Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988. 45 Sveit er sáðmanns kirkja, sagði Bjami á Reykjum Eigi fyrir löngu vitnaði ég til Borg- fiskra ljóða sem ísafoldarprent- smiöja gaf út 1947 á vegum félaga- samtaka og einstaklinga heima í héraði. Ég valdi þá meira en komst í einn þátt en fyrr mun ég hafa ht- ið í þá bók með það sama í huga og oftar væri hægt að leita þangað. Nú nem ég staðar við nafn Bjarna Ásgeirssonar alþingismanns sem þá og löngum síðar var kenndur við stórbýlið Reyki i Mosfells- hreppi. Þótt vegur hans væri mik- 01 þá varð hann enn meiri síöar. Nú er hann fyrir alllöngu, eins og þeir flestir er hann átti mest saman við að sælda á annamestu árum sínum, horfinn af sviðinu. Örlaga- tölur hans voru 1891-1956. Bjarni Ásgeirsson varð snemma þjóðkunnur fyrir gáfur og glæsi- mennsku, hagmæltur, jafnvel skáld, skemmtilegur og vinsæll. Snemma tók hann þátt í félagsmál- um, var kosinn á þing, varð ráð- herra og loks sendiherra. En hann gaf sér minni tíma til skáldskapar- iðkana og ritstarfa en mátt heföi ætla. Ungmennafélagskvæði Snemma leistu um loftið blátt ljóma morgunroða, þegar dag í austurátt ársól tók að boða. Þú sást hennar himinflug hækka um víðan boga, sóttir æskuorku og hug í þann fagra loga. Áfram fylgja augu þín eftir sólargangi, hefur jafnan hvar sem skín hennar geisla í fangi. Bregðist þér ei sólarsýn, svifi um háa vegi ljós og ylur inn tO þín og þótt halli degi. Til Helga frænda í Vogi Helgi frændi, nú skal ná í næði þínum fundum. Leita ég þín heima hjá hinum bláu sundum. Þar sem látur, vik og ver vorið lífið gleður - ásar, móar, eyjar, sker allt af söngvum kveður. Þar sem urta kjassar kóp, kría að hreiöri flýgur, æður kallar ungahóp, ána lambið sýgur. Þarna syngja sær og land saman marga drápu. Efra fjallablámans band bryddar græna kápu. Þótt oss örlög flestra frá feðra stöövum togi, hugann dregur hulin þrá heim að gamla Vogi. Þú mátt stíga á fák og fley, fljúga um víða geima - hvert sem ferðu, áttu ei annars staðar heima. Þar hófst kyn vort öld af öld og á sér helga dóma. Haltu fram á hinsta kvöld hreysti þess og sóma. Söngur sáðmannsins Ég held ég láti alveg vera aö biöja afsökunar á því aö hér er látið fylgja venjulegum ferskeytlum átta línu erindi, sem ég veit að nú er víða út um sveitir landsins sungið við jarð- arfarir bændafólks eins og nú er líka til siðs að láta ættjarðarsöngva hljóma við slíkar athafnir. Gömul kona mér nákomin sagði: Ég get ekki valið mér betri sálm þegar ég verð kvödd. Ef ég mætti yrkja, yrkja vildi ég jörð. Sveit er sáðmanns kirkja, sáning bænagjörð. Vorsins söngvaseiður sálmalögin hans. Blómgar akurbreiður blessun skaparans. Musterisins múra marka reginijöll. Glitvaf gróðurskúra geisla skreytir höll. Gólf hins gróna vallar grænu flosi prýtt. Hvelfmg glæstrar hallar heiöiö blátt og vítt. Vígjum oss í verki vorri gróöurmold, hefjum hennar merki hátt á móðurfold! Hér er helgur staður - hér sem lífið grær. íslands æskumaður - íslands frjálsa mær! Að lokum Röskan tíma rammar ár reri eg þetta morgunsár, þó hef eg tæpast tekiö í ár tíu síðastliðin ár. Rægimála rýkur haf, rastir hvítar brýtur. Reiðiskálum Emils af Áka - víti flýtur. Ljóðadísin háttahrein hjartaísinn bræðir. Góða vísan manna mein mýkir, lýsir, græðir. Haustkvöld á Reykjum Alltaf kvöldar meir og meir, myrkrið völdin þrífur. Andar köldu um rós og reyr. Reykur í öldum svifur. Um dag þeirra hjóna Man ég daginn minn og þinn meðan bærist öndin, er við forðum fyrsta sinn fléttuðum tryggðaböndin. Draumar voru daginn þann djarfir af ást og vonum. Þetta, sem ég á og ann, allt er bundið honum. Jón úr Vör Þarna minja skartið skín skært frá liðnum árum. Þar fékk ættin þín og mín þrótt úr mold og bárum. v\ð "veí fc\ev' 38 peru bekkir 27 kæliviftur. Ný gerð andlitsljósa 10-10 VIRKADAGA. 10-19 LAUGARDAGA. 13-19 SUNNUDAGA. SÓLBAÐSSTOFA NÓATÚNI 17, SÍMI 21116 PANTIÐ TÍMA OPIÐ FRÁ KL. OPIÐ UM HELGINA Vinsælu Dallastjöldin eru komin. 4-6 manna, 3-5 manna Ægistjöld og himnar. 4 manna hollensk tjöld m/himni, kr. 9.003. — — — — — EYJASLOD 7 - SÍMI 621780 Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst í umferðaróhöppum. Nissan Pulsar SLX 1988 Nissan Micra 1987 Lada 1200 1987 Honda Prelude ' 1986 Opel Rekord 2,3 dísil 1985 MMC Lancer 1500 GLX 1984 BuickSkylark st. 1983 BMW315 1982 Honda Prelude 1982 Daihatsu Charade 1982 Toyota Corolla D L1300 1982 Colt1200GL 1982 Lada 1600 1981 Mazda 929 1980 Fiat 131 1980 Lada 1600 1979 Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 13. júní í Skip- holti 35 (kjallara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16.00 sama dag til bifreiðadeildar Tryggingar hf., Laugavegi 178, Reykjavík, sími 621110. VERNDGEGNWt TRYGGING HFss"78
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.