Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
19
Gagnrýnendum fannst húsið vera léleg eftirlíking af Southfork.
Draumahús Söru
„Léleg eftirlíMng af Southfork- bú-
garðinum úr Dallasþáttunum,“
sögðu þagnrýnendur um hið fyrir-
hugaða hús hertogahjónanna af Jór-
vík þegar líkan af því var til sýnis
fyrir nokkru. Húsið mun standa milli
Windsor og Ascot.
En Sara, sem hefur fylgst með
teikningu hússins frá fyrsta penna-
striki, er yfir sig ánægð. Þó að hún
væri alveg komin að því að fæða
eyddi hún miklum tíma í það að
skipuleggja barnaherbergið sem hún
vill að verði alveg fullkomið. Þó mun
enn vera eitt eða jafnvel tvö ár þang-
að til hjónin flytja inn.
Sara er ákveðin í því að umhverfis
húsið verði góður garður þar sem
hún geti leikið við bamið. Einnig
verður þar stór sundlaug, tennisvöll-
ur, falleg tijágöng og blómaraðir
meðfram öllum gangstígum.
Hertogahjónin eiga þegar hús í
Surrey en þar sem Andrew er mikið
til sjós hefur Sara orðið einmana.
Þau hafa einnig íbúð í Buckingham-
höllinni en þar þrífast þau ekki.
Jórvíkurhúsið
Sara hefur haft góðan og nægan tíma
til að skipuleggja húsið eftir að
Andrew fór til sjós en hann var í
burtu í allt sumar og kemur reyndar
ekki aftur heim fyrr en í vetur. Það
er hinn þekkti arkitekt, James Dun-
bar-Nashmit, sem fékk þann heiður
að teikna húsið sem þegar hefur hlot-
ið nafnið The House of York. Sara
hafði frá upphafi hugsað sér að fá
bandaríska arkitektinn Parish Had-
ley til að innrétta húsið en þá lagði
Philip drottningarmaður blátt bann
við því. Arkitekt þessi mun híeðal
annars hafa séð um breytingar á
Hvíta húsinu þegar Jackie Kennedy
var forsetafrú en það þótti ekki hæfa
að Bandaríkjamaður sæi um innrétt-
ingar í konunglegum bústað á Eng-
landi.
Svefnherbergið eins og hjá
vændiskonu
Sara hefur því aö miklu leyti haft
fijálsar hendur um innréttingu húss-
ins. Þó mun tengdafóður hennar hafa
þótt nóg um svefnherbergið og fund-
ist þaö eins og dyngja vændiskonu
og tengdamamma gerði sínar at-
hugasemdir við veröndina og þakið.
Á veröndinni eru súlur í grískum
stíl og finnst Betu þær vera of mikiö
pijál. Einnig finnst henni tígulsteins-
þakið ákaflega smekklaust.
Hertogahjónin hafa lagt mesta
áherslu á að hafa húsið stórt og
rúmgott og að gaman og gott væri
að búa í því. Samtals munu verða 20
herbergi í hinu tveggja hæða húsi.
Um 80 milljónir mun vanta til þess
að klára húsið. Upphæö þessi mun
þykja í hærra lagi fyrir hertogahjón-
in þar sem laun prinsins séu ekki há.
Ekki er enn vitað hversu margt
starfsfólk þeirra hjóna verður en tal-
ið er að það verði ekki margt því
þeim þyki best að sjá um sig sjálf.
Hin nýbakaða móðir, hertogaynjan
af Jórvík, hefur haft nóg að gera við
að innrétta draumahúsið.
Robin Williams:
Þjáðist Lennon af
sjúklegu lystarleysi?
