Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
5
Fréttir
Garðskagaviti. Þaðan er ægifagurt útsýni. DV-mynd Ægir Már
Bætt aðstaða til náttúm-
skoðunar á Garðskaga
Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum;
„Félagar í björgunarsveitínni hafa
lagt mikla vinnu í aö bæta aöstöðu
fyrir þá sem velja Garðskaga til nátt-
úruskoöunar," sagði Sigfús Magnús-
son, formaður Ægis í Garðinum.
„Menn hafa eytt sumarleyfunum í
að byggja söluskála, mála gamla vit-
ann og laga og snyrta umhverfið til
að gera það meira aðlaðandi fyrir
þær þúsundir ferðamanna sem
leggja leið sína þangað á hveiju ári.“
Gamh vitinn var byggður árið 1897
og þjónaði sæfarendum til ársins
1944 að nýi vitinn var reistur.
„Lengi vel var ekki hægt að fara
upp í gamla vitann en við erum bún-
ir að búa svo um að núna er það
kleift og útsýni er mjög gott. Fallegt
yfir land og haf,“ sagöi Sigfús.
Veitingar eru á boðstólum á Garð-
skaga og rennur ágóðinn og gjaldiö
upp í vitann til björgunarsveitarinn-
ar Ægis. Mjög fagurt er um að litast
- ægifagurt á Garðskaganum og
fuglalíf í íjörunni þar er eitt hið fjöl-
skrúðugasta í Evrópu. Einnig er
þarna skammt frá hinn svonefndi
Skagagarður, mannvirki sem gert
var fyrir mörgum öldum til að hindra
að skepnur færu inn á akurlöndin
sem þama voru og sitthvað fleira er
að sjá en sjón er sögu ríkari.
Lrtið eftirlit með
smáfiskadrápi
- ásakanir um að notaðir séu karfapokar við þorskveiðar
Smáfiskadráp er eftirlitslítiö. Skip
geta landað fullfermi af smáfiski án
þess aö nokkur viti nema sjómenn
og útgerðin. Enginn einn aðili fylgist
reglulega með þeim afla sem skip og
bátar landa.
Ferskfiskmatið hafði eftirlit með
þeim fiski sem landað var og athug-
aöi stærð og aflasamsetningu. Fersk-
fiskmatið var hins vegar lagt niður
fyrir tveim árum og þar með lagðist
eftirlitið af.
Jakob Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, segir það mjög
erfitt að fylgjast með smáfiskadrápi
á miðunum í kringum landið. „Það
er ekki lengur hægt að fylgjast með
hverjum farmi sem berst að landi
eins og mögulegt var þegar fersk-
fiskmatið starfaði. Enn erfiðara er
um vik að fylgjast með þeim fiski sem
fer beint í gáma og seldur er erlend-
is,“ segir Jakob.
í Alþýðublaðinu í gær er haft eftir
ónefndum sjómanni að togarar úti
fyrir Austíjörðum tíðkuðu það að
nota ólöglega karfapoka við þorsk-
veiðar. Jakob sagði að hvorki væri
hægt að sanna né afsanna þess konar
fullyrðingar. „Það er tilfellið að eng-
inn sjómaður vill ganga fram fyrir
skjöldu og tilgreina nákvæmlega
hverjir það eru sem stunda smáfiska-
drápið.“
Jakob sagði að Hafrannsóknastofn-
un ætti ágætt samstarf við Land-
helgisgæsluna um veiðieftirlit. Hann
taldi peningaskort há Landhelgis-
gæslunni og því væri ekki hægt að
veita það aðhald sem þyrfti á miðun-
um.
p'v
Byggt úr rekavið
Regina Thorarensen, DV, Ströndum;
Kristmimdur Sörlason, einn
hinna stóru að sunnan en fæddur
og uppalinn á Gjögri, er að byggja
sér sumarbústað og verður hann
64 fermetrar að stærð. Hann er á
lóð Jóns heitins kaupmanns sem
verslaöi i marga áratugi á Gjögri
við góðan orðstír, að best ég veit.
Sumarhús Kristmundar er meö
steyptum kjallara og efri hæðin
úr völdum rekavið, eins og kirkj-
urnar í Árneshreppi. Yfirsmiöur
er Arnbjörn Bernharðsson.
Byggðu elliheimili
við eigið
Regína Thorarensen, DV, Ströndum;
Óvenjumikið hefur verið gert í
Árneshreppi á Ströndum í sumar í
nýbyggingum. Þau heiðurshjón á
Krossnesi, Sigurbjörg Alexanders-
dóttir og Eyjólfur Valgeirsson, sem
eru komin á efri ár, fluttu nýlega í
nýtt hús, 60 fermetra. Þau kalla þaö
„elliheimilið". Þau eru búinn að af-
henda syni sínum og tengdadóttur
jörðina og hið flotta hús sem þau
byggöu fyrir nokkrum árum á Kross-
storhysi
nesi. Það er eitt fallegasta húsið í
allri Strandasýslu og nýja húsið er
þar skammt frá. Grafið var fyrir
grunninum í fyrrasumar.
Svona á þetta að vera, allir út af
fyrir sig meðan eldri borgarar geta
séð um sig sjálfir. Til fyrirmyndar í
sveitinni heldur en að hrúga gamla
fólkinu í rándýrt húsnæði í Reykja-
vík eins og hann Sigurvin, gamli al-
þingsmaðurinn á Vestfjörðum á
árum áður, sagði frá hér í DV.
VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR
FRAMLEN GJUM VIÐ
UTSOLUNA
og... 50. hver kaupandi
fær tækifæri á að
kaupa vasatæki á 50,- kr.
og 100. hver kaupandi
Nordmende geislalpilara á
aðeins 100,- kr.
GEISLASPILARAR
VASA ÚTVARPSTÆKI
SÍMAR
ÚTVARPKL UKK UR
SJÓNVARPSTÆKI
HLJÓMTÆKJASTÆÐUR
O. FL. O. FL.