Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
13
Fréttir
Gemlmötturmn Astra á loft um áramót
Detftur Póstur
og sími þá út
úr myndinni?
„Ef ráöuneytið ætlar að fara með
lögreglufylgd í hús og taka móttöku-
diska fyrir gervihnattasjónvarp nið-
ur þá gerist eitthvað. Ef þú lest út-
varpslögin, þá stendur þar að hverj-
um og einum sé heimilt að taka á
móti sjónvarpsefni á gervihnattadisk
sem er ætlað til sendinga til almenn-
ings. Það þarf brátt ekki neitt leyfi
frá Pósti og síma. Þessi hnöttur, sem
við horfum í gegnum núna, er íjar-
skiptahnöttur þó að efnið á honum
sé ætlað til almennra nota. Þarna
kemur túlkun laganna inn í mynd-
ina. Menn túlka þau misjafnlega. Af
því að efnið er sent um fjarskipta-
hnött vill Póstur og sími meina að
sendingamar séu undir sinni umsjón
og því verði þeir að gefa leyfi fyrir
móttöku sendinganna. Gervihnött-
urinn Astra, sem fer upp í lok árs-
ins, er almennur gervihnöttur með
16 rásir. Með tilkomu hans dettur
Póstur og sími líklega út úr mynd-
inni,“ sagði einn heimildamanna,
sem starfar í tengslum við móttöku-
diska, við DV.
Aðspurður hvemig væri með sjón-
varpsstöðvar sem ekki hefðu gefið
leyfi til móttöku á efni sínu, sagði
heimildamaður blaðsins að í raun
mætti hver og einn taka á móti efni
þeirra stöðva.
„Þessar stöðvar gefa ekki neinum
skriflegt leyfi til að taka á móti send-
ingunum. Ef þær gera það geta þær
veriö að brjóta alþjóðalög. Þá er hægt
að fara í mál við stöðvarnar. Stöðv-
arnar vilja ekki gefa skrifleg leyfi þar
sem mál í kring um höfundarétt og
þess háttar em svo flókin og hætta
á endalausum málaferlum. Stöðv-
arnar láta því móttöku á efni þeirra
afskiptalausa og koma til með aö
gera það. Það er í raun akkur fyrir
þær að hafa sem flesta áhorfendur
vegna auglýsingatekna."
-hlh
Vel yfir 100 móttökudiskar fyrir gervihnattasjónvarp hér á landi.
Aðgerðir vegna ólög-
legra diska væntan-
legar af hálfu yfiivalda
Menning
Móttökudiskum fyrir gervihnatta-
sjónvarp hefur fjölgað ört síðustu
misseri. Samkvæmt upplýsingum frá
innflytjendum eru þeir vel yfir 100
talsins. Póstur og sími hefur aðeins
gefið leyfi fyrir uppsetningu 40 slíkra
móttökudiska. Hefur samgöngu-
ráðuneytið ásamt Pósti og síma
ákveðið aðgerðir gagnvart þeim sem
sett hafa upp móttökudiska í leyfis-
leysi en ekki er vitað hvenær eða
hvernig þeim aðgerðum verður hátt-
að.
Ragnhildur Hjaltadóttir hjá sam-
gönguráðuneytinu sagði að ekki
væri tímabært að segja um hverjar
aðgerðir hins opinbera yrðu.
„Aðgerðir okkar verða fram-
kvæmdar á þeim grundvelli að þessi
starfsemi, þaö er móttaka sjónvarps-
efnis um gervihnött, sé leyfisskyld.
Það hefur átt sér stað ólögleg upp-
setning á diskum en móttaka efnisins
er háð samþykki frá rétthöfum efnis-
ins.“
Gústav Arnar hjá Pósti og síma
sagði að móttökudiskarnir, sem sett-
ir heföu verið upp í leyfisleysi, væru
margir.
„Við höfum ekki talið diskana en
miðum við tölur frá innflytjendum.
Samkvæmt þeim er ekki- leyfi fyrir
helmingi diskanna.
Skilyrði fyrir uppsetningu mót-
tökudiska er fyrst og fremst að menn
hafi útvegað sér leyfi frá rétthöfum,
það er þeim sem eru eigendur efnis-
ins. Þama er um að ræða flutning
efnis í gegn um fjarskiptatungl. Þess
vegna er litið svo á að þeir sem biðja
um sendingu á efni í gegn um fjar-
skiptatungliö eigi allan rétt á dreif-
ingu efnisins og það geti ekki hver
sem er farið að horfa á þetta eða
dreifa nema hafa fengið leyfi frá þeim
aðilum," sagði Gústav.
