Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
Sandkom
Ekki ánægður
með samrunann
Einn stærsti
hvellurinní
viðskiptalífinu
þaðsemafer
þessuárivar
yfirtakaDai-
hatsu-umboðs-
insáVeltihf.
semselthefur
Volvobílaíára-
tugi. Samem-
ingin fór friösaralega fram og gekk
hrattfyrirsig.
Þaö virtust hins vegar ekki aliir
vera jafnánægðir með samrunann ef
marka má lítið atvik sem átti sér stað
á fyrsta opnunardegi sameinaðs
verkstæöis Datihatsu og Volvo við
Bíldshöfða. Þá segir sagan að stór
Volvotrukkur, sem staðsettur var
tyrir firaman verkstœðið, hafi runnið
af stað af sjálfsdáðum og klessukeyrt
tvo Daihatsubíla sem þar stóðu. Nú
er vonandi að þessi atburður sé ekki
táknrænn fyrir framhald sameining-
arinnar.
Áferðum
kjördæmið
Alþýðublaðiö
birtirísíðustu
vikuhlaðaopnu
semtileinkuð
erSuðurlandi
ogþarerað
iinnamyndir
ásamt greinar-
kornisember
fyrirsögnina:
„Áferðum
kjördæmið'1. í greininni er sagt frá
ferð Kjartans Jóhannssonar, Karls
Steinars Guðnasonar, Magnúsar H.
Magnússonar og Guðmundar Einars-
sonar um Suðurlandskj ördæmi þar
sem þeir heimsóttu fólk og fyrirtæki
á Suðurlandi.
Ýmsum þótti þessi grein vera nokk-
uð brosleg íljósiþessað Alþýöuflokk-
urinn á ekki þingmann á Suðurlandi.
Kratar eru þó ekkert að fela þessa
staðreynd í greininni en þar er haft
eftir Guðraundi Einarssyni, íram-
kvæmdastjóra flokksins, að alþýðu-
flokksmönnum „beri rík skylda til
að huga sérstaklega að því að halda
góðu sambandi við fólk á Suðurlandi
á meðan flokkurinn á þar ekki þing-
mann". Núerspumingin hvort
skyldan minnki ef alþýðuflokksmenn
skyldu einhvern tímann ná inn þing-
manni á Suðurlandi og þá lika hvort
samband flokksins við kjósendur
mundi batna eftir því sem þingmönn-
um fækkaði.
Bráðþroska
nemendur
Áframmeð
Alþýðublaðið.í
blaðinuígær
varfréttáfor-
síðuumhús-
næðisekluhjá
nemendumí
Foldaskólaí
Grafarvogi.
Ekkerterbros-
legtviðþaðað
skólinn rúmi ekki hverfisbömin, en
lúns vegar brá fólki í brún þegar það
las viðtal viö yfirkennara skólans.
Þar segjr yfirkennarinn að tölur um
skráða nemendur í Foldaskóla gefi
engan veginn tæmandi upplýsingar
um þann fjölda sem í h verfinu býr.
Skýringin er sú, segir yfirkennarinn,
„aö margir nemendur hefbu böm sín
áfram i öðrum skólum". Þetta veröur
ekki betur skilið en nemendur í
grunnskólanum í Grafarvogi séu
sjálfir komnir með böm á grunn-
skólaaldri.
D-“-A isfirðinga
Vestfirska
fréttablaðið
sagðiumdag-
innfráathæfi
tveggjaísfirð-
ingacinnblíö-
viðrisdaginnf
sumar.Menn-
irairmunu
hafakastaðiif
sunds
ýmsu
vanir þegar neysluvatn er annars
vegar þá er hins vegar ekki vitað til
þess að þeir hafi áður þurft að súpa
sey ðiö af samborgurum sínum
Umsjón: Jónas Fr. Jónsson
Fréttir
Innganga Stöðvar 2 1 EBU á dagskrá í október:
RÚV tryggði einokunarað-
stöðu sína með bolabrögðum
- og situr eitt að ólympMeikunum segir Hans Kristján hjá Stöð 2
„Ríkisútvarpinu tókst að tefja mál-
ið með tæknibrellum. Skýrsla sú sem
hafði verið gerð af menntamálaráðu-
neytinu um innlenda dagskrárgerð
okkar og var send sambandi sjón-
varpsstöðva í Evrópu var talin ófull-
nægjandi og við beðnir um meiri
upplýsingar. Markúsi Erni útvarps-
stjóra hefur tekist að gera skýrsluna
vafasama í augum EBU og því hefur
málið frestast og verður fyrst tekiö
fyrir í byrjun október. Við höföum
vonast til að RÚV legöi ekki stein í
götu okkar. Það var kappsmál fyrir
okkur að komast í sambandið fyrir
ólympíuleikana þar sem EBU hefur
einkarétt á dreifingu efnis frá ólymp-
íuleikunum í ár. RÚV tryggði þarna
einokunaraðstöðu sína með bola-
brögðum," sagði Hans Kristján
Árnason hjá Stöð 2 við DV.
