Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1988, Blaðsíða 60
Frjálst.óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 29. JÚLÍ 1988.
Straumurfólks
^ tilEyja
Eftir samtölum viö Bifreiöastöö ís-
lands að dæma virðast flestir feröa-
menn á suðvesturhorni landsins
ætla sér á þjóðhátíö í Vestmannaeyj-
um. í morgun höföu aliir miöar, sem
BSÍ hefur til Vestmannaeyja, selst
nema meö Herjólfi klukkan tvö í
nótt. Var stöðug eftirspurn eftir miö-
um. Nokkur eftirspurn var eftir miö-
um til Melgerðismela og Atlavíkur.
Lítur út fyrir aö þeir sem ætla til
JJaltalækjar og Víkur fari mest á
"éinkabílum. Mikil farmiðasala var í
Þórsmörk og á Laugarvatn.
Ferðafélag íslands hefur þegar fyllt
skálann í Þórsmörk. Getur félagið
tekið 350 manns í dalinn og eru þau
pláss þegar full. Eins virðast margir
ætla í Þórsmörkina á vegum Útívist-
ar.
Hjá Bifreiðastöö Akureyrar feng-
ust þær upplýsingar að töluvert væri
um fyrirspumir en fólk pantaði á
síðustu stundu. Yrði mikill straumur
einkabíla á Melgerðismela. Eins var
mikið spurt um Atlavík. -hlh
kemur næst út þriðjudaginn 2. ágúst.
Smáauglýsingadeild DV er opin til
kl. 22 í kvöld.
Lokað laugardag, sunnudag og
mánudag.
Ánægjulega verslunarmannahelgi
og góða ferð!
1hefiOl
Stjom Landakots:
Samningar
við yfirlækni
endurskoðaðir
í morgun
í svari stjórnar Landakotsspítala
við skýrslu Ríkisendurskoðunar um
rekstur spítalans kemur fram að
stjórnin telur nú eðlilegt að endur-
skoða samninga við Jóhann L. Jón-
asson, yfirlækni á rannsóknarstofu.
í svarinu segir að hann fái nú 30
prósent af öllum rannsóknargjöld-
um. Þetta hlutfall hefur farið lækk-
andi á undanförnum árum. Nú telur
stjómin eðlilegt að semja að nýju
með það fyrir augum að lækka hlut
Jóhanns enn.
Stjómin segir einnig ástæðu til að
endurskoða afgreiðslufyrirkomulag
lyfjabúrs. Læknamiðstöðvamar á
Marargötu 2 og í Glæsibæ höföu
fengið lánuð lyf úr lyíjabúrinu. Það
mun í fyrsta lagi vera ólöglegt en
einnig hefur þetta fyrirkomulag ver-
ið spítalanum óhagkvæmt.
Þá tekur stjórnin undir flestar af
mörgum ákúrur Ríkisendurskoðun-
ar varðandi bókhaldsfærslur, til
dæmis um færslu kaupleigusamn-
inga.
Stjómin véfengir hins vegar reikn-
inga Rikisendurskoðunar um kostn-
að vegna þvottahúss spítalans. í hús-
næði þvottahússins er einnig birgða-
geymsla. Ríkisendurskoðun tók ekki
tillit til þess við útreikninga sína
enda ekld getið um kostnað vegna
þessa í bókhaldi. Það mun því vera
rangt í skýrslu Ríkisendurskoðunar
að kostnaður vegna þvotta og líns sé
76 prósent hærri hjá Landakoti en
hjá ríkisspítölunum.
Meginatriðið í svari Landakotsspít-
ala er að ríkið hafi'með samningi
árið 1976 gengið að því að sjá spítal-
anum fyrir rekstrarfé. Honum beri
því að standa við það. -gse
LOKI
Mikið verður gaman að vera
í Reykjavík um helgina!
Banaslys í Eyjaferð
Jónas Fr. Jónsson, DV, Vestmaimaeyjum:
Ungur maður féll fyrir borð á
MS Herjólfi um klukkan 22.15 1
gærkvöldi. Var skipiðnýlagtaf stað
frá Þorlákshöfn og rétt komið á
fulla ferð þegar slysið átti sér staö.
Var maðurinn mjög öivaður.
Björgunarbátur var strax settur
út og skipinu siglt í hringi. Fannst
maðurmn eftir að hann hafði verið
um 10 mínútur í sjónum. Hafði
hann flotið upp á plastbrúsa sem
hann hafði um hálsinn.
Þegar manninura hafði verið
komið um borð hófust lífgunartil-
raunir björgunarmanna. Reyndust
þær árangurslausar. Skipið sneri
þá aftur til Þorlákshafnar til að
fara meö raanninn í land,
Herjólfur hélt síðan aftur af stað
til Vestraannaeyja klukkan hálf-
tólf. Þá var búið að strengja net
meðfram borðstokknura til að
koma í veg fyrir frekari slys. Var
rólegt um borð.
Ungi maðurinn, sem lést, var 20
ára, frá Tálknafirði en hefur búiö
í Garðabæ.
Þetta er fyrsta dauðaslys sem
verður á MS Herjólfi.
Helgaiveðrið:
Gott ferðaveður
Veðurhorfur á laugardag.
Þessi fríði hópur fólks var ekki í neinum vafa um hvert skyldi halda um verslunarmannahelgina.
Var ferðinni heitið á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Var góð stemning og létt yfir mannskapnum
þegar lagt var í’ann frá BSÍ klukkan átta í morgun. DV-mynd KAE
Veðurhorfur á mánudag.
Veðurhorfur á sunnudag.
Hið besta ferðaveöur mun verða
um allt land um verslunarmanna-
helgina samkvæmt spá sem Eyjólf-
ur Þorbergsson veðurfræðingur
hefur unnið fyrir DV. Veðrið verð-
ur best á sunnanverðu landinu en
lakara fyrir norðan. Veðrið fer þó
batnandi og á sunnudag og á mánu-
dag verður ekki hægt að tala mn
annað en blíðskaparveður.
Á laugardag verður hæg norðlæg
átt á landinu. Um norðan- og aust-
anvert landið verður skýjað og
sums staðar lítilsháttar úrkoma, en
skýjað með köflum á Suðvestur- og
Vesturlandi. Fremur svalt verður
í veðri en þó sæmilega hlýtt yfir
daginn suðvestanlands.
A sunnudag verður komið hið
besta veður um nánast allt land,
þurrt og bjart. Hæg breytileg átt
verður ríkjandi eða norðangola.
Á mánudag verður fremur hæg
breytileg átt um allt land. Sums
staðar við norðurstöndina verður
skýjað en yfirleitt þurrt og bjart
veður alls staðar á landinu.
-JFJ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022