Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
21
RÍKISSKATTSTJÓRI
AUGLÝSING
um að álagningu opinberra gjalda á árinu
1988 sé lokið.
Samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75 14. september
1981 um tekjuskatt og eignarskatt er hér með aug-
lýst, að álagningu opinberra gjalda á árinu 1988 er
lokið á þá menn sem skattskyldir eru hér á landi
samkvæmt 1. gr. greindra laga, á börn sem skattlögð
eru samkvæmt 6. gr. þeirra, svo og á lögaðila og
aðra aðila sem skattskyldir eru skv. 2. og 3. gr. þeirra.
í álagningarskrá kemur m.a. fram álagður tekjuskatt-
ur og útsvar sem koma til innheimtu, en skv. 2. gr.
laga nr. 46/1981 ber að fella niður innheimtu á
álögðum tekjuskatti og útsvari af launatekjum ársins
1987.
Álagningarseðlar skattaðila er sýna álögð opinber
gjöld 1988, sem skattstjóra ber að leggja á, hafa
verið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, að kirkju-
garðsgjöldum undanskildum, sem þessum skattaðil-
um hefur verið tilkynnt um með álagningarseðli
1988, þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans innan 30 daga frá og með dagsetningu
þessarar auglýsingar, eða eigi síðar en 27. ágúst nk.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 98. gr. áður tilvitnaðra
laga munu álagningarskrár fyrir hvert sveitarfélag
liggja frammi á skattstofu hvers umdæmis og til sýn-
is í viðkomandi sveitarfélagi hjá umboðsmanni skatt-
stjóra dagana 29. júlí-12. ágúst 1988, að báðum
dögum meðtöldum.
Ákvarðaðar húsnæðisbætur 1988 eru birtar rétthöf-
um á álagningarseðli 1988. Athugasemdir við
ákvörðun skattstjóra varðandi húsnæðisbætur skulu
berast skattstjóra viðkomandi umdæmis fyrir 1. sept-
ember 1988.
29. júlí 1988.
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Ólafur Helgi Kjartansson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra,
Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra,
Gunnar Rafn Einarsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Bjarni G. Björgvinsson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
EINSTAKT
EFNl TIL
RAKAVARNAR
Byggingaplastið með rauðu
röndinni
• Þolir raka, loft og hita margfalt á við önnur sam-
bærileg efni.
• Þróað í samvinnu við Rannóknastofnun
byggingariðnaðarins.
• Tíföld ending.
Þolplast frébPlastprenti -
þar sem rakavarnar er þörf.
I
i
1
I
£
I
£
<ft
I
Í
8
5
Í
1
I
£
<ft
f
£
I
£
t Plastprent hf.
O Fosshálsi 17-25, sími 685600
Kgntucby
Fned
Cbicken
Kjúklíngastaðurínn
homi HjaUahrauns og Reykjanesbrautar,
Hafnarfirði - Sixni 50828
NÆG
BILASTÆÐI
Muniðað við afgreiðum
beint i bílinn
Opnunartími um verslunarmannahelgina:
Lokað laugardag og sunnudag -
Opið mánudag