Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
Fréttir
Framsókn og Sjálfstæðisflokkur vantrúaðir á niðurfærsluleið:
Kratar að einangrast
vegna niðuifærslunnar
Innan stjórnarflokkanna hefur
niöurfærsluleiöin lítinn stuöning
utan Alþýöuflokksins. Það veröur
því ótrúlegra meö hverjum degin-
um aö ráðgjafamefnd ríkisstjórn-
arinnar leggi til viö ríkisstjórnina
aö niðurfærsluleiðin veröi farin.
Alþýðuflokksmenn, og þá eink-
um Jón Baldvin Hannibalsson,
hafa í raun þegar sett niðurfærslu-
leiöina efst á sinn lista. Röksemd
þeirra er einfóld. Það er einungis
um tvo kosti aö velja og hvorugan
góöan. Ef niðurfærslan tækist gæti
hún skilaö þeim árangri aö verð-
bólga minnkaöi mikiö og yröi jafn-
vel svipuð og í nágrannalöndunum.
Gengisfellingarleiðin skilar hins
vegar engum árangri öörum en að
hér þyrfti aö grípa til annarrar
gengisfellingar um áramót.
Framsóknarmenn halda enn í
þær tillögur sem þeir lögðu fram í
mai. í þeim var stór gengisfelling
og frysting launa og verölags til
þess aö draga úr verðbólguáhrifum
af henni. Þá voru Framsóknar-
menn meö fjöldann allan af tillög-
um til þess aö minnka fjármagns-
kostnað einstaklinga og fyrirtækja.
Þeir hafa boöaö svipaðar tillögur
nú en taka fram að þær muni verða
harðari. Steingrímur Hermanns-
son hefur lýst yfir vantrú sinni á
að grípa til niðurfærslu á meðan
þenslan kraumar undir.
Sjálfstæðismenn eru tregir til
þess aö grípa til þeirra ráöstafana
sem óneitanlega þurfa að fylgja
niöurfærslunni. Grípa þarf inn í
samninga og lækka laun, afnema
frjálsa verðmyndun og jefnvel aö
lækka vexti með lögum. Hvorki
Framsóknarmenn né kratar hafa
trú á því að markaðurinn muni
sjálfvirkt taka við sér ef laun lækk-
uðu. Þeir treysta honum ekki til
þess að lækka vöruverð. Sjálfstæð-
ismenn leggja auk þess á það
áherslu nú, eins og áður, að efna-
hagsmál séu sífellt til meðferðar.
Menn eigi ekki að einblína á stórar
aðgerðir sem leysa eigi allan vanda
í einni svipan.
Niðurfærslan mætir síðan and-
stöðu bæði í Framsóknarflokki og
Sjálfstæðisflokki fyrir það að hún
bætir stöðu útflutningsveganna
ekki ýkja mikið. Ef þessi leið verð-
ur farin mun það ekki hindra að
mörg frystihús á landsbyggðinni
munu verða gjaldþrota. Lands-
byggðarþingmenn þessara flokka
vilja aögerðir sem duga til að
bjarga þessum fyrirtækjum.
-gse
Magnús Gauti
tekurviðafVal
Stjóm KEA samþykkti á stjómar-
fundi í 'gær að ráða Magnús Gauta
Gautason, fjármálastjóra KEA, í
starf aðstoðarkaupfélagsstjóra og
jafnframt að hefja viðræður við hann
um að taka við af Val Amþórssyni
kaupfélagsstjóra þegar hann hættir.
Þetta var samþykkt þegar fyrir lá á
fundinum að Axel Gíslason, aðstoð-
arforstjóri Sambandsins, vildi ekki
kaupfélagsstjórastarflð en mikill ein-
hugur var í stjóminni um að hann
tæki þaö að sér.
„Magnús Gauti hefur reynst mjög
vel í starfi hjá Kaupfélagi Eyfirðinga.
Hann er mjög hæfur maður,“ sagði
Jóhannes Sigvaldason, stjómarfor-
maður KEA, í morgun.
Magnús er rekstrarhagfræðingur.
Hann er Akureyringur, fæddur 8.
ágúst 1950 og hefur unnið hjá KEA-
frá 1974 eða í 14 ár. Hann er kvæntur
Hrefnu Torfadóttur og eiga þau þrjú
börn.
