Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Side 50
70
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
Smáauglýsingar - Sími 27022
Hafírðu
smakkað vín
- Játtu þér þá ALDREI
detta í hug
að keyra!
IUMFERÐAR
Iráð
r
Ci
Qvví
■ BQar tíl sölu
Mercury Comet ’73 , V8, 302 vél, allur
nýupptékinn og nýsprautaður, á
breiðum dekkjum, selst ódýrt. Uppl. í
sima 92-11573.
Volvo Lapplander '80, vökvastýri, litað
gler, vel innréttaður, góð dekk,
útv./kassetta. CB-stöð, ekinn 65 þús.,
bein sala. Skipti á ódýrari eða skulda-
bréf. Sími 91-23620 til kl. 13 og 46440
eftir kl. 14.
CITROÉN*CX AMBULANCE NORMALISÉE
Til sölu, árgerö 1983, kom í desember,
ekinn 63 þús. km, sumar- og vetrar-
dekk á felgum, stereoútvarp, 4 hátal-
arar, girkassi 5 gíra, vél 2000 lítr.,
stillanleg vökvaíjöðrun, miðstöð og
loftræsting að aftan, burðargeta 1000
kg. Bílasalan Braut, Borgartúni 26,
sími 91-681502.
Bill fyrir skólakeyrslu, Iveco ’84, sæti
fyrir 15, gangverð 850-900 þús., Tilboð
óskast strax, gríptu tækifærið og
gerðu tilboð í þennaií bil. Uppl. í síma
91-611410 frá 14-23.30, alla daga.
M. Benz 280SE '84 til sölu. Ekinn að-
eins 79 þús. km, skoðaður á 10 þús.
km fresti frá upphafi. Sóllúga, centr-
allæsingar, sjálfskiptur, útvarp, bein
innspyting. Glæsilegt eintak af góð-
um bíl. Verð 1.490.000, má greiðast
m/skuldabréfi. Uppl. í síma 91-685266
á vinnutíma.
M. Benz 230T ’86 til sölu. Ýmis auka-
búnaður, skipti á ódýrari. Uppl. í síma
91-31615, Haíþór.
■ Þjónusta
TÉYnTA
Hamraborg 1, 200 Kópavogi
lceland Box 317. * 641101
/ooo stk
VERD1980
Prentun. Þarft þú að láta prenta eitt-
hvað? Við prentum allar gerðir lím-
miða. Nafnspjöld. Bréfsefhi. Umslög.
Blöðrur. Penna. DagatÖl. Dagbækur.
Lyklakippur. Eldspýtur o.fl. Einnig
útvegum við stimpla á 2 dögum. Kann-
aðu verðið, það gæti borgað sig.
Textamerkingar, sími 91-641101.
Benz 608 '73. Framdrif, 203 millikassi,
6 cyl. 352 Benz vél, ísskápur, eldavél
með ofni, rennandi vatn, fataskápar
og geymslur. Svefnaðstaða fyrir 3-4.
Sem sagt meiriháttar íjallabíll. Uppl.
í síma 985-25855.
JLánaSaaí£^r:'~
"V-l
Bronco, Uno og Benz. Ford Bronco
XLT '84, rauður/hvítur. Fiat Uno 45
’84, blár. M. Benz 450 SE ’76, blásans-
eraður. Sími 91-76312 milli kl. 15 og 19.
M. Benz 280 SE '83 til sölu. Ekinn 90
þús., toppbíll. Uppl. í síma 91-78328
eða á bílasölunni Bliki, Skeifunni 8,
sími 686477.
Fréttir
Hópurinn fyrir framan Hótel Flókalund.
DV-mynd Kristjana.
Tálknafjörður:
Eldra fólkið skemmti
sér vel í Flókalundi
Rnstjana Andrésdóttir, DV, Tálknafirði:
Á vegum prófastsdæmis Vestur-
Barðastrandarsýslu dvaldi 20 manna
hópur ellilífseyrisþega dagana 19-21.
júlí á Hótel Flókalundi í Vatnsfirði.
Þrír prestar eru nú starfandi í vest-
ursýslunni, þeir séra Flosi Magnús-
son á Bíldudal, séra Sigurður Jóns-
son á Patreksfirði og séra Jón ísleifs-
son í Sauðlauksdal, og sáu þeir um
undirbúning að dvöl fólksins á hótel-
inu.
Búið var í góöu yfirlæti í Flóka-
lundi og farið var í skoðunarferðir
um nágrennið. Meðal annars skoðuð
þar gömul refagildra, sem notuð var
áður en byssur komu til sögunnar
hér á landi. Þessi dvöl fólksins að
Flókalundi þótti takast með miklum
ágætum og voru allir þátttakendur
ánægðir með hana. Nú bíður „gamla
Refagildran gamla vakti mikla athygli. DV-mynd Kristjana.
fólkið“ spennt eftir næstu ferð sem ins. Dvalið verður í vikutíma að Bif-
verður í ágúst á vegum Rauða kross- röst í Borgarfirði.
ísafjörður:
Vélsmiðjan Þór sjoseturfýrsta bátinn
Gestur Halldórsson, forstjóri Vélsmiöjunnar Þórs, Bjarni Sveinsson, eig-
andi Ingu, og Tryggvi Sigtryggsson yfirverkstjóri um borö í Ingu aö sjósetn-
ingu lokinni. DV-myndir BB
Inga sjósett.
Siguijón J. Sigurdsson, DV, fsafirdi:
Það var viss tímamótasjósetning
sem fór fram í ísafjarðarhöfn sl. laug-
ardag. Þá var sjósettur með pomp og
prakt stálbáturinn Inga VE sem er
fyrsti báturinn sem Vélsmiðjan Þór
hf. smiöar.
Það var eiginkona Gests Halldórs-
sona, Ingibjörg Ágústsdóttir, sem
nefndi bátinn þar sem hann hékk í
krana rétt fyrir ofan sjávarborðið.
Að því loknu var hann látinn síga
varlega niöur í sjóinn og eigandinn
steig í fyrsta skipti um borð.
Inga VE er 9,9 tonna bátur og er í
eigu Bjama Sveinssonar frá Vest-
mannaeyjum. Hann hyggst gera
hann út á handfæraveiðar héöan að
vestan fyrstu mánuðina. í haust fer
hann hins vegar með Ingu heim til
Eyja.
Smíði bátsins tók í allt 14 mánuði.
Að sögn Gests Halldórssonar, for-
stjóra Vélsmiöjunnar Þórs, hefur
smíði bátsins aö miklum hluta verið
notuð til þess að fylla upp í verkefni
hjá smiðjunni, eins konar uppfylling:
arverkefni. Þótt smíðin hafi tekið
talsvert langan tíma segist Gestur í
heild vera mjög ánægður með út-
komuna og að mjög líklega yrði fram-
hald á bátasmíðum vélsmiðjunnar.