Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Síða 35
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
Knattspyma uriglinga
Framarar
Reykjavíkur-
meistarar í
4. flokki A.
Reykjavíkurmeistarar Fram í 4.
flokki A-liða. Fremri röð frá vinstri:
Jónas F. Valdimarsson, Ámi Eyþórs-
son, Ólafur Kristjánsson, Hólm-
steinn Halldórsson, Ólafur Theód-
órsson, Árni Ingimundarson, Ás-
bjöm Jónsson og Örvar Gíslason.
Áftari röð frá vinstri: Kristbjörn Þor-
kelsson liðsstjóri, Arnar Amarsson
fyrirliði, ívar P. Jónsson, Kjartan
Hallkelsson, Ágúst Þorsteinsson,
Kjartan Ragnarsson, Sigurður Páls-
son, Guðmundur Benediktsson, Arn-
ar Símonarsson, Valtýr Gunnarsson
og Magnús Einarsson þjálfari.
DV-mynd HH
2. flokkur kvenna:
Fyrirliði í 2. flokki KR, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, hampar bikarnum eftir
sigur í Reykjavikurmótinu. Vegna þrengsla verður mynd af meisturunum
að bíða næsta laugardags. DV-mynd HH
svona fer þegar maður
syni bæjarstjórans
rauða
spjaldið!
samur
Hleypið krökkunum
inn á grasió
Flestir halda því fram að knatt-
spyma leikin á möl sé nánast léleg
eftirlíking af þeim leik sem hægt
er að ná fram á grasi og tek ég
undir þá skoðun.
Allir leikir vormóta fara fram á
möl og er það ósköp skiljanlegt.
Hjá þeim félögum sem ráða yfir
grasvöllum em þeir opnir meist-
araflokki í byrjun júní undir eðli-
legum kringumstæðum. Mörg und-
anfarin ár hafa yngri flokkar þess-
ara félaga fengið sárafáa heima-
leiki færða yfir á hið eftirsótta gras.
Með tilkomu fleiri grasvalla hjá
hinum ýmsu félögum ætti að vera
hægt að snúa þessari þróun við og
hlífa krökkunum við hinu mikla
rykkófi sem fylgir þurri möl.
Unglingasíöa DV hvetur öll þau
félög, sem hafa yfir grasvöllum að
ráöa, til að leyfa unga fólkinu að
spila alla sína heimaleiki íslands-
mótsins á þeim.
Hafið hugfast að það er alltaf
hægt að græða upp grasvöllinn og
lagfæra en það tjón sem mölin get-
ur valdið knattspyrnulegum
þroska unglingsins getur verið ill-
bætanlegt._______________HH
Formaður unglinganefndar
KSÍ heitir Sigbjörn
Rangt var farið meö nafn formanns
unglinganefndar KSÍ á unglinga-
síðu DV 28. maí sl. Hið rétta er að
hann heitir Sigbjörn Gunnarsson
og hefur aðsetur á Akureyri. Beðist
er velvirðingar á þessum mistök-
um. -HH
KR-stelpurnar innsigluöu sigur
sinn í Reykjavíkurmótinu með því
að leggja Val að velli í síðasta leikn-
um, 2-1. Leikurinn var háður á KR-
velli 30. maí sl. - Valstúlkurnar börð-
ust vel í þessum leik og stóðu lengi
vel í meisturunum. Staðan í leikhléi
var 1-1.
Margrét Grétarsdóttir náði
snemma forystu fyrir KR en skömmu
síðar náðu Valsstelpurnar að jafna
þegar boltinn hrökk af varnarmanni
KR og í netið. KR-stúlkunum varð á
í messunni þegar þær misnotuðu
vítaspyrnu stuttu seinna.
í síðari hálfleik var nokkuð jafn-
ræöi með liðunum en KR-ingar þó
heldur meira ógnandi og þar kom að
stúlkurnar náðu forystunni eftir
harða hríö að marki Vals þegar
Margrét bætti við sínu öðru marki
og tryggði þar með sigur KR-inga.
Sigur KR-stúlknanna var mjög
sannfærandi í þessu Reykjavíkur-
móti, þær unnu alla sína leiki og
urðu úrsht eftirfarandi:
KR-Fylkir 3-0
Valur-KR 0-4
Fylkir-KR 0-5
KR-Valur 2-1
Þetta eru miklir yfirburöir og
greimlegt að KR-stelpurnar eru til
alls vísar í íslandsmótinu.
. Að leik loknum afhenti Ólafur Ól-
afsson, fyrirliða KR-inga, Guðrúnu
Jónu Kristjánsdóttur Reykjavíkur-
bikarinn. Valsstúlkurnar uröu í 2.
sæti og hlutu því silfriö.
-HH
5. flokkur - A-riðill:
Stórsigur Breiðabliks gegn Leikni
- Bjami Jónsson með þrennu í B-liði
íslandsmótið er hafið af fullum
krafti. Miðvikudaginn 1. júní mættu
Leiknisstrákarnir í 5. flokki A-riöils
til leiks gegn Breiðabliki. Leikurinn
fór fram á Vallargerðisvelh í hinu
fegursta veðri og að viðstöddum
fjölda áhorfenda sem hafði greinilega
mikla skemmtun af.
Breiðabliksstrákarnir voru í mikl-
um ham og sigruðu i báðum leikjun-
um. A-leikinn með 6-0 og B-leikinn
7-1. Þessar tölur gefa náttúrlega til
kynna mikla yfirburði Bhkanna,
enda hvert rúm vel skipað og tækni
og leikskipulag með besta móti. í
jöfnu höi Kópavogs voru þeir Kjartan
Antonsson og Aron Haraldsson þó
atkvæðamestir. Hjá Leikni var aftur
á móti liðsheildin ekki eins jöfn. Þó
voru þar strákar innan um sem
sýndu afbragðstakta, til dæmis þegar
Haukur Gunnarsson skoraði eina
mark Leiknis með hjólhestaspyrnu
af bestu gerð. Þar var svo sannarlega
vel að verki staðíð hjá strák.
Mörk Blikanna í A-liði gerðu þeir
Aron Haraldsson, 2, Kjartan Antons-
son, Árni Eyþórsson, Gunnar Ólafs-
son og Björn Freyr Ingólfsson, eitt
mark hver.
Leikur B-liðanna var einnig góður
og sýndu strákamir góð tilþrif. Mörk
Blikanna gerðu Bjarni Jónsson, 3,
enda skotharður með afbrigðum,
Grétar Sveinsson, 2 og Guðmundur
Guðmundsson og Þór Tjörvi Þórs-
son, 1 mark hvor. Mark Leiknis geröi
Haukur Gunnarsson.
-HH
Kjartan Antonsson er leikmaöur
með 5. fl. Breiðabliks og átti mjög
góðan leik gegn Leikni, R., á dögun-
um. Unglingasíðan spurði hann aftur
á móti um orsökina fyrir tapinu gegn
Tý frá Vestmannaeyjum þar sem
Týrarar sigruðu bæði í A- og B-liði:
„Viö sóttum mun meira í þeim leik
og vorum óheppnir að skora ekki
mörk. Týrarar léku meiri varnarleik
og beittu skyndisóknum sem þeir
skoruðu úr. Það er alveg ferlegt að
sækja og sækja, eins og við gerðum,
og gera engin mörk,“ sagði hinn
efnilegi Breiöabliksmaður.
DV-mynd HH
Frá leik Breiðabliks og Leiknis i 5. fl. A-liða. Blikarnir eru hér i sókn og
Kjartan Antonsson í góðu færi en markvörður Leiknis náði aö loka markinu.
DV-mynd HH