Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988. Fréttir Gengisfelling eini kosturinn - segir Tryggvi Finnsson, formaður Félags Sambandsfrystihúsa Þrýstíngur frá fulltrúum at- vinnuveganna á ríkisstjómina um aðgerðir magnast nú með hverjum deginum. Um mánaðamótin munu 190 starfsmenn Meitilsins í Þor- lákshöfn fá uppsagnarbréf. Önnur fiskvinnslufyrirtæki huga að svip- uðum aðgeröum. „Það kæmi mér mjög á óvart ef fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi sendu ekki sínu starfsfólki uppsagnarbréf á allra næstu dögum," sagöi Ólafur Jónsson, stjómarformaður Meitils- ins. Orð Ólafs hafa þunga þar sem hann er jafnframt framkvæmda- stjóri Útvegsfélags samvinnu- manna sem gætir hagsmuna Sam- bandsins í þeim átta fiskvinnslu- fyrirtækjum sem það á stóran hlut í. Steingrímur Hermannsson utan- ríkisráðherra hefur lýst þvi yfir að efnahagsráðstafanir þurfi að vera tilbúnar fyrir lok ágúst. „Þurfum að hafa hraðar hendur“ „Ég held að það sé ekki varlegt að setja einhveijar ákveðnar tíma- setningar um hvenær efnahagsráð- stafnir þurfa aö vera tilbúnar. Ég , hef ekki sett nein mörk við ágúst- lok. Þær geta verið tilbúnar fyrr eða seinna. En það liggur ljóst fyrir að við þurfum að hafa hraðar hend- ur,“ sagði Þorsteinn Pálsson for- sætisráðherra. Tugir fiskvinnslufyrirtækja standa nú það illa að eigið fé þeirra er uppurið. Þau eru því í raun rek- in gjaldþrota. Dæmi um það er Fiskiðjan Freyja á Suðureyri. Staða annarra fiskvinnslufyrir- tækja á Vestfjörðum er svipuð. Hraðfrystihús Patreksfjarðar, Kaupfélag Dýrfirðinga og Einar Guðfinnsson á Bolungarvík standa öll mjög illa. Sunnanlands er ástandið svipað. Meitillinn hefur sagt upp sínu starfsfólki. Hraðfrystihús Kefla- víkur og önnur frystihús á Suður- nesjum em langt leidd. „Eina leiöin að feila gengið“ „Það sem við þurfum er eðlileg rekstrarskilyrði. Það er ekki eðli- legt að vel uppbyggð fyrirtæki séu rekin með tapi. Ef verðbólga færi hé" niður í 10 prósent og raun- vextir í 3 til 4 prósent væri hægt að reka þessi fyrirtæki á eðlilegum grundvelli. Eins og ástandið er í dag er það einfaldlega ekki hægt,“ sagði Tryggvi Finnsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur og formaður Félags Sambandsfrystihúsa. Tryggvi sagði vaxtamun í banka- kerfinu nú vera nálægt 7 prósent- um. Til þess að raunvextír yrðu hér svipaðir og í nágrannalöndunum þyrftí því uppstokkun i bankakerf- inu ef raunvextir á sparifé ættu ekki að verða neikvæðir. - Hafa fiskvinnslufyrirtækin þol til að bíða eftir svo róttækum og tímafrekum aðgerðum? „Nei. Sjálfsagt er eina leiðin út úr þessum vandræðum nú að fella gengið ásamt öðrum hefðbundnum aðgerðum. Slíkar aðgerðir gera aldrei annaö en leiðrétta það sem hefur glutrast niður. Þær eru ekki lausnir til frambúðar. Við greind- um frá þvi hvert þróunin leiddi fyrir löngu síðan. Ríkisstjómin hefði fyrir löngu átt að grípa til raunhæfra ráðstafana. Hún hefur einfaldlega misst af lestinni. Eftir stendur bara gengisfelling með þeim annmörkum sem á henni eru,“ sagði Tryggvi Finnson. -gse íslenskir aðalverktakar: Greiða 60% hærri skatt en næsta fýrirtæki - peningastofnanir og bflaumboð taka stókk Af listum yfir þau