Hans Kristján sagði að RÚV gæti
engan veginn sent út allt efnið frá
ólympíuleikunum og því vildi Stöð 2
fá aðgang að hluta efnisins. RÚV
gæti til dæmis fengið aðgang að skák-
móti sem Stöð 2 sendi frá í haust í
staðinn. Væri vilji til aö semja um
þaö á Stöð 2.
„í löndum þar sem bæði er ríkis-
sjónvarp og einkarekið sjónvarp
semja aðilarnir um að skipta ólymp-
íuleikunum á milli sín. Slíkt fyrir-
komulag vorum við búnir að nefna.
Við viljum aðgang aö íþróttaefni og
fréttastofu EBÚ. Með aðild okkar
myndu útgjöld RÚV vegna aðildar-
innar að EBU minnka um helming.
Gjaldið sem RÚV greiðir í dag er 25
milljónir á ári. Með okkar aðild að
EBU sparar RÚV milljón á mánuði.
Þeir hafa þörf fyrir að spara en
hlusta ekki á slík rök. Þeir hugsa
meira um einokun sína og beita
brögðum."
Stöð 2 hefur sent EBU dagskrá sína
og mun gera nánari grein fyrir dag-
skrárgerð stöðvarinnar munnlega á
fundi með fulltrúum EBU hér á landi
eða í Genf.
„Við ætlum okkur ekki aö láta
draga okkur endalaust á asnaeyrun-
um. Það gengur ekki til lengdar fyrir
RÚV að notfæra sér einokunarað-
stöðu sína á þennan hátt. Þetta kom
okkur alls ekki á óvart. RÚV hefur
verið í EBU í yfir 20 ár og ef Markús
Örn dregur skýrslu um dagskrárgerð
okkar í efa þá virðist vera tekið skil-
yrðislaust mark á orðum hans á þeim
bæ. Aö ráðuneytið skuli hafa gert
skýrsluna virðist ekki breyta neinu
þar um.“
-hlh
Hrönn hæsti skattgreið-
andi á Vestfjörðum
Siguijón J. Sigurösson, DV, ísafiröi:
Heildargjöld vestfirskra einstakl-
inga, vegna tekna og eigna árið 1987,
eru tæplega 99 milljónir króna. Árið
á undan nam sú tala 722 milljónum
króna (álagning launaskatts ekki
innifalin). Ástæöa fyrir þessum
mikla mun liggur að sjálfsögðu í
þeirri staöreynd að fyrir venjulega
launþega var árið 1987 skattlaust.
Barnabótaauka fengu 1166 ein-
staklingar, alls rúmar 26 milljónir.
Vaxtaafslátt fengu 799 einstaklingar,
alls tæpar 16 milljónir. Húsnæðis-
bætur hljóðuðu í allt upp á 15,7 millj-
ónir króna og þær skiptust á 340 ein-
staklinga. Álagning á einstaklinga 16
ára og eldri hvílir á 7.166 einstakling-
um, en vegna niðurfellingar tekju-
skatts kemur einungis lítill hluti
gjalda til innheimtu.
Heildargjöld lögaðila (félaga) eru
aðstöðugjald, sem er rúmar 75 millj-
ónir, tekjuskattur sem nemur rúm-
um 28 miiljónum og lífeyristrygging-
argjald sem er tæpar 70 milljónir.
Nærri helmings lækkun er á tekju-
skatti lögaðila frá fyrra ári, en að-
stöðugjald hækkar hins vegar um
21,23% og lífeyristryggingargjald um
35,49%.
