Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
Utlönd
Sluppu með gísla
Tveim grímuklæddum ræningj-
um tókst í gær að komast undan
með mikla íjármuni og tvo gísla frá
banka í bænum Gladbeck í Vestur-
Þýskalandi. Mönnunum tókst að
komast á brott í bifreið sem lögregl-
an sá þeim fyrir, að sögn talsmanns
yfirvalda á staðnum.
Mennirnir tveir höíðu beint skot-
vopnum að gislunum sem þeir
höfðu handjárnað saman. Þeir
höfðu tekið um hundrað og tuttugu
þúsund mörk (um þrjár milljónir
króna) úr peningageymslu bank-
ans og höfðu að auki fengið þrjú
hundruö þúsund mörk (um sjö og
hálfa milljón króna) send lil bank-
ans.
Gíslar ræningjanna eru banka-
stjórinn og ein starfsstúlka bank-
ans. Höíöu ræningjamir haldið
þeim í gíslingu í bankanum, sem
er utibú Deutsche Rank í Gladbeck,
nærri
Dusseldorf, í fjórtán klukkustundir áður en lögreglan lét aö kröfiim þeirra.
Lögreglumenn umkringdu bankann í gærmorgun eftir að vegfarendur
sáu ræningjana taka gíslana fyrir utan hann við opnun útibúsins. Tals-
menn iögreglunnar segja að enn sé fylgst með ferðum bifreiðarinnar svo
að ræningjarnir eru ekki enn sloppnir í raun og veru.
Slepptu tveim ungmennum
Skæruliðar vinstrisinna í Kolumbíu slepptu í gær tveira imgum Banda-
ríkjamönnum sem verið hafa í haldi þjá þeim í nær ár.
Ungmennin tvö, Stephen Koneman og Jason McLachlan, báðir liðlega
tvítugir að aldri, hurfu í októbermánuði á síðasta ári þegar þeir voru í
bátsferð um fljót í suöaustanverðu landinu.
Báðir eru þeir við góða heilsu og segja að vel hafi verið farið með þá.
Deila á aðstæður Mandela
Lögreglumaður hleypur fáklæddur
í skjól eftir að hafa komið þrjú
hundruð þúsund mörkum til ræn-
ingjanna. Kústinn notaði hann til
að ýta peningunum að dyrum
bankans. Simamynd Reuter
Winnie Mandefa, dóttir hennar Zinzi og lögfræðlngur Mandela, koma
frá því að heimsækja Nelson Mandela á sjúkrahúsinu.
Simamynd Reuler
Fregnir af hrakandi heilsufari s-afríska blökkumannaleiðtogans Nelson
Mandela hafa vakið spurningar um hverjar aöstæður honum séu búnar
í fangelsi því er hann dvelur í. Mandela, sem nú hefur verið í fangelsi í
tuttugu og sex ár, er kominn með berkla í lungu og hefur verið fluttur á
sjúkrahús til meðferðar. Segja aðstandendur Mandela, sem er sjötugur
að aldri, að hann hafi horast verulega og virðist skyndilega mjög aidur-
hniginn. Vilja þeir kenna aðstæðum og slæmri meðferð um sjúkleika hans.
Nthatho Motlana, fjölskyldulæknir Mandela, sagöi í gær að þegar maö-
ur með þá hestaheilsu sem Mandela hafði fær berkla hljóti það að vekja
spurningar um meðferö þá sem hann hlýtur af hálfu fangelsisyfirvalda.
Stjórnvöld hafa ekki viljað staðfesta aö Mandela hafi berkla en segja
að honum hafi farið mikið fram síðan hann var fluttur á sjúkrahús til
þess að ná vökva úr vinstra lunga hans.
Ordaskakið heldur áfram
Fimmtán ungverskir liðsforingjar héldu í gær áleiðis Ul landamæra ír-
ans og iraks þar sem þeir verða hluti fríðargæslusvelta Sameinuðu
þjóðanna.
Slmamynd Reuter
Undirbúningur heldur nú áfram íyrir vopnahlé það milli írans og íraks
sem ganga mun í gildi innan fárra daga. Þrátt fyrir að vopnuðum átökiun
eigi nú að Ijúka milli ríkjanna tveggja heldur orðaskak þeirra áfram með
væmum ásökunum um árásir, trúnaðarbresti og tvöfeldni.
ar segja að íranar hafi gert ítrekaðar árásir á sveitir þeirra nærri
vfgstöðvunum. íranar neita öllum ásökunum en fullyröa að írakar hafi
í hyggju aö framkvæma stórsókn rétt áður en vopnahlé gengur í gildi.
sínum fyrir í ríkjunum tveim.
