Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
7
Fréttir
Uppbygging í Mjóafirði:
Þrju
byggð
„Það má segja að þetta sé frekar
á uppleið hérna en hitt ef út í það
er farið,“ sagði Bjöm Gíslason,
stöðvarstjóri Pósts og síma í Mióa-
firði.
Mjóifjörður er fjörður í Suður-
Múlasýslu á milh Seyðisíjarðar og
Norðfjarðar. Þar búa nú um þrjátíu
manns en þrátt fyrir það hefur á
síðasta ári átt sér stað mikil upp-
bygging og hafa þrjú ný hús verið
reist á einu ári, svo og ný bryggja.
Tvö af þessum nýju húsum eru
íbúðarhús en eitt er sumarbústað-
ur en þar býr heil fjölskylda yfir
aUt sumarið. Fjölskyldufaðirinn á
þriggja tonna triUu sem hann gerir
út á sumrin enda fengssel flskimið
skammt undan. „Húsunum hefur
fjölgað en það er ekki mikil íbúa-
fjölgun. Hins vegar fjölgar aUtaf
hér í firðinum á sumrin," sagði
Bjöm.
Landleiðin til byggðar í Mjóafirði
er opin á smnrin en þegar sumri
fer að halla, haust færist yfir og
færð fer aö spillast er sjórinn eina
samgönguleiðin. Póstbátur kemur
tvisvar í viku og með honum fá
íbúar allar sínar vistir yfir vetrar-
mánuðina enda er vegum þá ekki
haldið opnum. Það er því mikfi-
vægt fyrir byggðina að bryggjan sé
í góðu lagi. „Það má segja að
bryggjan sé alveg ný frá granni.
Það hefur verið keyrt út grjót og
gerð uppfylling en síðan hefur
einnig verið settur nýr haus fram-
an við bryggjuna úr timbri. Þetta
er ágæt bryggja en við hana eru
áð staðaldri fjórir bátar,“ sagði
Bjöm.
hus
+ + m
a ari
um þessar mundir þrátt fyrir að
ibúar séu ekki margir. Þar hafa
verið byggð þrjú hús á einu ári
og bryggjan endurnýjuð.
Björn sagði að neta- og hand-
færaveiöar væru stundaðar frá
byggðinni í Mjóafiröi en veiði-
mennimir söltuðu sjálfir fiskinn
sem veiddist. Fiskurinn væri
veiyulega ekki lagður upp í frysti-
húsið í Neskaupstað, nema úr póst-
bátnum sem einnig væri gerður út,
en hann væri stærri en aðrir bátar
á þessum stað.
En hvernig er að búa svona af-
skekkt?
„Það er aUt í lagi að búa hérna
þegar maður þekkir ekkert annað.
Ég er ekki viss um að alUr myndu
sætta sig við það en þetta er ág-
ætt,“ sagði Björn Gíslason.
JFJ
Húsdýr til sýnis
í Árbæjarsafni
Ákveðið hefur verið að gefa borg-
arbúum kost á að sjá lifandi, íslensk
húsdýr í Árbæjarsafni og hefur safn-
ið fengið 50.000 kr. fjárveitingu frá
borginni til þess.
Að sögn Ragnheiðar Helgu Þórar-
insdóttur, borgarminjavarðar og for-
stöðumanns safnsins, þá verða dýrin
til sýnis helgina 3. til 4. september í
samvinnu við áhugahóp um bygg-
ingu náttúrufræðihúss.
Þarna verður unnt að sjá kú og
kálf, hesta, kindur, hænur og aö sjálf-
sögðu hund og kött. í framtíðinni er
síðan ætlunin að þessi dýr verði
þama til sýnis í sínu eðlilega um-
hverfi.
-SMJ
Sæplast hf. Dalvík:
Unnið allan sólarhringinn
nær alla daga ársins!
