Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
3
Fréttir
Vlðgerð kostar 30 milljónir
„Þaö er stórmál að ganga al-
mennilega frá Strákagöngum. Það
þarf að stöðva lekann og laga hol-
ræsakerfið ef lagt verður í að klæða
veginn í göngunum. Eins þarf að
fá nýja hurð okkar megin. Það
kostar sennilega hátt í 30 milljónir.
Þeir peningar eru ekki tU,“ sagði
Jónas Snæbjömsson, umdæmis-
verkfræðingur vegageröarinnar á
Sauðárkróki, viö DV.
Jónas var inntur eftir því hvort
stæði til að loka göngunum lengi á
næstunni vegna viðgerða. Hann
sagði að farið yrði í hoiuviðgerðir
og af þeim sökum yrðu smávægi-
yfír nótt
Strákagöng eru 800 metra löng
ogvoru opnuð 1968. Aðeins tuttugu
prósent af veggjum og lofti eru
fóðruð með steypu. Inniheldur hún
sjávarmöl og fór fljótlega að grotna.
Hefur mikill leki verið í göngunum.
Skömmu eftir opnun ganganna
stíflaðist holræsakerfið og síðan
hefur vatn runnið eftir akbrautinni
þar inni.
„Það styttir aldrei upp þama
inni i votviðrinu i vikunni var
hreinlega steypibað þama. Það
lekann eða byggja bárujámsþak
inni í göngunum til að beina vatn-
inu meðfram veginum. Ef yrði af
fóðrun yrði það gert með þunnri
steypu er sprautað yrði á veggina
í 5 sentímetra lögum að undan-
genginni hreinsun þeirra. Slík
tækni er notuð í göngum Blöndu-
virkjunar. Fóðrun átti sér ekki stað
á sínura tíma þar sem tækni til
hennar var frumstæö og illt aö eiga
viö þaö. I dag höfUm við sprautu-
steypu og tæki er gera fóðrun mun
auöveldari.“
Jónas sagöi að skemmdimar á
akbrautinni mætti einnig rekja til
frosta. Áttu hurðir í báðum endum
ganganna aö koma i veg fyrir frost
en fólk hefði trassaö að loka á eftir
sér, auk þess sem lokunarbúnaður-
irin væri ekki alveg til fyrirmynd
ar.
-hlh
Steinunn Þórarinsdóttir.
DV-mynd BB
ísafjörður:
Listaverk
Steinunnar
valið í stjóm-
sýsluhúsið
Siguiján ]. Sigurðsson, DV, ísa&rði:
Samkeppni var meðal listamanna
um listaverk sem kemur til með að
standa á innitorgi á jarðhæð stjóm-
sýsluhússins hér á ísafirði og sl.
þriöjudag, 26. júlí sl., kom dómnefnd
saman og úrskurðaði hvaða listaverk
yrði fyrir valinu. Að áliti dómnefnd-
arinnar uppfylltu allar tillögur, sem
bárust, skilmála í samkeppnislýs-
ingu. Nefndin valdi verk merkt kjör-
orðinu „ís“.
Þegar nafnleynd var rofin kom í
ljós að höfundur sigurverksins var
Steinunn Þórarinsdóttir. Hún fædd-
ist 20. apríl 1955 og hefur stundað
nám á Englandi og Ítalíu, lokið BA
gráðu. Steinunn hefur haldið fimm
einkasýningar í Reykjavík og auk
þess tekið þátt í samsýningum víða
um heim, á Norðurlöndum, Ítalíu, í
Japan og Bandaríkjunum. Hún var
formaður Myndhöggvarafélagsins
1985-1987. Samkeppnin um listaverk-
ið var „lokuð“ og vora auk Steinunn-
ar eftirtaldir listamenn tilnefndir:
Jón Gunnar Árnason, Jón Sigurpáls-
son, ívar Valgarðsson og Magnús
Tómasson.
Næsti gjalddagi húsnæðislána
ÞU HAGNAST
Á EIGIN SKILVÍSI
Það er þér í hag að greiða af lánum á réttum tíma og forðast óþarfa aukakostnað
af dráttarvöxtum, svo ekki sé minnst á innheimtukostnað.
Þú getur notað peningana þína til
mun gagnlegri hluta, til dæmis í að:
Flísaleggja
baðherbergið
kaupa nýtt
veggfóður á
bamaherbergið
eða eignast nýjan
borðbúnað.
M15.I
ágúst I
Eindagi lána með lánskjaravísitölu.
M31.
ágúst
Eindagi lánameð byggingárvísitölu.
Gjalddagar húsnæðislána eru 1. ágúst, 1. nóvember, 1. febrúar og 1. maí (sum
lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn). Merktu gjalddaga þíns láns
inn á dagatalið þitt, þá gleymir þú síður að gera tímanlega ráð fyrir næstu greiðslu.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÓLD AF DRÁTTARVÖXTUM
Greiðsluseðlar fyrir 1. ágúst hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna
af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins.
Líkan að listaverkinu sem reist verð-
ur á innitorgi stjórnsýsluhússins á
ísafiröi.
Húsnæðisstofnun ríkisins
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVIK S: 6969 00