Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1988, Blaðsíða 23
Islenska landsllðlð I handknattleik héltutan f nótt. Liðlé lelkur vináttulelk vw IWVestur-Þýskalandsannað kvöld en sfðan erferðinni heltlð
tll Austur-Þýskalands þar sem leiklð verður á mjög sterku alþjóðlegu móö. Myndln hér að ofan var tekin kiukkan hálffjögur I nótt, skömmu éður en hópurinn hélt tll Keflavíkurflugvallar.
Eins og sjá má eru ieikmenn vel klæddír en alifr eru þelr I giæsikiæðnaði frá Herragarðinum. DV-mynd S
• Óskar Ármannsson. Leikur hann með sænska liðinu GUIF næsta vetur?
Óskar með til-
boð frá GUIF
„Þetta skýrist fljótlega," seglr Oskar Aimannsson, FH
„Ég fékk tilboð frá sænska liðinu GUIF og hef farið til Svíþjóðar til að
kanna aðstæður. Mér leist rajög vel á alla aðstöðu hjá félaginu en kannski
ekki nægilega vel á tilboðið sem slíkt,“ sagði handknattleiksmaðurinn Óskar
Ármannsson í FH í samtali viö DV í gærkvöldi.
„Það er ekki gott að segja til um framhaldið. Þetta ætti að ráðast á næstu
dögum,“ sagöi Óskar.
Oskar Ármannsson átti líklega sitt besta tímabil með FH á liðnum vetri.
Hann átti hvem stórleikinn á fætur öðrum og í lok íslandsmótsins var hann
með markahæstu mönnum. Það yrði mikil blóðtaka fyrir FH-inga að missa
Óskar sem er 23 ára og hefur aldrei leikið með öðru félagi.
-SK
íslenska handboltalandsliðið hélt utan í morgun:
Vigdís forseti á
meðal áhorfenda
- Lelkið gegn V-Þjóðverjum og síðan á sterku móti í A-Þýskalandi
Islenska landsliðið í handknattleik
hélt utan í morgun til Austur-Þýska-
lands en þar mun liðiö taka þátt í
sterku 8 landa handknattleiksmóti
sem hefst 12. júlí. Leikið er í tveimur
riðlum og verða íslendingar í riöli
meö Austur-Þjóðverjum, Pólverjum
og Kínveijum.
Áður en mótið hefst í Austur-
Þýskalandi leikur íslenska hðið við
Vestur-Þjóðveija annað kvöld í Ham-
borg en landsleiknum var komiö á
vegna opinberrar heimsóknar Víg-
dísar Finnbogadóttur forseta til
Vestur-Þýskalands. Vigdís verður
heiðursgestur á landsleiknum annað
kvöld en meðal áhorfenda verður
einnig Steingrímur Hermannsson
utanríkisráðherra.
Á blaöamannafundi, sem haldinn
var í gær vegna utanferðar landshðs-
ins, kom fram að liðið myndi leika
22 landsleiki fram að ólympíuleikun-
um. íslenska liðið hefur farið í gegn-
um miklar þrekæfingar frá því að
undirbúningur hófst fyrir fullri al-
vöru, 10. júní. Láðið væri því í líkam-
lega góðu ástandi.
„Við mætum óhræddir til leiks á
mótið í Austur-Þýskalandi og kvíð-
um engu. Leikmenn hafa lagt mikið
á sig á æfmgunum. Vera kann að
leikmenn séu þungir eftir erfíðar
æfingar og gæti þaö komið niður á
árangri liðsins á mótinu en við von-
um aðeins það besta,“ sagði Guðjón
Guðmundsson, liðsstjóri íslenska
liðsins, á blaðamannafundinum i
gær.
íslenska landsliöiö, sem fer til Vest-
ur- og Austur-Þýskalands, er skipað
eftirtöldum leikmönnum en lands-
leikjafjöldi er tilgreindur aftast í
sviga:
Einar Þorvarðarson.....Valur(178)
Brynjar Kvaran.......Stjaman(114)
Hrafn Margeirsson...........ÍR(7)
Þorgils Ó. Mathiesen......FH(175)
Jakob Sigurðsson.......Valur(134)
Bjarki Sigurðsson.....Víkingur(ll)
Karl Þráinsson........Víkingur(59)
Sigurður Gunnarsson......ÍBV(132)
Alfreð Gíslason............KR(125)
Páll Ólafsson.............KR(157)
Guðmundur Guðmundsson..Vík(171)
Kristján Arason.........Teka(167)
Geir Sveinsson.........Valur(123)
Sigurður Sveinsson.....Valur(127)
Ath Hilmarsson...........Fram(120)
Júlíus Jónasson..........Valur(94)
Þorbergur Aðalsteinsson... .Saab(159 j
• Mótinu í Austur-Þýskalandi lýkur
16. júh og kemur hðið heim 17. júh.
-JKS
• Þorbergur Aðalsteinsson leikur á
ný með íslenska landsliðinu I Þýska-
landi en hann hefur leiklð 159 lands-
leikl.