fyrirtæki sem Eimskip og Sambandið. Næst kera- greiða hæstu opinber gjöld í ur Búnaðarbankinn og stekkur ReyKjavík má sjá að þar em bankar upp um ein fiórtán sæti. og peningastofnanir ásamt bifreið- Af listunum yfir hæstu greiðend- aumboðum nú meira áberandi en ur tekjuskatts, eignarskatts og að- áður. Olíuinnflytjendur og trygg- stöðugjalds eru mestar sviptingar ingafélög falla hins vegar neðar á á listanum yfir tekjuskattsgreiö- listana. Samband íslenskra sam- endur. Olíufélagið, sem greiddi vinnufélaga er nú í þriðja sæti á mest allra fyrirtækja í teKjuskatt í lista yfir þau fyrirtæki sem greiða fyrra, er nú fallið niður í 15. sæti. hæst heildargjöld. Það hefur mörg Landsbankinn skýst úr þriðja sæti undanfarin ár verið í öðru tveggja í það fyrsta. Næst koma Búnaðar- efstu sætanna. bankinn og Eimskip en bæði fyrir- I Reykjaneskjördærai eru Is- tækin eru ný á lista. lenskir aðalverktakar hæsti skatt- Litlar breytingar eru á listanum greiðandi Fyrirtækið greiðir tæp- yfir hæstu greiðendur aðstöðu- lega 370 milljónir í skatta. Það er gjalda. Það gjald er reiknað út frá 60 prósent meira en Landsbankhm, veltu. Efst trónir Sambandið. Hag- hæsti skattgreiðandi í Reykjavík, kaup skýst upp um tvö sæti, í ann- greiöir. íslenskir aðalverktakar að sætið úr því fiórða Annar há- eru án nokkurs vafa það fyrirtæki stökkvari er Húsasmiðjan sem sem greiðir hæsta skatta á landinu. hoppar úr 15. sætí í það 8. Á eftir Landsbankanum koma ^se Við lestun fiskkassa um borð í togaranum Ottó M. Þorlákssyni varð það óhapp að þeir losnuðu úr böndunum og féllu í höfuðiö á ungum manni sem var í lestinni. Var maðurinn með hjálm á höfði og fór því betur en á horfðist. Fékk hann sár á höfuðið. Sést á myndinni þar sem maðurinn er hifður upp úr lestinni. DV-mynd S Fjármálaráðuneytið augtýsir: Tólf milljarðar bættirmeðtveimur „Rikissjóður - verkfæri til vel- ferðar.“ Þetta slagorð notar fjármálaráðu- neytið nú í auglýsingar sínar í út- varpi. Margt í þessum auglýsingum hljómar einkennilega. Þannig segir til dæmis á einum stað: „Með endurgreiðslum úr rík- issjóði er hinum verr settu bætt sú vöruverðshækkun sem skattbreyt- ingin leiddi af sér-og gott betur.“ Endurgreiöslur rfldssjóðs í formi bamabóta, bamabótaauka, hús- næðisbóta og vaxtaafsláttar nema á þessu ári um 4 milljörðum. í íyrra námu þessar bætur 1,8 milljörðum. Mismunurinn er 2,2 mifljarðar. Tekjur ríkisins af innflutnings- gjöldum og söluskatti hækka hins vegar í ár úr um 26 milljörðum í 38 milljaiða. Mismunurinn er um 12 miRjarðar. Samkvæmt þessu er íjármála- ráðuneytið aö halda því fram í aug- lýsingunni að hinir verr settu beri ekki nema tæplega 2,2 milljarða af 12 miUjarða hækkun á sköttum sem innheimtir eru af vöruverði. í lok einnar auglýsingarinnar segir: „Með nýja skattkerfinu stöndum við vörð um hag ríkis- sjóös.“ -gse Frystingin atvinnubotavinna? Óunninn fiskur er seldur á hærra verði en unninn. Fyrir hvert kíló af þorski, sem fer í frystingu, fást rúmar 80 krónur á Bandaríkja- markaöi en sama magn selst á tæp- ar 100 krónur á fiskmörkuðum í Bretlandi. Tíu þúsund íslendingar vinna í fiskiðnaði, flestir við frystingu, og við það að þetta fólk pakkar og frystir fiskinn lækkar hann í verði miðað við að hann sé sendur óunn- in á erlendan ferskfiskmarkað. Meðalverð síðustu mánaða í Bandaríkjunum á frystum þorski í neyslupakkningum og blokkum er um 82 krónur á kílóið, rýmun í vinnslu reiknuð með. í síðustu viku var meðalverð á ferskum og óunn- um þorski í Bretlandi 99 krónrn-. