Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.1988, Side 20
20
Iþróttir
Nafn: EðVarð Þór
Eðvarðsson.
Aldur: 21 árs.
Hæð: 1,87 m.
Þyngd: 78 kg.
Félag: UMFN.
• Eðvarð Þór Eðvarðsson.
„Hæfilega
bjartsýnn“
„Eg hef æft af fullum krafti í
allt sumar. ÆQngar hafa verið
sex daga vikunnar, íjórir til
fimm tímar á dag. Það er nokk-
uö ljóst að sundkeppnin á
ólympíuleikunum verður mjög
hörð og spennandi. Framfarim-
ar hafa oröiö gífurlegar á síð-
ustu árum,“ sagði Eðvarð Þór
Eðvarðsson, sundmaður úr
Njarðvík.
Eövarö Þór hefur um nokk-
urra ára skeiö veriö okkar allra
sterkasti sundmaður og í dag á
hann Noröurlandametið í 200
metra baksundi. Eðvarð Þór er
einn þeirra íslensku keppenda
i Seoul sem hvað mestar vonir
eru bundnar við. Við raraman
reip er að draga en á góðura
degi er Eðvarð Þór vís til alls.
„Þaö er mjög erfitt að segja til
um hverjir möguleíkar rainir
verða á ólympiuleikunum. Ég
keppi bæði i 100 og 200 metra
baksundi og mun leggja meiri
áhersiu á 200 metra sundið sem
er mín sterkasta hliö. Til að
komast í lokaórslitin verö ég
eins og máiin standa í dag að
rústa Norðurlandameti mínu í
200 m baksundinu. Á góðum
degi ætti ég að slá metið.
OL88
Af þeim sem keppa í 200 metra
baksundinu er ég með 13. besta
tímann. Helstu keppinautar
minir í sundinu verða tveir
Kanadamenn, Marphy og
Tewsburry, Battisteili frá ítal-
íu, Polianski frá Sovétrikjunum
og heimsmethafinn Berkoff frá
Bandafíkjunum. Ég hef raunar
keppt gegn Berkoff nokkrum
sinnum og unnið hann tvdsvar.
Svo má ekki gleyma sund-
mönnum frá Austur-Þýska-
iandi sem koma örugglega til
meö að verða meðal efstu
manna.
Við munum fara til Seoul 8.
september þannig aö við fáum
góöan tíma til aö laga okkur að
aðstæðum. Sjálf keppnin á
ólympíuleikunum befst síöan
20. september. Sundinu hefur
fleygt gifurlega fram á síöustu
árum og ég fæ ekki betur séð
en að ég verði að synda á ekki
undir 2:02,00 mínútum til aö
komast í úrslit en Norðurlanda-
met mitt er 2:02,79 mínútur, Ég
get sagt að ég sé hæfilega bjart-
sýnn. Ég mun gera mitt besta,“
sagði Eðvarð Þór Eðvarðsson.
-JKS
© PIB
COPiNMkCtN
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1988.
Stúfar úr
1. deild
1100. mark Vals
Þegar Tryggvi Gunnarsson sendi
boltann í mark Völsunga á
sunnudagskvöldiö var það 1100.
markið sem Valur skorar í 1.
deildar keppninni frá upphafi.
Ekkert annað félag hefur skorað
jafnmörg mörk en næstir koma
KR-ingar með 1034 mörk.
Víkingar í 800
Sigurmark Björns Bjartmarz
gegn Leiftri var 800. markið sem
Víkingar skora í deildakeppninni
frá upphafi. Þar af eru 490 í 1.
deild og 310 í 2. deild. Víkingar
fóru jafnframt yfir 500 stiga múr-
inn með sigrinum - þeir hafa nú
fengið 321 stig í 1. deild og 180 í
2. deild eða 501 samtals.
60. mark Guðmundar
Guðmundur Steinsson skoraði
sitt 60. mark í 1. deildar keppn-
inni gegnÍBK í fyrrakvöld. Hann
er annar Framarinn sem nær
þeirri tölu, Kristinn Jörundsson
skoraði 61 fyrir félagið á sínum
tíma. Guðmundur er nú orðinn
sjöundi markahæsti leikmaður
1. deildar keppninnar frá upphafi.
