Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Page 42
54
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
LífsstiU_______________________________________________________________
Nokkrar hugmyndir um veitingastaði í höfuðborg Englands:
Kínverskir staðir
í Soho
Fyrir þá sem vilja prófa eitthvaö
nýtt og spennandi er tilvaliö að
bregða sér á einhvern hinna fjöl-
mörgu kínversku eöa indversku veit-
ingastaöa í London.
I Soho úir og grúir af veitingahús-
um sem sérhæfa sig í kínverskri
matseld. Margir þessara staða hafa
þó ekki sem best orö á sér sökum
þess hve htið er lagt í umhverfi og
þjónustu. Þeir eru oft Uthr, dimmir
og þröngir og þjónustan, sérstaklega
við Vesturlandabúa, ekki upp á
marga fiska. Þó hefur orðið nokkur
breyting á undanfarið og nýir og
metnaðarfyhri staðir verið opnaðir.
Einn þeirra er Poons við Lisle Stre-
et (stutt frá Leicester Square neðan-
jarðarstöðinni). Poons er ekki mjög
stór, en vinalegur og ekki mjög dýr.
Staðurinn sérhæfir sig í söltum,
vindþurrkuðum kjötréttum og
bragðmiklum pottréttum. Meðalverð
fyrir máltíðina er ehefu pund og vín
hússins kostar fjögur og hálft pund
flaskan. Poons er opið frá tólf á há-
degi til hálf tólf á kvöldin alla daga
nema sunnudaga.
Indverskt karrý
Það er mikil gróska í indverskum
veitingastöðum í London og synd að
fara heim án þess að hafa prófað ein-
hvern þeirra. Þeir eru flestir mjög
góðir, verðið viðráðanlegt og þjón-
ustufókið leggur sig yfirleitt fram við
að útskýra framandi réttina.
Woodlands við Marylebone Lane
er staður sem óhikað er hægt aö
mæla með. Woodlands er rólegur,
vinalegur staður sem býður upp á
mikið úrval frábærra karrýrétta.
Verðið er rétt fyrir ofan meðallag.
TóU pund fyrir máltíðina og vín
hússins kostar sex pund. Staðurinn
er opinn frá hádegi til klukkan þrjú
og frá sex til hálf ellefu alla daga vik-
unar. Þetta er mjög vinsæll staður
og ráðlegast að panta borð á kvöldin.
Annar mjög góður indverskur
staður er Shan Restaurant við Shaft-
esbury Avenue. Verðið þar er næst-
um fáráiflega lágt, maöur getur borð-
að sig sprengsaddan fyrir innan við
fimm pund. Shan hefur ekki vín-
veitingaleyfi, en er vel þess virði að
heimsækja þótt ekki væri nema til
að prófa ótrúlegt úrvalið af græn-
meti. Sumt er flutt inn sérstaklega
frá Indlandi og ekki fáanlegt annars
staðar. Staðurinn er opin frá hádegi
til kl. tíu á kvöldin en eigandinn á
það til að loka snemma ef lítið er að
gera, svo skynsamlegast er að
hringja á undan sér.
Paradís fyrir
grænmetisætur
London er góður staður fyrir
grænmetisætur og heilsufrík. Fyrir
utan að flest betri veitingahús bjóða
upp á slíka rétti, eru einnig margir
staðir sem sérhæfa sig í grænmetis-
og heilsufæði. Þekktastir þeirra eru
Christys Healthline við Wardour
Street og Food for Thought við Neal
Street. Báðir þessir staðir eru mjög
góðir, grænmetið alltaf ferskt og
maturinn fallega fram borinn.
Food for Thought hefur ekki vín-
veitingaleyfi og er mun minni en
Christys og jafnframt ódýrari. Með-
alverð fyrir máltíðina er fjögur og
Á neðri hæð Braganza er hægt að fá léttar máltiðir en á efri hæðinni eru aðalveitingasalirnir.
Staðreyndin er hins vegar sú að
það er allt til í London, í mat jafnt
sem öðru. Hvort heldur fólk er á
höttunum eftir góðum mat og huggu-
legu umhverfi eða langar til að reyna
nýja spennandi rétti. Hvort heldur
jjþað vill borga 100 kall eða nokkur
þúsund, bara nefna það, London hef-
ur það. Lausnin er bara að vita hvar
þessa staði er aö finna. Eftirfarandi
eru nokkrar ábendingar um staði
sem eru vel þess virði að þeir séu
heimsóttir.
Safaríkar skoskar
steikur
Braganza heitir nýr, mjög vin-
sæll staður sem óhætt er að mæla
með. Braganza er við Frith street í
Soho og því í göngufjarlægð frá flest-
xun þeim hótelum sem Islendingar
gista á. Staðurinn er á þremur hæð-
um, bjartur og skemmtUegur og inn-
réttingin óvenjuleg blanda af skúlpt-
úr og veggmyndum. Framlfliðin er
einn stór gluggi, þannig að ef maður
hefur ekki áhuga á að tala við sessu-
nauta sína er alltaf hægt að dunda
sér við að fylgjast með götulífinu fyr-
ir utan. Á neðstu hæðinni er kaffi-
Vinsælt er að sitja við gluggana á Braganza og fylgjast með lifinu á götunni.
Valgerdur A. Jónsdóttir, DV, London
Venjulega fær fólk ekki vatn í
munninn viö það eitt að heyra
minnst á London. Öfugt við París t.d.
hefur London verið fræg fyrir flest
annað en matargerðarlist. Það kaim-
ast ábyggilega margir íslenskir
ferðamenn við að hafa ráfað hungr-
aöir fram og aftur eftir Oxford-stræti
og ekkert fundiö annað en pitsustaöi
og hamborgarabúllur.
og vínbar og þar er einnig hægt að
fá létta máltíð, súpur, salöt, pasta-
rétti og samlokur. Aðalveitingasal-
irnir eru á efri hæðunum tveimur.
Matseðiflin þar er alþjóðleg blanda
af kjöt-, fisk- og jurtaréttum. Ég próf-
aði skoskt nautakjöt, borið fram með
grænmeti og kampavíns- og dillsósu
og í eftirrétt ostabakka með eplum
og sellery. Hvoru tveggja bragðaðist
ákaflega vel og var listilega frambor-
ið. Þjónustan var líka lipur og and-
rúmsloftið vinalegt. Á kvöldin er
gestum á annarri hæð skemmt með
píanóleik. Kaffibarinn er opnaður
klukkan ellefu á morgnana en veit-
ingasalirnir eru opnir frá tólf til þrjú
og frá sex til miðnættis. Á sunnudög-
um er lokað.
Braganza er frekar dýr staður.
Meðalverð fyrir aöal- og eftirrétt
ásamt kafli á neðstu hæðinni er átta
pund. Á efri hæðunum er meðalverð
fyrir þriggja rétta máltíð og kaffl um
átján pund. Vín er ekki meðtalið í
þessu verði. Ofan á leggst síðan
fimmtán prósent þjónustugjald.
Þetta er meðalverð sem þýðir að
hægt er að borða ódýrar og einnig
mun dýrar.
Ferðir
Yíst er hægt að borða
góðan mat í London