Tveir láta lífið
í fangabúðum
Tveir Palestínumenn létu lífið í
róstum sem brutust út í Kétziot
fangabúðunum sem eru í ísrael, við
landamæri Egyptalands. ísraelskir
lögreglumenn skutu táragasi og
byssukúlum aö miklum mannfjölda
sem safnaðist saman í búðunum að
sögn yfirvalda og létust mennirnir
af völdum skotsára.
Ekki er enn vitað hverjir mennirn-
ir voru en þó er talið að annar sé
íbúi Gaza-svæðisins og hinn búi á
vesturbakkanum. Frekari skýringar
á atburðinum voru ekki gefnar.
Talsmaður ísraelshers neitaði orð-
rómi um að tveir fangar til viðbótar
hefðu látist í átökunum en sagði aö
einn fangi hefði særst lítillega.
Heimildir innan ísraelshers segja
að þrjú þúsund fangar séu hafðir í
haldi í fangabúðunum. Flestir þeirra
voru handteknir og settir í varðhald
án þess að til réttarhalda yfir þeim
hefði komið. Flestir fanganna eru
haföir í gæslu ásakaðir um að hafa
hvatt til uppþota á herteknu svæðun-
um þar sem Palestínumenn hafa á
níunda mánuð staðið fyrir mótmæl-
um gegn hernámi ísraela.
Á Gaza-svæðinu lést einn fullorð-
inn Palestínumaður í gær af völdum
táragass sem hermenn skutu að mót-
mælendum. Mótmælin á Gaza-svæð-
inu héldu áfram í gær þrátt fyrir
útgöngubann yfirvalda i ísrael sem
sett var á á sunnudag.
Leiðtogar Palestínumanna á her-
teknu svæðunum hafa hvatt til alls-
herjarverkfalls á herteknu svæðun-
um í dag og kalla þeir daginn Jerú-
salem-dag til að mótmæla yfirráðum
ísraela yfir vesturhluta Jerúsalem.
Reuter
Leiðtogar Palestinumanna á herteknu svæðunum hafa hvatt tii allsherjar-
verkfalls i dag til að mótmæla yfirráðum ísraela yfir austurhluta Jerúsaiem
þar sem þessi mynd var tekin. Símamynd Reuter
Leggja fram friðaráætlun
Rauðu kmerarnir lögðu í gær
fram friðaráætlun til að reyna að
binda enda á nær tíu ára styijöld
í Kampútseu og vama því að kmer-
amir komist aftur til valda í
landinu.
Áætlun kmeranna gerir ráð fyrir
að herir allra deiluaðila yrðu undir
eftirliti alþjóðastofnana. Hún hvet-
ir til að bráðabirgðastjórn verði
sett á laggirnar undir forystu Si-
hanouks prins og gengið verði til
þingkosninga sem yrðu undir eftir-
liti alþjóðastofnana. Þingiö myndi
síöan setja á laggimar nýja ríkis-
stjóm til frambúðar. Áætlunin
leggur einnig til að stofhaður veröi
her sem fulltrúar allra fjögurra sem settur var upp til að reyna að
styrjaldaraðila eigi jafnan hlut i. miðla málum milli þeirra íjögurra
Kmeramir leggja til að þegar aöila sem aðild eiga að styijöld-
samkomulag miUi deiluaöila hafi inni, þremur skæruUðahópum og
náðst verði komið á alþjóðaráð- leppstjóm Víetnama, sem studd er
stefnu um styrjöldina í Karapútseu af Sovétríkjunum, tók til starfa.
sem fulltrúar ASEAN, ríkja Suð- VinnuhópurinnáaðskUaálitifyrir
austur-Asíu, og styrjaldaraðila eigi lok þessa árs um hvernig best sé
hlut að. að setja á stofn alþjóöaráðstefnu
Þeir hvetja tíl að fnðarsamkomu- um ástand mála í Kampútseu.
lag verði undirritað af deiluaðilum Líklegt var talið að tfilögum
til að koma í veg fyrir að kmerarn- kmeranna veröi hafnaö af yfirvöld-
ir komist til valda á ný og aö eng- um í Víetnam sem réðust inn í
inn einn flokkur nái einhUða völd- landið seint á árinu 1978 til að
um í landinu. steypa stjóm rauöu kmeranna.
Áætlun rauöu kmeranna var
gerð opinber áður en vinnuhópur,
LURIE
Skopmyndateiknarinn LURIE virðist telja að eitthvað sé um falskar nótur i „hagvaxtarsinfóníu“ Bandaríkjamanna.