Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
29
Hinhliðin
• Pétur Bjarnason heitir hverjum þeim 100 þúsundum sem getur bent honum á þjófinn sem stal peninga-
skápnum.
„Langar mest
tíl að hitta
þjófmn"
- Akureyringurinn Pétur Bjamason sýnir á sér hina hliðina
FULLT NAFN: Pétur Bjamason. un): Mamma.
ALDUR: Fæddur 22. júní 1964.
Pétur Bjarnason, eig-
andi og framkvæmda-
stjóri SHELL-nestis á
Akureyri, hefur boðið
hverjum þeim 100 þusund
krónur sem getur gefið
upplýsingar er leiði til
þess að innbrotið í versl-
un hans á dögunum upp-
lýsist. Pétur er vel þekk-
ur í bæjarlífinu á Akur-
eyri, er leikmaður í 1.
deildar liði KA í hand-
knattleik og hóf rekstur
fyrsta pylsuvagnsins á
Akureyri. Hann fékk við
það viðurnefnið „Pési
pylsa“ en lætur sér fátt
um finnast og rær óhikað
á önnur mið einnig. Hann
hefur verið í sviðsljósinu
að undanförnu vegna
innbrotsins í SHELL-
nestið þar sem þjófurinn
stal peningaskápnum
hans með ýmsum per-
sónulegum munum auk
fleiri verðmæta. En hver
er Pétur Bjarnason?
MAKI: Agústa Björnsdóttir.
BÖRN: Engin.
BIFREIÐ: Mitsubishi Pajero 1988.
STARF: Framkvæmdastjóri.
LAUN: Léleg miðað við alla vinn-
una.
ÁHUGAMÁL: íþróttir.
HVAÐ HEFUR ÞÚ FENGIÐ
MARGAR TÖLUR RÉTTAR í
LOTTÓ MEST?: Aldrei unnið neitt.
HVAÐ ER MEST GAMAN AÐ
GERA?: Borða góðan mat.
HVAÐ ER LEIÐINLEGAST AÐ
GERA?: Tapa leik með KA.
Umsjon
Stefán Kristjánsson
HVAÐ HEFUR NEYÐARLEGAST
HENT ÞIG?: Aö láta þjófmn stela
peningaskápnum mínum á dögun-
um.
UPPÁHALDSMATUR: Súrmatur
og slátur.
UPPÁHALDSDRYKKUR: Mjólk.
HVAÐA ÍSLENSKUR ÍÞRÓTTA-
MAÐUR STENÐUR FREMSTUR í
DAG?: „Súmu súkkulaöi“.
UPPÁHALDSTÍMARIT: Ekkert
FALLEGASTA KONA SEM ÞÚ
HEFUR SÉÐ (lyrir utan eigínkon-
HLYNNTUR EÐA ANDVIGUR
RÍKISSTjÓRNINNI?: Hlynntur.
í HVAÐA SÆTI HAFNAR ÍS-
LENSKA LANDSLIÐIÐ í HAND-
KNATTLEIK Á ÓLYMPÍULEIK-
UNUM í SEOUL?: 1. sæti, ekki
spuming.
HVAÐA PERSÓNU LANGAR ÞIG
MEST TIL AÐ HITTA?: Þjófinn.
UPPÁHALDSLEIKARI: Skúli
Gautason.
UPPÁHALDSSÖNGV ARI: Logi
Einarsson.
UPPÁHALDSSTJÓRNMÁLA-
MAÐUR: Sigurður J. Sigurösson
bæjarfulltrúi.
HLYNNTUR EÐA ANDVÍGUR
BJÓR Á ÍSLANDI?: Hlynntur.
HLYNNTUR EÐA ANDVÍGUR
VERU VARNARLIÐS Á ÍSLANDI?:
Hlynntur.
HVER ÚTVARPSSTÖÐVANNA
FINNST ÞÉR BEST?: Stjaman.
UPPÁHALDSÚTVARPSMAÐUR:
Jón Ólafsson.
UPPÁHALDSSJÓNVARPSMAÐ-
UR: Þorgeir í lottóinu.
UPPÁHALDSSKEMMTISTAÐUR:
Rauða myllan.
AÐ HVERJU STEFNIR ÞÚ Á ÁR-
INU?: Finna þjófmn og bjóða hon-
um í slátur.
HVAÐ HYGGST þÚ GERA í SUM-
ARLEYFINU?: Slappa af og hafa
það gott.
Borgarfjörður eystra
Nýr umboðsmaður frá 1. júní 1988 á Borgarfirði
eystra er Skúli Andrésson, Framnesi, s. 97-29948.
VÉLSTJÓRI ÓSKAST!
Óska eftir vélstjóra með full réttindi í einn túr á milli-
landaskip, frá 14. júní-30. júní.
Lysthafendur hafi samband við auglýsingadeild DV
sem fyrst í síma 27022. H-2208.
RUKKUNARHEFTI
TAPAÐIST VIÐ SIGLUVOG,
Njörvasund, Drekavog eða Hlunnavog 8. júní sl.
Finnandi vinsamlegast hafi samband við
áskriftadeild DV í síma 27022.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN
VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRÚN
tilkynna helgarvinnubann í fiskverkun og fiskvinnslu á
félagssvæði félaganna frá 15. júní-1. september 1988.
Verkakvennafélagið Framsókn
Verkamannafélagið Dagsbrún
FRÁ SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTINU
UM LAUSAR STÖÐUR VEIÐIEFTIRLITSMANNA
Sjávarútvegsráðuneytið óskar eftir að ráöa veiðieftirlits-
menn. Umsækjendur, sem til greina koma, þurfa að upp-
fylla eftirfarandi skilyrði:
1. Hafa lokið jirófi frá Stýrimannaskólanum,
Tækniskóla íslands (útgerðartækni) eða hafa sam-
bærilega menntun.
2. Hafa þekkingu á öllum algengustu veiðum og
veiðarfærum.
3. Æskilegur aldur 30-50 ár.
Umsóknir þurfa að hafa borist ráðuneytinu fyrir 25. júní
nk. og skal þar greina aldur, menntun og fyrri störf.
Sjávarútvegsráðuneytið, 10. júní 1988.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
EFTIRTALDAR STÖÐUR ERU
LAUSAR TIL UMSÓKNAR:
Staða FRÆÐSLUSTJÓRA frá 1. ágúst nk. Starfið
felst í að hafa umsjón með skipulagningu, framkvæmd
-og mati allrar fræðslu á hjúkrunarsviði og vera ráðgef-
andi aðili fyrir deildir um fræðslumál.
Umsóknarfrestur er til 24. júní nk.
Staða DEILDARSTJÓRA á svæfingardeild vegna af-
leysinga, í 1 ár. Þrjár stöður SVÆFINGARHJÚKR-
UNARFRÆÐINGA.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Marteinsson hjúkr-
unarforstjóri i síma 19600/300 kl. 11-12 og 13-14.
Einnig eru lausar stöður YFIRFÓSTRU á barnaheimil-
ið Litlakot frá 1. sept. nk. og AÐSTOÐARMANNS
frá 1. sept. nk.
Upplýsingar veitir Dagrún Ársælsdóttir forstöðumað-
ur í síma 19600/297 kl. 11-12 og 13-14.
9. júní 1988
SKRIFSTOFA HJÚKRUNARFORSTJÓRA