Auk leyfisins tók hann fram að
búnaöurinn yrði aö vera viður-
kenndur af yfirvöldum fjarskipta
hér. Hvað varðar sendingar ein-
stakra stöðva sagði Gústav:
„Sjónvarpsstöðin SKY Channel
sendir aðallega til kapalkerfa en
stöðin hefur ekki á móti því aö ein-
stakir aöilar taki á móti efni frá
henni. Hún gefur fúslega leyfi. Sum-
ar stöðvar gera það ekki, þar á með-
al sumar ítalskar og svissneskar.
Þær stöðvar standa fast á rétti sínum
að þær eigi efnið og enginn eigi að
taka á móti því nema borga fyrir
það. En það er mjög erfitt að hafa
eftirlit með þessu.
Þeir hjá Super Channel segja hins
vegar að þar sem þeir hafi ekki sam-
ið við rétthafa efnisins um sendingar
á íslandi gefi þeir ekki leyfi til send-
inga hér. Ef einhver tekur á móti
efni Super Channel hér á eigandi efn-
isins kröfur á hendur Super Channel
fyrir ólöglega dreifingu. Það koma
ipjög flókin réttindamál þarna inn í
myndina. Við viljum tryggja okkur
þannig að enginn eigi kröfu á opin-
bera aðila hér í tengslum við höfund-
arrétt.“ -hlh
Ingunn Ásdísardóttir leikstjóri laðar fram glaðleg svipbrigði hjá leikurunum Viðari Eggertssyni og Erlu B.
Skúladóttur. DV-mynd JAK
Fyrsta leikrit vetrarins:
Alþýðuleikhúsið frumsýnir
Elskhugann efUr Pinter
Annað kvöld, fimmtudag, frumsýnir
Alþýðuleikhúsið Elskhugann eftir
Harold Pinter. Þar með er leikhús-
starfsemi í Reykjavík hafin á þessum
vetri.
Harold Pinter fæddist 1930 og er
frægasta leikskáld Breta af sinni
kynslóð. Leikrit eftir hann voru flutt
í Þjóðleikhúsinu fyrir allmörgum
árum. Síðan var lítið sem ekkert sýnt
eftir hann langa hríð. En síðasta vet-
ur fóru tveir leikhópar að glíma við
verk hans. Heimkoman var sýnd í
Gamla bíói undir stjórn Andrésar
Sigurvinssonar og einþáttungamir
Eins konar Alaska og Kveöjuskál hjá
Alþýðuleikhúsinu undir stjórn Ingu
Bjarnason.
Báðar þessar sýningar þóttu mjög
góðar og Amar Jónsson hlaut menn-
ingarverðlaun DV fyrir leik sinn í
Kveðjuskál. Það fjallar um pyntingar
og lék Arnar böðul fullan kvalalosta.
Elskhuginn lýsir sálarástandi
hjóna nokkurra sem að því er virðist
lifa í hnökralausri sambúð. En Pinter
er meistari í að grafa undir yfirborð-
ið og leiða í ljós að sjaldan er allt sem
sýnist. Persónur hans segja eitt en
hugsa annað. Þær reyna í lengstu lög
að villa á sér heimildir. „í stað þess
að sýna tilfinningaleg viðbrögð sín,
stríða þær hver annarri, særa hver
aðra með lygum og ásökunum, leggja
snömr hver fyrir aðra til þess að fá
uppljóstrað leyndarmálum, sem bet-
ur lægju í þagnargildi,“ ritar Martin
Regal í leikskrá,
Viðar Eggertsson og Erla B. Skúla-
dóttir leika hjónin í þessu spennandi
sálfræðidrama. Með aukahlutverk
fer Kjartan Bjargmundsson. Leik-
stjóri er Ingunn Ásdísardóttir sem
þýtt hefur leikinn í samvinnu við
Martin Regal. Leikmynd og búningar
em eftir Gerlu, tónlist eftir Lárus
Grímsson en lýsingu annasi Egfil
Öm Árnason.
Oskum eftir
að taka á leigu bílskúr eða geymslu
húsnæði, helst í Norðurmýrinni
eða Hlíðunum.
Rauði kross
íslands
Sími 26722.
Framkö llun
Enn sem fyrr er Alþýðuleikhúsið á
faraldsfæti en hefur að þessu sinni
fengið inni í Ásmundarsal við
Freyjugötu.
ihh
'LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF
Laugavegi 178 • Reykjavik - Simi 685811