Svo virðist sem bitillinn John „Hann mælir ennþá á sér mittið
Lennon hafi þjáðst af sjúklegu lyst- á hverjum raorgni þegar hann fer
arleysi (anorexia) og boröað of- á fætur og ef hann syndgar með
skynjunarlyfið LSD eins og þaö þvíaðborðaeitthvaðafbannlistan-
væri sælgæti ef mark skal tekið á um fer hann inn á baðherbergi og
nýrri bók en kaflar úr henni birt- stingur puttanum í kokið.“ Þannig
ust fyrir stuttu í bandaríska viku- lýsir Goldman Lennon árið 1979.
blaðinu People Weekly. Goldman segir aö á þessum tíma
Höfundur bókarinnar er Albert hafi Lennon verið fjarlægur og þög-
Goldman og ber bókin nafnið The ull og i heil þijú ár hafi hann hald-
Loves of John Lennon. Heldur ið sig mest í svefnherbergi sínu í
Goldman því fram aö Lennon hafi hinni glæsilegu Dakotabyggingu.
mest allt sitt líf reynt að svelta sig „Mest allan daginn situr hann
til þess að reyna að vera fullkom- með krosslagöa fætur umvafinn
inn. tóbaks- og marijúanaskýi Hann
Goldman er fyrrum prófessor í les, hlustar á spólur eða stundar
ensku og hefúr skrifað ævisögu innhverfa íhugun,“ skrifar Gold-
Lenny Bruce og Elvis Presley. man.
HannrekurvandamálLennonsaft- Árið 1967 hélt Lennon því fram
ur til ársins 1965 þegar einhver lýsti að ofskynjunarlyfið LSD heföi gefið
honum sem „feita bítlinum“. Gold- sér nýja vidd og breidd og heim-
man segir í bókinni aö sú setning spekihuga. „Ég hlýt að hafa farið í
hafi orðiö svo mikiö áfall fyrir hið þúsund „feröir'*. Ég borðaði þetta
viðkvæma sjálfsálit Lennons að einsogsælgætí,“erhafteftirLenn- Ef marka má nýja bók um John Lennon þjóðist hann af sjúklegu lystar-
aldrei hafi gróiö umheilt eftir það. on. leysl og borðaói ofskynjunartyfid LSD eins og sælgæti.
Kominn á réttan kjöl
Áhorfendur sofnuðu yfir síðustu
mynd hans, en Robin Williams mun
svo sannarlega halda þeim vakandi
með nýjustu mynd sinni, Good
Morning Vietnam.
Myndin, sem verður sýnd hér á
landi innan tíðar, hefur notið mikilla
vinsælda í Bandaríkjunum. Þegar
hafa selst miðar fyrir tæplega 6 millj-
arða og myndin hefur tvímælalaust
skotíð Robin aftur upp á sljömuhim-
ininn. Velgengnin heföi ekki getað
komið á betri tíma. Eiturlyfjaneysla,
drykkja og fjöldi misheppnaðra kvik-
mynda skildi Robin eftír með skilnað
og frama á niðurleið.
En skyndilega er hann aftur á
toppnum, nærri því tíu áram eftir
að hann varð frægur fyrir að leika
geimveru í sjónvarpsþáttunum Mork
og Mindy. í kvikmyndinni má finna
sömu kímni og í sjónvarpsþáttunum.
Góóóóóðan dag Vietnam
Myndin er byggð á sannri sögu um
plötusnúð sem sendur er tíl Víetnam
til að stappa stáli í hermennina. Á
hverjum degi byijar hann útsend-
ingu með því að hrópa
„Gooooooooooooood Moming Viet-
nam.“ Plötusnúðurinn veröur hetja
í augum þúsunda hermanna því
hann leikur fyrir þá-rokktónlist.
Hann gerði grín að og hermdi eftir
Nixon Bandaríkjaforseta, auk þess
sem hann tók upp á öllu mögulegu
öðru.
Þaö má segja að Robin hafi orðið
frægur á einum degi fyrir Mork og
Mindy og það varð hreinlega of mik-
ið fyrir hann. „Ég var 26 eða 27 ára
og skyndilega átti ég alla þessa pen-
inga. Lífið gekk út á konur og eitur-
lyf,“ sagði Robin.
