Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Page 43
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
55-
LífsstOl
Grænmetisstaðurinn „Food for thought" lætur litið yfir sér. Hann er mjög
vinsæll og oftast eru langar biðraðir út á götu í hádeginu.
hálft pund. Staðnum er lokað um
helgar.
Christys er opið alla daga vikunn-
ar, frá klukkan átta til hálf ellefu
virka daga og frá hádegi til miðnætt-
is um helgar. Meðalverð þar er sjö
og hálft pund fyrir máltíöina og vín
hússins kostar fimm pund og tuttugu
og fimm pence flaskan.
Lægra verð en
í miðbænum
Alhr þeir staðir sem taldir eru
upp hér að ofan eru staðsettir í hjarta
borgarinnar, en fyrir þá sem eru
ævintýragjarnir og vilja bregöa sér á
nýjar slóðir er heldur engin ástæða
til að svelta. Staðreyndin er einnig
sú að því lengra sem maður fer frá
miðbænum því lægra er verðið.
Við Upper street er frægur antik-
markaður sem gaman er að skoða.
Þar í kring eru nokkrir góðir veit-
ingastaðir. Einn þeirra er mexik-
anskur staður sem heitir Roxy og er
við Upper street, ekki langt frá mark-
aðnum sjálfum.
Roxy er lítill, vinalegur og nýtísku-
legur staður á tveimur hæðum. Á
veggjum hanga mexikanskar myndir
og skreytingar. Matseðilhnn er
hreinræktaður Mexikani. Mexik-
anskur matur er mjög bragðmikill
og seðjandi og skammtarnir á Roxy
þar að auki vel úthátnir. Ég mæli
með Burrito, sem er þunn flatkaka
úr maismjöli, borin fram heit og
hægt að fá meö ýmsum fyllingum.
Matnum er tilvalið að skola niður
með mexikönskum bjór, sem er mjög
góður.
Roxy býður einnig upp á ágætt úr-
val eftirrétta og svo er hægt að ljúka
máltíðinni með því að prófa einhvern
hinna fjölmörgu mexikönsku kok-
teila sem í boði eru. Meðalverð fyrir
þriggja rétta máltíö og kaffi eru sjö
pund og vín hússins kostar fjögur
pund og fimmtíu pence. Staðurinn
er opin frá hádegi til miðnættis alla
daga vikunnar. Roxy býður upp á
sérstakan matseðil fyrir börn á lægra
veröi, nokkuð sem er frekar óvenju-
legt í veitingahúsum í London. Víða
eru börn ekkert sérstaklega velkom-
in og aðstaðan th að vera með unga
krakka bágborin.
Viö Upper Street eru tveir aðrir
staðir sem óhætt er að mæla með.
Uppers Bistro er huggulegur líthl
staður og mjög ódýr. Þar er hægt að
fá heha máltíð fyrir um þrjú pund.
En þótt verðið sé mjög lágt er matur-
inn mjög góður og þjónustan einstak-
lega lipur. Fyrir þá sem þjást af heim-
þrá er tilvahð að bregða sér á Upper
Street Fish Shop. Matseðillinn þar
samanstendur af skötu, þorski, ýsu
og öðrum kunnuglegum sjávardýr-
um, þótt ekki séu þau ahtaf matreidd
eins og heima.
Staðurinn hefur ekki vínveitinga-
leyfi en maturinn er mjög góöur og
sama má segja um þjónustuna. Með-
alverö fyrir þriggja rétta máltíð er
fimm pund og fimmtíu pence. Staö-
urinn er opin frá hádegi th klukkan
tvö og hálf sex til tíu þriðjudaga til
fostudaga. Á mánudögum er aðeins
opið á kvöldin og lokað á sunnudög-
um.
Er þjórfé gefið eða ekki?
Hér hefur aðeins verið minnst á
örlítið brot af öllum þeim aragrúa
veitingastaða sem er að finna í Lon-
don. Þetta eru ekki endilega bestu
staðimir né þeir flottustu, en þetta
eru allt staðir sem óhætt er að full-
yrða að valdi engum vonbrigðum.
Allir þessir staðir, eins og langflest
veitingahús í London, taka greiðslij-
kort (Visa er algengara en Eurö-
card). Fæst veitingahús gera sérstak-
ar kröfur um klæðaburð en þó er
sums staðar illa séð ef matargestir
birtast í stuttbuxum og ermalausum
bol. Spurningin um hvort gefa eigi
þjórfé eða ekki er hálfgerð gesta-
þraut. Sums staðar er tekið fram á
matseðhnum að þjónustugjaldi sé
bætt á reikninginn, annars staöar að
fólki sé í sjálfsvald sett hvort það
gefur þjórfé eða ekki. Og sums staðar
muldra þjónarnir eitthvaö sem líkist
jái en hrista um leið ákaft höfuðið
þegar maður spyr hvort ætlast sé til
að þeim sé gefið þjórfé. Sem sagt,
engin almenn regla í þessu sam-
bandi. Og svo er bara að skella sér
út að borða.
Láttu fara vel um þig
/ p /• * "
í Irunu.
Þú átt það skilið.
Edduhótel er ávallt skammt undan.
Fardu Edduleiðina í sumar og þér mun líða vel.
Frá 15.-30. júní og 8.-30 ágúst býður Hótel Edda þér að gista nóttina fyrir
aðeins 863.- krónur á mann í tveggja manna herbergi nt/handlaug.
Tilboð þetta gildir fyrir minnst fjórar nætur, sem hægt er að gista allar á
einu hóteli eða eina nótt á hverjum stað.
Gistingu má einungis panta með tveggja daga fyrirvara eða skemmri.
Leitaðu nánari upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu ríkisins
í síma: 25855 eða á Edduhótelunum.
Forsala hefst 16. maí. —»
m m m m M M m _ m _'____g ®| m m & _ _ g
Af hi/Afiff Aififi /y/) j/Ai/rn tsB Mnnfslé
ÆF^SLB B BWErBBM vlmflil w ill BWB%&rB B%tmBm
Það er stutf þangað frá nýja áœtlunarstaðnum okkar
- MÍLANÓ.