Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
9
Útlönd
Bush tekur
af skarið
Norræn samvinna byggist
á nefndakjaftæðí
Gizur Helgasan, DV, Rærsnæs:
Norræn samvlnna er á leiöinni
að núllmarki og vantar allan þrótt,
segir sænski þingmaöurinn Lars
P. Gammelgárd. „Það verður að
endurvekja áhrifamátt norrænnar
samvinnu,“ sagði hann á sumar-
fundi Norræna félagsins í fyrra-
dag.
„Afnám vegabréfaskoöunar,
samnorrænn vinnumarkaður og
sameiginlegar reglur á félagslega
sviðinu eru ágætisárangur út af
fyrir sig. En það er ekki hægt að
hvíla að eilifu á lárviðarkrönsun-
um.“
„Það verður að hreinsa rækilega
til meðal hundraða stofnana,
nefhda, vinnu- og verkefnahópa en
þetta virðist vera það sem norræn
samvinna byggir á í dag. Það verð-
ur að leggja áherslu á einhvern
árangur út úr samvinnu Norður-
landa og einnig verða þau að fara
að ræöa hinn innri markað Evr-
ópubandalagsins en þar verða
kaflaskipti hjá tveimur Noröur-
landaþjóðum árið 1992 og hvað ætla ■
hin sér aö gera?“
Hitinn víða um fimmtíu stig
Arma Bjamason, DV, Denven
Steikjandi hiti samfara mjög röku
lofti hefur plagaö tugmilljónir
Bandaríkjamanna undanfama
daga.
Hitakófið náði til eystri helmings
Bandaríkjanna og var mun verra
norðan til en sunnan. Hitastigið
var viöa 95-105 gráöur á Fahren-
heit eða 35-41 stig á Celsíus í for-
sælu. Þegar reiknað var með raka-
stiginu samsvaraði hitakófið þetta
frá 110-122 gráðum á Fahrenheit
eða 43-52 stigum á Celsíus.
I New York voru öll loftkælingar-
tæki og viftur alls staðar uppseld-
ar. Minnkandi loftraka er spáð á
austurströndinni en sama kófið
verður í mið-vesturrikjunum þessa
vikuna að sögn veðurfræðinga. Þar
hefur hver hitabylgjan af annarri
gengiö yfir í sumar.
Stjómvöld hafa nú staðfest að
komuppskeran i Bandaríkjunum
verði fjömtíu prósentum minni en
í fyrra og sojabaunaframleiðslan
íjóröungi minni. Byxjað er að
skipta tæplega fimm milljarða rík-
isstyrk á milli bænda.
George Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna og forsetaframbjóðandi
repúblikana í forsetakosningunum
þann 8. nóvember, tilkynnti í gær að
hann hefði loks tekið af skarið um
hver yrði varaforsetaefni sitt. Það
var Dan Quayle, 41 árs öldungadeild-
arþingm^ður frá Indiana, sem Bush
tilnefndi.
Miklar bollaleggingar hafa veriö í
gangi hvern Bush myndi velja sem
varaforsetaefni sitt og hafa margir
þekktir menn verið nefndir í því
sambandi. Má þar t.d. nefna öldunga-
deildarmanninn Robert Dole, sem
þótti koma sterklega til greina, og
þingmanninn Jack Kemp en val á
Kemp hefði styrkt stöðu Bush meðal
íhaldsamari afla flokksins.
Bush hefur ekki enn sem komið er
gefið ástæður sínar fyrir valinu að
öðru leyti en því að Quayle sé fær á
sviði varnarmála og hafi til að bera
leiðtogahæfileika til að virkja vinnu-
afl Bandaríkjanna.
Val Bush kemur mjög á óvart þar
sem Quayle er tiltölulega óþekktur
maður. Sérfræðingar á Wall Street
sögöu í gær að þaö gæti skapað
nokkra óvissu með sigurmöguleika
repúblikana í nóvember en Quayle
er ekki eins þekktur meðal kaup-
sýslumanna og Lloyd Bentsen, sem
Michael Dukakis, forsetaframbjóð-
andi demókrata, hefur tilnefnt sem
varaforsetaefni sitt.
