú ætlar að skreppa heim í sumar og þá fömm við í fjörulall eins og þegar við vor- um strákar. Svo getur þú gengið á Esju, eins og þú ert alltaf aö tala um. Ég bíö bara niðri á vegi á meö- an. Bestu kveðjur! Sæmundur því að skoða þau hafi honum tekist meiln í ferðabransanum að þetta PD T)AI\ 1 EÐA Y EÐA 'J Héreruáttaspurningarog JLiXV mtTTLU X A JLi 1 hvern þeirra fylgja þnr mogu- , leikar á réttu svari bneraðeins A Hinn þekkti íslenski listamálari Erró heitir í raun: 1: Guðjón Guðmundsson X: GuðmundurGuðmundsson 2: Gunnar Guðmundsson 1 eittsvarréttviðhverrispurn- F Þettaermerki: | ingu. Skráiðniðurréttarlausn- I: Ferðamiðstöðvarinnar irogsendiðokkurþærásvar- í ÆÍáÆ X: Ferðaskrifstofu stúdenta 1 seðhnum.SkiIafresturerlO N 'w' 2: Ferðaskrifstofu Reykjavíkur i dagar. Að þeim tíma liðnum B Þjóðverjar gerðu á sínum tíma kvikmynd byggða á bók- inni Morgunn lífsins. Höfundur bókar'nnar er: 1: GuðmundurG.Hagabn X: JónTrausti 2: KristmannGuðmundsson | og veitum þrenn verðlaun, öll G Hringskyrfiersérkennilegtorð.Þegarþaðernotaðer | frá Póstversluninni Primu í verið aðtalaum: 1 Hafnarfiröi. Þau eru: 1: Sjúkdóm | l.Töskusett,kr. 6.250,- X: Ahald 2. Vasadiskóogreiknitölva.kr. 2: Áburð ' 2.100,- | 3.Skærasettkr.l.560,- C Þettaermerki: 1: Rafmagnsveitu Reykjavíkur X: Rafmagnsveituríkisins Ær 2: Landsvirkjun D Áttræður djassfiðlari, Stéphane Grappelb, kom hingað á Listahátíð. Hann er: 1: Spænskur X: Belgískur 2: Franskur - £ Menn skafa og skafa með misjöfnum árangri. Þegar menn skafa Lukkutríó eru þeir að styðja: 1: Háskólann X: Björgunarsveitimar 2: íþróttahreyfinguna Tx o ,. . . „ , , I Íöðruhelgarblaðihéðanífrá H SandmBtarernafnasaintokumfolksi: birtastnöfnhinnaheppnuen X: Nicaragua SSSÍÖ"8" k°ma ‘ 2• Guetemala helgarblaði. l. ouetemaia Merkiðumslagið:leðaxeöa 1 2, c/o DV, pósthólf5380,125 | Reykjavík. _ . 1 VinningshafarfyrirleðaXeða , 21 fjorðu getraun reyndust vera: ' Guðný Pálsdótir, Sigtúni 27,450 —- | Patreksfirði(töskusett),Sigrún Ólafsdóttir,Esjubraut35,300 Hoimiii 1 Akranesi(vasadiskóogreiknit- | ölva),KristjanaÁgústsdóttir, 1—| |—| .—. Hóluml5,450Patreksfirði Réttsvar: A 1 1 B 1 1 C I 1 D 1 1 1 (skærasett). Vinningarnirverða 1 sendirheim. g Q p Q q Q ' Réttlausnvar:2-X-l-X-X-2-2-l
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.