Kristján Aðalsteinsson, sölustjóri Sæplasts hf., og Jón Gun arsson fram-
leiðslustjóri fyrir utan verksmiðjuhús Sæplasts. DV-myndír gk
Gylfi Kristjáns son, DV, Akuieyit
Það er ekki oft sem það gerist að
fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu eru
keypt út á landsbyggðina, fremur að
straumurinn Uggi þangað utan af
landi. Það gerðist þó árið 1984 að fyr-
irtækið Sæplast í Garðabæ var keypt
til Dalvíkur, bæöi nafn þess og fram-
leiðslulína, en fyrirtækið framleiddi
fiskker og bretti.
Hluthafar Sæplasts í dag eru um
30 talsins að mestu einstaklingar þar
í bæ en einrúg smærri fyrirtæki og
segja má að framkvæðiö í þessu
máli hafi komið frá Iðnþróunarfélagi
Eyfirðinga.
„Þetta hefur gengið vel og ýmislegt
hefur hjálpast þar aö,“ sagöi Kristján
Aðalsteinsson, sölustjóri Sæplasts,
er DV leit við hjá fyrirtækinu á dög-
unum. „Það hafa komiö góð ár í sjáv-
arútvegi, okkar vara hefur slegiö í
gegn, ef svo má segja, og einnig höf-
um við reynt fyrir okkur erlendis
með nokkrum árangri.“
Kristján sagöi að 1984 hefði fyrir-
tækið fyrst farið aö reyna fyrir sér
með útflutning, en Sæplast hefur
verið þátttakandi í útílutningshópi:
Þessi útflutningstUraun sem styrkt
er af Útflutningsráði var fyrst hugs-
uð til tveggja ára en var síðan fram-
lengd um jafnlangan tíma. „Við höf-
um aðallega verið að horfa til Banda-
ríkjanna, Kanada og Grænlands, en
fleira er inni í myndinni og nú erum
við farnir að beina augunum til Evr-
ópu. Markaðsstjóri sem ráðinn var
fyrir útflutningshópinn hefur unnið
mjog vel, og ég tel að þetta hafi skUað
sér mjög vel og gerir það vonandi
áfram," sagði Kristján.
Útflutningur fyrirtækisins er mjög
mikUvægur fyrir það. Jafnvægi er
að komast á markaðinn hér innan-
lands og á þessu ári er um '/> af fram-
leiðslu fyritækisins fluttur út, og vel
lítur út með framhaldið, enda er
Sæplast vel sett í samkeppni á þess-
um markaði, bæði hvað varðar verð
og gæði.
„A árunum 1984 til 1987 var veltu-
aukning á miUi ára um 100% á hverju
ári og það helst í hendur við fram-
leiðsluaukninguna. Aukningin á
þessu ári er þegar orðin um 50%.
Afkastagetan hefur aukist, enda er
unnið hér á vöktum allan sólarhring-
inn alla daga og á siðasta ári féll
vinna ekki niður nema á helstu há-
tíðisdögum. Framundir þetta hefur
verið um tveggja mánaða afgreiðslu-
frestur hjá okkur en nú erum við aö
ná því að anna eftirspurn jafnóðum
og það er kominn eðlilegur gangur á
framleiðsluna."
Fiskkerin sem Sæplast framleiðir
eru í fimm stærðum og taka frá
300-1000 lítra. Eölileg framleiðsla er
60-75 ker á sólarhring.
Fiskkerin eru mjög að ryðja sér til
rúms. Þannig eru nú togarar að byija
að nota þau í stað kassa eins og t.d.
Guðbjörg frá ísafirði sem notar ein-
göngu 660 lítra ker um borð. Kristján
Áðalsteinsson sagði aö ending kerj-
anna byggðist að sjálfsögöu á þeirri
meðferð sem þau fá, en þau ættu að
endast betur en kassar, þeim fylgdi
vinnuspamaður, fljótari löndun og
þar sem fiskurinn verður fyrir
mdnna hpjaski ætti notkun þeiira
einnig aö tryggja betra hráefni til
vinnslu.
Útsala
Allt að 70% afsláttur.
AðeinsO dagar eftir
HAGKAUP
Kringlunni Skeifunni Kjörgarði Akureyri Njarðvík