Stjómmálaskýrendur telja að þar
eð Quayle sé talinn í íhaldssamari
kantinum muni það hjálpa honum
til að hljóta stuöning meðal kaup-
sýslumanna. En afstaða hans varö-
andi mörg mál, sem koma til með að
setja mikinn svip á kosningabarátt-
una, til að mynda viðskiptahalla
Bandaríkjanna og flárlög, er enn
óþekkt.
Valið á Quayle yngir upp framboð
George Bush, frambjóðandi repúblikana í forsetakosningunum i haust, til-
kynnti í gær að hann heföi valið Dan Quayle sem varaforsetaefni sitt.
Simamynd Reuter
repúblikana. Quayle er 41 árs gam-
aUa en Bush er kominn yfir sextugt.
Aö sögn fréttaskýrenda styrkir þaö
þó ekki stöðu Bush á þann hátt sem
Bentsen styrkti stöðu Dukakis.
Heimafyllki Quayle, Indiana, hefur
aðeins tólf kjörmenn af þeim 270 sem
þarf til að sigra í kosningunum. Val-
ið á Quayle mun því ekki færa Bush
aukinn fjölda kjörmanna eins og tal-
Mlchael Dukakis, forsetaframbjóðandi demókrata, gagnrýndi val Bush í gær
og sagði Quayle reynslulausan.
Sfmamynd Reuter
ið er að Bentsen muni gera fyrir
Dukakis en heimafylki Bentsens,
Texas, hefur aUs 29 kjörmenn-
Að áUti stjómmálaskýrenda mun
val Bush á Quayle kaUa á gagnrýni
á tveimur sviðum. í fyrsta lagi vegna
reynsluleysis en Bush hefur marg-
sagt aö hann þurfi á reyndum manni
að halda sér við hUð og í öðru lagi
mim vaUð á Quayle, sem er tiltölu-
lega auðugur maður, renna enn frek-
ari stoðum undir þá skoðun að Bush,
sem er ríkur maður, geti ekki sett sig
í samband við meðalmanninn. Tveir
ríkir frambjóðendur geta þvi skaðað
framboð repúblikana. Dukakis hefur
hamrað á þeirri staðreynd aö hann
sé „bara venjulegur Bandaríkjamað-
ur“ en Bush hefur hlotið gagnrýni
demókratra fyrir að vita ekki viö
hvaöa aðstæður meirihluti Banda-
ríkjamanna býr.
Fréttskýrendur telja aö persónu-
legar ástæður hafi veriö þyngri á
metunum þegar Bush valdi Quayle
en pólitiskar. Valið mun einnig hafa
góð áhrif hvaö varðar almannatengsl
en Bush er nokkrum stigum á eftir
Dukakis í skoöanakönnunum.
Demókratar voru fljótir til aö gagn-
rýna val Bush og segja aö hann sé
reynslulaus og honum sé sama um
þarfir vinnandi Bandaríkjamanna.
Reuter
lækka
kosninga-
jIh m '
aiour
Stjórnvöld í Brasiliu tilkynntu
í gær að ákveðið heföi verið aö
lækka kosningaaldurinn þar í
landi. Framvegis fá íbúar þar
kosnlngarétt sextán ára gamlir
og er Brasilía fyrsta landiö sem
færir kosningarótt þetta langt
niður.
Brasilíumenn eru skyldugir til
þess að neyta kosningai’éttar síns
þegar þeir eru orðnir átján áræ
Farsíma til lengri og skemmri tíma
til einstaklinga og fyrirtækja
Sjónvörp í sumarbústaðinn og við önnur tæki-
færi, t.d. á sjúkrahús eða þegar tæki þitt bilar.
Video-myndatökuvélar.
Taktu mynd af fjölskyldunni, vinum og
ævintýrum sem aldrei koma aftur.
Sendum ef óskað er. Góð tæki - góð þjónusta.
Pöntunarsímar 651877 og 53776.
HLJÓÐRITI
LEIGJUM UT