30. mark Halldórs
Halldór Áskelsson skoraði sitt 30.
mark í 1. deild fyrir Þór þegar
liðið mætti ÍA í fyrrakvöld. Hann
er markahæsti leikmaður félags-
ins í deildinni frá upphafi.
50. leikurSigurðar
Siguröur B. Jónsson, ÍA, lék sinn
50. leik með ÍA í 1. deildar keppn-
inni gegn Þór í fyrrakvöld.
MII^IIIIMI
<3® -
K s- ■ 458*;
**' <- ■WS' <• ■> Qm
' V' "" ' >
■• ;<' f'
• í- : -w- •:: • ;■ :
.x. :• ' *■:•'. -••« •• y
„Hann verður myrtur, ekki ég“„ne)ateik,
teljast að þeir hóti hver öðrum lífláti. Nú eru taldar yfirgnæfandi líkur á þvi að Band
bleyleikvanginum í London 8. október. Andstæöingur hans verður þá Bretinn Frank
hefur andstæðinga án mikiilar fyrirhafnar í síðustu bardögum sinum. Bruno er þó kokhra
Nýir skorarar
Þrír leikmenn skoruðu sitt fyrsta
1. deildúr mark í leikjum 13. um-
ferðar. Ásmundur Arnarsson
fyrir Völsung gegn Val, Björn
Bjartmarz fyrir Víking gegn
Leiftri og Alexander Högnason
fyrir ÍA gegn Þór.
Valur vann
í vígsluleik
Guðmundur Davíðsson, DV, Siglufirði:
Valur vann Siglfirðinga 9-4 í
vígsluleik á hinum nýja grasvelli
á Siglufirði í gærkvöldi. Staðan í
hálfleik var 5-3 og eins og tölurn-
ar bera með sér var leikurinn
mjög skemmtilegur og fjörugur á
að horfa.
Hvað segja golfaramir um mótið?
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Völlurinn er mjög góður og mér líst
á þetta mót. Það er ætlunin að standa sig
vel og það á ekki að spilla að ég þekki
völlinn mjög vel - það má segja að ég
leiki á heimavelli," sagði Sigurður Sig-
urðsson, íslandsmeistari í golfi, um
væntanlegt Norðurlandamót sem fram
fer á Hólmsvelli við Leiru um helgina.
Úlfar Jónsson, fyrrum íslandsmeistari,
var ekki alveg eins ánægður með aðstæð-
umar en sagðist annars nokkuð bjart-
sýnn á gott gengi.
gotfi í
„Ég verð að segja eins og er að ég er
ekki nógu ánægður meö völlinn. Við
verðum að halda okkur vel á brautinni
því að við megum alls ekki missa kúluna
út í kargið. Það gætu orðið dálitlir erfið-
leikar út af því og ég held að hinir út-
lendu spilarar komi til með að hagnast á
þessu,“ sagöi Úlfar.
„Ég tel að við eigum möguleika á að
ná þriðja sætinu. Danir og Svíar koma
sennilega til með aö berjast um sigurinn
enda hafa þeir sterkum golfurum á að
skipa. Mitt eigiö markmið er að rífa mig
upp úr lægðinni sem ég hef verið í að
nánd
undanfórnu og ég ætla að leggja allt í
sölurnar til að standa mig vel í þessari
keppni.“
„Mér finnst völlurinn ágætur. Viö er-
um búin að spila mikið á þessum velli
að undanfórnu. Lokaundirbúningurinn
stendur nú yfir hjá okkur og ég er nokk-
uð bjartsýn á þetta og vona bara að mér
gangi allt í haginn,“ sagði Steinunn Sæ-
mundsdóttir, Islandsmeistari kvenna, í
samtali við DV í gærkvöldi.
Það er því augljóst að hugur er í okkar
mönnum rétt fyrir sjálft mótið.