-JGH
Biðraðir við Gjaldheimtuna á enda:
Staðgreiðsla skatta með gíróseðlum
„Við erum að vinna að þvi að
breyta skilagreinum yfir í gíróseðla.
Þær breytingar eru nokkuð langt á
veg komnar. Það verður hklega hægt
að staðgreiða skatta með gíróseðlum
eftir nokkrar vikur," sagði Skúh
Eggert Þórðarson, forstöðumaður
staðgreiösludeildar hjá ríkisskatt-
stjóra, við DV.
DV birti í gær.mynd af langri biö-
röð fyrir utan Gjaldheimtuna í
Reykjavík. Slíkar biöraðir hafa verið
fastur liður fyrir utan Gjaldheimt-
una þann 15. hvers mánaðar sem er
eindagi fyrir skatta og fasteignagjöld.
„Það er ákveðinn kostnaður við
þessar breytingar og þar em giró-
seðlarnir sjálfir stærsti liðurinn.
Greiðslurnar þurfa að fara inn á 30
bankareikninga jafnmargra inn-
heimtumanna á landinu og er verið
að ganga frá kerfisbreytingum í sam-
bandi við það.
Skúli sagöi að einnig væru væntan-
legar breytingar á staðgreiðslunni í
ljósi fenginnar reynslu sem ættu að
einfalda hana. Ætti þá að sameina
greiösluseðla þannig að þeir sem
væru með eigin rekstur og greiddu
laun og skiluðu tveimur seðlum í
hverjum mánuði þyrftu ekki aö skila
nema einum seðh. Væri möguleiki á
að þessi breyting kæmist á um næstu
áramót, annars ári seinna. -hlh
Sorpeyöingarstöð Suðumesja:
Of lítil og mengar of mikið
Tíu ára gömul er Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja orðin of gömul og and-
fúl. Stööin annar ekki sorpinu frá
byggðinni suður með sjó, herstöðv-
arrusl meðtalið, og reykurinn frá
henni er svo rammur að setja verður
upp sérstakan hreinsibúnað ef sorp-
brennsla á að halda áfram.
Aö sögn Eiríks Alexanderssonar,
formanps Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum, er til umræðu að
byggja nýja sorpbrennslu og verður
ákvöröun um það tekin fyrir ára-
mót. Eiríkur sagði að ef ný brennsla
yrði tekin í gagnið myndi hún vera
meö fullkomnum hreinsibúnaöi.
Stöðin var byggö 1979 og kom
tækjakosturinn frá Frakklandi. Þetta
er eina sorpbrennsla landsins sem
notar ofna til að brenna rush. Tíu
árum eftir byggingu brennslunnar
er ljóst að hún annar ekki því rush
sem fellur til. Bandaríski herinn
leggur til helminginn af sorpinu sem
er brennt í stöðinni.
Birgir Þórðarson hjá Hollustu-
vernd ríkisins sagði að Sorpeyöing-
arstöðin myndi fá starfsleyfi innan
skamms meö því fororði að setja yrði
upp búnað til að hreinsa reykinn frá
brennsluofninum.
pv
Höfuðlaus her sögöu menn um ríkisstjórnina f gær þar sem bæði formann og varaformann Framsóknar- og Sjálf-
stæöisflokks vantaði. Nafnarnir Jón Sigurðsson og Hannibalsson voru alvarlegir en Birgir ísleifur og Matthías Á.
Mathiesen voru glaðir í bragðl þegar þeir komu út af rikisstjórnarfundi í gær. DV-mynd KAE
Ríkisstjómin:
Vantaði fonnenn og varaformenn
Á ríkisstjórnarfund í gær vantaði
formenn og varaformenn bæði
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks. Aðrir ráöherrar sátu þennan
fund sem var í stysta lagi.
Af þeim ráðherrum sem voru fjar-
verandi voru Þorsteinn Pálsson og
Friðrik Sophusson í sumarleyfi er-
lendis, Halldór Ásgrímsson á ráð-
stefnu í Finnlandi og Steingrímur
Hermannsson rétt ókominn í bæinn
úr laxveiði. .cse
Björk Guðmundsdóttir varð hás:
Tónleikar Sykurmolanna
í Denver féllu niður
„Þetta var ekkert alvarlegt
Björk var orðinn eitthvaö hás enda
hefur verið mikil keyrsla á henni.
