Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
21
Þessar persónur kannast flestir íslendingar við sem fylgst hafa með framhaldsþáttum i gegnum árin, Chamberlain sem skoskur landkönnuður í Landnemunum, sem enskur sjómaður i Shogun,
sem kaþólskur prestur í Þyrnifuglunum og sem sænskur diplómat í hetjusögu Wallenbergs. Enn höfum við ekki séð „Dream West“ þar sem Camberlain leikur bandarískan könnuö.
Hirai kvenmannslausi Richard Chamberlain:
/
Konungur framhaldsþáttanna er
þreyttur eftir mikla vinnu undanfar-
in ár. Richard Chamberlain býr á
Hawaii í rólegu umhverfi. „Ég kann
ekki aö höndla margbreytileikann.
Einfalt líf á betur við mig. Það er
allt svo einfalt á Hawaii,“ segir
Chamberlain. „Að horfa á sólsetrið
er stór partur af mínu M.“
Hann hefur ærna ástæðu til að vera
þreyttur. Síðustu átta árin hefur
hann ferðast frá einu landi til annars
til þess að leika hetjur sjónvarps-
þáttanna Centennial (Landnemarn-
ir), Shogun, The Thornbirds (Þyrni-
fuglamir j og Wallenberg. Þetta eru
þættir sem við íslendingar höfum
fengið að berja augum. Við höfum
hins vegar ekki enn séð Dream West
og nýjasta myndaflokkinn, The
Boume Identity, sem er nýbyijað að
sýna í Bandaríkjunum, en úr því
verður væntanlega bætt fljótlega.
Eftirsóttasti
sjónvarpsleikarinn
Engum leikara hefur enn tekist
að ná Chamberlain af toppnum sem
eftirsóttasta sjónvarpsleikaranum og
er það engin tilviljun. Góður leikari
er alltaf góður leikari, hvort sem
hann leikur í mynd vikunnar á ein-
hverri sjónvarpsstöð eða kemst á
pall óskarsverðlaunahafa. Fram-
leiðsla góðra sjónvarpsþátta krefst
ekki síður mikils en góðra bíómynda
„í sjónvarpsþáttum þarfnast mað-
ur leikara sem ráða við persónur á
öllum aldri vegna þess hve þessir
þættir spanna langan tíma,“ segir
David Wolper sem aðstoðaði viðleik-
stjórn á Þyrnifuglunum, sjónvarps-
þáttunum Rætur og nú síðast North
and South sem Stöð 2 var að enda
við að sýna. „Ef þú ert slæmur leik-
ari sést það ekki strax í upphafi. Hins
vegar kemur það fljótlega í ljós þegar
á reynir.“
„Að leika fólk á mismunandi ald-
ursskeiðum er eins og munurinn á
að leika Pinter og Shakespeare," seg-
ir Chamberlain, sem í dag er jafn-
myndarlegur 53 ára og þegar hann
hóf að leika í kvikmyndum árið 1961
er hann lék dr. Kildare.
Hryðjuverkamaður í
nýjustu seríunni
Nýjasta sjónvarpsserían var tek-
in upp síöastliðinn vetur í Nice, Lon-
don, París og Zúrich. „Ég fékk fjórum
sinnum flensu,“ segir annar aöstoð-
arleikstjórinn, Alan Shayne. „En
Richard Chamberlain fékk ekki svo
mikið sem tannpínu."
í „The Bourne Identity" leikur
Chamberlain sitt fyrsta samtíðar-
hlutverk og það fyrsta þar sem hann
er ekki hetja. Þar greinir fá því er
hann er skotinn í höfuðið og hent í
sjóinn og vaknar upp á meðal hryðju-
verkamanna og bandarískra njósn-
ara. Hann man ekkert af því sem
gerðist í fortíðinni. í framhaldi af því
mótast hann af þeirri veröld og verð-
ur einn skæöasti hryðjuverkamað-
urinn. Eitt af því fáa sem hann þekk-
ir er máttur ofbeldisins. Mótleikari
hans í þessari mynd er Jaclyn Smith,
en hún er ásamt Chamberlain, Peter
Strauss og Lee Remick efst á lista
yfir vinsælustu sjónvarpsstjörnur
Bandaríkjanna.
Eríháskóla
„Manni verður að líka við fólkið
sem maöur býður inn í sjónvarps-
herbergið," segir einn aðalfor-
sprakki ABC sjónvarpsstöðvarinnar.
„Þess vegna er Chamberlain svo vin-
sæll.“
Næsti þáttur í lífi Chamberlains er
að vera heima um tíma og fullgera
húsiö sitt á Hawaii og annað hús sem
hann á í Beverly Hills. „Ef ég sé
hótelherbergi ekki á næstunni verö
ég ánægður," segir hann. Engu að
síður hefur hann þegar gert samning
við CBS sjónvarpsstöðina um að
leika í kvikmynd sem á að gerast á
Hawaii, þar verður hann í hlutverki
læknis. Þangað til ætlar hann að
mála myndir og sækja námskeið í
háskólanum á Hawaii. „Og horfa á
sólarlagið," sagði hann.
Ætlar að deyja
einsamall
Það hefur alltaf vakið athygli
meðal almennings að þessi myndar-
maður hefur varla svo mikið sem
verið við kvenmann kenndur. Hann
segir sjálfur í nýju blaðaviðtali að
engin kona geti uppfyllt kröfur hans
og efast um að það verði úr þessu.
„Ég hef aldrei verið giftur og á engin
börn. Tíminn er að hlaupa frá mér,“
segir hinn 53 ára gamli Camberlain.
„Ég hef kynnst mörgum fallegum
konum en sambandið við þær hefur
:
Mnfei
; 'ý
x •
•:. ý:
* \
* A/;
<x>xox::-
mm
v:< ;x'«x>:<x
^•X-.y.vo,
.
.X ;;•■.. .:
mm
> ■
'y'.ý::;
<•,'•:;,y;.;X>Xv,-,
Richard Chamberlain beitir ofbeldi og leikur aldrei þessu vant ekki hetju i nýjasta sjónvarpsmyndaflokk sinum.
aldrei varað lengi," sagði hann. Það
varð blaðamatur fyrir nokkru er
Linda Evans, Dinastystjarna, og
Camberlain sáust oft saman. Al-
menningur átti von á því að loks
væri hann búinn að finna þá einu
réttu. Eftir skammtímasamband
slitnaði upp úr öllu og sagt var aö
ástæðan hefði verið sú að Linda vildi
ólm leiða hann að altarinu og eiga
með honum börn. Það vildi Cham-
berlain fyrir alla muni ekki og flúði
afhólmi.
Einasti kvenselskapurinn sem
hann hefur um þessar mundir er
matreiðslukonan á heimili hans.
„Hún er heimsins besti kokkur og
passar vel upp á línurnar mínar. Hún
hugsar mikið um að láta hvorki ofan
í mig feitan né brasaðan mat, enda
segir hún að ég sé of gamall fyrir
slíkt.“ Þýtt-GKr
Frábær mynd- og tóngæði!
Einstök ending!
VHS:120,180 og 240 mínútna.
Beta: 130 og 195 mínútna.
TILBOÐ:
20% afsiáttur!
Tvö stk. í einum pakka,
-á kr.430 stykkið!
Kodak
UMBOÐIÐ