Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 51
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
71
Fréttir
Ökuleikni BFÖ og DV:
Þrjú hundruð
asti keppandinn um
Farið gætilega Ag\
w
1928—1988
í Borgarnesi
í blíðskaparveðri héldum við öku-
leikni- og hjólreiöakeppni í Borgar-
nesi. Keppnin var haldin fyrir utan
Vímet í Borgamesi en það fyrirtæki
gaf verðlaunin í ökuleikninni.
Mikið af áhorfendum safnaöist
saman til að fylgjast með og urðu
úrslit þannig: I kvennariðh sigraði
Þuríður Bergsdóttir. í öðm sæti lenti
Ásdís Baldvinsdóttir og í því þriðja
Guðrún Ámadóttir.
í karlariðli lenti í fyrsta sæti Oliver
Eðvarðsson en hann er einn af fáum
sem hafa komið villulaust út úr
Daihatsubíllinn var farinn að kunna brautina utan aö.
Þeir komu, sáu
og sigruðu
„Það borgar sig að vera með á
hreinu hvernig á að gera,“ sagði Þrá-
inn Jensson sem lenti í fyrsta sæti
ökuleikninnar en hann kom frá
Akranesi upp í Borgames til aö vera
með. í öðm sæti lenti Kristbjörn
Svansson og í því þriðja lenti Gauti
Halldórsson. Álhr kepptu þeir á
sama bOnum og má segja að bOlinn
hafi kunnað brautina utan að. Besta
tímann í brautinni haíði Þráinn.
í hjólreiöakeppninni urður úrslit
þannig að í yngri riðU varö efstur
Hlöðver G. Tómasson, í öðru sæti
lenti Stefnir Öm Sigmarsson og í
þriöja sæti Ragnar Már Valsson, eftir
að hafa keppt aftur við tvo aðra um
sætið. í eldri riðli lenti í fyrsta sæti
Heimir Jónasson. I öðru sæti lenti
Jón Trausti Ólafsson og í þriðja sæti
Brynjar Örn Valsson.
A.G.
r-
Fjölmennasta
hjólreiðakeppn
in til þessa
í Ólafsvík var haldin ökuleikni- og
reiðhjólakeppni 9. júlí. Margir þátt-
takendur voru mættir til leiks, bæði
til að taka þátt og einnig til aö fylgj-
ast með keppendum.
Reiðhjólakeppnin er hin fjölmenn-
asta hingað tO, en alls tóku 25 þátt.
í yngri riðli voru þijú efstu sætin
þannig skipuð: Sigurður Stefánsson
var í fyrsta sæti með 59 refsistig.
Hann var einnig með besta tímann í
brautinni. I öðru sæti varð Jóhannes
Bergsveinsson með 73 stig og í þriðja
sæti varð Jónas Stefánsson.
í eldri riðU varð Eiríkur Kristins-
son í fyrsta sæti meö 82 refsistig, Örn
Steinar Amarson í öðm sæti með 85
refsistig og þriðja sætinu náði Kristj-
án Ævarsson með 104 refsistig.
í ökuleikni tóku 11 þátt, þar af 3
konur. í kvennariðU varö Sigrún
Drífa hlutskörpust eða með 272 refsi-
stig. Hún krækti sér einnig í Timex
úr. I ööru sæti varð Maríanna meö
294 refsistig og í þriðja sæti lenti Elín
B. Guðmundsdóttir.
í karlariðh varð Svanur Tómasson
efstur með 126 refsistig. Sýndi hann
mikil tilþrif á gröfunni. í öðru sæti
varð Þórður Þórðarson með 139 refsi-
stig, hann var einnig með besta tím-
ann í brautinni. Þriðja sætið hreppti
svo Aðalsteinn Aðalsteinsson með
183 refsistig.
Á. Sig.
Slysavamafélag íslands hefur útbúið eftirfarandi aðvörunarorð til þeirra ferðamanna sem fara á litium
bátum á vötn um verslunarmannahelgina. Alvarleg slys hafa oft hlotist af slfku svo rétt er að hvetja Hl
sérstakrar varkámi þar, jafnt sem í umferðinni á vegum landsins.
spumingum. í öðru sæti hafnaöi
Hörður Bjömsson. í þriðja sæti lenti
300. keppandinn okkar í sumar,
Magnús Valsson. í hjólreiðakeppn-
inni var stemningin mjög góð og
komu úrsUtin á óvart. í fyrsta sæti
eldri riðils lenti Jón Þór Sigmunds-
son. í öðm lenti HaUdór S. Sigurðs-
son og í þriðja sæti Kristín Guðlaugs- •
dóttir. í yngri riðU lenti í fyrsta sæti
Bragi Guðlaugsson. í öðm sæti lenti
Finnur Jónsson og í því þriðja Rakel
Dögg Sigm-geirsdóttir. Besta tímann
í brautinni hafði Jón Þór.
ísafjörður
Sjóminjadeildin fékk
fallbyssu og klippur
Sigurjón J. Sigurðsson, DV, Lafirði:
SjóminjadeUd Byggðasafns Vest-
fjarða hefur nú verið opin um nokk-
urt skeið og hefur aðsókn verið með
eindæmum góö. Ferðafólk kemur að
sjálfsögðu mikiö en hinn almenni
Vestfirðingur er líka furöu duglegur
við að fara á safnið og kynna sér sjáv-
arhætti fyrri tíma. Frá því að sjó-
minjadeildin var opnuð hafa margar
góðar gjafir borist frá velunnurum
Sigurður Arnason, skipherra á Tý, Jón Páll Halldórsson, Jón Sigurpálsson
safnvörður og Daníel Sigmundsson, umboðsmaður Landhelgisgæslunnar,
við gjafirnar. DV-mynd BB
safnsins nær og fjær.
Síðasthöinn fóstudag voru Byggöa-
safninu færðir tveir gripir enn sem
koma til með aö sóma sér vel á sjó-
minjadeildinni. Það var varöskipið
Týr sem kom færandi hendi með 47
millímetra fallbyssu og klippur,
sömu gerðar og notaöar voru í
þorskastríðinu. Fallbyssan er af
sömu gerð og sú sem var á sínum
tíma um borð í björgunarskútu Vest-
fjarða, Maríu Júhu.
Skipherrann, Sigurður Árnason,
afhenti gjöfina fyrir hönd Landhelg-
isgæslunnar og dómsmálaráðuneyt-
isins. Við það tækifæri las hann upp
gjafabréf, undirritað af Jóni Sigurðs-
syni dómsmálaráðherra. Jón Páll
Halldórsson, formaður Byggðasafns
Vestfjarða, veitti gjöfinni viðtöku.
Hann þakkaði skip'nerra og áhöfn
hans fyrir gjöfina og bað fyrir kærar
þakkir til dómsmálaráðherra og yfir-
manna Landhelgisgæslunnar.
Fallbyssan, sem er á að giska tvö
tonn, var að þessu loknu hífð í land
og flutt niður í Neðstakaupstað aö
Turnhúsinu, húsnæði Sjóminja-
deildarinnar. Að sögn Jóns Páls Hall-
dórssonar verður hún, vegna þunga
hennar, væntanlega látin standa ut-
an dyra, nánar tiltekið við inngang
hússins.