Hún syngur á sérstakan hátt og
reynir mikið á röddina. Með því að
sleppa þessum tónleikum þá fengu
þau fjögurra daga frí sem var vel
þegiö enda voru þau oröin þreytt,"
sagði Árni Benediktsson, rekstrar-
stjóri Hugleysusem er rekstrarfyr-
irtæki Sykurmolanna.
Sykurmolamir eru nú á heilmik-
illi tónleikaferð um Bandaríkin
sem hófst 27. júlí í Washingtonborg
og lýkur í Los Angeles 23. ágúst
Viötökur hafa veriö mjög góöar og
Fá mest 200.000 krónur fyrir tónleikana
hljómsveiön fengiö góöa fjölmiöla-
umflöllun. Þann 13. ágúst átti
hljómsveitin aö leika í Denver en
tónleikamir féllu niður vegna áð-
urgreindra ástæðna og Sykurmol-
amir héldu í frí á Rockaway beach,
rétt fyrir utan San Fransisco, þar
sem þeir hafa eytt deginum á
ströndinni og á brimbrettum.
„Auðvitað er ekki vinsælt að
hætta viö svona tónleika. Sykur-
molamir áttu að koma þar fram í
viðtölum í sjónvarpi og gefa eigin-
handaráritanir i sölubúö. Þau fá
hins vegar svo mikla athygli að við
óttumst ekki að hún dvíni. Auk
þess leggur fóik skilning í það þeg-
ar söngkonan forfallast. Það töpuð-
ust einhverjir peningar vegna þess-
ara tónleika, því þaö er ákveðið
tryggingagjald sem þarf að greiða
ef tónleikar falla niður, ég held að
þaö hafi veriö í kringum 1000 doll-
arar (46.000 krónur)," sagöi Ámi.
Um það hvort einhver hagnaður
yrði af tónieikaferðinni sagði Ámi:
„Það þykir gott ef svona túr kemur
út með ekki meira en 50.000 punda
tapi (4 milljónir króna). Það er allt
dýrt í kringum þetta, flug, uppi-
hald, hótel. Það er dæmi um hve
þessi ferð gengur vel að við slepp-
um sennilega á núllinu. Tónleika-
ferðalög eru eingöngu til kynning-
ar fyrir plötusölu, þau em ekki
gróöafyrirtæki," sagði Árni.
Hvað fa þeir greitt fyrir hverja tón-
leika?
„Það er mismunandi eftir stöðum
en það em engir stórpeningar.
Þetta er á bilinu KKXM000 dollarar
(46.000-184.000 krónur). Það kæmi
enginn listamaður á Islandi í dag
fram fyrir minna en 200.000 krón-
ur,“ sagöi Ámi Benediktsson.
JFJ
--------------t_______________
Alþjóðaskákmótið á ísafirði:
Guðmundur vann Popovych
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Úrslit í 3. umferð urðu þannig að
Finninn Rantanen sigraði Magnús
Pálma Örnólfsson, Helgi Ólafsson
yngri gerði jafntefli við Svíann Jo-
hansson og Helgi eldri gerði jafntefli
viö Ægi Pál Friðbertsson. Schandorff
sigraði Guðmund Halldórsson og
Guðmundur Gíslason sigraöi
Popovych. Skák Andra Áss og enska
• stórmeistarans Flear fór í bið. Staðan
' á mótinu er dálítið ófjós vegna bið-
skáka en stórmeistarinn Helgi Ólafs-
son er efstur með 2'Á vinning.
Skákþing íslands:
Hannes og Margeir efstir
3. umferðin á Skákþingi íslands var
tefld í gærkvöldi og urðu úrslit þann-
ig aö Þröstur og Jón L. gerðu jafn-
tefli, Margeir vann Þráin, Ásgeir Þór
vann Benedikt, Jóhannes vann Ró-
bert, Karl tapaöi fyrir Ágústi og
Hannes vann Davíð. Hvítt hafði sá
sem talinn var upp á undan.
Efstir eru nú þeir Hannes Hlífar
og Margeir en þeir hafa unniö allar
sínár skákir. Jón L. kemur í humátt
á eftir með 2 'A vinning. -SMJ