Háður konum,
eiturlyfjum og áfengi
Hann gat ómögulega sagt nei við all-
ar þær konur sem hentu sér að fótum
hans - jafnvel þótt hann væri nýgift-
ur. Hann var háður konum eins og
eiturlyfjum. Auk kvennanna var
hann reiöubúinn tíl að déila kókaíni
með stjörnum Hollywood.
Fljótlega varð líf hans að einu stóru
partýi með eiturlyfjum og víni. Hann
hvarf svo dögum skiptí án þess að
hafa neitt samband við konu sína,
Valerie Velardi. Það var á einum
túrnum sem hann heimsóttí gaman-
leikarann, John Belushi, og tók inn
kókaín með honum á hóteli í Holly-
wood. Aðeins nokkrum klukkutím-
um seinna var John Belushi liðið lík.
Dauði Johns og sú staðreynd aö
eiginkona hans var barnshafandi
fullvissaði hann um það að hann
yrði að koma lífi sínu á réttan kjöl
aftur. Sex mánuðum áður en sonur
hans, Zachary, fæddist í apríl 1980,
þá sagði hann skilið við áfengið og
eiturlyfin.
Nýir tímar
Valerie eignaðist barnið og fiölskyld-
an fluttí tíl San Francisco. í þeirri trú
að Robin væri hættur að fara á fjör-
urnar við kvenfólk, réð Valerie hina
26 ára gömlu Marsha Garces sem
barnfóstru sonar síns. Robin féll flat-
ur fyrir henni. Marsha og Robin
stofnuðu heimili saman fyrir nærri
tveimur árum og Valerie hefur feng-
ið skilnað.
Fyrri myndir Robins náðu aldrei
neinum vinsældum. Popeye, The
World According to Garp og Moscow
on the Hudson fengu góða dóma en
slógu aldrei í gegn. Eftir það kom
hann fram í nokkrum myndum sem
voru alveg dauðadæmdar, The
Survivors, The Best Times og Club
Paradise.
Good Moming Vietnam gætí þýtt
nýja tíma fyrir leikarann Robin Will-
iams.
Robin Williams héfur slegið í gegn
i myndinni Good Morning Vietnam.
Sú mynd verður væntanlega sýnd
hér á landi innan tíðar.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði . . .
George
Michael
er sagður vera mjög veikur fyrir
austurlenskum húsgögnum.
Þetta er þó mjög dýr, reyndar
fokdýr, smekkur. Poppstjarnan
mun nýlega hafa pantað mikið
af húsgögnum frá Japan og mun
sendingin kosta hann litlar 70
milljónir króna. Sagt er aö hús-
gagnaframleiðandinn hafi bein-
línis grátið af gleði er honum
barst pöntunin. Og er það nokkur
furða?
Paul
McCartney
lét hjartaö ráða ferðinni á styrkt-
aruppboði í London. Paul er ann-
ars þekktur fyrir að halda fast
utan um pyngjuna. Boðinn var
upp forláta handsmíðaður gítar
og ekki ómerkari menn en Phil
Collins og Eric Clapton höfðu
mikinn hug á að tryggja sér grip-
inn. En aö lokum fór svo að gítar-
inn var sleginn Paul fyrir tæplega
3 milljónir króna.
Stephanie
Mónakó-
prinsessa
er nú ákaflega spennt. Hingað til
hefur Hollywoodfrægðin ekkert
látið á sér kræla þó að Stephanie
hafi mikið reynt til að fanga hana.
Nú er þó möguleiki að hún sé á
næsta leiti því Stephanie komst
nefnilega í reynsluupptöku fyrir
hlutverk í nýjum sjónvarps-
myndaflokki. Flestir telja að hún
sé nokkuð örugg með að fá hlut-
verkið. Hvort sem hún hefur
hæfileika eður ei þá hefur hún
þó aUavega rétta nafnið.