Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988. Breiðsíðan Leiksmiðjan Island i leikspuna. Nýtt, íslenskt leikrit: Þessi, þessi maður Fijálsu leikhóparnir láta ekki deigan síga. Á fimmtudaginn kemur frumsýn- ir sá nýjasti þeirra, Leiksmiöjan ísland, nýtt, íslenskt leikrit. Jafnframt verð- ur opnað nýtt leikrými í pakkhúsi við hlið vélsmiðjunnar Héðins á Vesturgöt- unni. Leiksmiðjan ísland er ekki gamalt fyrirbrigði. Hún varð til síðastliðið haust er nokkur ungmenni með áhuga á leiklist tóku sig til og ákváðu að gera eitt- hvað. Þau leigðu sér húsnæði við Borgartún og þrjá kennara, í raddþjálfun, kórsöng og leikfimi. Þau borguðu allt úr eigin vasa. Síðan var æft tólf tíma á viku í allan vetur. Með vorinu var orðið ljóst að starfið væri farið að skila árangri. Þau ákváðu að gera eigið verkefni. Einn úr hópnum skrifaði leikrit og var ákveðið að setja það á svið. „Erum að leita fyrir okkur“ „Við erum að leita fyrir okkur,“ sagði Steingrímur Másson, höfundur verksins, í samtali við DV. „ Við leikspuna í vetur komu fram ákveðnir eigin- leikar sem sköpuðu týpur og er verkið byggt á þeim.“ Kári Halldór er leikstjóri verksins. Hann hefur starfað með hópnum síðan í október og leiðbeint í leikspuna. Kári Halldór hefur starfað mikið með smærri leikhópum undanfarið „Marg- ir velta því fyrir sér hvers vegna litlu leikhóparnir séu eiginlega að þessu. Mér fmnst það liggja nokkuð í augum uppi. Ef slíkur leikhópur telur sig hafa einhverju að miðla þá á hann að sýna það. Það skilar sér í auðugra mannlífi." Róið á mið draumsins DV leit inn á æfingu hjá Leiksmiðjunni ísland á dögunum. Þar var allt á fullu enda stutt í frumsýningu. Menn voru enn aö velja búninga og textinn var ekki fullmótaður í munni leikaranna. Æfingin hófst með upphitun. Til að hita upp fóru leikararnir í einhvers konareltingarleik. Síðan hófst leikspuni. Þá unnu leikararnir úr þeim aðstæðum sem sköpuð- ust í eltingarleiknum. Er leikstjóri heimtaði raddir hófst margrödduð „kakó- fónía“ sem ýmist var formlaus eða hreinlega músíkölsk. Þá lét leikstjóri þá fara með texta úr leikritinu. „Þau kynnast hvert öðru og leikrýminu betur á þennan hátt,“ sagði leik- stjóri við DV. Og ekki var annað að sjá en þetta væri rétt. Við þessar aðstæð- ur höföu myndast ný tengsl milli leikara sem stöðugt kynnast nýjum hliðum hveráöðrum. Leikrýmið er hluti út af fy rir sig. Hópurinn fékk leigt pakkhús á Vesturgöt- unni. Þetta er mikill geimur og hljómburður minnti helst á gotneska dóm- kirkju. „Það fór mikill tími í að læra á hljómburðinn,“ sagði Kári. „í fyrstu heyrð- um við ekkert hvert í öðru fyrir bergmáh." Leiksmiðjan ísland frumsýnir verk sitt fimmtudaginn 16. júní. Vilji fólk bregöa sér inn í myrkan geim, lýstan með kertaljósum meðan miðnætursól- in skín úti við, er um að gera að grípa tækifærið því sýningar verða fáar. DV-mynd JAK -PLP Þú ert 2000 krónum ríkari! er enn komið að þvi að veita heppnum einstaklingi tvo þusund krona verðlaun. Su heppna í dag er yngismær sem fylgdist fyrr í vikunni með brúðuleikhúsi á gæsluvelli við Rauðagerði. Eins og sjá má leynir sér ekki hrifningin meðal fólks. Það er heldur ekki á hverjum degi sem Brúöubíllinn er í heimsókn. En unga stúlkan með hárbandið varð sú heppna og getur hún vitjað tvö þúsund krónanna hér á ritstjórn DV, Þverholti 11. Síðastliðinn laugardag var sá heppni í hringnum Finnur Oddsson. Hann var að Ijúka prófunum í Verslunarskólanum og var á rölti í bænum þegar myndin var tekin. í sumar ætlar Finnur að vinna í Landsbanka íslands. -RóG/DV-mynd S VEÐMÁLABANKARÍ Bretlandi hafa nóg að gera við að taka á móti veðfé vegna væntanlegs barns Fergie og Edw- ards, hertogahjóna af Jórvík. Fergie á von á sér í ágúst og svo merki- lega vill til að 67% þeirra, sem veðja, eru þess fullvissir að hún gangi með tvíbura. Frá konungsQölskyldunni heyrist ekkert um vænt- anlegt barn (börn) og þegar Fergie er spurö brosir hún bara íbyggin ásvip. ★ ★ ★ DAVID MacCarfrae var orðinn ósköp þreyttur á að vera venjulegur bak- ari sem bjó til þetta venjulega neyslubrauð daglega. Hann ákvað að fara til Holly wood og breyta um lífsstíl, ekki til að snúa sér að kvik- myndaleik heldur sem kökulistamaður. Hann býður nú allóvenjulegar hnallþórur sem eru „sér- smíðaðar“ fyrir sérstök tilefni. David, sem er 23ja ára, hefur nú opnað eig- in verslun og fær minnst sjötíu þúsund krónur fyrir hvem bakstur. Reyndar fékk hann þá upphæð sjöfalda er hann bakaði Joan Collins í fullri stærð. Það segir sig sjálft því hún er íturvax- in... ★ ★ ★ Bill Cosby var upp með sérerhannlasíeinu New York blaðanna að fyrrum kvikmynda- stjarna, Bette Davis, ætti sér uppáhaldssjónvaips- þátt og þaö væri Fyrir- myndarfaðir. Jafnframt lét hún að því liggja að húnmyndiekkislá hendinni á móti að koma inn í þáttinn sem „gömul frænka“. Bill Cosby tók hana á orðinu, hringdi í hana og bauð henni að vera með. Nú mun Bette Davis vera bókuð í ein- hverja þætti er haldið verður áfram við gerð þáttanna. Gaman verður að sjá stjörnunaá nýjan leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.