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna og ef meðalverð síðustu tíu vikna er tekið á Bretlandi verður útkoman hagstæðari fyrir frysta Ðskinn. Á þessum tíma var meðal- verð þorskkílósins tæpar 70 krónur og verður mismunurinn 12 krónur frysta þorskinum í hag. Hagfræðingar með þekkingu á sjávarútvegi, sem DV talaði við, sögðu að það stæði líklega í jámum hvort fengist meira fyrir þann þorsk sem færi í frystingu eða hvort ferskfisksalan hefði vinning- inn. Mikiil tilkostnaður í þessu dæmi er ekki tekinn með sá kostnaöur sem liggur að baki hverju frystu þorskkílói, né heldur birgðakostnaðm-. Frystihúsin verða aö bíða allt að 6-7 mánuði eftir greiöslu fyrir þann fisk sem þau selja. Þegar fiskur er seldur á ferskfiskmörkuðum tekur þaö að- eins fáa daga að innheimta greiðslu fyrir fiskinn. Á meðan fiskur liggur í frysti- geymslum borga frystihúsin háa vexti fyrir lán sem þau taka út á birgðir. Vinnulaun þeirra tíu þús- und íslendinga sem vinna í fisk- vinnslu em gróflega reiknuð 12-14 milljarðar á ári. Fréttaljós: Páll Vilhjálmsson Þegar þessi kostnaður er reiknaður með er nokkuð ljóst að verð á fryst- um fiski þyrfti að vera verulega hærra en verðiö á ferskum fiski til aö vinnslan borgaði sig. Staðreynd- in er hins vegar önnur og er mun- urinn lítfll, ef einhver. Frystihús í ferskfisksölu Það remúr stoðum undir þennan útreikning að frystihús með eigin útgerð grípa oft til þess ráðs að láta fisk í gáma og selja á ferskfisk- mörkuðum erlendis. Ólíklegt er að frystihúsin seldu aflann ferskan úr landi ef það borgaði sig að vinna úr honum afurðir. Forstjóri frystihúss á Vestfjörð- um oröaði þetta þannig við blaða- mann að „frystihúsin reyndu að bjarga sér með því að selja fisk á ferskfiskmörkuðum". Hins vegar hefðu frystihúsin ákveðnum skyld- um að gegna við starfsfólk sitt og byggðarlagið og því væri ekki hægt að senda aflann út ferskan nema að htlu leyti. Hér er komið að kjama málsins að margra áhti. Á að halda uppi fiskvinnslu og þar með byggð í fá- mennum sjávarplássum þótt það sé ekki arðbærasti kosturinn eða á að selja fiskinn þar sem best verð fæst fyrir hann? Svarið viö spurn- ingunni er póhtískt. Frysting á undanhaldi A hinn bóginn er það áht margra, sem hafa þekkingu á fiskvinnslu, að frystar sjávarafurðir muni verða æ ihseljanlegri á næstu árum. Stöðug þróun í samgöngum gerir flutning á ferskum fiski auð- veldari og ódýrari. Neytendur, sem fyrir fáum árum áttu ekki kost á öðru fiskmeti en frystu eða söltuöu, geta núna keypt ferskan fisk sem veiddur er á fjarlægum miðum. Viðmælendur DV sögðu að þetta vandamál yrði knýjandi að leysa á næstu arum. Hagsmunir eru miklir í sjávarútvegi og það getur tekið tíma að fá menn til að hta framhjá stundarhagsmunum en gefa fram- tíðarhag gaum var áht eins viðmæ- landa DV.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.