Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Qupperneq 19
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
19
„Hvar er rómantikin ef ekki á vorkvöldi í Reykjavík?" segir Ragnhildur
Helgadóttir 'alþingismaður.
Ragnhildur Helgadóttir alþingismaður
Rómantíkin er öllum nálæg
Hvar er romantíkin ef ekki í
Reykjavík á mildu vori? Rómantíkin
er öllum nálæg sem leyfa huga og
augum að njóta vorsins í kringum
sig, gullinna einfaldra augnablika.
Stundin í gær, í dag eða á morgun
er þess vegna rómantískust. Hvort
sem við erum tvítug, fimmtug eða
sextug.
Núna á sunnudagskvöldið var ein
þessara einfóldu stunda.
Við hjón sátum að lokinni ferð um
fallega sveit við stofugluggann og
flettum blöðum og bókum. Öðru
hvoru rauf bóndinn þögnina og las
brot úr ljóðum eftir borgarskáldið.
„í allan dag hefur vorið verið að
ljóma.
Eg vaknaði snemma við fótatak dags-
ins.“
Handan við gluggann var grasið
grænt og birkið sem fagnaði rigningu
dagsins. Úti var næturlogn.
Við gengum út í vorið upp á stokk.
Borgin svaf nema við og önnur ráð-
sett hjón, endur sem gengu yfir stíg
og létu sig umferðarreglur litlu
varða. í humátt á eftir kom sandlóa
á miðnæturgöngu. Annað hjóna var
heima og hélt hlýju á ungviði í
hreiðri.
Við gengum hringinn heim og höfð-
um enn einu sinni upplifað hvað til-
veran er rómantísk á vorkvöldi í
Reykjavík,
- „ þegar alls staðar ljómar vor yfir
vegum
og veröldin réttir sinn faðm móti ljós-
inu bjarta,"
... „því þá er þaö lífið sem yrkir fsín
ástljóð og sögur.“
„Við sögðum engum frá því að við
værum að fara að gifta okkur, það
var sérlega rómantískt að hafa þetta
bara tvö út af fyrir okkur,“ segir
Páll Þorsteinsson, útvarpsstjóri
Bylgjunnar.
Páll Þorsteinsson,
útyarpsstjóri Bylgjunnar:
Brúðkaupið
efstí
huganum
Þar sem ég er nýgiftur maður kem-
ur auðvitað fyrst upp í hugann brúð-
kaupið þegar rifjaðar eru upp róm-
antískar minningar. Reyndar held
ég að þetta brúðkaup hafi verið með
afbrigðum rómantískt því við giftum
okkur í kyrrþey - fórum alveg voða-
lega leynt með þetta, vildum ekkert
húllumhæ í kringum brúðkaupið. í
stað þess að halda mikla veislu fórum
við bara tvö út aö borða um kvþldið.
Það var náttúrlega rómantískasta
stund sem ég hef upplifað; nýgift og
eyddum kvöldinu tvö ein við kerta-
ljós.
Við giftum okkur í Dómkirkjunni
að viðstöddum foreldrum og dóttur
okkar. Enginn annar vissi um brúð-
kaupið fyrr en eftir á. Vissulega höf-
um viö mikið verið skömmuð fyrir
að fara svona leynt með þetta en það
eykur bara á rómantíkina að hafa
það þannig.
Það er mjög rómantískur atburður
að gifta sig, miklu skemmtilegra en
ég bjóst við. Kannski er heldur ekki
hægt að gifta sig á rómantískari hátt;
ég mæli meö þessu.
Texti:
Rósa Guðbjartsdóttir
Utsölustaðir um allt land
Heimilistæki Sætúni, Hafnarstræti
og Kringlunni
Kaupstaðurí Mjódd
Kaupf. Borgfiröinga Borgarnesi
Skagaver Akranesi
Hólmkjör Stykkishólmi
Verslunin Bimbó ísafirði
Kaupf. V / Húnvetninga Hvammstanga
Kaupf. Húnv. Blönduósi
Versl. Kjarabót Húsavík
K.E.A. Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði Tanginn Vestmannaeyjum
og Siglufirði Vöruhús K.Á. Selfossi
Kaupf. Héraðsbúa Egilsstöðum, Seyðisfirði Verslun R.Ó. Hafnargötu Keflavfk.
og Reyðarfirði
K.A.S.K. Höfn Hornafirði
í ferðalagið - á svalirnar - á veröndina
Hilmar B. Jónsson matreidslumeistari
valdi Sunbeam gasgrill aó vel athuguðu máli.
Þad eru ótvírœd meómœli.
Vandaóu valió - veldu Sunbeam.