Það verður aö teljast nokkuð
merkilegt að heildartekjuskattur lög-
aðila vegna ársins 1984 var 26,5 millj-
ónir króna. Eins og fyrr sagði var
hann rúmar 28 milljónir króna síð-
asta ár. Röð þeirra fyrirtækja sem
bera hæsta álagningu er svipuð og
undanfarin ár og röð þriggja efstu
er sú sama og tvö undanfarin ár.
Heildargjöld á Vestfjörðum fyrir árið
1987 eru 319.780.000 krónur.
Hæstu álagningu bera:
1. Hrönn hf„ ísafirði...................................... kr. 9.931.815,-
2. Hraðfrystihúsið Norðurtangi hf„ ísafirði..................kr. 8.581.720,-
3. Miðfellhf., Hnífsdal..................................... kr. 7.946.865,-
4. íshúsfélag Bolungarvíkurhf., Bolungarvík..................kr. 6.299.377,-
5. Hraðfrystihúsiö hf„ Hnífsdal..............................kr. 6.202.853,-
6. Einar Guðfinnsson hf„ Bolungarvík.........................kr. 5.580.376,-
7. Kaupfélag Dýrfirðinga hf„ Þingeyri........................kr. 4.928.709,-
8. íshúsfélag ísfiröinga hf„ Jsafirði........................kr. 4.866.242,-
9. Álftfirðingur hf„ Súðavík.................................kr. 4.756.238,-
10. Frosti hf„ Súðavík........................................kr. 4.329.696,-
Álagningarskrár sveitarfélaga í tekna og eigna á árinu 1987 liggja
Vestfjarðakjördæmi áriö 1988 vegna frammi frá 29. júlí til 12. ágúst 1988.
Hún er ekki amaleg, lúðan sem Eggert Hallgrímsson veiddi um daginn og
sést hér vera að skera. Eggert, sem veiðir á bátnum Gunni RE 51, sagðist
stunda lúðuveiðina út frá Búðahrauni á Snæfellsnesi. Mun víst vera gott
til fanga þar. Lúðan fær síðan flugfar vestur um haf og endar á diskum
bandarískra neytenda. DV-mynd JAK
Hrönn hf„ útgerðarfélag aflaskipsins Guðbjargar ÍS, ber hæst gjöld fyrir-
tækja á Vestfjörðum, tæpar 10 milljónir króna. DV-mynd BB, ísafirði
Oddfellowreglan fær
lóð á Sigtúnsreit
- engin ákvörðun tekin um sölu á Vonarstræti
„Þessi samþykkt borgarráðs er
til mikilla bóta fyrir Oddfellow-
regluna og við sjáum nú fram á
lausn okkar húsnæðisvanda,"
sagði Jón Sigtryggsson, formaður
Oddfellowreglunnar, en borgarráð
hefur samþykkt aö gefa reglunni
fyrirheit um úthlutun byggingar-
réttar á Sigtúnsreit milli Blómavals
og Ásmundarsafns.
Sagðist Jón vonast til að þama
væri komin lausn á langvinnum
vanda reglunnar varðandi framtíð-
arbyggingarsvæði. Reglan heföi
lengi gert kröfu um lóð í Laugar-
nesi en sú hugmynd hefði dottið
upp fyrir þegar ákveðið var að gera
þar útivistarsvæði.
„Það er búiö að vera í deiglunni
í um það bil 20 ár að skipta um
húsnæði en það varð ekki ijóst fyrr
en fyrir um einu til tveimur árum
að viö gætum jafnvel fengiö þessa
lóð.“ Jón sagði að engar teikningar
væru til af nýju húsi enda væri
þetta svo ný til komiö.
Þá sagöi Jón að engin ákvörðun
hefði verið tekin um sölu á núver-
andi Oddfeliowhúsi að Vonarstræti
10. Jón sagði að fuiltrúar Alþingis
hefðu skoöað húsið fyrir 8 til 10
árum síðan en þá talið að kosnaðar-
samt væri að breyta því að þörfum
þingsins. Ekki vissi Jón til þess að
áhugi þeirra hefði vaknað aftur.
Þá kom fram í máli Jóns að sala á
húsinu yrði að miklu leyti að fjár-
magna byggingu nýs félagsheimilis
enda ætti reglan ekki mikiö
lausafé. -SMJ